Morgunblaðið - 05.05.2002, Page 35

Morgunblaðið - 05.05.2002, Page 35
líkingu við þína túlkun og þinn skilning er ekki von á góðu úr þeirri átt. Markaðsráðandi staða er ekki bönnuð samkvæmt samkeppnislög- um. Misnotkun á markaðsráðandi stöðu er hinsvegar bönnuð. Vanda- málið er sönnunarbyrðin. Olíufélög- in liggja undir grun um samráð og fákeppnis- eða einokunartilburði. Líkurnar á að verð geti hækkað eða lækkað um sömu krónu og auratölu pr. lítra af bensíni eða olíu á nánast sömu klukkustund trekk í trekk eru stjarnfræðilegar. Nægja slíkar til- viljanir til áfellisdóms? Greinilegt er að samkeppnisyfirvöld vilja frekari sannanir. Þetta dæmi sýnir einungis það vandamál sem blasir við a.m.k. flestum. Hagfræðikenningarnar Tvær stærstu hagfræðikenning- arnar, sem frekar mætti nefna stefnur, eru sósíalismi annarsvegar og kapítalismi hinsvegar. Báðar þessar kenningar eða stefnur voru hugsaðar á sínum tíma í þeim til- gangi að efla hagsæld fjöldans. Grundvallarmunur er hinsvegar á áherslum og leiðum að sama mark- miði. Sósíalisminn hefur gengið sér til húðar víðast hvar og fleiri og fleiri þjóðir hafa tileinkað sér mark- aðshagkerfið (kapítalismann). Vest- rænar þjóðir hafa flestar kosið að tileinka sér markaðshagkerfi í við- skiptum. Lykilatriði í slíku hagkerfi er að hagfræðikenningar sem tengj- ast þessari stefnu séu virkar þannig að klukkuverkið starfi eðlilega. Þarna er átt við peningahagkerfið (eðli og hlutverk peninganna sé rétt skilgreint og virt), lögmál heiðar- legrar samkeppni og að framboð og eftirspurn fái að stilla sig af miðað við eðlilegar aðstæður. Auk þessa er frelsið grunnþáttur þar sem mark- aðshagkerfið á að fá notið sín. Frelsið Frelsið er takmörkunum háð. Frelsi einstaklingsins miðast við að hann gangi ekki á rétt annars ein- staklings. Lögin, siðfræðin og al- mennur skilningur fólks á réttu og röngu er sá rammi sem frelsinu er sniðinn. Frelsið felur ekki í sér lög- brot, virðing fyrir rétti annarra ein- staklinga verður að vera fyrir hendi. Frelsið er eins og lítill fugl sem flögrar um loftin blá. Frelsið er horfið þegar fuglinn er veiddur í háf veiðimannsins. Frelsið er ekki lög- mál hins sterka. Í viðskiptum felst frelsið í sjálf- stæðri ákvarðanatöku aðila á mark- aði, til frjálsrar álagningar og tján- ingar. Skerðing á frelsi verður þegar stórir aðila kúga hina smáu. Fákeppni og einokun skerða frelsi mjög margra og hindra að hægt sé að ná fram sem bestri nýtingu á framleiðsluþáttum þjóðfélagsins. Stór tré með miklar laufkrónur koma í veg fyrir að sólarljósið nái til nýgræðlinga og sprota. Einhæfni og úrkynjun verður staðreynd. Rétta uppskriftin Ráðleggingar Ragnars sem felast í því að allir ættu að versla í Bónus eru tálsýnir. Sú staðreynd að kaup- maðurinn á horninu er horfinn segir sína sögu. Eitt fyrirtæki, Baugur, er komið með um 50-60% markaðshlut- deild á dagvörumarkaði. Það er skil- greining á fákeppnisaðstöðu sem gæti endað með einokun. Þetta er ekki sú skilgreining sem ég hef á frjálsri verslun í eðlilegu markaðs- hagkerfi. Kaupendastyrkur og hag- kvæmni stærðar ásamt misnotkun á þessum aðstæðum í samstarfi við bankakerfið hefur fært gamla versl- unarstjóranum og syni hans þessa stöðu á kostnað þeirra birgja sem komu undir þá fótunum á sínum tíma. E.t.v. er kominn tími á þessa birgja að snúa sér eitthvað annað og byggju upp eðlilega og heiðarlega samkeppni við hinn markaðsráðandi aðila og sjá svo til hvort markaður- inn aðlagast ekki á nýjan leik þann- ig að til verði SAMKEPPNI. Til þess að almenningur fái notið þess hagræðis sem samkeppnin býður upp á verður að vera eitthvert mót- vægi eða aðrir valkostir. Frelsið verður að fá notið sín. Höfundur er kaupmaður. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 35 Yoga Studio, Auðbrekku 14, Kópavogi, sími 544 5560. www.yogastudio.is Umboðsaðili fyrir Custom Craftworks nuddbekki og hágæða ilmkjarnaolíur og grunnolíur frá Oshadhi. www.yogastudio.is Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni 4ra vikna uppbyggjandi námskeið fyrir þá sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegnum miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast aukið frelsi og lífsgleði. Ásmundur, sem m.a. byggir námskeiðið á eigin reynslu af kvíða, tekur fyrir þætti eins og jógastöður, öndunaræfingar, slökun og andleg lögmál sem stuðla að velgengni, jafnvægi og heilsu. Ekki er krafist reynslu af jóga. Yfirgripsmikið og traust námskeið frá 1994. Hefst 14. maí - Þri. og fim. kl. 20.00. Sumarönn opinna jógatíma hefst mánudaginn 6. maí.  WWWW.XR.IS • XR@XR.IS Ágæti Reykvíkingur Undanfarin átta ár hefur Reykjavíkurlistinn gert fla› a› forgangsverkefni a› bæta fljónustu og fjárfestingu í flágu fjölskyldnanna í borginni. Allt okkar starf hefur mi›a› a› auknum lífsgæ›um og fjölbreytileika í borgarlífinu. Á fleim grunni sem lag›ur hefur veri› munum vi› byggja hi› reykvíska samfélag framtí›arinnar. Nú um helgina munum vi› bera í hvert hús borgarinnar bækling sem s‡nir flær grí›arlegu breytingar sem or›i› hafa á ás‡nd borgarinnar, fljónustu hennar og rekstri undanfarin átta ár. Vi› hvetjum flig til a› kynna flér efni hans og erum stolt af fleim árangri sem ná›st hefur. Frambjó›endur Reykjavíkurlistans FRÉTTIR PÁLMI Gunnarsson, annar leigu- taka Litluár í Kelduhverfi, sagði í samtali við Morgunblaðið að fyrsta veiðidaginn, 1.maí, hefðu veiðst um 80 sjóbirtingar á fjórar stangir við hin alverstu skilyrði. Menn stóðu vaktina í stórhríð og hefði farið betur að þeir hefðu haft snjóþrúgur til að komast með ánni. „Þetta er eitthvað sem maður gleymir ekki í bráð, stórhríð og snjó- hengjur að brotna úr bökkum fyrir aftan mann. Við vorum fjórir saman, veiddum í samtals í 4–5 tíma með hléum vegna veðursins og aflinn var um 80 fiskar sem er miklu betra en aðstæður gáfu fyrirheit um. Vegna veðursins frestuðum við merkingun- um, en ætlum að láta sverfa til stáls með þær um miðjan mánuðinn. Þetta var nánast allt mjög vænn fiskur og vænni heldur en í fyrra. Við teljum að meðalþyngdin hafi ekki verið minni en 4,5 til 5 pund og stærstu fiskarnir voru um 8 pund. Við misstum nokkra hrikalega fiska, það er bara hluti af landslaginu, maður ræður ekkert við þá. Engil- bert Jensen missti t.d. einn sem stökk fyrir framan nefið á okkur og það var ekki undir 20 punda fiskur. Sjálfur missti ég annan sem ég sá ekki, en sleit sterkan tauminn eins og tvinna,“ sagði Pálmi. Tveir félaga hans hafa verið að veiðum af og til síðan á miðvikudaginn og hafa veitt vel og nú er veður batnandi. Vötnin góð Vel hefur veiðst í Vífilsstaðavatni, mest bleikja frá rétt undir pundi upp í 1,5 pund. Síðustu helgi voru t.d. þrír félagar saman með 13 fiska á tveim- ur tímum og á sama tíma voru menn um allt vatn að slíta upp fiska og fisk- ur vakti víða um vatn. Í Elliðavatni hefur mest veiðst urriði og allt að 3 punda fiskar, en flestir þó 1 til 1,5 pund. Lítið veiðist enn af bleikju. Í umræddum vötnum hafa menn m.a. verið að taka fiska á Peacock, Brassa og rauðan blóðorm svo eitthvað sé nefnt. Eitthvað eru menn og farnir að fá í Þingvallavatni, ágæta bleikju, gjarnan um 2 pund. Killer og Watson púpur hafa verið nefndar þar eystra. Einnig fréttist af hörkuafla í Minnivallalæk sem opnaði 1. maí eins og vanalega, mest 2–5 punda urriði. Til stóð að opna Vestmannsvatn og Hópið norðan heiða á miðviku- daginn, en það var varla að nokkur stæði vaktirnar þar, enda veður hið versta. Morgunblaðið/Einar Falur Bleikja háfuð í Vífilsstaðavatni í vikunni. Mok í hríðinni í Kelduhverfi ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.