Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 24
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EL Salvador er lítið en afar þéttbýlt
ríki í Mið-Ameríku, land þar sem 12
ára löng og blóðug borgarastyrjöld
herjaði þar til fyrir áratug. Fellibyl-
urinn Mitch olli þar miklu tjóni fyrir
tveim árum, stundum er minnst á
landið í alþjóðlegum fréttamiðlum
vegna jarðskjálfta, flóða eða þurrka
sem valda búsifjum um þessar
mundir. En El Salvadormenn hafa
margir hugann við aðra og jákvæð-
ari þróun síðustu árin: friður og lýð-
ræði er að skjóta þar traustum rót-
um í fyrsta sinn í marga áratugi og
framfarir í efnahagsmálum veru-
legar.
„Það er til orðtak í okkar landi
sem segir að meiri hávaði sé af einu
tré sem fellur en skóginum sem vex
að baki því,“ segir Maria E. Brizuela
de Avila, utanríkisráðherra El
Salvador brosandi þegar spurt er
hvort aldrei berist annað en slæm
tíðindi frá landi hennar. „Við höfum
ýmislegt sem við erum hreykin af.
Alþjóðleg fjárfestingafyrirtæki telja
að gott sé að fjárfesta í landinu,
meðal landa í Rómönsku Ameríku
eru það aðeins Mexíkó og Chile sem
fá þá einkunn auk okkar hjá Stand-
ard & Poors. Opinberar skuldir okk-
ar eru lægri en í nær öllum öðrum
löndum Rómönsku Ameríku. Okkur
hefur tekist að minnka hlutfall ólæs-
is úr 27% í 15% á aðeins tíu ára
tímabili friðar og þetta gengur hratt
fram á við. En þetta er ekki átaka-
laust.“
De Avila er stödd er á Íslandi í op-
inberri heimsókn í boði Halldórs Ás-
grímssonar utanríkisráðherra en
ríkin tvö tóku upp stjórnmálasam-
band fyrir þrem árum, skömmu eftir
að de Avila tók við embætti. De
Avila átti hér fundi með Halldóri,
Sólveigu Pétursdóttur dómsmála-
ráðherra, Sigríði Önnu Þórðardótt-
ur, formanni utanríkismálanefndar
Alþingis og fulltrúum Þróunarsam-
vinnustofnunar og Útflutningsráðs
og fleiri aðilum í tveggja daga heim-
sókn sinni. Hún heimsótti einnig
Bláa lónið og kynnti sér starfsemi
Hitaveitu Suðurnesja. De Avila var
að búa sig undir stutta ferð á Þing-
velli er blaðamaður Morgunblaðsins
hitti hana að máli.
Miklir möguleikar
á samvinnu
Um sex milljónir manna búa í El
Salvador, það er á Kyrrahafsströnd
Mið-Ameríku en á landamæri að
tveim ríkjum, Guatemala og Hond-
uras. Mikil fátækt er í landinu en
kjörin hafa batnað, þrátt fyrir mörg
áföll.
„Okkur hefur komið margt þægi-
lega á óvart hér á Íslandi og fengið
hugmyndir að auknum viðskiptum
við ykkur,“ segir de Avila. „Við
sjáum möguleika á samvinnu í fisk-
veiðum, einnig í ferðaþjónustu,
menning Maya-indjána er áhuga-
verð fyrir ferðamenn. Mikil náttúru-
fegurð er í El Salvador, nóg af sól og
beint flug til New York. En það sem
við leggjum áherslu á er að heim-
sóknin hingað endurspeglar ósk
landsins míns um að eignast hér vin,
við viljum lífleg samskipti og kanna
öll svið þar sem við getum starfað
saman.
Við höfum bæði eldfjöll og jarð-
hita í El Salvador, við viljum nýta
jarðhitann betur og þess vegna var
athyglisvert að skoða Svartsengi.
Átján nemendur við Jarðfræðiskóla
Sameinuðu þjóðanna hér á landi
hafa komið frá El Salvador og mér
fannst gaman að fá að vita að hér
búa tveir El Salvador-menn og hafa
aðlagast vel íslensku samfélagi, eru
duglegir borgarar.
Borgarastyrjöldin olli því meðal
annars að fjöldi fólks flúði landið,
um fjórðungur af þjóðinni býr enn
utanlands, langflestir þeirra í
Bandaríkjunum. Ég var nýlega í
Svíþjóð, þar fengu á sínum tíma um
5.000 manns hæli en nú er helm-
ingur þeirra snúinn heim. Þeir sem
snúa heim eru verðmætir fyrir okk-
ur vegna þess að þeir hafa vanist að
búa við lýðræði og taka því með opn-
um huga.
Við fáum mikið fé í þróunaraðstoð
frá Bandaríkjunum, Evrópusam-
bandinu, Alþjóðagjaldeyrissjóðinum
og fleiri aðilum. El Salvador er lítið
land, miklu minna en Ísland og við
ráðum ekki yfir miklum náttúruauð-
lindum, olíu eða slíku en í mínum
huga er fólkið sjálft stærsta auðlind-
in. Margir landar mínir hafa góða
sköpunargáfu, eru vinnusamir. En
svo má ekki gleyma að þeir sem búa
og starfa utanlands senda ættingj-
um heima í El Salvador mikið fé, ár-
lega nemur sú fjárhæð um 13% af
öllum gjaldeyristekjum okkar. Þetta
eru nærri tveir milljarðar dollara á
ári.“
– Helmingur af raforku í El
Salvador er framleiddur í vatnsafls-
verum og þið flytjið mikið af henni
út.
„Já, tekist hefur að tengja saman
raforkunet sjö Mið-Ameríkulanda
og Dóminíska lýðveldið, sem er ey-
ríki, vill einnig taka þátt í efnahags-
samstarfi ríkjanna. Þetta er mikil-
vægt vegna þess að þá er hægt að
laða að fleiri fjárfesta í greininni,
markaðurinn er stærri. Tengingin
gerir kleift að flytja ýmist orku út
eða inn í landið, í samræmi við
sveiflur í notkun og kröfur mark-
aðarins.“
Samvinnan í raforkumálum er lið-
ur í svonefndu Efnahagssamstarfi
Karíbahafsríkja er hófst að frum-
kvæði Ronalds Reagans Banda-
ríkjaforseta á níunda áratugnum og
taka El Salvadormenn þátt í því.
Þáttur landbúnaðar í þjóðarfram-
leiðslunni hefur minnkað hratt á síð-
ari árum, að sögn ráðherrans. „Við
flytjum nú út mikið af vefnaðarvöru
til Bandaríkjanna. Reistar hafa ver-
ið svonefndar maquila-verksmiðjur
þar sem hálfunnin vara er fullunnin
og síðan seld aftur í landinu sem hún
kom frá upprunalega. Auk vefnaðar-
vöru framleiðum við íhluti fyrir tölv-
ur.
Við erum nú mjög vongóð um
frekari þróun vegna þess að Bush
Bandaríkjaforseti hefur heitið að
undirrita samning um frjálsa versl-
un við Mið-Ameríkuríkin. Fái hann
heimild þingsins til að gera samn-
inginn verður það mikill áfangi fyrir
okkur, enn fleiri markaðir gætu
opnast í Bandaríkjunum.“
– En lífskjörin eru enn slæm, mið-
að við Vestur-Evrópu og skortur á
mörgu.
„Það er rétt og það er áskorun
sem við verðum að takast á við.
Endalok stríðsins hafa gert okkur
kleift að tryggja lýðræðisskipulag
með friðsamlegum hætti. Fyrrver-
andi skæruliðar sitja nú á þingi og
flokkur þeirra er mjög virkur. Við
undirrituðum friðarsamkomulag
fyrir 10 árum og okkur hefur síðan
tekist að minnka hlutfall þeirra sem
lifa í sárri fátækt um helming, það
sýnir að við erum á réttri leið.
Mestum erfiðleikum valda nú
náttúruhamfarir. Miklir jarðskjálft-
ar urðu tvisvar í fyrra og þúsundir
eftirskjálfta, fimmti hver íbúi í El
Salvador missti heimili sitt. Þessir
atburðir hafa tafið mjög fyrir fram-
förum. En hvers vegna erum við
samt ánægð og bjartsýn? Vegna
þess að við höfum náð fram póli-
tískri einingu um lýðræði.
Við vitum að með opnu markaðs-
kerfi og frjálsri verslun eigum við
eftir að halda áfram að draga úr fá-
tækt, við höldum líka fast við áætl-
anir um endurbætur til að tryggja
að allir geti menntast.
Ég held að sagan hafi gefið fólki í
El Salvador mjög sérstæðan þjóð-
arkarakter. Miklir jarðskjálftar
verða í landinu að meðaltali á 20 ára
fresti og hver kynslóð þarf því að
virkja baráttukjarkinn. Vandinn er
að mín kynslóð hefur þurft að kljást
við svo margt, stríðið, jarðskjálft-
ana, fellibyljina, sem að vísu eru fá-
tíðir hjá okkur. Við erum mjög já-
kvæð þegar við þurfum að byggja
eitthvað upp á ný eftir áföll en gall-
inn er að okkur skortir oft hæfileik-
ann til að fylgja starfinu eftir,
tryggja samfellda viðleitni til að
byggja upp og halda við góðu
ástandi.
En nú vonum við að með lýðræði
takist okkur að byggja upp stofnanir
og skipulag sem dugi til að halda við
því sem byggt er upp. Og lýðræði er
nýtt í okkar huga, áður var alltaf
einræði herforingja í landinu.“
Dollarinn gerður
að gjaldmiðli
Hún segir að ráðamenn landsins
leggi mikla áherslu á að treysta
efnahaginn, ella verði erfitt að auka
samkeppni í alþjóðlegum viðskipt-
um. „Þetta er ein ástæða þess að við
gerðum Bandaríkjadollarann að
gjaldmiðli í landinu, hann er notaður
samhliða colon en dollarinn er sam-
kvæmt lögum einráður í bankakerf-
inu. Fólk getur valið hvort það vill
eiga dollara eða colona, kaupgengið
er ákveðið af ríkinu og colon er fast
hlutfall af dollaranum. Smám saman
hættir fólk vafalaust að nota inn-
lendu peningana. Um 65% af öllum
peningum í hagkerfinu eru nú doll-
arar og þetta hefur styrkt hagkerfið
mikið. Hættan á gengisfellingu er úr
sögunni, fólk þarf ekki að óttast að
peningarnir verði að engu. Lífeyr-
issjóðir eiga aðeins dollara.“
Hún er spurð hvort fjármálaráð-
herrann vilji ekki halda í réttinn til
að fella gengið og hvort eining hafi
verið um að fórna sjálfstæðum
gjaldmiðli. „Þessi tilhögun var sam-
þykkt á sínum tíma á þingi eftir afar
ítarlegar umræður. Fjármálaráð-
herrann sér um að halli á fjárlögum
sé lítill og hindrar þannig að þrýst
sé á um gengisfellingu. Við fengum
marga til að halda fyrirlestra, þar á
meðal Domingo Cavallo frá Argent-
ínu og við urðum að sjálfsögðu að
semja við bandaríska seðlabankann.
Tekjurnar sem ég nefndi af fjár-
sendingum frá El Salvador-mönnum
erlendis skipta okkur miklu og ma-
quila-verksmiðjurnar afla mikils
gjaldeyris. Vextir eru aðeins um 7%
sem er miklu lægra en í grannríkj-
unum og það er gott fyrir fyrirtækin
sem eiga auðvelt með að taka lán.
Við ræddum þetta mikið á sínum
tíma en teljum að hver þjóð verði að
finna sína leið í gjaldeyrismálum og
við höfum notið þess að geta fylgst
með öðrum, þ. á m. Argentínumönn-
um og Ekvadormönnum, höfum get-
að lært af mistökum þeirra. Þess
vegna höfum við komið í veg fyrir
brask með gjaldeyrinn, enginn
græðir neitt á að skipta milli dollara
eða colons. Við höfum forðast vand-
lega alla skuldasöfnun og ýtt undir
útflutningsgreinar,“ segir Maria E.
Brizuela de Avila, utanríkisráðherra
El Salvador.
Bjartsýni þrátt fyrir
náttúruhamfarir
Utanríkisráðherra El Salvador segir þjóð-
ina bjartsýna á að framfarir eigi eftir að
tryggja betri kjör. Friður árið 1992 eftir
langvinnt borgarastríð hafi ásamt áherslu
á markaðshagkerfið fest lýðræði í sessi.
Morgunblaðið/Jim Smart
Maria E. Brizuela de Avila, utanríkisráðherra El Salvador, sem stödd er
hér á landi í opinberri heimsókn í boði Halldórs Ásgrímssonar.
ENGAR breytingar verða á afstöðu
Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) til
banns á hvalveiðum í atvinnuskyni
en stormasömum ársfundi ráðsins
lauk í Japan í gær. Hins vegar var til-
laga um að frumbyggjum í Alaska og
Rússlandi yrði áfram leyft að veiða
takmarkað magn hvals felld í annað
skipti á tveimur dögum áður en fund-
inum lauk í gær og olli sú niðurstaða
uppnámi meðal sumra fundarmanna.
„Þetta er ósanngjarnasta og ill-
gjarnasta atkvæðagreiðsla sem um
getur í fimmtíu og sex ára sögu ráðs-
ins,“ sagði Rolland Schmitten, for-
maður bandarísku sendinefndarinn-
ar, eftir að úrslit atkvæðagreiðslunn-
ar lágu fyrir. Einungis eitt atkvæði
vantaði upp á að tillagan yrði sam-
þykkt.
„Úrslitin koma beinlínis í veg fyrir
að fólk sem lifir við frumstæðar að-
stæður geti fætt fjölskyldur sínar,“
sagði Schmitten. Fram að þessu hef-
ur Alþjóðahvalveiðiráðið ávallt leyft
takmarkaðar veiðar frumbyggja.
Japanir og stuðningsríki þeirra
felldu tillöguna í gær í mótmæla-
skyni við það að tillaga um að leyfa
íbúum nokkurra strandhéraða í Jap-
an að veiða 50 hrefnur, náði ekki
fram að ganga. Sögðu þeir afgreiðslu
japönsku tillögunnar sýna að tví-
skinnungur einkenndi afstöðu
margra ríkja í Alþjóðahvalveiðiráð-
inu.
Á fundinum í Japan tókust fylgj-
endur hvalveiða hart á við andstæð-
inga þess, og sökuðu fundarmenn
hverjir aðra um að ljúga, svíkja
gerða samninga og um að hafa skað-
að ímynd Alþjóðahvalveiðiráðsins.
Hvalveiðiráðið
Tillaga
um veiðar
frumbyggja
felld aftur
Shimonoseki. AFP, AP.
SÆNSKIR vísindamenn opnuðu í
fyrradag grafhvelfingu sem löngum
hefur verið talin hinsta hvíla Birgis
jarls, sem var forðum æðsti maður í
Svíþjóð og stofnaði Stokkhólmsborg
14 árum áður en hann lést 1266. Ætl-
unin var að komast að því í eitt skipti
fyrir öll hverjir liggja í hvelfingunni
en einnig geta þeir lesið ýmsan fróð-
leik úr beinaleifunum um mataræði,
sjúkdóma og fleira. Fornleifafræðing-
urinn Torbjörn Ahlström hefur nú
staðfest, að það er Birgir, sem hvílir í
gröfinni í Varnheimklaustrinu í Suð-
vestur-Svíþjóð.
Gröfin var síðast opnuð 1922 og
voru þá beinagrindurnar þrjár sem
þar hvíla rannsakaðar. „Komið hefur í
ljós að beinin hafa skaddast af því að
liggja í koparkistunni sem þau voru
látin í á þriðja áratugnum. Tjónið er
ekki mikið en það var eins gott að við
opnuðum hana núna,“ sagði Ragnar
Sigsjö sem stóð fyrir aðgerðinni.
Í koparkistunni eru bein af öldruð-
um karlmanni, konu og barni og vís-
indamenn töldu sig þegar árið 1922
hafa staðfest að þarna væri um að
ræða jarðneskar leifar Birgis jarls,
seinni konu hans, Metchild af Hol-
stein Danadrottningar, og sonar
Birgis, Eiríks Birgissonar hertoga.
En efasemdir vöknuðu um áreið-
anleika rannsóknanna 1922. Þó kem-
ur ný tækni, svo sem DNA-rannsókn,
ekki endilega að miklum notum, þar
sem ekki eru til nein samanburðar-
lífsýni úr Birgi jarli. Hins vegar er
hægt að kanna með DNA-sýnum úr
öðrum beinaleifum valdamikilla karla
og kvenna frá miðöldum ættartengsl
og þannig mögulegt að fá traustari
vísbendingar um hverjir hafa þarna
verið lagðir til hinstu hvílu.
Ahlström sagði í gær, að engin
ástæða væri lengur til að efast um
niðurstöður rannsóknarinnar 1922.
Birgir jarl
var í
gröfinni
Stokkhólmi. AFP.
♦ ♦ ♦