Morgunblaðið - 05.05.2002, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 05.05.2002, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁRNI Sigfússon segir aðframsýni og áræðnistofnenda FÍB hafi veriðumtalsverð. Félagið erstofnað 1932, í miðri kreppunni miklu, eftir hrunið á fjár- málamörkuðum Wall Street 1929. Fyrsta starfsárið gengu eitthundrað bíleigendur í félagið. Nú eru fé- lagsmenn orðnir 19 þúsund. „Stofnendur félagsins voru fram- sýnir menn. Þeir sáu fyrir sér það frelsi sem bíllinn veitir til hvers konar athafna; vinnu, ferðalaga og skemmt- unar. Bílar voru vissulega ekki al- menningseign árið 1932. Alls voru skráðir bílar á landinu þá 1.561, eða einn bíll á hverja 70 landsmenn. Í dag er bifreiðaeign landsmanna um 150 þúsund bílar, þ.e. að tveir landsmenn eru um hvern bíl! Líklega eru þó um 130 þúsund bílar í notkun. Á 70 árum hefur vegakerfið fimmfaldast að lengd, vaxið úr torfærum 2.500 kíló- metrum í 13.000 kílómetra af vel fær- um akvegum. Það er merkilegt að hugsa til þess að þegar félagið er stofnað er það ein meginforsenda stofnunar þess að gera eigendum einkabifreiða mögulegt að ferðast með bíla sína til útlanda og þeir geti ferðast um á erlendri grundu á eigin bílum. Til að undirstrika þetta, gerist félagið strax árið eftir aðili að AIT, Alþjóðasamtökum bifreiðaeigenda- og ferðaklúbba, til að gera fé- lagsmönnum mögulegt að ferðast á eigin bílum yfir landamæri þjóð- ríkja,“ segir Árni. Styrkir frá FÍB til vegagerðar Fyrstu baráttumál félagsins voru þau að akfærir vegir yrðu lagðir um landið og að sómasamlegt vegasam- band kæmist á milli allra helstu þétt- býlisstaða og byggða í landinu. Jafn- framt yrði komið upp þjónustu- stöðum við bíleigendur sem víðast og að eldsneyti yrði fáanlegt um allt land. Það var einnig strax í upphafi mörkuð sú stefna að auka umferðar- öryggi og umferðarmenningu sem enn í dag er eitt af meginmarkmiðum félagsins. „Í þessum tilgangi veitti FÍB rík- inu styrki til vegagerðar og vegabóta, m.a. á veginum um Kópavogsháls. Ennfremur kostaði félagið að hluta uppsetningu umferðarskilta við vegi og götur. FÍB er á hinn bóginn alfarið rekið á félagsgjöldum og hefur ekki þegið op- inbera styrki í starfsemi sinni.“ Um fjórir áratugir eru frá því að fyrst var byrjað að ræða um að koma upp akstursgerði til æfingaaksturs. Það var FÍB sem fyrst kynnti þetta mál og vakti almennan áhuga á því. Félagið gerði svo enn betur og lét hanna og teikna slíka æfingaaksturs- braut og gaf síðan umferðaryfirvöld- um teikningarnar og útvegaði auk þess land fyrir brautina í nágrenni höfuðborgarinnar. Engu að síður hef- ur slík braut enn ekki orðið að veru- leika. Árni segir að það sé brýnt ör- yggismál að af þessu verði sem fyrst. Ferðamál, vegamál og öryggismál umferðarinnar voru þannig strax meðal meginbaráttumála félagsins. En félagið hefur einnig látið neyt- endamálefni tengd bifreiðaeign mjög til sín taka. Af eldri málum má nefna baráttu FÍB fyrir hægriumferð en auk þess baráttuna fyrir afnámi sérstaks af- notagjalds á útvarpstæki í bifreiðum. Það gjald var afnumið árið 1970. Loks má geta þess að félaginu tókst að gera yfirvöldum það ljóst á sjötta áratugn- um að stefnuljós á bifreiðum væru mikilvægt öryggistæki. Fram til þess tíma höfðu yfirvöld krafist þess að stefnuljós á nýjum bílum skyldu fjar- lægð til að þeir fengjust skráðir. Loks var það fyrir frumkvæði FÍB að um- ferðarútvarp hófst þar sem tilkynn- ingum um umferð, ástand vega o.fl. var komið á framfæri við almenning. Umferðarútvarp hófst í fyrsta sinn árið 1953. Bíllinn auðvelt skotmark álagna „Félagið barðist frá upphafi fyrir því að hömlum yrði aflétt af innflutn- ingi og verslun með bifreiðar og vara- hluti og vann sigur í því máli 1961 þegar innflutningur á bifreiðum var loks gefinn frjáls og þessi mál komust í eðlilegt horf. Segja má að frelsið hafi komið vonum seinna þar sem rekstur bifreiða var afar erfiður meðan höml- ur voru á innflutningi þeirra og vara- hluta í þær, þar sem bilanir voru tíðar vegna lélegs vegakerfis og einnig vegna þess að bílar voru mun bilana- gjarnari en þeir eru nú. Bíllinn er nauðsyn en ekki lúxus í strjálbýlu landi. Það hefur ætíð verið eitt verk- efna FÍB að gera mönnum þetta ljóst, ekki síst þeim sem með landstjórnina fara hverju sinni. Vegna þess hve bíll- inn er nauðsynlegur almenningi þá er hann einnig auðvelt skotmark hvers- konar álagna og skatta. FÍB hefur alla tíð lagt sig fram um að verjast stöðugri skattaásælni á hendur bíleig- endum og hefur ýmislegt áunnist. Má þar nefna þegar núverandi ríkisstjórn breytti álagningu vörugjalda á nýjar bifreiðar. Gjaldflokkarnir voru alls sex og réð m.a. vélarstærð og vélar- gerð prósentuupphæð þessa gjalds ofan á innkaupsverð. Að frumkvæði FÍB var þessari sérkennilegu opin- beru neyslustýringu að mestu hætt og gjaldflokkunum fækkað í tvo,“ seg- ir Árni. Hann segir að margt framfaramál- ið hafi átt upphaf sitt innan FÍB, bor- ist þaðan út í samfélagið og orðið að veruleika. Má þar nefna atriði eins og hægriumferð sem tekin var upp á Ís- F é l a g í s l e n s k r a b i f r e i ð a e i g e n d a 7 0 á r a Bíllinn er nauðsyn í strjálbýlu landi Félag íslenskra bifreiða- eigenda fagnar 70 ára afmæli sínu 6. maí nk. Af því tilefni ræddi Guðjón Guðmundsson við Árna Sigfússon for- mann um sögu félagsins og framtíð. Frá stjórnarfundi í FÍB árið 1962. F.v.: Guðmundur Karlsson, K. Haukur Pétursson, Bárður Daníelsson, Magnús Höskulds- son, Arinbjörn Kolbeinsson, Valdimar Magnússon, Gísli Sigurðsson og Ólafur Þorláksson. Eitt af baráttumálum FÍB var að taka upp hægri umferð. Hér eru þjónustubílarnir á H-daginn á Skúlagötu vorið 1968. Morgunblaðið/Sverrir Árni Sigfússon, formaður FÍB. Á stjórnarfundi 1967 var Arinbjörn Kolbeinsson, fyrir miðju, kosinn for- maður FÍB. Honum á hægri hönd er Sveinn Torfi Sveinsson og á vinstri hönd Aron Guðbrandsson, sem báðir hafa gegnt formennsku í FÍB.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.