Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 34
SKOÐUN
34 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Í Morgunblaðinu 16.
febrúar birtist ómerki-
leg áróðursgrein eftir
Ragnar Tómasson lög-
mann. Fyrst og fremst
er það skilningsleysi
hans á markaðshag-
kerfinu og frelsinu sem
fer fyrir brjóstið á mér.
Áður en menn ráðast
fram á ritvöllinn með
fullyrðingar og leið-
beiningar fyrir aðra
verða þeir sjálfir að
bera skynbragð á við-
fangsefnið og skil-
greina það og að lokum
að draga réttar álykt-
anir.
– Viðskiptaumhverfið.
– Markaðshagkerfið.
– Hagfræðikenningarnar.
– Lögin.
– Frelsið.
Þessir fimm þættir skipta trúlega
mestu þegar lagt er mat á verslun
og viðskipti hér á landi sem annars
staðar. Allir þessir þættir eru meira
og minna af sama meiði.
Viðskiptaumhverfið
Verslun og viðskipti hér á landi
eru að mörgu leyti kraftmikil (dyn-
amisk) þó að markaðurinn sé agn-
arsmár í samanburði við önnur lönd.
Vegna smæðar sinnar í samanburð-
inum er afskaplega undarleg sú ár-
átta margra að halda því fram að
hagkvæmni stærðar sé eitthvert
lausnarorð sem öllu á að bjarga.
Stefna sem miðar að hagkvæmni
stærðar á ákaflega illa við hér á
landi. Fyrirmyndin er trúlega amer-
ísk og miðar oftast að miklum
magninnkaupum verslana, stóru
plássi og miklum vegalengdum fyrir
viðskiptamenn að fara því plássfrek-
ar verslanir rýmast illa í íbúða-
byggðum eða nálægt viðskipta-
mönnunum. Að mínu viti getur
hagkvæmni smæðar verið fullt eins
hagkvæm við okkar aðstæður. Í því
tilfelli eru viðskiptin færð nær við-
skiptamönnunum,
áhersla er lögð á per-
sónuleg kynni, góða
nýtingu og mikla
framleiðni. Góð blanda
af þessu hvorutveggja
getur verið mjög góð
en þá verða hin mark-
aðsráðandi fyrirtæki
að kunna sér hóf.
Viðskiptaumhverfi
verður að vera heiðar-
legt og leikreglurnar
skýrar. Í stjórnarsátt-
mála núverandi ríkis-
stjórnar Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks er
lykilorðið samkeppni
þar sem fjallað er um viðskipti.
Einn af öflugustu hornsteinum
Sjálfstæðisflokksins er markaðshag-
kerfið. Markaðshagkerfið miðar að
því að virkja heiðarlega samkeppni
þjóðfélaginu til hagsbóta. Frelsið
gegnir þar einnig lykilhlutverki.
Samkeppnislög sem er í raun túlkun
löggjafarvaldsins á hagfræðikenn-
ingu sem kennd er við Adam Smith
gegnir þar veigamiklu hlutverki og
undirstrikar vilja löggjafarvaldsins.
Aðra hagfræðikenningu sjáum við
síðan í lögum um Seðlabanka Ís-
lands. Eðli og hlutverkum pening-
anna er lýst í kennslubókum um
hagfræði. Vilji löggjafarvaldsins er
skýr og ekki er að undra að Davíð
Oddsson vilji standa vörð um þann
vilja og þær stefnur sem hann er
fulltrúi fyrir.
Markaðshagkerfið
Markaðslögmálið er eins og áður
hefur komið fram hagfræðikenning
með heiðarlega samkeppni að leið-
arljósi. Samkeppnislög og hagfræði
eru þar lykilorð. Leikreglurnar eru
skýrðar í Samkeppnislögum. Nú er
nýlokið Evrópumóti í handbolta þar
sem strákarnir okkar stóðu sig frá-
bærlega. Hefur einhver heyrt talað
um handboltaleik þar sem enginn er
dómarinn. Í viðskiptum verður að
sjá til þess að farið sé að leikreglum
á sama hátt og í íþróttum.
Ragnar minnist á uppgang Bón-
usfeðga og talar um að vörubirgjar
sem þekktu gamla verslunarstjór-
ann að góðu einu, samþykktu að
lána honum eina afgreiðslu gegn því
að fá þá næstu staðgreidda. Hvernig
var síðan framkoma gamla verslun-
arstjórans gagnvart þessum sömu
birgjum, sem komu undir hann fót-
unum, eftir að hann náði markaðs-
ráðandi stöðu með sitt fyrirtæki?
Krafan er 20-50% afsláttur umfram
aðra annars mega þeir éta það sem
úti frýs. Þetta getur hann leyft sér í
krafti kaupendastyrks.
Dæmi um brot á samkeppnislög-
um geta falist í undirboðum (dump-
ing) á markaði sem aftur leiða til
tjóns fyrir samkeppnisaðilana. Stór
fyrirtæki með markaðsráðandi
stöðu geta beitt þessari aðferð til að
hindra samkeppni eða komið í veg
fyrir hana. Síðar þegar samkeppnin
hefur verið útilokuð eða síður er von
á henni hættir hið markaðsráðandi
fyrirtæki undirboðunum, hækkar
verðið á nýjan leik og nær sínu til
baka og vel það.
Annað dæmi um brot á sam-
keppnislögum getur falist í því að
neyða fram betri kjör frá birgjum
en öðrum gefst kostur á vegna bág-
inda eða veikrar stöðu birgjans.
Lögin
Löggjafarvaldið hefur sett
ramma um ýmsar hagfræðikenning-
ar. Vilji löggjafarvaldsins er skýr í
þessum lögum. Það sem hinsvegar
ber að óttast er skilningur og túlkun
dómsvaldsins á lögunum. Þekkt er
að námsmenn sem ekki treysta sér
til náms í raungreinum þ.e. verk-
fræði, stærðfræði, hagfræði eða í
annað viðskiptanám velja gjarnan
lögfræðina þegar að háskólanámi
kemur. Ef túlkun dómsvaldsins og
skilningur á viðskiptum er eitthvað í
ÓMERKILEG-
UR ÁRÓÐUR
Sigurður Lárusson
Eitt fyrirtæki,
Baugur, er komið með
um 50–60% markaðs-
hlutdeild á dagvöru-
markaði, segir Sigurður
Lárusson. Það er skil-
greining á fákeppn-
isaðstöðu sem gæti
endað með einokun.
!"#!$
%
&
%
'
(
&
' '
%
!"#"$))*
+
,
% )-.
!"#!$
.**. /
$'
"
"
' 0
!"#!$
1)*2.**
!" #
$%
!&
$
!$$
!'
()
* !## + )
%
!,
) *
-$ .
(
(
)
. %
TILBOÐ ÓSKAST
í Jeep Wrangler árgerð 2000
vél 4,0 l., upphækkaður um 2“
(ekinn 28 þús. mílur) á 32“ dekkjum,
Chevrolet Step Van árgerð 1985
og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 7. maí kl. 12-15.
VÖRUFLUTNINGABIFREIÐ
Ennfremur óskast tilboð í G.M.C.
vöruflutningabifreið árgerð 1983, 2. tonna
með ál-flutningakassa.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA
SALA VARNARLIÐSEIGNA