Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 13
Upplýsingasjónvarp Val-
húsaskóla var formlega tek-
ið í notkun í vikunni við há-
tíðlega athöfn svo og
rafrænt greiðslukerfi í
mötuneyti skólans. Sigfús
Grétarsson skólastjóri segir
upplýsingasjónvarp og raf-
rænt greiðslukerfi nýnæmi
í íslenskum grunnskólum í
þeirri mynd sem þau birt-
ast í Valhúsaskóla. Við
sama tilefni var einnig und-
irritaður samstarfssamn-
ingur milli hugbúnaðarfyr-
irtækisins Voice Era og
Valhúsaskóla um þróun
hjálparbúnaðar fyrir nem-
endur með aðstoð tal-
gervils.
Upplýsingatæknin
og heimanámið
Í Valhúsaskóla er upplýs-
ingatæknin notuð óspart og
var gestum athafnarinnar
kynnt forrit, kerfi fyrir
heimasvæði, tilkynningar,
spjallrásir, dagbók, skila-
boð og fleira. Í kerfinu hafa
nemendur einnig póstfang á
Netinu og svæði fyrir eigin
heimasíðu. Með þessu móti
geta nemendur unnið verk-
efni í skólanum og unnið
áfram með verkefni sín
heima. „Eftir því sem ég
best veit er Valhúsaskóli
fyrstur grunnskóla á Ís-
landi til að bjóða öllum
nemendum sínum upp á
þessa möguleika. Þetta
sama kerfi er einnig nýtt
fyrir alla kennara skólans
með sömu möguleikum, en
öðrum aðgangsstýringum,“
segir Sigfús.
Nýtt og endurbætt upp-
lýsingasjónvarp var rekið
til reynslu í skólanum í vet-
ur. „Í upplýsingasjónvarp-
inu geta nemendur fylgst
með í hvaða kennslustundir
einstakir bekkir eiga að
fara í næst, þeir geta fylgst
með forföllum kennara,
hvort kennt verður fyrir þá
eða breyting verður á
stundatöflu. Þá verða þar
auglýstir viðburðir í skóla-
lífinu og þetta er greiður
miðill til að koma upplýs-
ingum á framfæri við nem-
endur á einfaldan og áhrifa-
ríkan hátt,“ segir Sigfús.
Upplýsingakerfið verður í
umsjón nemenda og það
verður síðan þróunarverk-
efni í tölvufræðum og
margmiðlun að auka notk-
unarmöguleika kerfisins,
sem var hannað af Frosta
Heimissyni, kerfisfræðingi
skólans, en hann hannaði
einnig upplýsingasjónvarp-
ið og greiðslukerfið.
„Í skólum er mikil
áhersla lögð á að foreldrar
geti keypt matarmiða eða
tryggt með einum eða öðr-
um hætti að nemendur noti
fjármuni til þess sem þeir
eru ætlaðir. Með tilkomu
greiðslukerfis í mötuneyti
útbýr skólinn nemendakort
með strikamerki sem inni-
heldur nemendanúmer og
með kortinu getur nemand-
inn greitt fyrir vörur í
mötuneytinu, og seinna fyr-
ir aðra þjónustu í skólanum,
með strikamerktu greiðslu-
korti, sem er með mynd af
viðkomandi nemanda.
Foreldrar geta svo fylgst
með úttektum barnanna
mjög nákvæmlega. Fari
inneign nemanda niður fyr-
ir ákveðin varmörk er for-
eldrum sendur tölvupóstur
þar sem þeim er bent á að
fylla á kortið.“
Nemendur Valhúsaskóla
létu ekki sitt eftir liggja við
athöfnina og sýndu dans-
og tónlistaratriði og buðu
gestum í vel útilátna vöfflu-
veislu í tilefni dagsins.
Rafrænt greiðslu-
kerfi í mötuneyti
Krakkarnir í Valhúsaskóla buðu menntamálaráðherra,
sem formlega tók í gagnið upplýsingasjónvarpið og
rafræna greiðslukerfið, ásamt öðrum gestum í vöfflur.
Seltjarnarnes
FJÖLBRAUTASKÓLANUM
í Garðabæ var í gær afhent
stórt útilistaverk úr stáli.
Listaverkið er á Urð-
arbrunni, sem er hátíð-
arsalur skólans.
Árni Emilsson, formaður
byggingarnefndar skólans,
afhenti Þorsteini Þorsteins-
syni skólameistara lista-
verkið með nokkrum orð-
um. Ásdís Halla Braga-
dóttir, bæjarstjóri
Garðabæjar, þakkaði bygg-
ingarnefnd og listamönnum
fyrir vel unnin störf í þágu
skólans.
Listaverkið heitir Askur
Yggdrasils og heimur hans
og eru höfundar listaverks-
ins hjónin Kristjana og
Baltasar Samper.
Yggdrasill stendur í
miðju og til hliðar eru skap-
anornirnar Urður, Verð-
andi og Skuld.
Umhverfis er Miðgarðs-
ormur.
Morgunblaðið/Ásdís
Askur Yggdras-
ils á skólalóðinni
Garðabær
VERK Gjörningaklúbbsins
var valið til frekari útfærslu
og framkvæmda í sam-
keppni um útilistverk við
Borgarholtsskóla en um 30
tillögur bárust í samkeppn-
ina. Gjörningaklúbbinn
skipa þær Eirún Sigurð-
ardóttir, Jóní Jónsdóttir og
Sigrún Hrólfsdóttir og heitir
verk þeirra Dýrmæti.
Verkið er að mati dóm-
nefndar heilsteypt, frum-
legt, mjög vel útfært og stíl-
hreint. Texti á glugga
tengir staðsetningu verksins
á útisvæði inn í húsnæði
skólans og vekur til um-
hugsunar um það starf sem
þar fer fram. Það er mat
dómnefndar að verkið upp-
fylli einkar vel þær for-
sendur sem lagðar voru til
grundvallar samkeppninni,
þ.e. listrænt vægi verksins,
að það nyti sín vel í
tengslum við byggingu skól-
ans og skapaði jákvæða
ímynd af starfsemi skólans.
Tillögurnar sem bárust í
samkeppnina eru nú til sýnis
í húsakynnum skólans við
Mosaveg. Hún er opin alla
daga, nema sunnudag, kl. 8–
18 og stendur fram á mið-
vikudag.
Samkeppnin fór fram
samkvæmt samkeppn-
isreglum Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna og
nýtur styrks frá Listskreyt-
ingarsjóði Íslands.
Í dómnefnd voru Að-
alsteinn Ingólfsson, Anna
Líndal, Finnur Björgvinsson,
Guðmundur Guðlaugsson og
Hafdís Ólafsdóttir. Trún-
aðarmaður dómnefndar var
Harpa Björnsdóttir.
Stúlkurnar í Gjörningaklúbbnum, Jóní Jónsdóttir, Sigrún Hrólfsdóttir og Eirún Sigurð-
ardóttir, sem sigruðu í samkeppninni. Þær eru hér ásamt verðlaunaverki sínu Dýrmæti.
Verk Gjörningaklúbbs-
ins besta tillagan
Grafarvogur
PMT-meðferð fyrir foreldra
barna með hegðunarerfið-
leika er hafin í Hafnarfirði
en verkefnið er hluti af For-
varnaáætlun Hafnarfjarðar.
Vorið 2000 hófst samstarf
Skólaskrifstofu, Félagsþjón-
ustu og Heilsugæslu í Hafn-
arfirði um forvarnaverkefnið
PMT, Parent Management
Training, sem er meðferð-
arúrræði ætlað foreldrum
barna með hegðunarerfið-
leika. Meginmarkmið þessa
samstarfsverkefnis er að
fyrirbyggja alvarlega hegð-
unarerfiðleika hjá börnum,
með því að bregðast við
vandanum á fyrstu stigum.
Sú þjónusta sem samstarfið
hefur leitt til er í daglegu
tali nefnt PMT-foreldra-
færni og var kynnt ítarlega
fyrir stjórnendum á fjöl-
skyldusviði bæjarins,
Heilsugæslu og fleirum sl.
miðvikudag.
Margrét Sigmarsdóttir,
sálfræðingur og verkefnis-
stjóri PMT, kynnti meðferð-
ina sem er þróuð af dr. Ger-
ald Patterson, dr. Marion
Forgatch og samstarfsfólki
á rannsóknarstofnuninni
Oregon Social Learning
Center (OSLC) í Eugene í
Oregon í Bandaríkjunum. Í
frétt frá Hafnarfjarðarbæ
segir að meðferðarúrræðið
byggist á áratuga rannsókn-
um og sterkum kenningar-
fræðilegum grunni. PMT
meðferð hefur til þessa ein-
ungis verið beitt í heima-
landi Pattersons en nýverið
hófst þjálfun meðferðaraðila
utan Bandaríkjanna, meðal
annars í Noregi og á Íslandi.
Þrír fulltrúar stofnana í
Hafnarfirði hafa lokið
grunnþjálfun í PMT með-
ferð og tveir þeirra ljúka
senn tveggja ára PMT með-
ferðarnámi frá Oregon. Á
næstu misserum verður
einnig boðið upp á PMT
fræðslu fyrir foreldra og
þjálfun fyrir fagfólk svo það
geti annast PMT fræðslu og/
eða meðferð. Verkefnið er
hluti af Forvarnaáætlun
Hafnarfjarðar og hefur
fengið styrki úr Forvarna-
sjóði Áfengis og vímuvarna-
ráðs vorið 2000, 2001 og
2002.
PMT-foreldra-
færni kynnt
fjölskyldusviði
Hafnarfjörður