Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 52

Morgunblaðið - 05.05.2002, Síða 52
DAGBÓK 52 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss kemur í dag. Arnarborg fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Huginn kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl. 9 vinnustofa og leikfimi, kl. 13 vinnu- stofa, kl. 14 spilavist. Nýtt jóganámskeið hefst miðvikud. 7. maí, kennt verður á þriðju- og fimmtudögum kl. 9. Lágmarks þátttaka 10 manns. Farið verður í Hagkaup í Skeifunni miðvikud. 8. maí kl. 10. með viðkomu á Granda- vegi 47. Skráning í af- greiðslu eða s. 562 2571. Hjúkrunarfræðingur verður í Aflagranda 40 miðvikud. 8. maí. kl. 11– 12. vegna frídagsins 9. maí. Árskógar 4. Á morgun kl. 9 opin handa- vinnustofan, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30–16.30 opin smíðastofan/útskurður, kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist. Hand- verkssýning verður föstud. 10. og laugard. 11. maí kl. 13–16.30. Bingó fellur niður föstudaginn 10. maí vegna sýningarinnar. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–12 búta- saumur, kl. 10 sam- verustund, kl. 13.30–14.30 söngur við píanóið, kl. 13–16 búta- saumur. Eldri borgarar Kjal- arnesi og Kjós. Fé- lagsstarfið Hlaðhömr- um er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13– 16.30, spil og föndur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga á föstudögum kl. 11. Kór- æfingar fimmtudaga kl. 17–19. Uppl. hjá Svan- hildi í s. 586 8014 kl. 13–16. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið Seljahlíð. Sýning á handverki heimilismanna verður dagana 11., 12. og 13. maí kl. 13.30–17. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Á morgun kl. 9 myndlist, kl. 9.30 hjúkr- unarfræðingur á staðn- um, kl. 10 verslunin op- in, kl. 11.10 leikfimi, kl. 13 föndur og handa- vinna, kl. 13.30 enska, framhald. Handa- vinnusýning verður laugar- og sunnud. 4. og 5. maí kl. 13–17. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Á morgun kl. 9 böðun. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Á morgun kl. 9 glerskurður kl. 11.15, 12.15 og 13.05 leikfimi, kl. 13 skyndihjálp, þriðjud. 7. maí: Spilað í Kirkjuhvoli – opið hús. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Á morg- un félagsvist kl. 13.30, púttæfingar í Bæj- arútgerð kl. 10–11.30, þriðjud.: brids, nýir spilarar velkomnir, saumur undir leiðsögn og frjáls handavinna kl. 13.30, spænskukennsla kl 16.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Sunnud.: Félagsvist kl. 13.30. Dansleikur kl. 20. Mánud.: Brids kl. 13. Söngvaka kl. 20.30. Fuglaskoðun og sögu- ferð suður með sjó og á Reykjanes 11. maí, skráning á skrifstofu FEB, s. 588 2111. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Opið sunnu- daga frá kl. 14–16 blöð- in og kaffi. Á morgun kl. 9–16.30 opin vinnu- stofa, handavinna og föndur, kl. 14 fé- lagsvist. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Í næstu viku „Menninngardagar“ m.a. á mánudag opin handavinnusýning frá kl. 9–18, sund- og leik- fimiæfingar í Breið- holtslaug kl. 9.30, kl. 11–12 er Herdís Jóns- dóttir hjúkrunurfræð- ingur á staðnum, frá hádegi spilasalur op- inn, kl. 13.30–14.30 bankaþjónusta kl. 15.30 „kynslóðir saman í Breiðholti“, þátttak- endur í upplestri gunn- skólanna flytja dag- skrá úr Heimsljósi, á þriðjudag eftir hádegi er félagsvist, allir vel- komnir. Þriðjudagur kl. 9–18 handa- vinnusýning opin, kl. 13–15 félagsvist í sam- starfi við Fellaskóla, Seljaskóla og Hóla- brekkuskóla.Veitingar í Kaffi Berg. Allir vel- komnir. Önnur dagskrá kynnt síðar. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun kl. 9 handa- vinna, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, kl. 11 leikfimi, kl. 13 lomber og skák, kl. 20 skap- andi skrif. Gjábakki og Gull- smári. Nemendur Digranesskóla bjóða eldri borgurum í Kópa- vogi til fræðslu og skemmtidagskrár föstudaginn 10. maí kl. 10. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl.9.05 leikfimi, kl. 9. 55 róleg stólaleikfimi, kl. 13 brids, kl. 20.30 fé- lagsvist. Hraunbær 105. Á morgun kl. 9 perlu- saumur, postulíns- málun og kortagerð, kl. 10 bænastund. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. föndur, kl. 10 boccia, kl. 13 spilað, kl. 13.30 gönguferð. All- ir velkomnir. Leik- húsferð í dag sunnudag verður farið að sjá Kryddlegin hjörtu í Borgarleikhúsinu. Norðurbrún 1. Á morg- un kl. 10 ganga. Vesturgata 7. Á morg- un, kl. 9.15 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 12.15– 13.15 danskennsla, kl. 13 kóræfing. Kirkjustarf aldraðra, Digraneskirkju. Sein- asta opið hús á þriðju- dag kl. 11. Leikfimi, matur, sr. Magnús Guð- jónsson sér um helgi- stund, heimafólk sér um samverustund. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids að Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Háteigskirkja. Eldri borgarar, mánudaga fé- lagsvist kl. 13–15. Kvenfélagið Heimaey. Lokakaffið í dag kl. 14 í Súlnasal Hótel Sögu. Breiðfirðingafélagið, Faxafeni 14. Dagur aldraðra í dag. Sam- koma sem hefst kl. 14.30. Félag breiðfirskra kvenna. Fundur má- nud. 6. maí kl. 20. Skráð í sumarferðina. Kvenfélag Garðabæjar. Vorfundurinn verður þriðjud. 7. maí á Garða- holti kl. 19.30. Fund- urinn er matarfundur, félagskonur beðna um að koma blómum skrýddar. Kvenfélag Seljasóknar. Fundur verður þriðjud. 7. maí í kirkjumiðstöð- inni kl. 20. Gestur fund- arins, Héðinn Unn- steinsson, ræðir um geðrækt. Kvenfélagið Fjallkon- urnar. Fundur verður þriðjud. 7. maí kl. 20 í safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju. Konur úr kvenfélagi Óháða safnaðarins og úr Kvenfélagi Háteigs- sóknar koma í heim- sókn. Happdrætti. Kon- ur beðnar um að koma með hatta. Kvenfélag Laug- arnessóknar. Síðasti fundur vetrarins er á morgun, 6. maí, kl. 20 í safnaðarheimilinu. Orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi. Á vegum nefndarinnar verða farnar tvær ferðir á þessu sumri: á Kirkjubæjarklaustri 13.–15. júní örfá sæti laus, í Skagafjörð 23.–25. ágúst. Hvíldar- og hressing- ardvöl á Laugarvatni 24.–30. júní. Innr. í s. 554-0388 Ólöf , s. 554- 2199 Birna frá 18. apr- íl–10. maí. Kvenfélag Lágafells- sóknar. Farið verður í gönguferð meðfram Varmá mánudaginn 6. maí kl. 20. Kaffi og meðlæti í Brúarlandi að göngu lokinni. Mæting við Brúarland. Í dag er sunnudagur 5. maí, 125. dagur ársins 2002. Bænadagur. Orð dagsins: Sælir eru sorgbitnir, því að þeir munu huggaðir verða. (Matt. 5, 4.) Víkverji skrifar... VÍKVERJI verður að segja einsog er að hann gladdist mjög þegar Stoke City komst áfram úr undanúrslitum umspilsins um sæti í ensku 1. deildinni í knattspyrnu næsta vetur. Víkverji hefur tröllatrú á Guðjóni Þórðarsyni knattspynustjóra Stoke og vonast til þess að honum takist ætlunarverkið; að stýra liði sínu til sigurs í leiknum gegn Brentford í Cardiff á miðvikudaginn og tryggja því þar með sæti í 1. deild. Jafnvel þó tveir íslenskir leikmenn séu í liði Brentford. Áfram Stoke! Áfram Guð- jón! x x x FYRIR viku nöldraði Víkverji svo-lítið út af orðalagi íþróttafrétta- manna. Eða kom réttara sagt á fram- færi kvörtunum vinar síns í þeim efnis. Lýkur hér bréfi vinarins: „Úr því að ég er á annað borð kom- inn í þennan ham má ég til með að minnast á eitt atriði til viðbótar sem er mér til mikils ama í lýsingum. Það er þegar sagt er að mörkin telji. Engu máli skipti þótt lið A hafi leikið leið- inlega gegn liði B því það séu jú mörk- in sem telji. A-liðiðskoraði fleiri mörk og vann. Síðast var klifað á því á Sýn eftir leik Barcelona og Real Madrid [í fyrri viku] að það væru mörkin sem teldu. Þrátt fyrir gríðarlegar tækninýj- ungar og öra þróun á mörgum sviðum á síðustu árum þá veit ég ekki um eitt einast mark í heiminum sem kann að telja, og fylgist ég þó grannt með knattleikjum. Mörk eru á hinn bóginn talin og þá af mannskepnunni. Þá vita menn hvernig kappleikurinn fór, hverjar lyktir hans voru. Ættu mörk- in sjálf að sjá um talninguna er alveg víst að úrslit leikja lægju aldrei fyrir. Mörkin eru talin, þau telja sig ekki sjálf.“ x x x ATHYGLI Víkverja var vakin ágrein Sigurðar Davíðssonar, vefstjóra stjórnarráðsvefjarins í nýj- asta tímariti Öryrkjabandalagsins. Þar segir hann m.a. frá notendakönn- un sem gerð var meðal nokkurra not- enda með ólíkan bakgrunn: „Ýmsar vísbendingar komu fram um það sem betur má fara á vefnum og koma nið- urstöður notendaprófananna þannig til með að leiðbeina ráðuneytum um áframhaldandi þróun vefsins með til- liti til þarfa notenda. Gefa þarf sér- stakan gaum að þörfum blindra og sjónskertra, heyrnarlausra, hreyfi- hamlaðra, þroskaheftra og fleiri hópa og gera vefinn þannig úr garði að ein- falt sé að nýta sér efni hans. Sannleik- urinn er sá að flest af því sem talið er að auðveldi aðgengi fatlaðra að Net- inu nýtist ekki síður öðrum almenn- um notendum.“ Sigurður upplýsir að sérstök al- þjóðleg viðmið hafi verið sett fram sem vefir þurfi að standast ef þeir eigi að þjóna þörfum fatlaðra. „Að und- anförnu hefur verið unnið að því að stjórnarráðsvefurinn standist þessi alþjóðlegu viðmið. Þeim er forgangs- raðað í þrjá flokka eftir mikilvægi og viðmiðun. Fyrsta flokki er þegar náð ásamt fjölmörgum úr öðrum og þriðja flokki. Markmiðið er að sjálfsögðu að standast öll þessi viðmið en það er tímafrekt verk þar sem stjórnarráðs- vefurinn samanstendur af tugþús- undum síðna og skráa.“ Óhætt er að hrósa aðstandendum stjórnarráðsvefjarins fyrir fyrir- myndar vinnubrögð. Góðæri – fátækt Á TÍMUM góðæris í okkar ríka landi hefur verið seilst æ dýpra ofan í vasa laun- þega, öryrkja og eldri borg- ara. Í fyrsta skipti var farið að leggja skatt á bætur frá tryggingastofnun. Fátækt hefur aukist mik- ið á stuttum tíma og afleið- ingarnar eru skelfilegar. Fólk sveltur, getur ekki staðið í skilum og gjald- þrotum hefur fjölgað. Langar biðraðir fyrir utan hjálparstofnanir segja líka sína sögu. Einstæðar mæð- ur heyja harða baráttu til þess að geta séð fyrir börn- um sínum. Það er hart að fullvinn- andi fólk geti ekki lifað af launum sínum. Börn sem alast upp í fátækt verða oft reiðir og bitrir einstakling- ar þegar þau fullorðnast. Það er líka oft þannig að börn sem alast upp við slík- ar aðstæður verða oft fá- tæktinni að bráð. Núna þegar kosningar eru framundan í borginni reyna framboðin eins og þau geta að veiða atkvæðin. En hvaða framboð er lík- legast til að rétta þessu fá- tæka fólki hjálparhönd? R-listinn hefur nú ekki staðið sig nógu vel. Þeir stofnuðu Félagsbústaði hf. sem er rekið eins og fyrir- tæki. Viðskiptavinir þess eru bláfátækt fólk og ef það getur ekki borgað húsaleig- una er farið fram á útburð. Félagsþjónustan á reyndar að hjálpa þessu fólki en er ansi þröngt sniðinn stakk- ur. Er einhvers að vænta af D-listanum varðandi þetta málefni ef þeir sigra í borg- arstjórnarkosningunum? Allavega neitaði forsætis- ráðherra Jóhönnu Sigurð- ardóttur alþingismanni um utandagskrárumræðu um fátæktina á Alþingi. Við tökum undir þau orð hennar að það sé ámælis- vert að ráðherrann skuli neita þessu. Stöndum saman í barátt- unni gegn fátæktinni. Eng- inn veit hvar hún getur bankað uppá næst. Það þarf oft ekki mikið að ske til þess að fólk lendi í fátækt- argildrum. Munum að allir hafa sama rétt til þess að lifa með mannlegri reisn. Hallgrímur Kristinsson. Hvar er „Pigen með barnet“? FYRIR rúmum 27 árum hvarf mynd úr Ramma- gerðinni sem átti að pakka og senda til mín í Banda- ríkjunum. Ég kallaði mynd- ina brúna madonna, af því að „Pigen með barnet“ var í brúnum litum og allt í kring voru mismunandi bláir litir, en hvítt í kringum höfuðið. Stærð myndarinnar er 65 cm x 50 cm. Þessa mynd átti dóttir mín að fá, en hún fæddist 1973. Fundarlaun til þeirra sem geta gefið upplýsingar. Vinsamlega hafið sam- band við: Sonju R. Haralds, Bakkakoti, 109 Reykjavík. Tapað/fundið Ljósblá úlpa týndist LJÓSBLÁ telpuúlpa týnd- ist fyrir u.þ.b. þremur vik- um á leiksvæðinu við Leik- skólana í Fellahverfi í Efra-Breiðholti. Þeir sem gætu gefið uppl. hafi sam- band í síma 557 4336. Góð fundarlaun. Dýrahald Kanína fæst gefins ÁRSGÖMUL karlkyns kanína fæst gefins á gott heimili, inni- og útibúr get- ur fylgt með. Uppl. gefur Ásdís í síma 699 0924. Kolsvört kisa týnd KOLSVÖRT læða, með brúna hálsól og merkt á eyra, týndist frá Rituhól- um, Efra-Breiðholti aðfara- nótt þriðjudags. Vinsam- lega hafið samband við Villu í síma 864 0669 ef hún sést því hennar er sárt saknað. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 veiðarfærið, 8 súld, 9 álíta, 10 þreyta, 11 skrika til, 13 orðasenna, 15 hræ- fugla, 18 snauta, 21 lipur, 22 smá, 23 svipað, 24 ert- ing í húð. LÓÐRÉTT: 2 gömul, 3 senna, 4 hljóð- aðir, 5 vondum, 6 mynni, 7 álka, 12 viðkvæm, 14 fag, 15 málmur, 16 lengd- areining, 17 fiskar, 18 lít- inn, 19 kvennafns, 20 mjög. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 bágur, 4 felds, 7 töflu, 8 ljótt, 9 sál, 11 röng, 13 sili, 14 ásett, 15 holt, 17 ólán, 20 ugg, 22 kæfir, 23 undið, 24 rúðan, 25 tjara. Lóðrétt: 1 bætur, 2 gufan, 3 raus, 4 full, 5 ljósi, 6 sætti, 10 ágeng, 12 gát, 13 stó, 15 hokur, 16 lofuð, 18 lydda, 19 naðra, 20 urin, 21 gust. K r o s s g á t a Í NÝJASTA tölublaði Klifurs, fréttablaðs Sjálfs- bjargar, las ég frábært viðtal blaðamanns þeirra við Lárus Hauk Jónsson. Hann er með MS- sjúkdóminn og er löngu kominn í hjólastól. En hann er svo jákvæður og bjartsýnn að það er með ólíkindum. Ég skora á fólk að lesa þessa grein, sem getur glatt alla. Hann þyrfti að fara út á meðal fólks og tala kjark í það eða bara brosa og hlæja. Það rifjast upp fyrir mér að ég þekkti einu sinni danskan mann sem beðinn var að vinna með „fatlafólum“ í Kaup- mannahöfn. Hann hafði misst báða handleggi, annan upp við öxl vegna berkla en hinn í umferð- arslysi. Þetta var mikill kjark- og bjartsýnismað- ur. Hann var einn af þeim fyrstu sem fengu bíl sem hægt var að aka með fót- unum og byrjaði svo að tala á fundi hjá lömuðum og fötluðum og talaði kjark í fólk. Ég á mann sem er mjög mikið fatlaður og vildi að hann ætti kost á að heyra og sjá þennan mann. MH. Frábært viðtal

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.