Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 33

Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 33 fyrir eða hafa aldrei náð neinum árangri þar. Tillaga, sem hefur skotið upp kollinum af og til í ýmsum myndum, snýr þó að því að reyna í senn að rétta af lýðræðishallann og auka áhuga al- mennings á störfum Evrópuþingsins, en hún fel- ur í sér að bæta við þingið efri deild, sem yrði skipuð fulltrúum þjóðþinganna, helzt áberandi stjórnmálamönnum. Ýmsir vankantar eru þó á þessari hugmynd, t.d. efast margir um að stjórn- málamenn hafi tíma og orku til að sitja á tveimur löggjafarsamkundum og ekkert samkomulag er um hvert valdsvið eða áhrif slíkrar efri deildar ætti að vera. Lýðræðishallinn fluttur inn Evrópusambandið stendur hér frammi fyrir talsverðum vanda, sem hætt er við að ágerist heldur eins og forseti Íslands bendir á, nema spyrnt verði við fótum. Hins vegar er það líka rétt, sem Ólafur Ragnar Grímsson vekur at- hygli á, að þetta er ekki bara vandi Evrópusam- bandsins og aðildarríkja þess. Ísland hefur í raun flutt inn lýðræðishalla Evrópusambandsins með því að fallast á að löggjöf stofnana þess gildi jafn- framt hér á landi á þeim sviðum, sem EES-samn- ingurinn tekur til. Það má jafnvel færa rök fyrir því að á hinu afmarkaða en þó harla víðtæka sviði, sem samningurinn nær til, halli enn meira á lýðræðið í EFTA-ríkjunum en í ríkjum ESB. Ákvarðanir stofnana ESB, einkum ráðherra- ráðsins, verða hér um bil sjálfkrafa að lögum á Íslandi. Þeir, sem taka þessar ákvarðanir, eru fulltrúar ESB-ríkjanna og sækja umboð sitt ekki á nokkurn hátt til íslenzkra kjósenda. Þau tak- mörkuðu áhrif, sem íslenzk stjórnvöld geta haft á þessar ákvarðanir á undirbúningsstigi, eru eink- um í gegnum embættismenn, sem ekki hafa beint lýðræðislegt umboð, þótt auðvitað beri þeir ábyrgð gagnvart lýðkjörnum fulltrúum. Og þótt Alþingi geti samkvæmt bókstaf samningsins synjað nýrri löggjöf frá ESB um samþykki, er það ekki raunhæfur kostur vegna þess að slíkt myndi þýða endalok EES-samningsins með öll- um þeim miklu kostum, sem hann hefur fyrir ís- lenzkt efnahagslíf og samfélag. Lýðræðishalli Evrópusambandsins er því líka okkar lýðræðishalli að hluta til. Við réttum hann hvorki af með því að kasta EES-samningnum fyrir róða né með því að ganga í ESB. Þessi staða ætti þó a.m.k. að verða okkur tilefni til að fylgjast vel með þeim umræðum, sem fram fara um þessi mál á vettvangi Evrópusambandsins, m.a. á Ráð- stefnunni um framtíð Evrópu, sem sumir hafa viljað kalla stjórnlagaþing sambandsins. Þar eiga sæti fulltrúar allra aðildarríkja ESB og jafn- framt þeirra ríkja, sem sótt hafa um aðild að sambandinu. Ráðstefnan hóf störf í marz sl. og á að skila tillögum á næsta ári, áður en næsta ríkja- ráðstefna ESB um breytingar á stofnsáttmála þess hefst árið 2004. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra hefur gert þessi mál að umtalsefni, m.a. á ráðstefnu ut- anríkisráðuneytisins og Sambands sveitarfélaga í febrúar sl. Ráðherra sagði í ræðu sinni þar „at- hyglisvert að fylgjast með þróun umræðunnar innan ESB þessa dagana þar sem menn velta nú fyrir sér hvort og þá með hvaða hætti löggjaf- arþing einstakra aðildarríkja geta komið að mót- un þeirrar löggjafar er varðar borgara ESB svo miklu í þeirra daglega lífi. Er vissulega spurning hvort og þá með hvaða hætti slíkt yrði tengt EES-samstarfinu“. Halldór ræddi jafnframt möguleika á því að hafa meiri áhrif á löggjöf innan ESB: „Í ljósi þess að Ísland tekur yfir um 80% af allri löggjöf ESB, hvort heldur það er á grunni EES-samningsins eða Schengensamningsins, hlýtur það að vekja okkur Íslendinga til umhugsunar þegar ESB stefnir í þá átt að auka hlutverk fulltrúa borgara aðildarríkjanna í allri ákvarðanatöku. Í raun er það svo að rekstur og mótun EES-samningsins hér á landi er að stórum hluta í höndum embætt- ismanna ríkisvaldsins. Í of takmörkuðum mæli koma Alþingi og sveitarstjórnir að mótun þess- ara reglna og í of litlum mæli hafa fulltrúar sveit- arfélaga komið að þróun mála. Það er skylda stjórnvalda hér á landi að vinna gegn þessu eftir því sem kostur er innan þess ramma sem okkur er settur í okkar stjórnskipan og í EES-samn- ingnum.“ Það er engan veginn ljóst hvernig þetta gæti komið til, en sjálfsagt að vera vakandi fyrir öllum tækifærum til að auka áhrif lýðkjörinna fulltrúa á ákvarðanir í EES-samstarfinu. Áhrif alþjóða- samninga Lýðræðisvandinn í al- þjóðlegu samstarfi er alls ekki takmarkaður við ESB eða EES; líkt og forseti Íslands vakti máls á í áðurnefndri ræðu þrengja alls konar alþjóðasamningar á ýmsum sviðum æ meir að valdi einstakra ríkisstjórna. Þessir samningar hafa oft rík áhrif á löggjöf ein- stakra ríkja, en löggjafarsamkundur þeirra hafa þó í raun engin tækifæri til að hafa nein afger- andi áhrif á gerð þeirra. Alþjóðlegir samningar verða til á löngum og flóknum samningafundum og ráðstefnum, þar sem embættismenn sitja dög- um, mánuðum og jafnvel árum saman og reyna að berja saman samkomulag þar sem oft næst hárfínt jafnvægi milli hagsmuna hinna ýmsu ríkja. Þeir hafa vissulega umboð frá ríkisstjórn- um sínum, sem aftur sækja umboð sitt til lýðkjör- ins þings. En það er orðið harla langt úr ráð- stefnusalnum til kjósandans í slíkum viðræðum. Þegar alþjóðasamningar koma síðan til stað- festingar hjá þjóðþingum, hafa þau enga mögu- leika á að breyta þeim og jafnvel ekki á að hafna þeim – ríki, sem stendur utan mikilvægra al- þjóðasamninga getur átt á hættu að vera snið- gengið og að hagsmunir þess verði fyrir borð bornir. Rifja má upp í þessu samhengi að alþjóðlegir mannréttindasáttmálar, sem Ísland hefur stað- fest, vógu þungt í dómi Hæstaréttar í öryrkja- málinu seint á árinu 2000, sem hleypti hér öllu í uppnám um tíma. Þessi áhrif viðkomandi samn- inga voru ekki fyrirséð á sínum tíma, en spyrja má hvort Alþingi hefði talið sér fært að hafna þeim, jafnvel þótt menn hefðu séð afleiðingar þeirra fyrir. Prófsteinn á lýðræðið Er ástæða til svart- sýni í þessum efnum? Mun alþjóðleg þróun grafa undan lýðræð- inu? Það fer ekki sízt eftir því hvernig menn nálg- ast viðfangsefnið. Líkt og Carl Bildt segir, er ekki hægt að snúa aftur til þröngt skilgreinds þjóðlýðræðis og neita að horfast í augu við hina alþjóðlegu þróun. Hnattvæðingin þýðir einfald- lega að við verðum að takast á við fjölda vanda- mála á öðrum vettvangi en innan þjóðríkjanna. Lýðræðisríki hafa aldrei verið fleiri en nú. Um það ríkir æ víðtækari samstaða í heiminum að lýðræði sé eina lögmæta stjórnarfyrirkomulag- ið. Þau ríki, sem hafa tekið upp lýðræðislega stjórnarhætti, eru líka flest eða öll á þeirri skoð- un að þau vandamál og viðfangsefni, sem hnatt- væðingin hefur í för með sér, verði ekki leyst öðruvísi en með alþjóðlegu samstarfi. Hnattvæð- ingin fer ekki burt, hún ágerist ef eitthvað er. Þá liggur beint við að menn reyni að finna leiðir til þess að ákvarðanir alþjóðasamstarfs lúti lýðræð- islegu aðhaldi líkt og ákvarðanir ríkisstjórna. Menn þurfa þá líka að vera reiðubúnir að horfa út fyrir ramma þjóðríkisins og velta fyrir sér hvernig skipta megi verkum milli lýðræðislegra stofnana á ýmsum stigum eftir því hvar verkefn- unum er bezt fyrir komið; í sveitar- og héraðs- stjórnum, á vettvangi ríkisins og í alþjóðlegu samstarfi. Það er óhófleg bjartsýni að tala um að eitt- hvað, sem kalla má alþjóðlegt lýðræði, geti orðið til á einum mannsaldri þegar stór hluti ríkja heims býr enn við ólýðræðislega stjórnskipan. Tækifærin geta hins vegar verið fyrir hendi í fé- lagsskap eins og Evrópusambandinu og sam- starfsríkjum þess á Evrópska efnahagssvæðinu, þar sem öll aðildarríkin aðhyllast lýðræðislegt stjórnskipulag. Alþjóðavæðingin þarf því ekki endilega að vera ógnun við lýðræðið, en hún er svo sannarlega prófsteinn á það. Morgunblaðið/Golli Vorstemmning í Reykjavík. „Lýðræðishalli Evr- ópusambandsins er því líka okkar lýð- ræðishalli að hluta til. Við réttum hann hvorki af með því að kasta EES-samn- ingnum fyrir róða né með því að ganga í ESB. Þessi staða ætti þó a.m.k. að verða okkur tilefni til að fylgjast vel með þeim um- ræðum, sem fram fara um þessi mál á vettvangi Evrópu- sambandsins.“ Laugardagur 4. maí

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.