Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.05.2002, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borg- ara í Setrinu á neðri hæð safnaðarheim- ilis mánudag kl. 13. Laugarneskirkja. 12 spora hópar koma saman mánudag kl. 20 í kirkjunni. Lokafundur. Margrét Scheving sálgæslu- þjónn er við stjórnvölinn. (Sjá síðu 650 í textavarpi.) Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl. 14. Öll börn í 1. bekk velkomin.TTT-starf (10-12 ára) mánudag kl. 16:30. Öll börn í 4. og 5. bekk velkomin. Bæna- stund kl. 18 í kapellu. Alfa II kl. 18:30. Lokasamveran. Litli kórinn, kór eldri borgara, þriðjudag kl. 16:30. Stjórnandi Inga J. Backman. Nýir félagar velkomnir. Reykjavíkurprófastsdæmin: Hádegis- verðarfundur presta í Bústaðakirkju mánudag kl. 12. Árbæjarkirkja. Sunnudagur: Æskulýðs- fundur kl. 20. Mánudagur: TTT-klúbb- urinn frá kl. 17-18. Fella- og Hólakirkja. Mánudagur: Fjöl- skyldumorgnar (mömmumorgnar) mánu- dag í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 10- 12 í umsjón Lilju djákna. Samvera, spjall og kaffi. Opið hús fyrir fullorðna í safnaðarheimilinu kl. 13:30-16. Sam- vera og bænastund. Umsjón hefur Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni. Þeir sem vilja fá akstur til og frá kirkjunni láti vita fyrir hádegi á mánudag. Starf fyrir 11-12 ára stúlkur kl. 17-18. Starf fyrir 9-10 ára drengi kl. 17-18. Unglingastarf á mánu- dagskvöldum kl. 20:30. Grafarvogskirkja. Sunnudagur: Bæna- hópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070. Mánudagur: KFUK fyrir stúlk- ur 9-12 ára kl. 17:30-18:30. KFUM yngri deild í Borgaskóla kl. 17-18. Kirkjukrakkar fyrir 7-9 ára í Korpuskóla kl. 17:30-18:30. TTT (10-12 ára) kl. 18:30-19:30 í Korpuskóla. Hjallakirkja. Mánudagur: Æskulýðs- félag fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20. Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fundur fyrir stelpur á aldrinum 9-12 ára kl. 17:15 í kirkjunni. Fjölbreytt fundarefni. Allar stelpur velkomnar. Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf fyrir 9-12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánudögum kl. 17:30 í umsjón KFUM. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagskvöld kl. 20-22 eldri félagar. Lágafellskirkja. Síðasta stund sunnu- dagaskólans er í dag. Við fáum flautu- tríó í heimsókn úr Tónlistarskóla Mos- fellsbæjar, þær Hörpu, Snæfríði og Krístínu Dagbjörtu ásamt kennara þeirra, Kristjönu Helgadóttur. Komum og eigum góða stund saman í kirkjunni. Við minnum á ferð barnastarfsins í Hús- dýragarðinn laugardaginn 11. maí, rúta fer frá safnaðarheimilinu, Þverholti 3, kl. 10:15. Skráning í kirkjunni. Allt frítt. Mánudagur: Al-Anon fundur í kirkjunni kl. 21. Bænahópur á mánudagskvöldum í Lágafellskirkju kl. 20. Kirkjukrakka- fundur í Varmárskóla kl. 13:15-14:30. TTT-fundir í safnaðarheimili kl. 16-17. Fundir í æskulýðsfélaginu Sánd kl. 17- 18. Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld, sunnu- dag, kl. 19:30. Hvammstangakirkja. KFUM&K starf kirkjunnar í Hrakhólum mánudag kl. 17:30. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða- smára 5 kl. 16:30. Allir velkomnir. Landakirkja, Vestmannaeyjum. Mánu- dagur: Kl. 17 æskulýðsstarf fatlaðra, báðir hópar saman í lokasamverunni. Fíladelfía. Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður Vörður L. Traustason. Al- menn samkoma kl. 16:30. Ræðumaður Tom Bremer. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir söng. Barnakirkja fyrir 1-9 ára börn meðan á samkomu stendur. Allir hjartanlega velkomnir. KEFAS, Vatnsendavegi 601. Sunnudag- ur: Samkoma kl. 16:30. Ræðumaður Björg R. Pálsdóttir. Bænastund fyrir samkomu kl. 16. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barnastarf fyrir börn frá eins árs aldri. Þriðjud.: Bænastund kl. 20:30. Miðvikud.: Samverustund unga fólksins kl. 20:30. Mikil lofgjörð og orð guðs rætt. Allir velkomnir. Vegurinn. Fjölskyldusamkoma kl. 11. Skipt í deildir. Léttur hádegisverður að samkomu lokinni. Bænastund kl. 19:30. Samkoma kl. 20. Högni Valsson prédikar. Lofgjörð, fyrirbænir, brotning brauðsins og samfélag. Allir hjartanlega velkomnir. Akureyrarkirkja. Fundur í æskulýðs- félaginu kl. 17. Safnaðarstarf FARIÐ verður í hina árlegu vorferð Safnaðarfélags Grafarvogskirkju nk. mánudag, 6. maí. Lagt verður af stað frá Grafarvogskirkju kl. 20. Í þetta sinn verður hin gamla Reykja- vík skoðuð í fylgd Guðjóns Friðriks- sonar, sagnfræðings og rithöf- undar. Í lok ferðar verður drukkið kvöldkaffi í safnaðarheimili Dóm- kirkjunnar við Lækjargötu. Allir velkomnir. Stjórnin. Vorfagnaður barna- starfs Landakirkju NÚ er komið sumar, gleðjast gumar og meyjar. Í tilefni af komu vors og sumarblessunar fer Sunnudagaskól- inn út í vorið 5. maí. Með í þeirri för verða krakkar og foreldrar úr Sunnudagaskólanum, Kirkjuprökk- urum, TTT og Æskulýðsfélagi fatl- aðra. Við byrjum klukkan 14 í kirkj- unni, börn úr Kirkjuprökkurum og Litlum lærisveinum syngja, hjúkr- unarfræðingur kemur í heimsókn og tekur heilsupúlsinn á fólki áður en við förum út í guðsgræna náttúr- una í árlegt fótboltamót, strákar á móti stelpum og Gylfi Sigurðsson dómari er fastur fyrir. Þeir sem ekki kjósa fótbolta fara í leiki og síð- an fá allir grillpylsur og svaladrykk. Dagskráin hefst í Landakirkju kl. 14, þaðan verður farið með rútu til uppskeruhátíðarinnar. Rútan fer aftur að Landakirkju þegar fólk er orðið endurnært til anda, sálar og líkama. Prestarnir. Morgunblaðið/Jim Smart Grafarvogskirkja Vorferð Safnaðarfélags Grafarvogskirkju KIRKJUSTARF Mig langar með nokkrum orðum að kveðja og þakka fyrir að hafa haft tækifæri til að kynnast og umgang- ast Ástu Rögnu á mínum unglings- árum og fram á fullorðinsár. Ég kynntist Ástu í Vogaskóla. Við urðum fljótt góðar vinkonur og eyddum miklum tíma saman næstu árin. Við vorum saman í unglingavinnunni í Laugardalnum og þar skemmtum við okkur konunglega þótt ekki hafi mik- ið verið unnið. Í 9. bekk stundaði Ásta nám á Laugarvatni en við töluðum saman í síma og hittumst um helgar þegar hún kom í bæinn. Á næstu ár- um unnum við saman í Íslenska- franska eldhúsinu og í eldhúsinu í Seljahlíð. Við fórum saman í Fjöl- braut í Breiðholti og bjuggum báðar í Breiðholtinu þótt vinirnir hafi flestir verið úr Vogahverfinu. Vinahópurinn var stór og Ásta naut sín vel því hún var félagslynd og opin persóna. Þótt við Ásta höfum að lokum farið ólíkar leiðir í lífinu þá voru fréttir af andláti hennar mikið áfall. Ég taldi alltaf að Ásta mundi sigra að lokum. Sjálfsbjargarviðleitni hennar var mikil og hún var úrræðagóð. Hún var sjálfstæð og hafði yfirleitt skoðanir á hlutunum. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt Ástu barma sér. Hún tók hlutunum eins og þeir komu fyrir og eyddi ekki tíma sínum í að velta sér upp úr þeim. Hún var mér mikil stoð ÁSTA RAGNA JÓNSDÓTTIR ✝ Ásta Ragna Jóns-dóttir fæddist í Reykjavík 1. apríl 1968. Hún lést á heimili sínu, Klepps- vegi 38, þriðjudag- inn 9. apríl. Útför Ástu Rögnu var gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudag- inn 22. apríl sl. og stytta þegar ég var barnshafandi og hún var viðstödd fæðingu dóttur minnar. Hún átti auðvelt með nám og hafði yfirleitt ekki mikið fyrir að fá góðar einkunnir. Á stundu sem þessari streyma fram í hugann minningarbrot um vin- áttu okkar: Þær ótal- mörgu stundir sem við eyddum á rúntinum á Trabantinum hans afa hennar, við skömmuð- ust okkar ógurlega til að byrja með að keyra um á Trabant en bíllausar vildum við ekki vera. Þeir tímar sem við þræddum video- leigurnar til að leita að þáttunum Falcon Crest og sátum svo heima hjá afa og ömmu hennar og gláptum á hvern þáttinn á fætur öðrum. Við sát- um iðulega inni í herbergi Ástu, fyrst á Langholtsveginum og svo í Rjúpu- fellinu og ræddum málin, þar krufð- um við lífið og tilveruna, plönuðum framtíðina og höfðum það gott. Ég minnist útihátíða, þjóðhátíða, frá- bærra kvölda eftir að hún lauk vinnu á kvöldin á Ítalíu, fyndinna atriða frá skemmtistöðum og erfiðu tímanna einnig. Minningarnar eru margar og ég mun geyma þær í huga mér um ókomna tíð. Minning hennar lifir í hugum allra sem hana þekktu. Ég þakka Ástu fyrir að vera vinkona mín í ótalmörg ár. Við töldum alltaf að við mundum ætíð vera nánar vinkonur en hlutirnir fara ekki alltaf eins og búist er við. Hún var mikil og góð vin- kona og hún var og verður stór hluti af lífi mínu. Líf mitt hefði verið fátæk- legra ef hún hefði ekki verið hluti af því. Hvíl í friði. Móður hennar, föður, stjúpföður, afa, börnum hennar og Smára og öðr- um aðstandendum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur og minnist góðra stunda. Vilborg (Bogga). Mig langar að minnast æskuvin- konu minnar, hennar Ástu Rögnu, með nokkrum orðum. Minningarnar hrannast upp í huga mér, þær góðu og skemmtilegu stundir sem við áttum saman. Þótt leiðir okkar lægju ekki saman síðustu árin mun ég alltaf sakna þín. Þú varst góður vinur. Mest af öllu vildi ég að stundirnar hefðu verið fleiri sem við áttum saman. Við vorum alltaf eins og systur þegar við vorum litlar og var alltaf verið að spyrja okkur hvort við værum tvíburar eða systur, svo líkar vorum við. Við horfðum oft á hvor aðra og sögðum við erum bara vinkonur. Oft var sagt þið eruð ekki að segja satt þið eruð svo líkar, þið hljótið að vera skyldar. Ég kveð þig, elsku Ásta mín, með söknuð í hjarta og vona að þér líði vel þar sem þú ert núna. Ég mun aldrei gleyma þér, ég vil þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum saman. Kallið er komið komin er nú stundin vinaskilnaðar viðkvæm stund vinirnir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast margt er hér að þakka Guði sé lof fyrir liðna tíð margs er að minnast margs er að sakna Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Elsku Thelma Lind og Aron Elí, ég veit að söknuðurinn er mikill en megi algóður Guð geyma ykkur og varð- veita í þessari miklu sorg. Sjöfn, Tryggvi, Kristín, Rósa, Elli, Hreiðar og Sigurbjörn og aðrir að- standendur, Guð veri með ykkur í þessari sorg. Þín æskuvinkona, Rósa. Ég þekkti Börk best sem ungan dreng en hitti hann sjaldnar hin síðari ár. Og nú á þess- ari kveðjustundu er það minningin um hann sem barn sem stendur mér fyrir hugskotssjónum. BÖRKUR HRAFN VÍÐISSON ✝ Börkur HrafnVíðisson fæddist í Danmörku 27. nóv- ember 1972. Hann lést í vélhjólaslysi í Taílandi 9. apríl síð- astliðinn. Útför Barkar Hrafns Víð- issonar fór fram frá Langholtskirkju 26. apríl. Mikil vinátta hefur ríkt milli fjölskyldna okkar, allt frá því að foreldrar hans voru búsettir í Danmörku um árabil. Við bjuggum í næsta húsi við þau í Vedbæk, fyrst foreldrar mínir og síðan ég sjálfur þegar ég var kominn með eig- in fjölskyldu. Þá voru bjartir tímar hjá okkur öllum. Ég minnist Barkar sérstaklega frá þessum árum, hann var ljós yf- irlitum með liðað hár, yndislegur og hlýr drengur sem naut mikils ástríkis og var sjálfur kær- leiksríkur og gefandi. Ég sé hann fyr- ir mér umvafinn birtu og geislum sól- ar. Nú þegar hann er horfinn okkur eru sársauki og söknuður ríkjandi. Sorgin er vissulega mest hjá hans nánustu – sorg sem virðist aldrei munu linna. En Börkur mun lifa áfram innra með okkur og alltaf af og til stíga fram fyrir hugskotssjónum okkar og á þann veg verða förunautur okkar í framtíðinni. Við munum skynja návist hans á nýjan hátt, en samt nána og dýrmæta. Er sárustu sorginni léttir og hverfulleiki lífsins færist úr for- grunni hugans, þá mun þessi fagra nærvera hans verða okkur huggun. Ég mun sjá Börk fyrir mér sem ljóshært og elskulegt barn, blíðan og þróttmikinn dreng umvafinn geislum sólar. Ég votta fjölskyldu hans innilega samúð. Joakim Hoffmeyer. Ég tala til þín, frá mér, elsku Gunna mín, þakka þér allt það nota- lega í minn garð á erf- iðum tíma sem ég átti. Einstakur er orð, sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt faðmlagi eða sólarlagi GUÐRÚN HÉÐINSDÓTTIR ✝ Guðrún Héðins-dóttir fæddist á Húsavík 20. janúar 1925. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Þing- eyinga 14. apríl síð- astliðinn og var útför hennar gerð frá Húsavíkurkirkju 20. apríl. eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. Einstakur lýsir fólki, sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. Einstakur lýsir fólki, sem er dáð og dýrmætt og skarð þess verður aldrei fyllt. Einstakur er orð sem best lýsir þér. Takk fyrir að hafa verið til. Elsku Stjáni frændi, Guðný Helga, Þórunn Ósk, Óskar og fjöl- skyldur. Innilegar samúðarkveðjur Guðný Ósk. EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. Skilafrestur minningar- greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.