Morgunblaðið - 25.05.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fjölskyldusöfnun AFS
Leið til að
stuðla að friði
AFS á Íslandi er númeð átak í gangitil að safna saman
fjölskyldum til samvinnu í
verkefnum þeim sem
framundan eru. Starfsemi
AFS er borin uppi af hug-
sjónafólki sem gefur vinnu
sína og einn sjálfboðaliða
AFS á Íslandi er Aðal-
björg Þorvarðardóttir.
Hún vasast þessa dagana í
„fjölskylduöflun“ eins og
það er kallað innan vé-
vanda AFS. Hún svaraði
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins á dögun-
um.
Hvað er AFS og hverjir
standa á bak við það?
„AFS eru alþjóðleg
fræðslusamtök, óháð
stjórnmálaflokkum, trú-
félögum, hagsmunasamtökum og
eru ekki rekin í hagnaðarskyni.
Samtökin standa fyrir nemenda-
og kennaraskiptum um allan
heim.
Aðildarlöndin 54 hafa hvert sitt
landsfélag sem er fjárhagslega og
rekstrarlega sjálfstætt. Aðal-
stjórn og alþjóðaskrifstofa AFS
marka stefnu samtakanna í sam-
vinnu við landsfélögin. Annarri
starfsemi er haldið uppi af sjálf-
boðaliðum, en samtökin eru upp-
haflega stofnuð af sjálfboðalið-
um.“
Hver er tilgangurinn með AFS
og hvað er helst lögð áhersla á í
starfinu?
„Tilgangur samtakanna er í
grundvallaratriðum sá sami í dag
og hann var 1947, þegar banda-
rískir sjálfboðaliðar, sem óku
sjúkrabifreiðum á vígvöllum Evr-
ópu í fyrri og síðari heimsstyrjöld-
inni á vegum American Field
Service, lögðu grunninn að starf-
semi AFS. Þeir trúðu því að nem-
endaskipti milli landa væru leið til
að stuðla að friði í heiminum.“
Er starfsemi AFS-samtakanna
öflug á Íslandi?
„Fastir starfsmenn samtak-
anna eru þrír og er skrifstofan í
eigin húsnæði að Ingólfsstræti 3.
Íslenska nafnið á samtökunum, er
Alþjóðleg fræðsla og samskipti.
Eins og áður sagði byggist
starfsemin mikið á sjálfboðaliðum
og er stjórnin þar með talin en
hún mótar stefnu og áherslur í
starfi félagsins. Starfsemin er
alltaf að eflast og er deildum inn-
an samtakanna að fjölga. Nýlega
var t.d. stofnuð Suðurlandsdeild
og fyrir voru Reykjavíkurdeild og
Norðurlandsdeild. Það eru ýmsir
hópar í gangi og starfar hver og
einn eftir því hvaða árstími er,
hvort verið sé að senda eða taka á
móti skiptinemum. Mikið er um
námskeið í kringum það og eru
nemar búnir undir dvöl á erlendri
grund eins vel og kostur er og þá
miðla gjarnan fyrrverandi skipti-
nemar reynslu sinni. Eins eru
námskeið og ýmsar uppákomur
fyrir erlendu nemana sem dvelja
hér, og er heilmikil vinna í kring-
um það. Núna eru er-
lendu nemarnir okkar í
sveitadvöl víðs vegar í
kringum landið og
kynnast íslenskri
sveitamenningu í allri
sinni dýrð.
Námskeið eru einnig fyrir fjöl-
skyldurnar hvort sem þær eru að
senda nema eða taka á móti, og
ekki má gleyma námskeiðum og
uppákomum fyrir sjálfboðaliðana
sjálfa.“
Hvað er í gangi núna…fjöl-
skyldusöfnun, eða fjölskylduöfl-
un…hvað er þar á ferðinni?
„Það sem stendur mér næst í
dag sem sjálfboðaliði er fjöl-
skylduöflun. Það hafa 37 ung-
menni heiðrað okkur með ósk um
að fá að dvelja hér næsta skólaár
og kynnast landi og þjóð. Löndin
sem þau koma frá eru Argentína,
Austurríki, Ástralía, Bandaríkin,
Belgía, Frakkland, Ítalía, Kína,
Noregur, Sviss, Taíland, Venes-
úela og Þýskaland.
Með því að opna heimili okkar
erum við ekki bara að veita innsýn
heldur öðlumst við innsýn í þann
heim sem „nýja barnið okkar“
kemur frá, og myndum gjarnan
órjúfanleg tengsl yfir hafið.
Ekki er ætlast til þess að fólk sé
að skipuleggja sérstaka dagskrá
til að hafa ofan af fyrir viðkomandi
heldur leyfa honum að taka þátt í
því fjölskyldulífi sem viðhefst í
fjölskyldunni og gangast undir
boð og bönn jafnt á við aðra. Þetta
eru jú venjulegir unglingar með
sína kosti og galla eins og okkar
eigin. Viðkvæði okkar AFS-ara er
oft, það er ekki húsrýmið sem
skiptir máli, heldur hjartarýmið.
Það er ekkert skilyrði að það séu
börn eða unglingar á heimilinu.
Trúnaðarmenn og skólatenglar,
sem hver og einn fær úthlutað,
eiga að vera erlendum nemum til
halds og trausts. Þeirra þáttur er
hvað stærstur í byrjun þegar
neminn er að fóta sig í daglegu lífi
á íslenskri grund. Einnig getur
verið gott fyrir fjölskylduna að
mynda góð tengsl við
trúnaðarmanninn.“
Hve mörg ungmenni
taka þátt í þessu starfi
hér á landi?
„Árlega fara um
10.000 manns um heim allan til
dvalar á vegum samtakanna í
lengri eða skemmri tíma. Samtök-
in hafa starfað hér á landi síðan
1957, síðan hafa farið um 2.400
nemar héðan og rúmlega 800 er-
lendir nemar dvalið hér. Í dag er-
um við að senda um 110 ungmenni
til lengri eða skemmri dvalar, og
tökum á móti 35–40 erlendum
ungmennum.“
Aðalbjörg Þorvarðardóttir
Aðalbjörg Þorvarðardóttir er
fædd í Reykjavík 1953. Próf frá
Hjúkrunarskóla Íslands 1976,
framhaldsnám í handlæknis- og
lyflæknishjúkrun 1979–80. Starf-
aði sem hjúkrunarfræðingur á
Íslandi og víðar með hléum.
Skiptinemi í Bandaríkjunum
1970–71, en starfar í dag í Laug-
arnesapóteki. Hefur starfað mik-
ið að félagsmálum, m.a. í Reykja-
víkurdeild RKÍ 1981–2001.
Nokkur ár í stjórn RRKÍ og for-
eldrastarf bæði innan skóla og
utan. Maki er Tryggvi Aðal-
steinsson og eru börnin þrjú,
Anna Rún, Sigríður og Aðal-
steinn.
Starfsemin
er alltaf
að eflast
Ég veit að þetta er gúmmítékki, Geir minn, en þetta er nú líka bara beita fyrir gamla fólkið.
HEIMSFERÐIR auglýstu á dögun-
um ferðir til Karíbahafsins og hefur
aðsóknin verið gífurleg. Mikill sam-
dráttur hefur verið í ferðaþjónustu
undanfarna mánuði og eru auglýs-
ingar um ferðir til framandi staða því
mun sjaldgæfari sjón nú en verið hef-
ur. Andri Már Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Heimsferða, segir að
auðvitað fylgi því áhætta að bjóða
upp á þessar ferðir. „Við vorum búin
að kanna nokkuð vel hug okkar við-
skiptavina og töldum að það væri
markaður fyrir þessar ferðir í haust.“
Að hans sögn voru viðbrögðin
framar öllum vonum, en aðeins ellefu
sæti eru eftir í heilli vél til Dóminíska
lýðveldisins, auk þess sem Kúba er
að seljast upp. Hann segir að í athug-
un sé hvort annarri vél verði bætt við
til Dóminíska lýðveldisins, sú ferð
yrði þá viku síðar. „Við vildum fara af
stað með hóflegt framboð og lögðum
mikið upp úr því að ná kjörum á þess-
um ferðum sem í raun hafa ekki sést
áður. Það er ánægjuleg staðfesting
að sjá að þetta virðist hafa gengið eft-
ir. Við áttum ekki von á því að selja
upp báðar þessar vélar nú á einni
viku,“ segir Andri Már, en bendir á
að óvíst sé hvort framhald verði á
þessum ferðum. Hann telur að það
þurfi að gæta þess verulega að vera
einungis með hóflegt framboð á ferð-
um, sem hæfi okkar markaði. Ís-
lenski markaðurinn sé það lítill.
Það er að lifna yfir
markaðnum á ný
Sölu á ferðum til öllu dæmigerðari
áfangastaða segir Andri Már hafa
gengið afskaplega vel og eru þess
jafnvel dæmi að fólk hafi þurft frá að
hverfa. „Það er eiginlega allt uppselt
þangað til í júlí og þykir okkur verst
að þurfa að neita mörgum núna. Við
erum með fimmtíu prósent aukningu
frá því í fyrra.“ Andri Már telur að
samdráttur sé á ferðalögum Íslend-
inga til útlanda á heildina litið, en
hins vegar sé að lifna yfir markaðn-
um á ný. „Við höfum fundið greini-
legan mun, þá aðallega síðan í vor.“
Hann skýrir þessa miklu aukningu
hjá Heimsferðum nú með því að fyr-
irtækið sé að uppskera vinnu margra
ára.
Íslendingar flykkjast
til Karíbahafsins
Begga fína
SMÁRALIND S. 569 1550
KRINGLUNNI S. 569 1590
AKRANESI S. 430 2500
Þú kau
pir nún
a en bo
rgar ek
ki fyrst
u
afborg
un fyrr
en eft
ir
4 mánu
ði, vax
talaust
.
Og þá
er mög
uleiki
á allt a
ð 32 m
ánaða
raðgre
iðslu.
FYRSTA
AFBO
RGUN
Í OKTÓ
BER!
0VEXTIR%
49.995,-
- 20.000 kr.
Ver› á›ur 69.995 kr.
FÁÐU ÞÉR
SNÚNING!
1400 snúningar
Elto flvottavél EM 145 B
Þeytivinda – allt að 1400
snúningar. Hraðþvottakerfi
u.þ.b. 40 mín. Tekur 4,5 kg
af þurrum þvotti.