Morgunblaðið - 25.05.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BEINLAUSAR
svínakótilettur
á grillið
Tilboð
10
29
/
T
A
K
T
ÍK
2
5.
5´
02
BEINLAUSAR
1398
pr.
kg.
Ali kótilettur BBQ
Ali kótilettur léttreyktar
TÆPLEGA 3.700 nemendur í 10.
bekk grunnskólans þreyttu sam-
ræmd próf og voru niðurstöður birt-
ar í gær en einkunnirnar eru svip-
aðar og í fyrra. Stærðfræðiprófið
var harðlega gagnrýnt og fór svo að
allir fengu rétt fyrir þau þrjú dæmi,
sem mesta umræðan var um. Einnig
var gefið rétt fyrir tvo svarmögu-
leika í tveimur tilvikum í íslensku.
Sigurgrímur Skúlason, sviðsstjóri
hjá Námsmatsstofnun, segir að mik-
ilvægustu niðurstöðurnar séu þær
einkunnir sem hver nemandi fái.
Svonefndar raðeinkunnir séu einna
merkingarbærastar en þær sýna
stöðu nemandans í samanburði við
aðra sem tóku prófið. Raðeinkunnin
50 segir nemanda til dæmis að 50%
nemenda landsins standi sig svipað
eða lakar í viðkomandi fagi. Sig-
urgrímur bendir á að prófin séu
ekki búin til í þeim tilgangi að bera
saman einkunnir milli landshluta
eða bera saman gæði kennslu í skól-
unum. Niðurstaðan sýni að fáeinir
fái hæstu einkunnirnar og fáeinir
þær lægstu en um 20% fái einkunnir
á bilinu 4,5 til 5,5. Síðan verði hver
og einn að meta hvað sé viðunandi
einkunn fyrir viðkomandi. Almennt
sé miðað við að 4,5 sé óviðunandi
einkunn, þó það sé ekki opinber
túlkun, og oft sé það t.d. þannig að
nemendur með 6,0 eða lægri ein-
kunn í stærðfræði í 10. bekk lendi í
vandræðum í faginu á fyrsta ári í
framhaldsskóla.
Þremur dæmum sleppt
36,5% nemenda fengu 4,5 eða
lægri einkunn í stærðfræði, en 3.647
nemendur tóku prófið eða 93,0%
nemenda. 85,5% fengu 7,5 eða lægri
einkunn. Sigurgrímur segir að nið-
urstaðan sé ekki eins slök og um-
ræðan hafi bent til en mikið var
kvartað vegna prófsins og m.a. voru
þrjú dæmi tekin út og fengu allir
rétt fyrir þau. Í einu tilvikanna voru
milli 60 og 70% með rétt svar en
færri í hinum. Sigurgrímur segir að
niðurstaðan sé svipuð og fyrir
tveimur árum, en þá hafi prófið ver-
ið í þyngri kantinum.
Meðaltalseinkunn allra í stærð-
fræði á landinu var 5,5 en var 5,8 í
fyrra og 5,1 árið 2000. Meðaltalið
var hæst í skólum í nágrenni
Reykjavíkur eða 5,8, í Reykjavík
var það 5,7 en lægst á Suðurnesjum
eða 4,9. 12 nemendur fengu 10,0 í
einkunn, 70 nemendur 9,5 og 112
9,0.
Í íslensku fengu 12,8% nemenda
4,5 eða lægri einkunn og 82,8% 7,5
eða lægri einkunn en 3.671 nemandi
tók prófið eða 93,6%. Meðaltal
landsins var 6,4 eins og í fyrra, en
það var 6,6 árið 2000. Meðaltalið var
hæst í Reykjavík eða 6,6, í nágrenni
Reykjavíkur var það 6,5 og lægst á
Suðurnesjum eða 5,9. Einn nemandi
fékk 10,0, 13 nemendur 9,5 og 66
9,0.
Gefið var rétt fyrir tvo svarmögu-
leika við spurningu í málfræði og
sami háttur var viðhafður vegna
spurningar í bókmenntum.
Meðaleinkunnir marklausar
3.668 tóku enskuprófið eða 93,5%
6,5% fengu 4,5 eða lægri einkunn en
45,9% 7,5 eða lægri einkunn. 24
nemendur fengu 10,0, 245 9,5 og 564
9,0. Meðaltalseinkunn landsins var
7,5, en hún var 6,5 í fyrra og 6,6 árið
2000. Meðaltalið var 7,8 í Reykjavík,
7,7 í nágrenni Reykjavíkur og lægst
á Suðurlandi og Norðurlandi vestra
eða 7,0.
Náttúrufræði var hluti sam-
ræmdra prófa í fyrsta sinn og tóku
2.682 nemendur prófið eða 68,4%.
3,7% fengu 4,5 eða lægri einkunn og
42,8% 7,5 eða lægri einkunn, en
meðaltal landsins var 7,8. Það var
hæst í Reykjavík eða 8,2, í nágrenni
Reykjavíkur var það 7,9 en lægst á
Suðurnesjum eða 7,2. 83 nemendur
fengu 10,0, 351 9,5 og 373 9,0.
Dönskuprófið tóku 3.235 nemend-
ur eða 82,5%. 25,7% fengu 4,5 eða
lægri einkunn en 66,2% 7,5 eða
lægri einkunn. Enginn nemandi
fékk 10,0, 102 fengu 9,5 og 280 9,0.
Meðaltal landsins var 6,4 en var 5,6
í fyrra og 6,5 árið 2000. Meðaltalið í
nágrenni Reykjavíkur var 6,7, í
Reykjavík 6,6 og lægst á Suðurlandi
eða 5,7.
Sigurgrímur segir að meðalein-
kunnir skóla í náttúrufræði og
dönsku séu í raun marklausar við
samanburð á skólum vegna þess
hvað margir tóku ekki prófin.
Niðurstöður birtar úr samræmdu prófunum í 10. bekk
Allir fengu rétt
fyrir þrjú dæmi
! " # ! " #
! " # ! " # ! " #
$
$
% &!! % &
% & % &"!% &"
KOSNINGAVÖKUR ljósvakamiðl-
anna verða með hefðbundnu sniði
í kvöld. Á Ríkissjónvarpinu hefst
útsending strax að lokinni
Söngvakeppni evrópska sjón-
varpsstöðva eða laust fyrir kl. 22.
Á Stöð 2 hefst formleg kosn-
ingavaka kl. 20.30 og á Rík-
isútvarpinu kl. 21.30.
Búist er við fyrstu tölum frá
kjörstöðum skömmu upp úr kl.
22. Klukkan 22.05 verður bein út-
sending frá Ráðhúsinu þar sem
oddvitar framboðslistanna tjá sig
um fyrstu tölur.
Sökum tæknilegra annmarka
verða sjónvarpsstöðvarnar tvær
með sameiginlega útsendingu frá
Reykjanesbæ, Ísafirði og Árborg.
Kosningavökum verður fram
haldið þar til öll úrslit liggja fyr-
ir.
Stöð 2 verður með fréttaefni
frá níu talningarstöðvum, Borg-
arbyggð, Ísafirði, Akureyri, Aust-
ur-Héraði, Árborg, Reykjanesbæ,
Hafnarfirði, Kópavogi og Ráðhús-
inu í Reykjavík. Fylgst verður
með úrslitum í 34 stærstu sveit-
arfélögunum.
Að auki verða beinar útsend-
ingar frá kosningavökum og öðr-
um uppákomum víðsvegar um
höfuðborgarsvæðið.
Umræður og viðtöl verða í
myndveri Stöðvar 2 þar sem for-
ystumenn stjórnmálaflokkana og
fréttaskýrendur tjá skoðanir sín-
ar.
Kosningavökunni verður út-
varpað á Útvarpi Sögu og á Net-
inu á slóðunum www.stod2.is, vis-
ir.is og islandia.is.
Að sögn Þórs Jónssonar frétta-
manns verður skemmtidagskrá
með fjölbreyttu sniði.
Hljómsveitirnar Í svörtum föt-
um, Írafár, Land og synir og Á
móti sól koma fram. Þá munu Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir og
Selma Björnsdóttir flytja söng-
leikjadagskrá og sýndar verða
glefsur úr Falinni myndavél og
nýjustu Fóstbræðrasyrpunni.
Útvarpa úrslitum frá
öllum sveitarfélögum
Á Rás 1 verða lesnar tölur og
úrslit frá öllum sveitarfélögunum
á landinu og sker útvarpið sig frá
hinum kosningavökunum að
þessu leyti. Þá verður útvarpað
viðtölum við frambjóðendur víðs-
vegar að af landinu. Rás 1 og
Sjónvarpið verða í samstarfi með
beinar útsendingar þegar fyrstu
tölur verða kunngerðar.
Að auki verða beinar útsend-
ingar frá kosningavökum. Að
sögn Óðins Jónssonar, frétta-
manns og útsendingarstjóra, er
hátt í 40 manna hópur tækni- og
fréttamanna að störfum þessa
nótt.
Engin hefðbundin skemmti-
dagskrá verður á milli dag-
skrárliða.
Í Sjónvarpinu verður fylgst
með úrslitum frá 36 sveit-
arfélögum. Sjónvarpað verður frá
Ráðhúsinu í Reykjavík, Hafn-
arfirði, Kópavogi, Reykjanesbæ,
Ísafirði, Akureyri, Fjarðabyggð
og Árborg þar sem forystumenn
listanna verða í viðtali.
Þá verður sent út frá kosn-
ingavökum á höfuðborgarsvæð-
inu. Að sögn G. Péturs Matthías-
sonar, fréttamanns og útsend-
ingarstjóra kosningavökunnar, er
áætlað að sjónvarpa ræðum odd-
vita D- og R-lista á kosninga-
vökum í Reykjavík. Laust fyrir
miðnætti verða viðtöl við for-
menn stjórnmálaflokkanna í
myndveri þar sem farið verður
yfir gang kosninga.
Þá munu sérfræðingar túlka
niðurstöður í einstökum kjör-
dæmum.
Á milli þess sem tölur eru birt-
ast verða leikin gömul og ný lög
úr Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva.
Öll úrslit verða birt jafnóðum á
textavarpi RÚV og www.ruv.is.
Morgunblaðið/Kristinn
Þór Jónsson, fréttamaður Stöðvar 2, og umsjónarmenn kosningasjón-
varpsins voru önnum kafnir í gær við undirbúning útsendingar.
Elín Hirst fréttamaður og Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarps, í
myndveri kosningasjónvarpsins í Útvarpshúsinu í Efstaleiti.
Kári Jónasson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, og fréttamennirnir Óðinn
Jónsson og Hermann Sveinbjörnsson undirbúa kosningavaktina.
Kosningavökur
ljósvakamiðla með
hefðbundnu sniði