Morgunblaðið - 25.05.2002, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 11
KAUP Á RÁÐGJÖF
RÁÐSTEFNA
FRAMKVÆMDASÝSLU RÍKISINS
DAGSKRÁ:
8.30-9.00 Skráning og afhending ráðstefnugagna.
9.00 Setning ráðstefnunnar -
Fjármálaráðherra, Geir H. Haarde.
9.20-9.50 Skipulag opinberra framkvæmda -
Hafsteinn Hafsteinsson, lögfræðingur
í fjármálaráðuneytinu.
9.50-10.20 „Kaup á ráðgjöf“ - Guðmundur Ólason,
stjórnsýslufræðingur í fjármálaráðuneytinu.
10.20-10.40 Kaffihlé.
10.40-11.00 Starfsemi og þjónusta FSR -
Óskar Valdimarsson, forstjóri FSR.
11.00-11.20 Ábyrgð ráðgjafa -
Ásta Einarsdóttir, lögfræðingur FSR.
11.20-11.40 Áhrif gæðastefnu FSR á störf ráðgjafa -
Jóhanna Hansen, gæðastjóri FSR.
11.40-12.00 Fyrirspurnir og umræður.
12.00-12.40 Matur.
12.40-13.00 Hönnunarsamkeppni -
Ásdís Ingþórsdóttir, arkitekt hjá FSR.
13.00-13.20 Rafræn útboðsgögn -
Sigurjón Sigurjónsson, verkfræðingur hjá FSR.
13.20-13.40 Líftímakostnaður mannvirkja -
Már Erlingsson, verkfræðingur hjá FSR.
13.40-14.10 Fyrirspurnir og umræður.
14.10 Ráðstefnu slitið.
Ráðstefnan verður haldin á Grand Hóteli Reykjavík,
fundarsalnum Gullteigi, 29. maí nk.
Ráðstefnustjóri verður Þórhallur Arason,
skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu.
Ráðstefnugjald er kr. 7.500 með hádegisverði,
kaffi og ítarlegum ráðstefnugögnum.
Skráning fer fram á fsr@fsr.is og stendur
til hádegis þriðjudaginn 28. maí.
Við skráningu þurfa að koma fram upplýsingar um:
Nafn þátttakanda.
Nafn greiðanda.
Kennitölu greiðanda.
Heimilisfang greiðanda.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu FSR
á slóðinni: www.fsr.is/radstefna.
SAMKVÆMT vitnalista ríkissak-
sóknara munu rúmlega 30 vitni
koma fyrir dóm í máli ákæruvalds-
ins gegn Árna Johnsen og fjórum
öðrum. Bragi Steinarsson vararík-
issaksóknari sagði þó að vitnunum
gæti fækkað þegar skýrsla ákærða
fyrir dómi lægi fyrir.
Aðalmeðferð í málinu hefst 5.
júní nk. og er gert ráð fyrir að hún
taki tvo daga. Sökum umfangs
málsins er þó ekki ólíklegt að hún
dragist lengur og er þá miðað við
að henni ljúki 10. júní en mun að
öðrum kosti dragast fram yfir 18.
þess mánaðar.
Skv. lögum um meðferð opin-
berra mála skal að jafnaði kveða
upp dóm eigi síðar en þremur vik-
um eftir að aðalmeðferð lýkur og
málið er tekið til dóms.
Ákæruvaldið gegn
Árna Johnsen
Rúmlega
30 manns á
vitnalista
HLJÓMSVEITIN Á móti sól er
ósátt við að ekki fékkst gefið út
skemmtanaleyfi fyrir dansleik sem
halda átti í Miðgarði í Varmahlíð í
gærkvöld og segir algjört skilnings-
og virðingarleysi hjá lögregluyfir-
völdum í Skagafirði gagnvart
skemmtanahaldi unglinga á svæð-
inu. Yfirlögregluþjónninn í Skaga-
firði segir hins vegar öryggissjónar-
mið hafa ráðið því að ekki var veitt
leyfi fyrir ballinu þar sem fram-
kvæmdir standa yfir umhverfis fé-
lagsheimilið og allt að rúmlega
tveggja metra opnir skurðir við hús-
ið.
Að sögn Heimis Eyvindarsonar,
hljómborðsleikara í Á móti sól, eru
fjórir mánuðir síðan hljómsveitin
pantaði Miðgarð til dansleiksins.
Fyrir nokkru hafi framkvæmdir haf-
ist við húsið en framkvæmdaaðilar
hafi fullvissað sig um að búið yrði
þannig um hnútana að hægt yrði að
halda ball á þessum tíma. Síðastlið-
inn fimmtudag, eða degi fyrir fyr-
irhugaðan dansleik, hafi lögreglan
svo lýst því yfir að hún myndi ekki
gefa út skemmtanaleyfi fyrir ballið.
Hann segir þetta ekki í fyrsta sinn
sem komið sé í veg fyrir ball hljóm-
sveitarinnar í Skagafirði því í maí í
fyrra, þegar halda átti sambærilegan
dansleik, hafi sýslumaðurinn verið
nýbúinn að setja bann við dansleikj-
um þar sem sextán ára unglingar
fengju inngöngu. „Síðar varð hann
að draga það til baka því þessar regl-
ur héldu ekki. En þetta bann var í
gildi um þetta leyti í fyrra og þá vor-
um við líka búnir að bóka húsið með
töluverðum fyrirvara og urðum að
færa okkur yfir í næstu sýslu.“
Heimir segist ekki draga í efa að
skurðir, sem eru við húsið geti verið
hættulegir enda hafi hann ekki litið á
aðstæður. „En ég held að ef það
hefði staðið til að hafa eitthvað annað
í þessu húsi þennan dag, eins og
söngskemmtun sem þetta fólk hefur
meiri áhuga fyrir þá held ég að það
hefði ekki verið neitt vandamál að
moka ofan í þessa skurði. Við höfum
svo oft rekið okkur á það á þessu
svæði að það ríkir algjört skilnings-
og virðingarleysi gagnvart þessum
samkomum.“
Ekki sótt um leyfi fyrr
en á miðvikudag
Að sögn Björns Mikaelssonar yf-
irlögregluþjóns kom ekki til greina
að leyfa dansleikinn vegna þeirra að-
stæðna sem eru við húsið. Djúpir
skurðir, allt að rúmum tveimur
metrum, séu umhverfis húsið og
niðri í þeim sé verið að leggja hita-
veitu- og raflagnir. „Menn gætu
hreinlega drepið sig ef þeir dyttu
þarna ofaní og rækju höfuðið í,“ seg-
ir hann. Verktakinn hafi ekki treyst
sér til að lagfæra planið fyrir tilskil-
inn tíma heldur hafi hann boðist til
að „milda ástandið“. „Þegar það var
ljóst að þeir gætu ekki gert meira þá
sagði ég að það kæmi ekki til greina
að leyfa dansleik þarna. Við erum
kannski með tvö til fimmhundruð
misdrukkna unglinga á þessum
dansleik.“
Aðspurður um hvort ekki hafi ver-
ið stuttur fyrirvari gefinn með því að
koma í veg fyrir dansleikinn aðeins
degi áður en hann átti að fara fram
segir Björn að ekki hafi verið sótt um
skemmtanaleyfi fyrr en á miðviku-
dagskvöld þannig að málið var ekki á
hans borði fyrr en á fimmtudags-
morgun. Klukkan tvö sama dag hafi
hann farið að skoða aðstæður.
En hefði komið til greina að halda
annars konar skemmtun í húsinu við
þessar aðstæður? Björn segir ferm-
ingarveislu hafa verið haldna í hús-
inu um síðustu helgi en þá hafi
skurðirnir ekki verið jafn djúpir.
„Það er lengra síðan það var haldinn
dansleikur hérna en hann var lok-
aður, þ.e. ekki opinber dansleikur.
Það er ekki sama hvernig starfsemi
og það er heldur ekki sama hvernig
skurðirnir eru.“ Hann segir því ör-
yggissjónarmið hafa ráðið ferðinni.
„Þetta er ekki stríð vegna þess sem
gerðist hérna í fyrra og var blásið
upp að við værum eitthvað á móti
sveitaballamenningunni. Alls ekki,
það spilar ekkert inn í þetta.“
Dansleikur
í Miðgarði
blásinn af
Gert vegna öryggissjónarmiða
Á þessari mynd, sem tekin var um þrjúleytið á föstudag, sést einn skurð-
anna en að sögn lögreglu er hann um 40 metrum norðan við húsið.
leikahöll, Saku Suurhall, skammt
frá miðborg Tallinn. Þess má geta
að miði á keppnina kostar 25 þús-
und krónur og er löngu uppselt.
Að sögn Loga er öll umgjörð
keppninnar vel úr garði gerð og
sviðið eitt það flóknasta sem sett
hefur verið upp fyrir keppni af
þessu tagi.
Flestir spá Svíum og Þjóðverjum
sigri í keppninni, að hans sögn.
„Eistlendingar eru líka með mjög
skemmtilegt lag og Danir eru
nokkuð góðir. Svo hefur mikið farið
fyrir Miðjarðahafsbandalaginu,
FLESTIR spá Svíum eða Þjóð-
verjum sigri í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstöðva sem fram
fer í Tallinn í Eistlandi í kvöld, að
sögn Loga Bergmanns Eiðssonar
fréttamanns, sem staddur er ytra
vegna keppninnar. Bein útsending
Sjónvarpsins og Rásar 2 frá
söngvakeppninni hefst kl. 19. Ís-
lendingar verða ekki með í ár og
greiða því ekki atkvæði í keppninni
að þessu sinni.
Um 600 blaðamenn eru í borginni
í tengslum við söngvakeppnina sem
haldin er í sex þúsund manna tón-
Spáni Grikklandi og Kýpur.“
Logi segir keppendur þeirra 24
þjóða sem taka þátt í keppninni
hafa notað undanfarna daga til að
æfa og kynna lög sín. Í gær voru
tvö lokarennsli fyrir fullu húsi og
var selt inn á báðar æfingar. Þriðja
og síðasta lokarennsli verður í dag.
Að sögn Loga mun útsendingin
standa í tæpa þrjá tíma en henni
verður hætt rétt fyrir tíu um leið og
úrslit liggja fyrir. Sigurlagið verð-
ur svo sýnt aftur síðar um kvöldið
þegar fyrstu tölur úr sveitarstjórn-
arkosningum liggja fyrir.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
Svíar og Þjóðverjar
sigurstranglegastir
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 27 ára karlmann í sex
mánaða fangelsi fyrir að skjóta
átta skotum á bifreið sem í voru
fjórir menn. Skotárásin var gerð á
bílastæði við íþróttahús ÍR í
Breiðholti 29. apríl á sl. ári eftir
átök milli tveggja hópa manna.
Í dómnum segir að með því að
beita skotvopni við þessar aðstæð-
ur, og einkum með því að skjóta í
afturhurð bílsins, þar sem tveir
farþegar sátu fyrir innan, hafi
hann stofnað lífi og heilsu þeirra
og annarra nærstaddra í augljós-
an háska. Gat hann á engan hátt
verið þess fullviss að kúlurnar
færu ekki í gegnum hurðar bílsins
eins og hann hélt fram en vopnið
var ekki sérlega öflugt.
Alls voru fimm ákærðir vegna
átakanna á bílastæðinu ýmist fyrir
líkamsárásir eða umferðarlaga-
brot. Einn þeirra var sýknaður en
hinir þurfa að greiða sektir.
Framburður vitna skiptist í tvö
horn, eftir því hvorum hópnum
þeir tilheyrðu, og reyndist dómn-
um erfitt að átta sig á raunveru-
legri atburðarás. Einn þeirra var
sakaður um að hafa vísvitandi ek-
ið bifreið sinni á mann og var
hann ákærður fyrir sérstaklega
hættulega líkamsárás. Dómurinn
taldi hinsvegar ekki útilokað að
maðurinn hafi stokkið fyrir bif-
reiðina á ferð og sýknaði öku-
manninn af ákærunni. Hins vegar
þótti hann hafa brotið gegn al-
mennri varúðarreglu umferðar-
laga.
Valtýr Sigurðsson héraðsdóm-
ari kvað upp dóminn. Ragnheiður
Harðardóttir saksóknari sótti
málið f.h. ríkissaksóknara. Brynj-
ar Níelsson hrl., Jón Egilsson hrl.
og Jóhann Albert Sævarsson hrl.
voru til varnar.
Sex mánaða fangelsi
fyrir skotárás