Morgunblaðið - 25.05.2002, Qupperneq 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
DULDAR áfengisauglýsingar eru
töluvert áberandi í fjölmiðlum og þá
sérstaklega þeim sem ætlaðir eru
ungu fólki, en þetta kemur fram í
rannsókn sex framhaldsskólanema
á áhrifum fjölmiðla á lífsstíl ungs
fólks sem Morgunblaðið greindi frá
á föstudag. Fjölmiðlarnir komu mis-
vel út úr úttektinni, en miðlar á
borð við PoppTíví, Skjá einn, Sýn,
Séð & heyrt og Fókus, auk nokk-
urra útvarpsstöðva Norðurljósa
komu fremur illa út úr þessari at-
hugun.
Bjarni Brynjólfsson, ritstjóri
tímaritsins Séð & heyrt, telur að
þetta helgist af því að Séð & heyrt
taki mikið af ljósmyndum á manna-
mótum og skemmtistöðum, þar sem
fólk sjáist oft með áfengi, en hann
kannast ekki við það að tímaritið
birti óbeinar auglýsingar um áfengi.
„Við höfum ekki haft óbeina um-
fjöllun um áfengi, þar sem fólki er
stillt upp með ákveðnar áfengisteg-
undir og framleiðendur látnir borga
fyrir. En það er ómögulegt að koma
í veg fyrir að áfengi sjáist á manna-
mótum,“ segir hann.
Bjarni bendir hins vegar á að það
geti verið að úttektin hafi átt sér
stað á þeim tíma þegar kampavíns-
flaska var inni á ákveðnum síðum í
tímaritinu, sem nokkurs konar
skraut. „Það var nú bara til þess að
lyfta upp andanum frekar en hitt,
ekki minnist ég að það hafi verið
einhver ákveðin tegund.“
Að hans sögn hefur Séð & heyrt
stundum fjallað um barþjónakeppn-
ir, sem ganga undir nafni ýmissa
áfengistegunda. Honum finnst ekk-
ert óeðlilegt við það, það sé eins og
hvert annað efni. „Það verður auð-
vitað að líta á það að fyrst að áfeng-
isauglýsingar eru bannaðar hér á
landi þá reyna þessi umboð að eyða
kynningarpeningum sínum á ein-
hvern annan hátt, meðal annars
með því að halda svona kvöld. Við
erum að fjalla um ungt fólk og það
sem það er að gera og það er mikið
úti á lífinu. Þannig flækjumst við
inn í þetta óhjákvæmilega,“ segir
Bjarni.
Hann segist lengi hafa verið
þeirrar skoðunar að fáranlegt sé að
banna áfengisauglýsingar, meðal
annars vegna þess að það skekki
samkeppnisstöðu innlendra fjöl-
miðla við erlenda fjölmiðla. Fólk
geti gengið inn í hvaða bókabúð
sem er og keypt sér um það bil þús-
und tímaritatitla og í þeim öllum
eru leyfðar áfengis- og tóbaksaug-
lýsingar. „Ef það er verið að banna
áfengisauglýsingar, þá á að banna
innflutning erlendra tímarita og
skrúfa fyrir útsendingar erlendra
sjónvarpsstöðva sem birta áfengis-
auglýsingar.“
Áfengi löglegur og eðlilegur
hluti af samfélaginu
„Vitaskuld reynum við að gæta
hófs í þessum málum sem öðrum
viðkvæmum málum. Engu að síður
getum við ekki horft framhjá því að
áfengi er löglegur og eðlilegur hluti
af samfélaginu og það er hverjum
manni leyfilegt að neyta þess eftir
tuttugu ára aldur,“ segir Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson, ritstjóri DV.
Hann bendir á að markhópur Fók-
us sé fyrst og fremst frá 15 til 35
ára, þannig að það segi sig sjálft að
stærsti hluti hans sé á þessum svo-
kallaða áfengisaldri. Sigmundur
segir það eðlilegt að dagblað fjalli
um allt sem viðkomi menningu ungs
fólks á þeim síðum sem miðillinn
ætli að ná til þess hóps og áfengi sé
þar á meðal. „Ég kannast hins veg-
ar ekki við það að við séum að halda
víni að fólki með óeðlilegum hætti.“
Áfengi birtist aðallega á myndum
sem teknar eru af fólki inni á
skemmtistöðum, en hann segir að
Fókus sé ekki í neinum samskiptum
við áfengisumboð eða aðra slíka að-
ila og að enginn hagnaður felist í
þessu fyrir DV. „Við förum að
landslögum og verjum þau í hví-
vetna en við viljum hins vegar klár-
lega fjalla um þjóðfélagið eins og
það er, þar á meðal er áfengis-
neysla og skemmtanalíf,“ bendir
hann á. Sigmundur segir, aðspurður
hvort hann telji bann við áfeng-
isauglýsingum vera tímaskekkju, að
það sé hans persónulega álit. Hon-
um finnist það vera tvískinningur af
hálfu stjórnvalda að leyfa sölu á
vöru en banna auglýsingar á sama
tíma.
Í þættinum Djúpa laugin á Skjá
einum sjást hinar ýmsu bjórtegund-
ir á borðum og segir Kristinn
Geirsson, framkvæmdastjóri Skjás
eins, að það sé hluti af andrúmsloft-
inu í þættinum. Þátturinn er sýndur
á föstudagskvöldum og er bjórinn
hluti af heildarmyndinni. Að hans
sögn greiða áfengisumboðin Skjá
einum ekki sérstaklega fyrir aug-
lýsingu en hins vegar útvegi þau
bjórinn frítt í þáttinn. „Það er verið
að stóla inn á 20 ára og eldri með
Djúpu lauginni, en við getum aftur
á móti ekki stýrt því hvort yngra
fólk sé á meðal áhorfenda,“ segir
Kristinn, en bendir á að reynt sé að
passa upp á að fólkið í þættinum sé
komið á þann aldur að það hafi leyfi
til að neyta áfengis. Hann segir að
Djúpu lauginni sé ekki ætlað að
virka sem auglýsingamiðill en hins
vegar geti margt sem er á skjánum
fengið kynningu, þótt það hafi ekki
verið tilgangurinn. „Við erum bara
með miðil sem er í því að skapa vin-
sældir til þess að geta selt auglýs-
ingar. Við erum ekki í neinum slag
um það hvort það megi auglýsa ein-
hverja ákveðna vöru eða ekki,“ seg-
ir hann.
Ekki náðist í talsmann Norður-
ljósa í gær.
Duldar áfengisauglýsingar hafa verið áberandi í íslenskum fjölmiðlum að undanförnu
Telja bann skekkja sam-
keppnisstöðu fjölmiðla
UMBOÐSMENN R-listans og D-
listans hafa fengið afhenta lista með
nöfnum þeirra sem hafa kosið utan
kjörfundar í Reykjavík. Þórir Hall-
grímsson, kjörstjóri utankjörstaða-
atkvæðagreiðslunnar í Reykjavík,
segir það styðjast við venju að af-
henda umboðsmönnum framboða
lista með nöfnum þeirra sem hafa
kosið utan kjörfundar. Hann segir
að umboðsmenn D- og R-lista hafi
fengið slíka lista oftar en einu sinni
í þessum kosningum en R-listinn
hafi hins vegar skilað til baka slík-
um lista í gær. Auk R- og D-lista
hafi umboðsmaður Framsóknar-
flokksins einnig fengið slíkan lista
afhentan.
Ingvar Sverrisson, kosningastjóri
R-listans, segir að umræddur listi
hafi verið sóttur fyrir mistök og
honum verið skilað aftur. Ingvari er
ekki kunnugt um hvort slíkur listi
hefur verið sóttur oftar en einu
sinni en segir að ef sú sé raunin hafi
það einnig verið fyrir mistök.
Ingvar segir það gamalgróna
venju að framboð sinni þeirri þjón-
ustu við kjósendur að kanna að
þeirra ósk hvort atkvæði þeirra sem
greidd eru utan kjörfundar hafa
komist til skila. Þeir sem búi t.d. er-
lendis eða komist ekki á kjörstað af
öðrum ástæðum þurfi að póstsenda
atkvæði sín til kjörstjórnar. Margir
þeirra hafi samband við framboðin
og biðji þau að kanna hvort atkvæð-
ið hafi örugglega komist til skila.
Hann segir að R-listinn hafi tekið
þá afstöðu að sækja ekki lista yfir
þá sem kjósa utan kjörfundar og
taka þá með sér, heldur fari fulltrúi
framboðsins á kjörstað þar sem ut-
ankjörfundaratkvæðagreiðsla fer
fram og beri nöfnin saman þar.
,,Mistökin felast í því að ég kom
þessum skilaboðum ekki nógu skýrt
til minna manna og þess vegna var
listinn sóttur en við erum búin að
skila honum aftur.“
Ekki sambærilegt við að hafa
fulltrúa inni í kjördeildum
Fulltrúar R-listans hafa gagnrýnt
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi full-
trúa í kjördeildum á kjördag og
hafa óskað eftir úrskurði Persónu-
verndar um lögmæti þess. Ingvar
segir reginmun á hvort aflað er
upplýsinga um hverjir hafa kosið
utan kjörfundar og því að vera með
fulltrúa í kjördeildum á kjördag.
,,Sá sem situr í kjördeild getur
fylgst með því hvaða einstaklingar
kjósa ekki. Þeir einstaklingar sem
ekki kjósa hafa sjálfir af einhverj-
um ástæðum tekið þá afstöðu að
sitja heima og þar af leiðandi eru
það persónunjósnir að fylgjast með
inni á kjörfundum. Hitt að sjá lista
yfir þá sem hafa kosið utan kjör-
fundar hefur ekkert með persónu-
njósnir að gera því það er klárt mál
að þetta fólk er búið að kjósa en við
höfum auðvitað ekki hugmynd um
hvað það kaus,“ segir hann.
R- og D-listi fengu lista yfir
utankjörfundarkjósendur
Kosningastjóri R-lista segir
lista sóttan fyrir mistök
ÚTLIT Skólavörðustígs mun
breytast mikið í sumar en fang-
elsismúrarnir á Hegningarhúsinu
á Skólavörðustíg 9 hafa verið
brotnir niður þannig að framhlið
hússins nýtur sín nú betur. Skóla-
vörðustígurinn breikkar um tæpa
tvo metra, við framkvæmdina að
sögn Haralds B. Alfreðssonar,
verkfræðings hjá Gatnamálastofu
Reykjavíkur.
Hann segir að stéttin fyrir
framan húsið verði hellulögð, tré
gróðursett og bekkjum komið þar
fyrir.
Harald segir að framkvæmd-
irnar séu hluti af endurnýjun
Skólavörðustígs frá Bankastræti
að Týsgötu og að framkvæmdum
við Hegningarhúsið ætti að vera
lokið í lok ágúst, en fyrsta
áfanga, frá Bankastræti að Berg-
staðastræti ljúki um miðjan næsta
mánuð.
Guðbjartur Kjartansson, að-
stoðarvarðstjóri í Hegningarhús-
inu, segir að einnig standi til að
fegra ásýnd Hegningarhússins,
sem var tekið í notkun fyrir 128
árum, árið 1874. Aðspurður seg-
ist hann ekki óttast að auðveld-
ara verði fyrir fanga að brjótast
út úr fangelsinu við breyting-
arnar þar sem aðstaða fanganna
sé hinum megin í húsinu. Áfram
munu fangarnir geta spókað sig
úti í garði norðan megin við hús-
ið sem verður lokaður.
Guðbjartur segir að í gegnum
tíðina hafi ýmsir aðilar sýnt hús-
inu áhuga en hann segist ekki sjá
fyrir sér að starfsemin verði flutt
úr Hegningarhúsinu nema nýtt
fangelsi verði tekið í notkun. Að
jafnaði dvelja um 14 fangar á
Skólavörðustíg þar sem skamm-
tímavistun fyrir fanga er starf-
rækt.
Fangelsis-
múrar við
Hegningar-
húsið falla
BJÖRGUNARFÉLAG Árborg-
ar var kallað út seint í fyrrakvöld
til að aðstoða veiðimann sem
hafði vaðið út í Þingvallavatn en
treysti sér ekki til baka.
Að sögn lögreglunnar á Sel-
fossi hafði maðurinn vaðið eftir
mjóum klettahrygg í vatninu út
frá svonefndum Öfugssnáða.
Hryggurinn er vel sýnilegur
þegar lygnd er og vatnið þar
ekki ýkja djúpt. Þegar fór að
hvessa sá veiðimaðurinn hins
vegar ekki leiðina til baka og
hringdi því úr gsm-síma sínum í
lögreglu. Náði lögregla sam-
bandi við bátseiganda við vatnið,
en hann kvaðst ekki geta siglt
bát sínum um svo miklar grynn-
ingar. Bátaflokkur björgunar-
félagsins var því kallaður út og
var maðurinn kominn um borð í
bátinn um klukkustund síðar.
Að sögn björgunarmanna var
veiðimaðurinn vel á sig kominn.
25 ÁRA karlmaður, sem ákærð-
ur hafði verið fyrir blygðunar-
semisbrot gegn tveimur konum,
féllst á að greiða 70.000 krónur í
sekt fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær. Brotin áttu sér stað
í febrúar og mars sl. Í báðum til-
fellum lagði maðurinn bíl sínum
við götu og beraði kynfæri sín og
viðhafði kynferðislega tilburði
þegar konurnar áttu þar leið
um. Skaðabótakröfu kvennanna
var vísað frá dómi.
KOSNINGAHANDBÓKIN,
sem fylgdi Morgunblaðinu á
fimmtudag, er einnig birt á
kosningavef blaðsins, mbl.is/
kosningar.
Hægt er að nálgast handbók-
ina í hægri dálki kosningavefj-
arins, undir yfirskriftinni upp-
lýsingar. Lesendur geta sótt
handbókina, sem er með pdf-
sniði og prentað hana út.
Kosninga-
handbók á
vefnum
Veiðimað-
ur komst
ekki í land
Sektaður fyr-
ir blygðunar-
semisbrot