Morgunblaðið - 05.05.2002, Page 50

Morgunblaðið - 05.05.2002, Page 50
50 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                      BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÞAÐ hryggði mig meira en tárum taki að fletta sunnudagsblaði Morg- unblaðsins 28.4. og reka augun í opið bréf þitt til mín. Ekki vegna þess sem þú sagðir, sem var allt satt og rétt, heldur vegna þess að með til- litleysi mínu neyddi ég þig til þess að segja það. Að hafa það sem sannara reynist er kannski full djúpt í árinni tekið því ekki var ég að fara með ósannindi – frekar að ég hafi nefnt Roger en gleymt Hammerstein. Hvernig gat ég gleymt þér? Þú ert á C.V.-inu mínu! Ég hef þúsund afsakanir og ég hef enga afsökun. En að vissu leyti veit ég hvernig þér líður. Fyrir nokkrum árum var gerður sjónvarpsþáttur um teiknimyndagerð á Íslandi og þeir gleymdu mér – þrátt fyrir að ég hannaði langlífustu teiknimyndaper- sónu Íslandssögunnar. Ég gæti kennt um streitu vegna þess að þetta var símaviðtal – þetta gerðist fyrir 23 árum – tökumað- urinn sem ég hef unnið með síðast- liðið ár, Snorri B. Jónsson, var ekki fæddur – en blaðamaðurinn hafði hringt í mig deginum áður svo ég gat undirbúið mig – og þetta var hið skemmtilegasta spjall. Það fyrsta sem mér datt í hug þegar blaðamaður minntist á „hvar eru þau nú“ var verðlaunaritgerð sem ég skrifaði í Lesbók Morgun- blaðsins 1963 um árið 2013. Var hann að þjófstarta? Árið 2003 eru 40 ár liðin og tíu ár eftir og kannski tímabært þá að rifja upp gamlar framtíðarsýnir. Þá er það spurningin um að muna og gleyma eða „hverju á að segja frá“ og „hverju á að sleppa“. Ég hafði rifjað upp í huganum hvað gerðist í stórum dráttum á þessu tímabili og ákvað að ræða ekki um tölvumál, þó að ég væri síðasti keyrslustjóri stóru tölvanna sem gengu fyrir gataspjöldum og hafði á orði þegar ég hætti í tölvudeildinni að í framtíðinni ætlaði ég að vinna teiknimyndir í tölvu – og þá var hleg- ið að mér. Ég ætlaði að ræða um handritið sem bar nafið Dísa og var samtíma- saga þess tíma. Seinna – í Mad Max útgáfunni sem er spennandi leyni- lögreglusaga – fékk það nafnið 2013 því mér líkaði talan. Það er ekki ofan í skúffu, heldur í möppu upp í hillu og ég ætti eflaust að fara að líta á það aftur. Ég ákvað líka að vera ekki bitur þótt ég væri að jafna mig eftir upp- skurð á öxl sem ég gekkst undir í lok mars, er hjá sjúkraþjálfara og var bannað að nota tölvuna í sex vikur – en geri það nú samt af og til. Ég ákvað að minnast ekki á erf- iðleikana í Riga í Lettlandi né heldur penigaplokkið í DAUKA kvik- myndaverinu sem jók kostnaðinn við Djáknann. Það er skrýtið hvað maður er allt- af að læra allt sitt líf, en þegar upp er staðið kann maður ekki neitt. Í Riga gerði ég samning um gerð teiknimyndar, en varð síðar að greiða aukalega fyrir glærur og liti af því það var ekki nefnt í samn- ingnum. Í fyrra pantaði ég svalahurð hjá trésmiðju og greiddi út í hönd til að fá staðgreiðsluafslátt. Þegar ég sótti hurðina vantaði glerið í hana en glerið var um 80% af hurðinni. Þegar ég innti eftir hverju þetta sætti, var mér sagt að ég hefði ekki beðið um að glerið fylgdi. Glerið var síðan dýr- ara en sem nam afslættinum. Hvað kemur þetta málinu við? Alls ekki neitt. En ef þú hefur gleymt því eitt andartak á meðan á lestrinum stóð um hvað málið fjallar þá er tilgangn- um náð og ég veit að þú fyrirgefur mér. Ég bið þig innilegrar afsökunar. JÓN AXEL EGILSSON, teikni- og kvikmyndagerðarmaður, grafíker og margmiðlungur. Fyrirgef oss vorar skuldir… Frá Jóni Axeli Egilssyni: ÞÓTT ég hafi búið erlendis um ára- raðir er ég borinn og barnfæddur Reykvíkingur, Vesturbæingur og 101-verji fram í fingurgómana. Því hefur það glatt mitt gamla reykvíska hjarta að borgarbúar hafa um nokk- urt skeið notið forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Hún er glæsi- legur leiðtogi sem hefur hið náttúru- borna átórítet er prýða á forystu- menn í lýðræðisríkjum. Stefna hennar er áræðin og nútímaleg, sumpart er hún meiri frjálshyggju- kona en Davíðsmenn, sumpart góður jafnaðarmaður. Hún geldur keisar- anum það sem keisarans er, Guði það sem Guðs er. Frjálshyggjumenn ættu að fylkja sér um Ingibjörgu, hún berst fyrir markaðsfrelsi, ekki frelsi til handa fáeinum auðkýfing- um. Femínistar ættu að kjósa hana því hún er fyrirmynd ungra, metn- aðargjarnra kvenna. Vinstrimenn ættu að kjósa hana því hún er brjóst- vörn gegn íhaldsöflunum. Lýðræðis- sinnar verða að kjósa hana því sú saga gengur fjöllunum hærra að nú- verandi valdsmenn á Íslandi ógni lýðræðinu. Reykvíkingum er því einboðið að veita Ingibjörgu brautargengi, kjós- ið R, kjósið rétt! STEFÁN SNÆVARR, Lillehammer, Noregi. Kjósið r(étt) Frá Stefáni Snævarr:

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.