Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SAMHERJI hf. var rekinn með 1.056 milljóna
króna hagnaði fyrstu þrjá mánuði ársins 2002
sem er um 928 milljónum króna betri afkoma en
á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrir afskriftir og
fjármagnsliði (EBITDA) er 1.238 milljónir
króna, eða 32% af rekstrartekjum samanborið
við 26% á sama tíma í fyrra. Veltufé frá rekstri
nam 1.116 milljónum króna á tímabilinu en var
713 milljónir fyrstu þrjá mánuði ársins 2001.
Rekstrartekjur samstæðunnar fyrstu þrjá
mánuði ársins námu 3.877 milljónum króna,
rekstrargjöld voru 2.639 milljónir og hagnaður
án afskrifta og fjármagnsliða nam því tæpum
1.238 milljónum króna. Afskriftir á þessu tíma-
bili námu 255 milljónum og fjármagnsliðir voru
jákvæðir um 338 milljónir króna en þar munar
mest um gengishagnað upp á 421 milljón króna
vegna styrkingar íslensku krónunnar á tíma-
bilinu. Hagnaður fyrir skatta nam um 1.321
milljón króna og hagnaður af reglulegri starf-
semi eftir skatta var tæpar 1.056 milljónir
króna.
Veltufé frá rekstri fyrstu þrjá mánuði ársins
varð 1.116 milljónir króna og jókst um 403 millj-
ónir króna frá sama tíma árið áður. Eiginfjár-
hlutfall er tæp 40%. Heildareignir Samherja hf.
í marslok voru bókfærðar á samtals 19,4 millj-
arða króna. Þar af eru fastafjármunir tæplega
12,5 milljarðar og veltufjármunir tæpir 7 millj-
arðar. Skuldir félagsins námu rúmlega 11,7
milljörðum króna og eigið fé var 7.673 milljónir.
Í marslok var eiginfjárhlutfall 39,5% og veltu-
fjárhlutfall 1,5.
Eins og fram kom á aðalfundi félagsins 11.
apríl sl. hefur félagið hætt að verðleiðrétta
reikningsskilin. Ef beitt hefði verið sömu reikn-
ingsskilaaðferðum og árið áður hefði hagnaður
félagsins verið tæpum 29 milljónum króna hærri
auk þess sem eigið fé félagsins væri 81 milljón
króna hærra en fram kemur í árshlutareikn-
ingnum.
„Þessar niðurstöður í þriggja mánaða upp-
gjöri félagsins eru ánægjulegar,“ segir Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
„Afkoman fyrstu þrjá mánuði ársins er í sam-
ræmi við áætlanir en í gengismálum var stuðst
við meðalgengi ársins 2001 en ekki gengi í árs-
byrjun. Frá marslokum hefur krónan styrkst
enn frekar sem kemur til með að hafa áhrif á
árið í heild. Við hjá Samherja horfum björtum
augum á framtíðina en allmiklar breytingar
standa yfir á skipastól félagsins, sem er liður í
því að vera enn betur í stakk búnir til að mæta
framtíðinni,“ segir Þorsteinn Már ennfremur.
Hagnaður Samherja
1.056 milljarðar króna
● ATLANTSSKIP hafa bætt Esbjerg
í Danmörku við sem viðkomuhöfn í
áætlunarsiglingum sínum til og frá
Evrópu. Í samvinnu við samstarfs-
aðila Atlantsskipa í Danmörku mun
móttaka stykkjavöru verða í Aarhus
og varan lestuð þar í gáma. Einnig
munu Atlantsskip bjóða upp á hag-
stæða flutninga frá Bretlandi í gegn-
um Rotterdam til Kópavogs.
Atlantsskip sigla á 10 daga fresti
frá Kópavogi til Esbjerg í Danmörku
og Rotterdam í Hollandi.
Nú hafa áætlunarsiglingar Atl-
antsskipa til Evrópu verið starf-
ræktar í rúman mánuð og hefur
reksturinn gengið mjög vel. Skipið
hefur haldið áætlun, öll samskipti
og þjónusta frá hendi samstarfs-
aðila erlendis hefur svo og staðið
undir væntingum. Í ljósi þessa hefur
stjórn Atlantsskipa ákveðið að bæta
við nýrri áætlunarhöfn til að auka
markaðssvæði félagsins enn frekar.
Frá upphafi hefur það verið að-
alsmerki félagsins að bjóða við-
skiptavinum sínum hagstæðustu
flutningsgjöldin og mun því verða
haldið áfram, ásamt því að bæta við
áfangastöðum í áætlunarsiglingum
félagsins til og frá Evrópu.
Flutningsgjald frá Esbjerg í Dan-
mörku og Rotterdam í Hollandi til
Kópavogs fyrir 20 feta þurrgám er
950 evrur og fyrir 40 feta þurrgám
1250 evrur.
Þetta er mun lægra verð en áður
hefur verið í boði á markaðnum og
er ætlun Atlantsskipa að bjóða við-
skiptavinum sínum alltaf besta verð
og þjónustu,“ segir í frétt frá Atl-
antsskipum.
Atlantsskip hefja
áætlunarsiglingar
til Esbjerg
● GREIÐSLUAFKOMA ríkissjóðs var
jákvæð um 4,3 milljarða króna á
fyrstu fjórum mánuðum ársins 2002,
samanborið við rúman 1 milljarð á
sama tímabili í fyrra.
Handbært fé frá rekstri var nei-
kvætt á tímabilinu um 2,9 milljarða
króna samanborið við 0,2 milljarða á
sama tíma í fyrra sem skýrist af því að
greidd gjöld jukust heldur meira frá
fyrra ári en innheimtar tekjur. Heildar-
tekjur ríkissjóðs námu rúmlega 77
milljörðum króna og hækkuðu um 5
milljarða frá fyrra ári, eða um 6,8%. Í
tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu
segir að ljóst sé að áfram gæti nokk-
urs samdráttar í efnahagslífinu. Hins
vegar bendi tekjutölur ríkissjóðs á
tímabilinu til þess að samdrátturinn
sé í rénun, t.d. hafi tekjur af virð-
isaukaskatti hækkað um tæplega
7,5%. Það svari til um ½% samdráttar
að raungildi, samanborið við 9% sam-
drátt fyrstu þrjá mánuði ársins.
Greidd gjöld námu 80,1 milljarði
króna og hækkuðu um 7,5 milljarða
frá fyrra ári, eða 10,5%. Mestu munar
um 3,1 milljarðs króna hækkun á
greiðslum til heilbrigðismála, að því
er segir í tilkynningu. Þá hækki
fræðslumál um 1,1 milljarð og al-
menn stjórnsýsla um 0,8 milljarða
króna. Hreinn lánsfjárjöfnuður var nei-
kvæður um 2,4 milljarða, samanborið
við 1,9 milljarða króna á sama tíma í
fyrra og nemur aukningin rúmum
22%. Lántökur á tímabilinu námu
26,3 milljörðum miðað við 29,4 millj-
arða í fyrra. Ætlunin mun vera að
auka vægi langtímalána og gert er ráð
fyrir að erlend skammtímalán fari
lækkandi á næstu mánuðum. Á móti
lántökum vega afborganir lána að fjár-
hæð 16,7 milljarðar og 3 milljarða
króna greiðsla til Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins í því skyni að lækka
framtíðarskuldbindingar ríkissjóðs.
Greiðsluafkoma
ríkissjóðs batnar
frá fyrra ári
ÁHRIF hlutdeildarfélaga á afkomu samstæðu
Baugs hf. fyrir skatta voru 2.352 milljónir króna í
14 mánaða uppgjöri félagsins sem sagt var frá í
gær. Hagnaður fyrir skatta var 1.465 milljónir
króna, sem þýðir að reksturinn var neikvæður án
áhrifa hlutdeildarfélaganna. Rekstrartekjur sam-
stæðunnar námu 48.292 milljónum króna og þar af
nam vörusala 47.820 milljónum króna. Kostnaðar-
verð seldra vara nam 35.566 milljónum króna og
álagning í vörusölu var því 12.254 milljónir króna.
Að frádregnum launakostnaði og öðrum rekstrar-
kostnaði nam hagnaður fyrir afskriftir 1.247 millj-
ónum króna.
Rekstrartap fyrir fjármagnsliði
Afskriftir námu samtals 1.300 milljónum króna
og rekstrartap fyrir fjármagnsliði nam því 53 millj-
ónum króna. Hrein fjármagnsgjöld samstæðunnar
námu 834 milljónum króna en áhrif hlutdeildar-
félaga voru jákvæð um 2.352 milljónir króna og
hagnaður fyrir skatta því 1.465 milljónir króna,
eins og áður sagði. Þau hlutdeildarfélög sem hér
um ræðir eru Arcadia Group á Bretlandi, Árnes
apótek ehf., Ávaxtahúsið Nýtt og ferskt ehf., Fast-
eignafélagið Stoðir hf., GK Reykjavík ehf., Húsa-
víkur apótek ehf., P/f SMS í Færeyjum og Örygg-
isnet ehf. Hlutdeild Baugs í Arcadia er minnst,
20%, en verðmæti þess hlutar þó langmest. Bók-
fært verð Arcadia-hlutabréfanna er 11,8 milljarðar
króna, en markaðsverð í lok uppgjörstímans var
um 4,5 milljörðum króna hærra. Nú eru dulin verð-
mæti hlutarins um átta milljörðum yfir bókfærðu
verði.
Samstæðu Baugs hefur verið skipt upp í þrjár
rekstrareiningar, Baug-Ísland, sem sér um versl-
unarrekstur hér á landi og í Svíþjóð, Bonus Stores
Inc, sem rekur 394 verslanir í Bandaríkjunum, og
Baug-fjárfestingu, en til þeirrar einingar teljast
meðal annars Arcadia, SMS og Stoðir. Ekki er gef-
ið upp í þessu uppgjöri hvernig skipting afkom-
unnar er milli eininga, en í þriggja mánaða uppgjöri
yfirstandandi reikningsárs er ætlunin að hefja
sundurgreiningu afkomunnar þannig að sjá megi
hverju hver eining skilar. Af þeim upplýsingum
sem liggja fyrir úr uppgjörinu nú og úr 12 mánaða
uppgjörinu sem birt var fyrir tveimur mánuðum
má þó sjá að hagnaðurinn kemur að mestu leyti frá
erlendri starfsemi, því í tólf mánaða uppgjörinu var
staðan þegar þannig að mestur hagnaður kom að
utan og síðan hefur hallað á innlenda starfsemi.
Til að sundurgreina þetta nánar má skoða þróun
eftir skatta á milli 12 og 14 mánaða uppgjöra.
Hagnaður eftir skatta nú var 385 milljónum króna
lægri en eftir 12 mánuði, eða 924 milljónir króna á
móti 1.309 milljónum króna. Þetta 385 milljóna
króna tap sem varð í janúar og febrúar á þessu ári
skiptist þannig að sérvöruverslun Baugs hér á
landi tapaði 200 milljónum króna og kostnaður við
að halda aftur af verðhækkunum til að verja rauða
strikið kostaði 80 milljónir króna í lægri vörufram-
legð. Alls nam tapið innanlands því 280 milljónum
króna af þessum 385 milljónum króna, en það sem
út af stendur er aðallega tap vegna Bonus Stores.
Meirihluti hagnaðar
Baugs kemur að utan
MAREL er nú um það bil að senda
frá sér kjötvinnslukerfi sem búið er
að vera í smíðum sl. mánuði. Fer
það í nýja kjötvinnslu í Texas í
Bandaríkjunum og verður þetta
fullkomnasta vinnslukerfi sinnar
tegundar. Verðmæti þessa kerfis er
hátt í 400 milljónir króna. Fyrir um
tveimur vikum fékk Marel svo ann-
an samning af sambærilegri stærð
til annars kjötfyrirtækis í Banda-
ríkjunum.
Kerfið byggist á flæðilínum með
einstaklingseftirliti til snyrtingar á
kjötvöðvum, nýrri tegund tölvu-
sjónar, skurðarvélar fyrir steikur
svo og snyrti- og pökkunarlínum
fyrir steikur sem einnig eru með
einstaklings eftirliti. Er til dæmis
skjár við hvert vinnslustæði þar
sem starfsmaðurinn getur séð ár-
angur sinn og borið saman við með-
altal annarra starfsmanna lín-
unnar. Steikurnar eru settar í
bakka sem eru auðkenndir með
radíómerki og er þannig hægt að
halda utanum upplýsingar um vör-
una og stýra henni inn á viðkom-
andi lagera og pökkunarvélar.
Hluti af kerfinu er smíðaður hjá
Carnitech sem er hið danska dótt-
urfélag Marel.
Morgunblaðið/Kristinn
Starfsmenn Marel leggja síðustu hönd á kjötvinnslukerfið, en búnaðurinn
er nú að fara í gáma og verður sendur til Bandaríkjanna.
Kjötvinnslukerfi
fyrir 400 milljónir
SÍF hf. skilaði 1,7 milljónum evra
hagnaði eftir skatta (153 millj. kr.) á
fyrstu þremur mánuðum ársins, en
hagnaður á fyrsta ársfjórðungi í fyrra
var 1,3 milljónir evra (107 millj. kr.),
sem er breyting upp á 383 þúsundir
evra. Hagnaður SÍF hf. fyrir afskrift-
ir og fjármagnsliði (EBITDA) nam
7,1 milljónir evra (632 millj. kr) á
fyrsta ársfjórðungi, en var 7,0 m. evra
á sama tímabili árið 2001. Þá skilaði
rekstur samstæðunnar á fyrstu
þremur mánuðum ársins jákvæðu
veltufé frá rekstri að upphæð 4,2
milljónir evra (373 millj. kr). saman-
borið við 4,9 milljónir evra fyrir sama
tímabil árið á undan. Rekstrarliðir
hafa hér verið umreiknaðir í íslenskar
krónur á meðalgengi viðkomandi
tímabils. „Í samræmi við áherslur
SÍF hf. lækkar almennur rekstrar-
kostnaður samstæðunnar nú um rúm-
ar 2,1 m. evra eða rúm 13% frá sama
tímabili árið 2001, en eins og áður hef-
ur verið greint frá lækkaði almennur
rekstrarkostnaður SÍF samstæðunn-
ar verulega á milli áranna 2000 og
2001,“ segir í frétt SÍF um uppgjörið.
Í fréttinni segir ennfrremur að
rekstur SÍF samstæðunnar hafi að
mörgu leyti gengið vel á fyrsta árs-
fjórðungi ársins, þó svo að tíma-
bundnir erfiðleikar á saltfiskmörkuð-
um og upptaka evrunnar hafi haft
meiri áhrif á sölu og framlegð afurða
á fyrstu mánuðum ársins en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Rekstur SIF France
hafi gengið mun verr en áætlanir
gerðu ráð fyrir á fyrsta ársfjórðungi,
á meðan rekstur annarra dóttur-
félaga SÍF hf. er almennt í samræmi
við áætlanir.
Árshlutauppgjör SÍF hf. er birt í
evrum sem er sá gjaldmiðill sem skil-
greindur hefur verið sem heimamynt
félagsins og þyngst vegur í rekstri
þess. Í uppgjörinu er ekki tekið tillit
til áhrifa verðlagsbreytinga þannig að
svokölluð verðbreytingafærsla og
endurmat fellur út. „Horfur fyrir
rekstur SÍF hf. á komandi mánuðum
eru í samræmi við fyrri væntingar.
Reiknað er með að aukinn kraftur í
sölu saltfiskafurða á síðari hluta árs-
ins vegi upp sölutregðu fyrsta árs-
fjórðungs. Samkvæmt áætlunum SÍF
hf. er gert ráð fyrir taprekstri á öðr-
um og þriðja ársfjórðungi, en auknum
hagnaði á fjórða ársfjórðungi. Eins og
áður hefur komið fram gera rekstr-
aráætlanir SÍF hf. ráð fyrir að hagn-
aður ársins verði heldur meiri en á
árinu 2001 og er á þessu stigi ekki tal-
in ástæða til að endurskoða áætlun
samstæðunnar fyrir árið 2002,“ segir í
fréttinni.
Hagnaður af
rekstri SÍF hf.
153 m. kr.