Morgunblaðið - 05.05.2002, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
fengi rúmlega 40% greiddra at-
kvæða, ef gengið væri til Alþingis-
kosninga nú, Samfylkingin fengi
næstmest fylgi eða rúm 22%,
Vinstri hreyfingin – grænt framboð
rúm 19%, Framsóknarflokkurinn
tæplega 16% fylgi og Frjálslyndi
flokkurinn 2%. Þetta eru niðurstöð-
ur skoðanakönnunar sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla Íslands gerði
fyrir Morgunblaðið dagana 20. apríl
til 2. maí. 10% segjast myndu skila
auðu eða kjósa ekki og tæp 7 % neit-
uðu að svara.
Þrjár spurningar voru lagðar fyr-
ir svarendur á aldrinum 18 til 80 ára
um hvað þeir myndu kjósa, ef al-
þingiskosningar yrðu haldnar á
morgun. Fyrst var spurt: Ef alþing-
iskosningar væru haldnar á morg-
un, hvaða flokk eða lista myndir þú
kjósa? Fólk sem sagði „veit ekki“
við þessari spurningu var spurt
áfram: En hvaða flokk eða lista tel-
ur þú líklegast að þú myndir kjósa?
Segðist fólk enn ekki vita það var
það spurt: En hvort heldurðu að sé
líklegra að þú kjósir Sjálfstæðis-
flokkinn eða einhvern annan flokk
eða lista? Tæp 18% svöruðu „veit
ekki“ eftir fyrstu tvær spurningarn-
ar, en þegar svörum við þriðju
spurningu er bætt við fer hlutfall
óráðinna niður í 7,5%.
Þeim svarendum sem svöruðu
þriðju spurningunni þannig að þeir
myndu líklega kjósa annan flokk en
Sjálfstæðisflokkinn var skipt á milli
þeirra flokka og þeirra sem segjast
skila auðu eða kjósa ekki í sömu inn-
byrðis hlutföllum og fengust við
tveimur fyrri spurningunum. Séu
niðurstöður könnunarinnar bornar
saman við úrslit kosninganna 1999,
kemur í ljós að fylgi Vinstri hreyf-
ingarinnar – græns framboðs hefur
tvöfaldast, en fylgi Samfylkingar,
Framsóknarflokks og Frjálslynda
flokksins er aftur á móti minna en í
kosningunum 1999.
Stuðst var við slembiúrtak úr
þjóðskrá sem náði til 1.200 einstak-
linga á aldrinum 18–80 ára á landinu
öllu. Alls fengust svör frá 777 af
þeim 1.200 sem voru í úrtakinu, en
það er um 66% svarhlutfall þegar
frá upphaflegu úrtaki hafa verið
dregnir þeir sem eru nýlega látnir,
erlendir ríkisborgarar og fólk sem
er búsett erlendis.
Könnun Félagsvísindastofnunar um fylgi flokkanna
Sjálfstæðisflokkur
fengi 40% fylgi
Samfylkingin/4
STOFNAÐ hefur verið Félag
áhugamanna um guðfræðilega
kímni, að því er fram kemur á vef
þjóðkirkjunnar. Félagið er öllum
opið, að sögn sr. Magnúsar Björns
Björnssonar, sóknarprests í Digra-
neskirkju, jafnt prestlærðum sem
öðru fólki. Fyrsti fundur félagsins
er áformaður í haust.
Helstu markmið félagsins eru að
safna guðfræðilegum gamansögum
og gamanmálum, bröndurum og
gamanvísum, sem nota má í dag-
legu amstri og starfi. Magnús sagði
við Morgunblaðið að einnig ætti að
kanna og rannsaka guðfræðilega
kímni og húmor í Biblíunni og utan
hennar, einkum Gamla testament-
inu þar sem ítarleg rannsókn á
húmor í Nýja testamentinu hefði
verið gerð af dr. Jakobi Jónssyni.
„Þverfaglegar rannsóknir hafa
verið gerðar af hjúkrunarfræð-
ingum, læknum og fleiri stéttum
um áhrif kímni á heilbrigði manna.
Ég tel það mjög mikilvægt að við,
guðfræðingar og prestar, tökum
þátt í þessu þverfaglega starfi og
nýtum okkur einnig kímni í boð-
uninni. Allt er þetta til að byggja
okkur sjálf upp og sálina um leið.
Ekkert lengir lífið meira en góður
hlátur,“ sagði Magnús.
Nægur húmor
í ritningunni
Hann sagði að dr. Jakob hefði
komist að því að húmor í Nýja
testamentinu væri nægur. „Guð
skapaði okkur og gaf okkur húm-
orinn. Hann hafði húmorinn upp-
haflega og svo er bara spurningin
hvernig við nýtum okkur hann,“
sagði Magnús.
Félag stofnað um guðfræðilega kímni
Hyggjast safna
guðfræðilegum
gamansögum
ÞESSI fallegi hreindýrskálfur kom
í heiminn í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum í Laugardal á
fimmtudagskvöld og verður hann
líklega eini kálfurinn sem fæðist í
garðinum í vor. Litli kálfurinn, sem
er kvíga, hefur enn ekki fengið
nafn, en móðirin, sem hér er stolt
með afkvæmi sitt, heitir Snotra.
Margrét Dögg Halldórsdóttir,
deildarstjóri dýradeildar í garð-
inum, segir að kvígan sé stór og
myndarleg, hún hafi strax staðið í
fæturna og uni hag sínum vel í
garðinum. Nú eru þrjár kýr í garð-
inum auk nýfæddu kvígunnar, en
tarfurinn er nýlega fallinn frá. Mar-
grét segir að garðurinn hafi fengið
leyfi fyrir nýjum tarfi. Í gærmorg-
un fæddust tvö lömb í garðinum og
eru þá komin fimm lömb úr tveimur
kindum þetta vorið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lítill hreindýrskálfur
kominn í heiminn
NÍU ára gömul stúlka lést af slys-
förum á heimili sínu á Patreksfirði
á föstudag.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Patreksfirði var stúlkan
að leik ásamt öðru barni þegar
slysið varð en engir fullorðnir voru
í húsinu. Við leik þeirra vafðist
sippuband utan um háls stúlkunnar
sem varð til þess að hún kafnaði.
Ung systir stúlkunnar sem kom
að hringdi í móður sína sem vinnur
skammt frá og hringdi hún á Neyð-
arlínu þegar hún kom á heimilið.
Lögregla, læknir og sjúkraflutn-
ingamenn komu fljótt á vettvang
en lífgunartilraunir báru ekki ár-
angur. Tildrög slyssins eru í rann-
sókn hjá lögreglunni á Patreks-
firði.
Fjölmenn bænarstund vegna
slyssins var haldin í Patreksfjarð-
arkirkju í gær en slysið hefur feng-
ið mjög á bæjarbúa.
9 ára stúlka lést
af slysförum á
Patreksfirði
Bænarstund í Patreksfjarðarkirkju