Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 56
MESSUR 56 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF veitingar að messu lokinni í safn- aðarheimilinu. Aðalsafnaðarfundur Breiðholtssóknar að því loknu. Venjuleg aðalfundarstörf. Gísli Jónasson. DIGRANESKIRKJA: Safnaðarferð Digra- nessafnaðar um Borgarfjörð verður 26. maí. Upplýsingar hjá kirkjuverði. Sungin verður þýsk messa í Reykholtskirkju kl. 14. Prestar: Sr. Geir Waage, sr. Magnús B. Björnsson og sr. Gunnar Sig- urjónsson prédikar. Organisti. Kjartan Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju. Að- alsafnaðarfundur Digranesprestakalls verður haldinn í safnaðarsal Digra- neskirkju miðvikudaginn 29. maí kl. 19:30. Venjuleg aðalfundarstörf. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Prestur: Sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti: Lenka Mátéová. GRAFARVOGSKIRKJA: Messa kl. 11:00. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt kór Graf- arvogskirkju. Organisti: Ester Ólafs- dóttir. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safn- aðarsöng. Hildur B. Sigurðardóttir. syng- ur einsöng. Organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Prest- arnir. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson hér- aðsprestur prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Kór Kópavogskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng. Organisti Julian Hewlett. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Þrenningarhátíð. Guðs- þjónusta kl. 14.00. Sr. Valgeir Ástráðs- son þjónar fyrir altari. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. Altarisganga. Aðalfundur Seljasóknar í safnaðarsal að messu lokinni kl. 15.15. Guðsþjónusta í Skóg- arbæ kl. 16:00. Sr. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir prédikar. Organisti er Gróa Hreinsdóttir. ELLIMÁLARÁÐ Reykjavíkurprófasts- dæma: Eins og undanfarin ár verða sumarguðsþjónustu eldri borgar í Reykjavíkurprófastsdæmum. Guðsþjón- usturnar færast á milli kirknanna í pró- fastsdæmunum. Að þessu sinni verður guðsþjónustan í Árbæjarkirkju miðviku- daginn 29. maí kl. 14.00. Sr. Þór Hauksson prédikar og þjónar fyrir altari. Sönghópur leiðir söng undir stjórn Pavel Manásek organista. Á eftir verða kaffi- veitingar í boði Árbæjarsóknar. Þessar guðsþjónustur eru samstarfsverkefni Ellimálaráðs Reykjavíkurprófastsdæma, og safnaðanna sem taka á móti okkur hverju sinni. Nánari auglýsingar eru í öllum kirkju og einnig í félagsmið- stöðvum aldraðra í Reykjavíkur og Kópa- vogi. Þess er vænst að sem flestir sjái sér fært að koma og eiga saman góða stund í kirkjunni. Allir eru velkomnir. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Farið verð- ur í vorferðalag frá kirkjunni kl. 11:00. Samkoma kl. 20:00. Mikil lofgjörð og fyrirbænir. Vilborg og Friðrik Schram segja frá 30 ára reynslu af trúfesti Guðs og bænheyrslum. Allir hjartanlega velkomnir. Sjónvarpsþátturinn „Um trúna og tilveruna“-viðtal við Lísu Jóns- dóttur, verður sýndur á Omega sunnud. kl. 13:30 og mánud. kl. 20:00. Þriðjud. kl. 11:00 f.h. verður efni þáttarins „Fornleifafræðin styður frásagnir Bibl- íunnar“. Heimasíða kirkjunnar: www.kristur.is FRÍKIRKJAN VEGURINN: Síðasta fjöl- skyldusamkoma vetrarstarfsins kl. 11:00, allir velkomnir, óvissuferð, farið í rútu, allir klæði sig eftir veðri, kostn- aður kr. 750 f. fullorðna, kr. 500 fyrir börn. Bænastund kl. 19:30. Samkoma kl. 20:00, Wynne Goss predikar, lof- gjörð, fyrirbænir og samfélag. Allir hjart- anlega velkomnir. „Drottni heyrir jörðin og allt sem á henni er, heimurinn og þeir sem í honum búa.“ Ath. aðalfundur safnaðarins verður miðvikudaginn 29. maí kl. 20:00, kynningarfundur árs- reiknings verður kl. 18:30. KLETTURINN: Almenn samkoma fyrir alla fjölskylduna sunnudag kl. 11. Mikil lofgjörð og tilbeiðsla. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: Sunnudagur, almenn sam- koma kl. 16:30, lofgjörðarhópur Fíla- delfíu syngur. Ræðumaður Wynne Goss. Barnakirkjan tekur þátt í samkomunni. Allir hjartanlega velkomnir. KEFAS, Vatnsendabletti 601: Vitn- isburðasamkoma sunnudag kl. 14.00. Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30. Lofgjörð og fyrirbænir. Tvískipt barna- starf fyrir börn frá eins árs aldri. Þriðjud.: Bænastund kl. 20.30. Mið- vikud.: Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Mikil lofgjörð og Orð Guðs rætt. Allir velkomnir. KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma kl. 17. Þátttakendur miðbæjarstarfs KFUM og KFUK sjá um samkomuna. Upphafsorð: Eygló Bjarnadóttir. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir flytur hugleiðingu. Krakkar kynna verkefni um fjölþjóða- kaffihúsasamkomu nýrra Íslendinga. Sérstök barnahugleiðing verður í upp- hafi samkomunnar og síðan verður brugðið á leik með þeim, úti eða inni eftir veðri. Það eru allir hjartanlega vel- komnir á samkomuna. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík – Kristskirkja í Landakoti: Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka daga: Messa kl. 18.00. Einnig messa kl. 8.00 suma virka daga (sjá nánar á til- kynningablaði á sunnudögum). Maímán- uður er settur sérstaklega undir verndar heilagrar Maríu meyjar og tileinkaður henni. Haldin verður bænastund á hverjum mánudegi og fimmtudegi kl. 17.40. Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Laug- ardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30, (í júní aðeins mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga kl. 18.30). Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00. Miðvikudaga: Messa kl. 20.00 (en þó ekki í júní). Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnu- daga: Messa kl. 10.30. Maímánuður er settur sérstaklega undir verndar heil- agrar Maríu meyjar og tileinkaður henni. Haldin verður bænastund á hverjum miðvikudegi og laugardegi kl. 18.00. Miðvikudaga: Skriftir kl. 17.30. Bæna- stund í maí kl. 18.00. Messa kl. 18.30. Laugardaga í maí: Bænastund kl. 18.00. Messa kl. 18.00. Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8.00. Fimmtudaginn 30. maí: Dýridagur – stórhátíð líkama og blóðs Krists. Hátíð- armessa kl. 8.30. Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14.00. Fimmtudaga: skriftir kl. 19.30. Bæna- stund kl. 20.00. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaginn 26. maí: Messa kl. 10.30 og fyrsta alt- arisganga fimm barna. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 16.00 á ensku og kl. 18.00 á pólsku. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturs- kirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl. 11.00. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Ath breyttan messutíma kl. 14:00 Messa á Hraunbúðum kl. 20:00 Kvöldmessa að afloknum kosningum. Það er þrenning- arhátíð og kirkjan er skreytt hátt og lágt. Sóknarbörn lesa ritningarlestra, Anna Cwalinska syngur einsöng, að ógleymdu innihaldsríku kaffispjallinu í safnaðarheimilinu á eftir. MOSFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar. Organisti Jónas Þórir. Jón Þorsteinsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Þema: Hver er litur guðs? Organisti Natalía Chow. Prestur sr. Þór- hallur Heimisson. FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Engin guðs- þjónusta verður sunnudaginn 26. maí. Næsta guðsþjónusta verður sunnudag- inn 2. júní kl. 20. Að lokinni þeirri guðs- þjónustu verður aðalfundur safnaðarins. Sjá nánar á heimasíðu kirkjunnar, fri- kirkja.is. VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta sunnudaginn 26. maí kl. 20:00. Kirkju- kór Víðistaðasóknar flytur létta tónlist undir stjórn Úlriks Ólasonar. Allir vel- komnir. Sóknarprestur. VÍDALÍNSKIRKJA: Vídalínskirkja: Guðs- þjónusta kl. 11.00. Þrátt fyrir kosningar heldur Kristur áfram að leiða kirkjuna sína! Kirkjukórinn syngur undir stjórn organistans, Jóhanns Baldvinssonar. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Fjölmenn- um! Prestarnir. GARÐAKIRKJA: Messa kl. 14.00. Kirkjukórinn syngur undir stjórn org- anistans, Jóhanns Baldvinssonar. Sr. Hans Markús Hafsteinsson þjónar. Njót- um kirkjugöngu í fögru umhverfi. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 13.30 og frá Hleinum kl. 13.40. Prestarnir. SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag kl. 11. Léttur hádegisverður að messu lok- inni. Morguntíð sungin þriðjudag til föstudags kl. 10. Kaffisopi að henni lokinni. Foreldrasamvera miðvikudag kl. 11. Sóknarprestur. LAUGARDÆLAKIRKJA í Flóa: Ferming- armessa sunnudag kl. 14. Organisti Ingi Heiðmar Jónsson. Kristinn Á. Frið- finnsson. AKUREYRARKIRKJA: KA messa kl. 14. Sr. Svavar A. Jónsson. Ræðumaður Atli Hilmarsson. Kvennakór Akureyrar syng- ur undir stjórn Björns Leifssonar. Org- anisti: Björn Steinar Sólbergsson. ATH. Messutímann! Kvennaflokkar knatt- spyrnudeildar KA verða með kaffisölu í Safnaðarheimili eftir messu. GLERÁRKIRKJA: Messa í Lögmanns- hlíðarkirkju kl. 14. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Sunnudagur: Bænastund kl. 19.30. Al- menn samkoma kl. 20. Allir velkomnir. HVÍTASUNNUKIRKJAN á Akureyri: Fjöl- skyldusamkoma sunnudag kl. 11.30. Pétur Reynisson prédikar. Samkoma kl. 20. Þórir Páll Agnarsson prédikar. Fjöl- breytt lofgjörðartónlist og fyrirbænaþjón- usta. Allir eru hjartanlega velkomnir. EINS og undanfarin ár verða sum- arguðsþjónustur eldri borgara í Reykjavíkurprófastsdæmum. Guðs- þjónusturnar færast á milli kirkn- anna í prófastsdæmunum. Að þessu sinni verður guðsþjón- ustan í Árbæjarkirkju miðvikudag- inn 29. maí kl. 14. Sr. Þór Hauksson predikar og þjónar fyrir altari. Sönghópur leiðir söng undir stjórn Pavels Manásek organista. Á eftir verða kaffiveitingar í boði Ár- bæjarsóknar. Þessar guðsþjónustur eru sam- starfsverkefni Ellimálaráðs Reykja- víkurprófastsdæma, og safnaðanna sem taka á móti okkur hverju sinni. Nánari auglýsingar eru í öllum kirkjum í prófastsdæmunum og einnig í félagsmiðstöðvum aldraðra í Reykjavík og Kópavogi. Þess er vænst að sem flestir sjái sér fært að koma og eiga saman góða stund í kirkjunni. Allir eru velkomnir. Hver er litur guðs? Á MORGUN, sunnudag, er þrenn- ingarhátíð. Af því tilefni verður þema guðsþjónustu dagsins í Hafn- arfjarðarkirkju spurningin „Hver er litur guðs?“ Að undanförnu hafa borist fréttir af vaxandi þjóð- ernisátökum í heiminum, deilum þjóðarbrota, menningarheima og trúarbragða. Menn hlaupa orðið í skotgrafir og hver heldur fram sín- um sannleika, sínum Guði gegn trú og sannleika allra annarra. Þetta hefur haft hörmulegar afleiðingar um víða veröld. En er þannig hægt að litgreina Guð? Er Guð aðeins Guð hinna hvítu, svörtu, gulu eða rauðu? Er Guð aðeins Guð „okkar“ en ekki Guð „hinna“? Í guðsþjónustunni verða fjögur börn skírð. Eftir guðsþjónustuna gefst næði til að spjalla um þema dagsins yfir kaffibolla í safn- aðarheimilinu. Organisti er Natalía Chow en prestur sr. Þórhallur Heimisson. Guðsþjónustan hefst kl. 11. Sumarnámskeið Seljakirkju HINN 15. maí síðastliðin hófst skráning í sumarnámskeið Selja- kirkju fyrir börn fædd ’92–’96 og hafa viðbrögð verið afar góð til þessa. Sumarnámskeið Seljakirkju eru hressandi leikjanámskeið blönduð kristilegri fræðslu í formi söngva, sagna og bæna. Námskeiðin verða sem hér segir: Námskeið 10.–14. júní. Námskeið 18.–21. júní. Námskeið 6.–9. ágúst. Námskeið 12.–16. ágúst. Námskeiðin eru hálfan daginn frá 9–13, en tekið er á móti börn- unum frá kl. 8.30. Börnin koma með nesti með sér nema síðasta dag námskeiðs, en þá er grillað úti í náttúrunni og þann dag eru for- eldrar boðnir velkomnir með. Skráð er í síma/ netfang: 5670110/ 864 5372/ bpb@centr- um.is alla virka daga fram til föstu- dagsins 9. ágúst. Hámarksfjöldi í námskeið er 20 börn. Námskeiðs- gjald á barn er 2.500 kr. og systkini á sama námskeiði greiða 4.000 kr. Umsjón er í höndum starfsfólks Seljakirkju og þeim til fulltingis verða unglingar úr æskulýðsstarfi kirkjunnar. Vorferð Fella- og Hólakirkju með eldri borgara ÞRIÐJUDAGINN 28. maí nk. standa sóknarnefndir Fella- og Hólakirkju fyrir árlegri vorferð með eldri borgara í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur djákna. Að þessu sinni verður farið í Stykkishólm. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 9 fyrir hádegi og ekið rakleiðis, nýju vatnaleiðina, í Bjarnarhöfn þar sem Hildibrandur Bjarnason bóndi segir frá gömlu bændakirkjunni, hákarlaverkun o.fl. Stykkishólmskirkja heimsótt áður en snæddur verður léttur há- degisverður á Fimm fiskum. Ekið um Stykkishólm undir leiðsögn og Norska húsið heimsótt. Stoppað í Borgarnesi á heimleið og þeir sem vilja fá sér þar hressingu. Áætluð heimkoma ekki síðar en kl. 18. Verð fyrir hvern þátttak- anda er 1.000 kr. Áríðandi er að skrá sig sem fyrst og eigi síðar en fyrir hádegi mánudaginn 27. maí í síma 557 3280 eða 862 0574. Munið að taka með hlý föt og góða skapið! Fella- og Hólakirkja. Messa á íslensku og ensku í Hallgrímskirkju Á ÞRENNINGARHÁTÍÐ, sunnu- daginn 26. maí, verður messa að venju kl. 11 árdegis. Sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hróbjartssyni. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur og organisti verður Hörður Áskels- son. Strax að lokinni messu verður opnuð sýning í forkirkjunni á verk- um eftir Húbert Nóa. En kl. 12.45 hefst aðalfundur Listvinafélags Hallgrímskirkju. Kl. 14 verður haldin ensk messa. Prestur sr. Bjarni Þór Bjarnason og organisti Hörður Áskelsson. Jónína Kristinsdóttir mun leiða almennan safnaðarsöng. Árni Gunnarsson syngur einsöng. Léttar veitingar að messu lokinni. Á þessu ári er boðið upp á enska messu í Hallgríms- kirkju síðasta sunnudag hvers mán- aðar. Kolaportsmessa HELGIHALD þarfnast ekki hús- næðis heldur lifandi fólks. Kirkja Jesú Krists er ekki steypa, heldur lifandi steinar, manneskjur af holdi og blóði. Þess vegna er hægt að fara út úr kirkjubyggingum með helgihald og fagnaðarerindið og mæta fólki í dagsins önn. Í tilefni af því bjóðum við til messu í Kolaportinu sunnu- daginn 26 maí kl. 14. Bjarni Karls- son, prestur í Laugarneskirkju, predikar og þjónar ásamt Jónu Hrönn Bolladóttur miðborgarpresti og Ragnheiði Sverrisdóttur djákna. Þorvaldur Halldórsson leiðir lof- gjörðina. Áður en Kolaportsmessan hefst kl. 13.40 flytur Þorvaldur Halldórsson þekktar dægurperlur. Þá er hægt að leggja inn fyrir- bænaefni til þeirra sem þjóna í messunni. Í lok stundarinnar verður blessun með olíu. Messan fer fram í kaffi- stofunni hennar Jónu í Kolaportinu sem ber heitið Kaffi port, þar er hægt að kaupa sér kaffi og dýrindis meðlæti og eiga gott samfélag við Guð og menn. Það eru allir velkomnir. Miðborgarstarf KFUM og K. Messa og helgiganga á Þingvöllum MESSAÐ verður í Þingvallakirkju sunnudaginn 26. maí. Sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, messar. Að lokinni athöfn í kirkju verður gengin helgiganga að Lög- bergi, í Almannagjá og síðan aftur að kirkjunni. Í göngunni sameinum við hugi okkar í þakkargjörð og bæn fyrir landi og lýð, stjórnvöld- um, kirkju, kristni og menningu þjóðar okkar og allra þjóða og friði í heiminum. Næstu sunnudaga fram til Jóns- messu verða helgigöngur eftir messu í Þingvallakirkju með sama sniði. Fólk er minnt á að vera í gönguskóm og klæðast eftir veðri. Kosningarnar hafa áhrif á helgihald í Landakirkju MESSAÐ verður í Landakirkju sunnudaginn 26. maí að kvöldi dags klukkan 20. Þá erum við öll orðin frísk eftir kosingavökuna. Í kirkjunni verður opinn faðmur fyrir þau sem vilja þakka kosning- arnar en einnig fyrir þau sem þurfa huggunar við. Beðið verður fyrir málefnum sveitarfélagsins og sókn- arbörn lesa ritningarlestra. Á þrenningarhátíð er kirkjan fagurlega skreytt í hólf og gólf, ljúfir kvöldsálmar verða sungnir og einsöng flytur Anna Cwalinska. Þetta verður stund með upplifun og molasopa yfir í safnaðarheimilinu á eftir. Bæjarbúar eru hvattir til að fjölmenna í kirkju sína á þrenning- arhátíð, endurnýja andann og sækja sér blessunardaggir að ofan fyrir sumarið. KA-messa í Akureyrarkirkju KA-messa verður í Akureyr- arkirkju nk. sunnudag kl. 14 en guðsþjónustur í samvinnu Knatt- spyrnufélags Akureyrar og Ak- ureyrarkirkju hafa verið haldnar árlega undanfarið. Sr. Svavar A. Jónsson messar en ræðumaður verður Atli Hilmarsson, þjálfari. Kvennakór Akureyrar syngur und- ir stjórn Björns Leifssonar. Org- anisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir messuna verða kvennaflokkar knattspyrnudeildar KA með kaffi- sölu í Safnaðarheimili til styrktar sumarstarfinu. Morgunblaðið/Jim Smart Sumardagar í kirkjunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.