Morgunblaðið - 25.05.2002, Qupperneq 16
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
16 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ELDRI borgarar í uppsveitum Ár-
nessýslu koma reglulega saman í
Skálholtsskóla og njóta þar góðra
veitinga og uppörvandi félags-
skapar. Vorkoman var aðallega á
dagskrá á samveru þeirra núna á
þriðja í hvítasunnu.
Kristrún Matthíasdóttir á Fossi í
Hrunamannahreppi valdi sér vor-
þulu eftir Ólínu Andrésdóttur til
lestrar og sagði frá vorverkum og
venjum í Hreppunum snemma á síð-
ustu öld í viðtali við rektor Skál-
holtsskóla, Bernharð Guðmunds-
son. Fundarfólk skipti sér í
nærhópa og bar saman vorsiði og
verk sem það hafði kynnst á langri
ævi. Meðal annars kom fram að
venja var víða að fara með hrúta út
í eyjar á sumardaginn fyrsta og
einnig sleppa gemlingum þann dag
hvernig sem viðraði.
Þá komu fram ýmsir siðir um ull-
arþvott og ullarþurrkun og sömu-
leiðis um „útstungu skánar með
páli, sem börn og kellingar báru í
fangi sér úr húsi og reistu í borg“. Í
umræðunum um vinnslu áburðar á
túnum áður fyrr með taðkvörn og
slóða eða herfi kom fram að af-
gangstaðið var rakað saman og not-
að til eldiviðar og kallað afrakstur,
en það orð heyrist nú oft í efna-
hagsumræðunni, óneitanlega í öðru
samhengi!
Undir borðum var áréttað að
æskilegt væri að þessar umræður
gætu tengst yngri kynslóðinni til
þess að auðvelda unga fólkinu að
skilja sögu og bakgrunn þjóð-
arinnar og var hvatt til þess að
Skálholtsskóli skapaði vettvang þar
sem reynsluarfi þjóðarinnar væri
miðlað, segir í frétt frá Skálholts-
skóla.
Hjartfólgin vorljóð
Fundarfólk valdi þær vorvísur
sem því voru hjartfólgnastar. Fjöl-
mörg ljóð komu til álita en meðal
þeirra er flest atkvæði hlutu voru
Vorið er komið og Lóan er komin
en ennfremur Vorið góða grænt og
hlýtt, Ó, blessuð vertu sumarsól,
Ljósið loftin fyllir, Sá ég spóa, Þú
vorgyðjan svífur, Vorvindar glaðir,
Svanir fljúga hratt til heiða og Svo
snauð er engin íslensk sál.
Þeir Steinþór Gestsson á Hæli og
Skúli Gunnlaugsson í Miðfelli fluttu
eigin vorljóð. Þá sungu þau Örn
Arnarson, ættaður frá Skeiðhá-
holti, og Erna Blöndal vor- og ást-
arljóð og ljúfa sálma við miklar
undirtektir.
Samtals 2163 ára
Fundarfólki bauðst að skoða
fornleifauppgröftinn sem er nýhaf-
inn í Skálholti undir leiðsögn Orra
Vésteinssonar fornleifafræðings.
Mörg þeirra voru vel kunnug í
Skálholti frá fyrri tíð og rifjuðu upp
sagnir og atvik frá staðnum. Sam-
ansöfnuð lífsreynsla þessa hóps er
reyndar mikil, aldursár þeirra mun
vera 2163 ár samtals.
Í skipulegri umræðu þeirra um
fjölradda eða einradda kirkjusöng
komu fram ýmsar skoðanir og
margskonar reynsla en allir fengu
að njóta sín þar, því við farar-
blessun í Skálholtskirkju var hvoru-
tveggja sungið, fjölradda og ein-
radda sálmar.
Næsta samvera eldri borgara í
uppsveitum Árnessýslu er áformuð
um miðjan október og mun þá
væntanlega verða fjallað um haust-
ið, verk, venjur og vísur. Þau Vil-
mundur Jónsson í Skeiðháholti,
Margrét Karlsdóttir í Skipholti,
Sveinn Skúlason í Bræðratungu og
Halldóra Jónsdóttir í Stærri-Bæ
mynda starfshópinn að baki þess-
ara samvera ásamt sóknarprestum
sínum. Héraðssjóður prófastsdæm-
isins hefur veitt fjárstuðning til
þessara samfunda, segir í fréttinni.
Ræddu vor-
verk í sveit-
um og vin-
sæl vorljóð
Skálholt
LANDIÐ
RÍFLEGA 50 manns mættu á stofn-
fund sjálfseignarstofnunar um
menningarsalinn á Selfossi, sem
haldinn var 18. maí í fokheldum saln-
um sem bíður uppbyggingar í Ársöl-
um á Selfossi. Á fundinum fór fram
kynning á hugmyndinni um sjálfs-
eignarstofnunina og starfsemi salar-
ins, stofnsamþykktum og hvernig því
verði hagað að almenningur, fyrir-
tæki, stofnanir og opinberir aðilar
gerist stofnaðilar. Fyrir liggur að sal-
urinn er fullhannaður og að kostn-
aðaráætlun um fullbúinn sal er um
150 milljónir króna.
Bjarni Harðarson ritstjóri flutti
ávarp um áhrif menningar, Loftur
Erlingsson söngvari og söngstjóri
söng þrjú lög og Sigurgeir Hilmar
Friðþjófsson leikari las upp ljóðið
Áfanga eftir Jón Helgason. Ingunn
Guðmundsdóttir formaður bæjar-
ráðs, Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra og Hafsteinn Þorvaldsson
fyrrverandi bæjarstjórnarmaður
tóku til máls og fögnuðu því frum-
kvæði sem hafið væri í þá veru að
fullklára salinn. Fundarstjóri var Óli
Þ. Guðbjartsson fyrrverandi dóms-
málaráðherra og bæjarstjórnarmað-
ur.
Fram kom á fundinum að lögð
verður áhersla á að fá opinbera aðila
að verkefninu en það hefur verið
kynnt sveitarstjórnum og þingmönn-
um.
Á fundinum var skýrt frá því að
fólk gæti skráð sig sem stofnaðila í
bankaútibúum á Suðurlandi og greitt
þar stofnframlagið en stofnaðir verða
reikningar í hverju bankaútibúi.
Kynnt var sú hugmynd að hafa sæti í
salnum sem áþreifanlega viðmiðun
að stofnframlagi en hvert sæti kostar
um 50 þúsund krónur. Fundarmenn
á stofnfundinum skráðu sig fyrir sem
svarar 20 sætum og þar með var
fyrsta milljónin í höfn.
Í lok fundarins var kynnt fjölgun í
undirbúningshópi verkefnisins og er
hann þá þannig skipaður: Sigurður
Jónsson, Guðjón Ægir Sigurjónsson
lögmaður, Sigurður Bjarnason
fulltrúi, Magnús Karel Hannesson
fyrrverandi oddviti, Þóra Þórarins-
dóttir og Ólafur Helgi Kjartansson
sýslumaður. Stofnfundinum var síð-
an frestað til haustmánaða en þá er
fyrirhugað að loka stofnskrá og kjósa
stjórn fyrir sjálfseignarstofnunina
um menningarsalinn.
Um 50 manns á fundi um menningarsalinn á Selfossi
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá stofnfundinum sem haldinn var í fokheldum menningarsalnum.
Fundarmenn
skráðu sig fyrir
einni milljón
Selfoss
LÍKT og farfuglarnir sem koma á
vorin, flykkist fólk til æskustöðv-
anna og rifjar upp gamla tíma. Fyr-
ir skemmstu hittust gamlir bekkjar-
félagar hér í Hveragerði. Tilefnið
var að stór hluti þeirra verður 60
ára á þessu ári.
Hópurinn kom saman í grunn-
skólanum þar sem Guðjón Sigurðs-
son skólastjóri tók á móti þeim og
sagði m.a. að það væri orðin
ánægjuleg hefð á vorin að taka á
móti gömlum nemendum sem hitt-
ust af ýmsum tilefnum. Eftir að hafa
þegið veitingar gekk fólkið um skól-
ann og fór inn í „sína stofu“. Þar
voru ýmsar uppákomur. Eftir skóla-
heimsóknina var farið í heimsókn í
Fagrahvamm, þar sem einn bekkj-
arbróðirinn, Sigurður Ingimarsson,
rekur garðyrkjustöð. Þaðan var
haldið í gönguferð um bæinn.
Þegar kvölda tók fór hópurinn að
Hótel Örk þar sem borðað var og
átti saman góða kvöldstund.
Hópurinn sem heimsótti æskustöðvarnar ásamt Guðjóni Sigurðssyni, skólastjóra í Hveragerði.
Bekkjarfélagar hittast
Hveragerði
UM helgina verður opin leirlista- og
málverkasýning í Óðinshúsi við Eyr-
argötu á Eyrarbakka, en sýningin
var opnuð um hvítasunnuhelgina.
Sýnendur eru Ingibjörg Klemenz-
dóttir leirlistamaður og Sverrir
Geirmundsson málari. Ingibjörg
sýnir leir- og postulínsverk og
Sverrir sýnir olíumálverk.
Ingibjörg útskrifaðist úr leirlista-
deild Listaháskóla Íslands vorið
2000. Íslensk náttúra hefur verið
sérstakt viðfangsefni hennar að
undanförnu og þangað sækir hún
innblástur hvað varðar litbrigði og
áferð leirverka sinna. Leir og gler-
ungar spila saman og mynda litrænt
sjónarspil sem líkir eftir hafinu, ísn-
um og litum harðgerrar náttúru
landsins, segir í fréttatilkynningu.
Sverrir er að mestu sjálfmennt-
aður í myndlistinni en hefur sótt
ýmis námskeið, m.a. í Myndlista-
skóla Reykjavíkur. Hann hefur
stundað sína myndlist síðustu fjór-
tán ár. Helstu viðfangsefni í verkum
Sverris eru landslag og mannslík-
aminn.
Sýningin verður opin á laugardag
og sunnudag frá klukkan 12-19
hvorn daginn. Sýningin verður opin
um helgar fram til 17. júní.
Óðinshús er eitt af eldri steinhús-
um á Eyrarbakka. Byggt 1913 sem
pakkhús af kaupfélaginu Heklu sem
starfaði á Eyrarbakka á fyrri hluta
síðustu aldar. Eftir að Hekla hætti
starfsemi 1925 hefur ýmis starfsemi
verið í húsinu, m.a. útgerðaraðstaða,
netaverkstæði, veiðarfærageymsla,
en nú er húsið vinnustofa Sverris og
vinnur hann að viðgerð á húsinu og
miðar að því að setja það í sem næst
upprunalegt horf.
Sýning í
Óðinshúsi
um helgina
Eyrarbakki
SVEITARFÉLAGIÐ Ölfus bauð
íbúum á tónleika nýlega í tilefni
þess að nýr flygill var tekinn í
notkun í Versölum, hátíðarsölum
Ráðhússins. Þar með var rekinn
endahnútur á framkvæmdir við
Ráðhúsið og það fullbúið til notk-
unar.
Það voru Sigrún Hjálmtýsdóttir
og Ólafur Kjartan Sigurðarson sem
sungu og Jónas Ingimundarson lék
á flygilinn. Jónas hóf leikinn með
því að leika þrjú verk, fyrst Cu-
bert, síðan Tunglskinssónötu
Beethovens, 1. þátt, og að lokum
tók hann flygilinn til kostanna, eins
og besti hestamaður, í ungverskri
rapsódíu no. 11 eftir Frans Liszt.
Söngurinn hófst á dúett og sungu
þau lagið Á Sprengisandi. Fram að
hléi sungu þau til skiptis og aðeins
verk eftir íslenska höfunda. Eftir
hlé hófst dagskráin á dúettinum
Papageno úr Töfraflautu Mozarts
og eftir komu sígild erlend verk í
bland við söngleikja- og vísnasöng.
Það er skemmst frá því að segja
að listamennirnir þrír fönguðu hug
og hjarta áheyrenda með stórkost-
legum söng og glæsilegri sviðs-
framkomu. Túlkun þeirra og tján-
ing var með þeim hætti að enginn
var ósnortinn. Það gladdi líka bæj-
arbúa hve vel hin nýju húsakynni
reyndust á þessum fyrstu tónleik-
um, söngur og hljóðfæraleikur
hljómaði afar vel og fyllti salinn
fögrum tónum. Það var mál hinna
fjölmörgu sem fylgdust með að
þarna hafi verið á ferðinni glæsi-
legir tónleikar og sálartetur bæj-
arbúa og menningarlíf staðarins
orðið ríkara eftir en áður.
Framkvæmdum við Ráðhúsið lauk með tónleikum
Nýr flygill tekinn í notkun
Morgunblaðið/ Jón H. Sigurmundsson
Þau hrifu áhorfendur með sér; Jónas Ingimundarson píanóleikari og
söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson.
Þorlákshöfn
Morgunblaðið/Margrét