Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 17

Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 17 Sturtuklefar heilir með 4 hliðum, sturtubotni og sturtusetti. Stærðir 70x70, 80x80, 90x90 og 72x92 Bæði ferkantaðir og bogadregnir. Heilir sturtuklefar Ármúla 21, sími 533 2020 1966. Formennskan leiddi til þess að hann gaf kost á sér í prófkjöri fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 1970 og hlaut bindandi kosningu í þriðja sæti en samþykkti að víkja og taka áttunda sætið sem var baráttu- sætið. „Við unnum þessar kosningar og það varð upphafið af tólf ára ferli mín- um í borgarstjórn,“ sagði hann. „Ég kynntist störfum í borgarstjórn ansi vel því fyrstu fjögur árin sat ég í borg- arráði, næstu fjögur var ég forseti borgarstjórnar og síðustu fjögur árin sat ég sem óbreyttur borgarfulltrúi í minnihluta. Ég fékk því góða heild- armynd af því hvernig borgarstjórn starfar. Það eru óneitanlega viss for- réttindi að fá að starfa í stjórn sveitar- félags og kynnast mörgum mála- flokkum. Það er nú svo, að fyrir flestum vakir velferð síns sveitarfé- lags þannig að mikill hluti mála í sveitarstjórn er afgreiddur sam- hljóða. Það er svona í stóru megin- málunum sem menn greinir á og þau eru auðvitað mjög veigamikil. En ég er þeirrar skoðunar að það sé ekki allra að sitja í óskaplega langan tíma heldur eigi reglulega að kalla inn nýja menn með ný viðhorf eins og gert er hjá mínum flokki, Sjálfstæðisflokki. Ég hef sagt að þeir sem ekki komi því að sem þeir vilja á tólf árum, þeir gera það ekki eftir það en vissulega þarf vissa kjölfestu manna sem gera stjórnmál að ævistarfi.“ Umskiptin ekki erfið Ólafur hætti afskiptum af stjórn- málum árið 1982 í kjölfar breytinga, sem átt höfðu sér stað við fráfall Bald- vins Einarssonar, stjórnarformanns Almennra trygginga hf. „Baldvin var mikill vinur minn og mín skylda var sannarlega við mitt félag þá og gekk ég heilshugar til þeirra starfa,“ sagði hann. Og nú tæpum fjörutíu árum frá því að hann hóf störf hefur hann ákveðið að hætta afskiptum af dag- legum rekstri. „Fram til þessa hafa umskiptin ekki reynst mér erfið. Sennilega vegna þess að ég er þeirrar skoðunar að menn eigi að draga sig til baka þegar komið er á minn aldur. Sjóvá-Almennar er stórt, flókið félag í samkeppni og þá eiga menn að hleypa yngri mönnum að rekstrinum,“ sagði Ólafur. „Ef menn vilja nýta sér reynslu og þekkingu þeirra sem eru eldri þá stendur það til boða. Ég setti mér þá reglu strax við sameiningu fé- laganna að svona skyldi þetta vera og hef gengið að því með opnum hug að starfslok yrðu um þetta leyti og mið- aði við að sitja ekki lengur en til 65 ára aldurs en þeim aldri næ ég seinna á árinu. Ég er því mjög sáttur.“ Hann bendir á að nú gefist einnig tækifæri til að eyða lengri frístundum í sumarbústaðnum á Þingvöllum. „Kona mín, Jóhanna Jórunn, hefur verið mín stoð og stytta í lífinu,“ sagði Ólafur. „Við eigum einn son, Hilmar, sem kvæntur er Hlíf Arnlaugsdóttur og eitt barnabarn, einn lítinn Ólaf B. og eitt af tilhlökkunarefnunum er að nú getum við eytt meiri tíma saman á Þingvöllunum.“ Auk daglegra starfa og þátttöku í stjórnmálum hefur Ólafur haft af- skipti af félagsmálum og átt sæti í stjórnum ýmissa fyrirtækja og sam- taka og meðal annars haft afskipti af Vesturfarasetrinu á Hofsósi og þeirri vinnu sem hefur átt sér stað við að treysta böndin vestur um haf. Hann hefur verið ræðismaður Japan á Ís- landi í 20 ár og sagði hann að í því starfi hafi honum gefist gott tækifæri til að kynnast áhugaverðum mönnum og málefnum. „Stóru áhugamálin í lífinu tengjast þó tónlist,“ sagði hann. „Ég hef fengið tækifæri til að starfa á því sviði bæði í stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands en þar var ég stjórnarformaður um tíma og eins með Sinfóníuhljómsveit æskunnar þegar hún starfaði og nú síðast vann ég sem formaður sam- starfsnefndar ríkis og borgar að framgangi þess að hér rísi tónlistar- hús í tengslum við ráðstefnumiðstöð og nýtt hótel í Reykjavík. Ég er að vona að tónlistarhúsið sé eitt af þeim verkefnum, þar sem undirbúnings- tíminn er langur og framkvæmdatím- inn stuttur. Nefndin sem ég veitti for- ustu starfaði frá ársbyrjun 1999 og þar til skrifað var undir samkomulag 11. apríl síðastliðinn. Nú færist þetta mál á næsta stig sem er að leita eftir áhugasömum fjárfestum meðal ann- ars á Evrópska efnahagssvæðinu, sem vilja koma að framkvæmdinni því þetta á að vera einkaframkvæmd. Síðan fer fram forval og í kjölfar þess útboð á framkvæmdum. Það eru margir sem bíða eftir þeim degi að húsið opni og einn af þeim ágætu mönnum er Vladimir Ashken- azy, heiðursstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Hann er reiðubúinn til að stjórna hljómsveitinni þann dag og ég hef bent á bæði í gamni og alvöru að Ashkenazy er ákaflega eftirsóttur listamaður og þótt ekki væri nema vegna annríkis hans er ástæða til þess að fara bráðum að tímasetja opnunar- tónleikana.“ Morgunblaðið/Þorkell „Frumskylda vátryggingafélags er að hagnast, byggja sig upp og styrkjast, því hver vill trúa veikburða vátryggingafélagi fyrir aleigu sinni?“ spyr Ólafur sem starfaði hjá Sjóvá-Almennum í hartnær fjóra áratugi. FRÉTTIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.