Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 32
NEYTENDUR 32 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ RÚM 62% telja lambakjötbest til matreiðslu ogtreysta því að það „bragð-ist alltaf fullkomlega við hefðbundna matreiðslu“ samkvæmt nýrri neyslu- og viðhorfskönnun sem unnin var fyrir Markaðsráð lamba- kjöts. Tæp 70% aðspurðra sögðu lambakjöt „ósvikinn sunnudags- eða helgarmat“ og tæp 40% segja lærið „eftirlætishluta lambsins“. Tæp 24% völdu hrygginn sem svar við sömu spurningu. Um var að ræða vettvangskönnun í verslunum þar sem 30 spurningar voru lagðar fyrir 927 manns 18 ára og eldri. Könnunin var gerð 11.–24. apríl í verslunum um landið og voru að- spurðir búsettir á höfuðborgarsvæði, Suðurnesjum, Selfossi, Egilsstöðum og Akureyri. Umsjón með verkefninu hafði Bjarni Dagur Jónsson og segir hann að spurningarnar hafi verið samdar til þess að fá sýn yfir kauphegðun og viðhorf til neyslu lambakjöts. Fengu spyrjendur þau fyrirmæli að grípa viðskiptavini verslana að loknum inn- kaupum við kassana. Spurningar voru ýmist lagðar fyrir viðskiptavini og svörin skráð eða að viðkomandi þátttakandi merkti sjálfur við á spurningablaði. Svarmöguleikar þátt- takenda eru skáletraðir hér á eftir til aðgreiningar. Fyrst var spurt hvort viðkomandi sæi um innkaupin í fjölskyldunni og svöruðu 36,8% oftast og 34,8% alltaf. Hvað innkaup í fjölskyldum áhrær- ir er nokkur munur á kynjum, eða 21,2 prósentustig, en 42,7% kvenna kváðust alltaf sjá um innkaupin og 21,5% karla. Þá sagðist 43,1% kvenna oftast sjá um innkaupin og 25,5% karla. Spurt var hversu oft í viku kjöt eða kjötréttur væri á borðum og svöruðu 33,3% þrisvar í viku, 25,7% kváðust hafa kjöt/kjötrétt á borðum fjórum sinnum í viku og 20% tvisvar sinnum. 9,2% þátttakenda svöruðu fimm sinn- um í viku, 8,4% einu sinni og 3,4% sex sinnum í viku. Jöfn aldursdreifing var í svörum en 33% 18–26 ára kváðust hafa kjöt/kjöt- rétt í matinn þrisvar í viku, 32,7% í hópi 26–55 ára og 35,6% í hópnum 55 ára og eldri. Tæp 42% kaupa oftast kjúkling Kjúklingur er sú kjöttegund sem oftast er keypt hjá 41,7% svarenda og 33,3% velja kjúkling næstoftast. Lambakjöt verður oftast fyrir valinu hjá 36,2% og næstoftast hjá 27%. Rúm 58% 55 ára og eldri kaupa oft- ast lambakjöt og 29,9% í sama aldurs- hópi velja kjúkling. Þegar spurt er hvers vegna vinsæl- asta kjöttegundin sé keypt segja 30% ástæðuna hagstætt verð eða verðtil- boð og 29,7% segja auðvelt að matbúa hana á marga vegu. 23,7% segja um vana eða hefð að ræða og 14,1% að hún sé heilsusamleg. Samkvæmt aldursgreiningu á svörum nefna 34,6% 55 ára og eldri vana og hefð ástæðu þess að vinsæl- asta kjöttegundin sé keypt, 29,9% í hópi 18–26 ára og 18,7% í hópnum 26– 55 ára tilgreina sömu ástæðu. Meiri- hluti 26–55 ára tilgreinir hagstætt verð/ verðtilboð, eða 33,4%. Einnig var spurt hvaða kjöt væri best til matreiðslu/hvaða kjöti við- komandi treysti til þess að bragðast alltaf fullkomlega við hefðbundna matreiðslu og svöruðu 62% lamba- kjöt, 17,4% kjúklingur, 10,3% nauta- kjöt, 9,3% svínakjöt og 1% hrossakjöt. Við aldursskiptingu svara kemur í ljós að 78,8% 55 ára og eldri nefndu lambakjöt sem svar við fyrrgreindri spurningu, 64,8% í hópi 26–55 ára og 40% í hópnum 18–26 ára. Hvað kjúk- lingi viðvíkur völdu 27,8% á aldrinum 18–26 ára hann sem kjöt sem best er til matreiðslu, 17% í hópnum 26–55 ára og 4,5% í hópi 55 ára og eldri. Lambakjöt er besta kjötið að mati 38,6% og yfirleitt gott að mati 45,4%. Þegar svörum er skipt eftir aldri telja 57,6% 55 ára og eldri að lambakjöt sé besta kjötið. Tæp 44% telja lamb of dýrt Jafnframt var spurt hvers vegna lambakjöt/kindakjöt sé ekki keypt oftar og svöruðu 43,6% að það sé of dýrt og 20,7% kváðust eiga kjöt heima í frysti. Við aldursgreiningu svaranna !"     # $  ' ( ) * )+ * ' ( ) * )+ *       &'  &                            !   "# $%     & () # *   " ' ,+-   . / +0 1 +0 )2 +0  ,+-   . / +0 1 +0 )2 +0 +  $  '  $ '  '  ($ '  Ve r t u o r g i n a l – n o t a ð u h i n a e i n u s ö n n u Allt límist við hina einu sönnu Post-it®... *Tilboðið gildir á meðan birgðir endast. ÞETTA TI LBOÐ FÆST Í Ö LLUM BETRI BÓ KA- OG RITF ANGA- VERSLUN UM... Vörunr. 655D. 76 mm x 127 mm. 100 blöð pr. blokk. Vörunr. 654D. 76 mm x 76 mm. 100 blöð pr. blokk. Vörunr. 653D. 38 mm x 51 mm. 100 böð pr. blokk. Einstak t tilboð * Þú kau pir 10 ekta gu lar pos t-it ® blokkir og fær ð 2 ók eypis 10+2 ÓKEYP IS 10+2 ÓKEYP IS 10+2 ÓKEYP IS - líka velgengni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.