Morgunblaðið - 25.05.2002, Blaðsíða 15
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 15
SAMNINGAR um aðstöðu fyrir
byggingu og rekstur stálröraverk-
smiðju í Helguvík voru undirritaðir í
gær og verður það stærsta fjárfesting
einkaaðila í Reykjanesbæ. Eigandi
fyrirtækisins segist hafa áhuga á
frekari fjárfestingum á þessu sviði.
Undir samningana rituðu Barry D.
Bernsten, eigandi International Pipe
& Tube á Íslandi ehf. (IPT), Ellert Ei-
ríksson bæjarstjóri og Pétur Jó-
hannsson hafnarstjóri og var Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra viðstödd athöfnina.
Í samningunum er kveðið á um að
Hafnasamlag Suðurnesja geri lóð fyr-
ir verksmiðjuhús byggingarhæfa og
jafnframt er kveðið á um vörugjöld,
lóðarleigu og byggingaleyfis- og
gatnagerðargjöld. Hafnasamlagið
þarf að sprengja lóðina niður og verð-
ur hafist handa við það verk þegar
IPT hefur lagt fram tryggingar.
Liggur vel við flutningum
Fyrsti hluti verksmiðjunnar verður
um 17.500 fermetrar á um það bil 43
þúsund fermetra lóð. Kostnaður við
uppbyggingu hennar er áætlaður um
40 milljónir bandaríkjadala, eða um 4
milljarða króna. Áætlað er að 240
menn fái vinnu við framleiðsluna.
Fyrirtækið mun flytja til landsins
stál í rúllum og valsa það í stálrör og
pípur til útflutnings til Evrópu og
jafnvel Bandaríkjanna. Rörin eru 50
til 160 millimetrar að þvermáli, há-
gæðavara, og eru meðal annars notuð
á olíuborpöllum. Barry Bernsten seg-
ir að mikilvægt sé að halda í lágmarki
kostnaði við flutninga og meðhöndlun
á hráefni og framleiðsluvörum og því
sé æskilegt að slíkar verksmiðjur
liggi vel við flutningum. Mikilvæg
siglingarleið flutningaskipa milli Evr-
ópu og Norður-Ameríku sé nálægt Ís-
landi og því hafi meðal annars verið
litið til suðurstrandar landsins eftir að
byrjað var að huga að uppbyggingu
stálröraverksmiðju. Við nánari skoð-
un málsins hafi síðan komið í ljós að
Helguvíkurhöfn hefði þá eiginleika
sem sóst er eftir.
Móðurfélagið, International Pipe &
Tube, er staðsett í Fíladelfíu í Banda-
ríkjunum. Það hefur fengist við versl-
un með stál í rúma fjóra áratugi og
hefur Bernsten stjórnað því í 27 ár.
Barry Bernsten segir að fyrir sex ár-
um hafi verið ákveðið að hefja eigin
framleiðslu og væri ný stálverksmiðja
í Tallin í Eistlandi fyrsta skrefið í þá
átt. Sú verksmiðja er í byggingu og á
fyrirtæki Bernsten helming hennar.
Bernsten segist vilja hefja bygg-
ingarframkvæmdir í Helguvík á fyrri-
hluta næsta árs, en það fari þó eftir
því hvað lögfræðingar og fjármögn-
unaraðilar yrðu fljótir að ljúka und-
irbúningi, og hefja framleiðslu á árinu
2004. Í ávarpi við undirritunina lét
hann þess getið að fyrirtækið hefði
áhuga á fleiri verkefnum á þessu sviði
á Íslandi, stálpípuverksmiðjan væri
aðeins fyrsti áfanginn.
Hafa hug á frekari fjár-
festingum hér á landi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ellert Eiríksson og Barry D. Bernsten tókust í hendur að lokinni und-
irritun samninga um aðstöðu fyrir stálpípuverksmiðju í Helguvík, en
Valgerður Sverrisdóttir og Pétur Jóhannsson voru viðstödd.
Helguvík
Samningar um aðstöðu fyrir stálpípuverksmiðju undirritaðir
TÓMSTUNDA- og íþróttaráð
Reykjanesbæjar hefur gert nítján
rekstrarsamninga við íþrótta- og
tómstundafélög í bæjarfélaginu.
Samningarnir hljóða upp á alls um 26
milljónir kr., sá hæsti til knattspyrnu-
deildar Keflavíkur vegna reksturs
íþróttavalla.
Tólf af þessum samningum voru
undirritaðir á einu bretti við hátíðlega
athöfn í vikunni en áður var búið að
undirrita sjö samninga. Við það tæki-
færi var kynnt blaðið Sumar í Reykja-
nesbæ sem nú kemur út í annað
skipti. Í því eru upplýsingar um það
helsta sem boðið er upp á í íþrótta- og
tómstundastarfi barna og unglinga í
sumar. Blaðinu er dreift inn á öll
heimili í Reykjanesbæ en Gunnar
Oddsson, formaður tómstunda- og
íþróttaráðs, afhenti Ellert Eiríkssyni
fyrsta eintakið við þetta tækifæri.
Þá var Jóhanni R. Kristjánssyni af-
hentur 400 þúsund kr. styrkur úr Af-
reks- og styrktarsjóði vegna undir-
búnings og þátttöku á Heims-
meistaramótinu í borðtennis sem
fram fer á Taiwan í sumar.
26 milljóna kr.
rekstrarsamningar
Reykjanesbær
HÚSAGERÐIN ehf. í Kefla-
vík átti bestu teikningarnar
að mati dómnefndar og jafn-
framt lægsta tilboðið í bygg-
ingu íbúða fyrir aldraða í
Garði. Byggingarnefndin
ákvað að taka tilboði fyrir-
tækisins.
Gerðahreppur vinnur að
byggingu tíu leiguíbúða fyrir
aldraða í húsi sem áhugi er á
að byggja á eignarlóð hjúkr-
unarheimilisins Garðvangs í
Garði. Aðrir eignaraðilar að
heimilinu og stjórn þess hafa
raunar lagst gegn byggingu á
þessum stað.
Þrjú gild tilboð bárust í
lokuðu alútboði. Fyrst voru
teikningarnar lagðar fram og
metnar og fékk tillaga Húsa-
gerðarinnar flest stig. Lausn-
in var talin góð, einföld og
falla vel að umhverfinu. Í gær
voru síðan verðtilboðin opn-
uð. Lægsta tilboðið var einnig
frá Húsagerðinni, 115,5 milj-
ónir króna. Gild tilboð komu
einnig frá Hjalta Guðmunds-
syni ehf. og Íslenskum að-
alverktökum hf. Hæsta boðið
var tæpar 148 milljónir
króna.
Að sögn Sigurðar Jónsson-
ar sveitarstjóra verður nú
haldið áfram við framkvæmd-
ina. Segist hann ekki hafa trú
á öðru en að viðhorfin breyt-
ist eftir kosningar og að
menn átti sig á því að þessi
bygging muni í engu skerða
framtíðarhagsmuni Garð-
vangs, heldur þvert á móti
verða til að styrkja starfsem-
ina.
Tilboð
Húsagerð-
arinnar
metið best
Garður
REYKJANESBÆR hefur gefið út
veggspjaldið Nám til framtíðar,
til að auðvelda nemendum grunn-
skóla að velja áframhaldandi
nám.
Kjartan Már Kjartansson, for-
maður markaðs- og atvinnuráðs
Reykjanesbæjar, afhenti það í
gær skólastjórum og nokkrum
nemendum grunnskóla bæjarins.
Veggspjöldin voru unnin í sam-
vinnu markaðs- og atvinnu-
málaskrifstofu og fræðslu- og
uppeldissviðs Reykjanesbæjar og
verða hengd upp í skólunum.
Fram kom hjá Helgu Sigrúnu
Harðardóttur atvinnuráðgjafa að
hugmyndin væri að setja þau
einnig á músarmottur og afhenda
nemendum skólanna í haust.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Nemendur 10. bekkjar sem biðu í gær spenntir eftir einkunnum úr sam-
ræmdu prófunum notuðu tímann til að skoða veggspjaldið.
Veggspjöld um nám
Reykjanesbær
LANDIÐ
ÞAÐ er bjart yfir Grímsey og mikil
gróska í sjómennskunni.
Sigurður Henningsson, 18 ára
skipstjóri, sigldi á bát sínum hrað-
byri til Grímseyjar frá Akureyri á
innan við tveimur klukkustundum á
dögunum. Siggi Hennings EA 230
er fyrsti bátur Sigurðar og ber nafn
eigandans. Siggi Hennings EA er
fjögurra tonna dagabátur af gerð-
inni Sómi 800 og gengur 30 mílur.
Yngsti útgerðarmaðurinn í
Grímsey geislaði af krafti og áhuga
um borð í báti sínum enda voru
margir mættir um borð til að sam-
fagna honum með bátinn.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Ungur bátaeigandi
Grímsey
ÞEGAR Brandur ÞH 21 kom að
landi á Húsavík fyrir skömmu með
allvænan hákarl vildi ekki betur til
en svo að þegar hífa átti hann upp
á bryggjuna slitnaði taugin sem
bundin var um sporð hans.
Menn dóu ekki ráðalausir og
kallað var á kafarar, fleiri en einn
buðu sig fram og köfuðu tveir niður
með taug. Þeir fundu hann fljót-
lega og bundu taugina um sporð
skepnunnar. Hákarlinn var síðan
bundinn við Brandinn og farið
lengra upp með bryggjunni þar
sem lægra var að hífa hann upp á
bryggjunna og gekk það að óskum.
Þorfinnur Harðarson skipstjóri á
Brandi ÞH sagðist vera með há-
karlalínuna úti á Skjálfandaflóa,
„þetta var helber klaufaskapur hjá
okkur að slíta svona kaðalinn, en
strákarnir vildu ólmir kafa svo
þetta reddaðist allt saman“.
Það voru þeir Gauti Grétarsson
og Henning Þór Aðalmundsson
sem köfuðu eftir hákarlinum og
sagðist Henning alveg til í að
þiggja kæstan hákarl að launum
þótt síðar yrði.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Brandur dregur hákarlinn að
bryggju og bjargvættirnir
Henning og Gauti svamla á eftir.
Húsavík
Kafa þurfti eftir
hákarli í höfninni
LEK mót í golfi öldunga var hald-
ið á golfvellinum á Torfmýri í
Vestmannaeyjum um hvítasunnu-
helgina. Alls tóku 69 manns þátt í
mótunum en keppt var í flokkum
karla 55-69 ára og 70 ára og eldri
og opnum kvennaflokki.
Leiknar voru 36 holur laug-
ardag og sunnudag, en báða dag-
ana var veður frekar leiðinlegt til
golfiðkunar. Í flokki 55-69 ára
gilti árangur til landsliðs, sig-
urvegari var Sigurður Alberts-
son, GS. Í flokki 70 ára og eldri
sigraði hinn síungi Eyjamaður
Sverrir Einarsson og í flokki
kvenna sigraði Erla Adólfsdóttir,
GV.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Golfmót öldunga
um hvítasunnuna
Vestmannaeyjar