Morgunblaðið - 25.05.2002, Qupperneq 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÆTTAN á að styrjöld brjótist út á milli Pakist-
ana og Indverja virðist vera að minnka, en líklegt
er að Pakistanar muni sæta auknum, alþjóðlegum
þrýstingi á að hafa hemil á skæruliðum sem Ind-
verjar segja hafa staðið að tilræðum í Kasmírhér-
aði. „Núna virðist vera að rofa til, en það er gríð-
arlegur þrýstingur á Pakistana að stöðva
hryðjuverkamennina, jafnvel þótt alls ekki sé
lengur víst að Pakistanar séu færir um það,“ sagði
varnarmálaskýrandinn Mohammad Afzal Niazi í
viðtali við AFP í Islamabad í Pakistan.
„Pakistanar hafa nú þegar uppfyllt mörg þeirra
fyrirheita sem Pervez Musharraf forseti gaf í
ræðu sinni 12. janúar, en ein af afleiðingum þess
var að Pakistanar gátu síður haft stjórn á her-
skáum samtökum,“ sagði Niazi ennfremur. Í ræð-
unni, sem Musharraf hélt skömmu eftir að Ind-
verjar kenndu Pakistönum um blóðugt tilræði er
framið var á indverska þinginu í desember, til-
kynnti hann að hafnar yrðu harðar aðgerðir gegn
öfgasamtökum er störfuðu innan landamæra Pak-
istans og hét því að stöðva hryðjuverkastarfsemi.
Hann bannaði fimm samtök, þ.á m. tvö sem Ind-
verjar sögðu hafa staðið að baki tilræðinu á
þinginu.
Spenna og átök milli ríkjanna hafa nú aftur
magnast í Kasmír, þar sem deilur standa um
landamæri, í kjölfar þess að 35 féllu í tilræði sem
framið var í indverska hluta héraðsins, og Indverj-
ar kenndu aftur um hryðjuverkamönnum sem þeir
sögðu hafa aðsetur í Pakistan. Fréttaskýrendur
segja að um leið og helstu stórveldi heimsins hafi
leitað leiða til að draga úr spennunni hafi komið
skýr skilaboð frá helstu ráðamönnum til Pakist-
ana um að þeir verði að leggja sig harðar fram við
að koma í veg fyrir að fleiri hryðjuverk verði fram-
in í Kasmír.
Annan hvetur til friðar
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna (SÞ), hringdi í Musharraf síðdegis á
fimmtudag og hvatti hann til að berjast af hörku
gegn hryðjuverkastarfsemi, sem Annan sagði að
væri helsta ástæða spennunnar í samskiptum
Pakistana við Indverja. „Framkvæmdastjórinn
telur nauðsynlegt að farið verði að hugsa og tala á
friðsamlegum nótum, í stað þess að hugsað og tala
sé í ófriðartóni,“ sagði talsmaður Annans, Fred
Eckhard. „Um leið viljum við ítreka skilyrðislausa
fordæmingu hans á hryðjuverkum. Slíkar aðgerð-
ir verða aldrei látnar viðgangast, síst af öllu í
Kasmír.“
Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur ennfrem-
ur sagt, að til þess að draga úr spennunni sé mik-
ilvægt að endi sé bundinn á atlögur í Kasmír, en
héraðinu er nú skipt milli Indlands og Pakistans,
en bæði ríkin gera tilkall til héraðsins alls. Pakist-
anskir leiðtogar hafa sagt að þeir veiti Kasmír-
búum, sem berjist fyrir sjálfstæði undan indversk-
um yfirráðum, „siðferðilegan og diplómatískan
stuðning“, en hafa ætíð neitað því að þeir leggi sitt
að mörkum til að gera hryðjuverkamönnum kleift
að gera atlögur inni í indverska hluta héraðsins.
En nú í vikunni virtist sem Pakistanar gæfu fyr-
irheit um að leggja harðar að sér við að koma í veg
fyrir slíkar atlögur. Pakistanska þjóðaröryggis-
ráðið sagði á miðvikudaginn: „Engin samtök í
Pakistan munu fá að komast upp með hryðjuverk í
nafni Kasmír.“ Yfirlýsingin miðaði að því að friða
Indverja, þótt margir pakistanskir fréttaskýrend-
ur telji að eina markmið Indverja með því að blása
í herlúðrana sé að grafa undan stöðu Pakistans
sem eins fremsta ríkis heims í baráttunni gegn
hryðjuverkastarfsemi.
Stöðugleiki enn ótryggur
„Það eina sem fyrir Indverjum vakir er að
sverta mannorð Pakistans og spilla því sem Pak-
istan hafði upp úr því að veita Bandaríkjamönnum
skilyrðis- og óttalaust stuðning í baráttu þeirra
gegn hryðjuverkastarfsemi í heiminum,“ sagði
háttsettur pakistanskur embættismaður, og náinn
ráðgjafi Musharrafs, í samtali við AFP. Sagði
hann að eina leiðin til þess að raunverulega drægi
úr spennunni væri að Indverjar færu með herlið
sitt á brott frá landamærunum.
Niazi, varnarmálaskýrandinn, sagði að þótt
hann teldi að í augnablikinu hefði dregið úr spenn-
unni væri engin trygging fyrir því að nokkur stöð-
ugleiki kæmist á í heimshlutanum, jafnvel þótt
Pakistanar yrðu við kröfum Indverja, og benti á
að þetta væri í annað sinn á hálfu ári sem hætta
skapaðist á styrjöld.
Útlit fyrir að nokkuð hafi dregið úr spennunni í hinu umdeilda Kasmírhéraði
Pakistanar sæta auknum
alþjóðlegum þrýstingi
Islamabad. AFP.
LÖGREGLA í Washington sagði í
gær að flest benti til að starfsstúlk-
an Chandra Levy hefði verið myrt,
en lík hennar fannst á miðvikudag.
Hyggst lögreglan yfirheyra á nýjan
leik ýmsa þá, sem hugsanlega eru
taldir geta varpað ljósi á málið, en
þeirra á meðal er þingmaðurinn
Gary Condit, sem Levy hafði átt
vingott við, og maður sem nýverið
var dæmdur fyrir tvær líkamsárás-
ir, sem átt höfðu sér stað í Rock
Creek Park þar sem lík Levy
fannst.
Hvarf Levy fyrir rúmu ári vakti á
sínum tíma mikla athygli en á dag-
inn kom að hún hafði átt vingott við
Condit um nokkurt skeið. Þingmað-
urinn reyndist hins vegar tregur til
að viðurkenna samband þeirra. Lög-
regla hefur sagt að Condit sé ekki
grunaður um neitt misjafnt í
tengslum við mál Levy en Charles
Ramsey, lögreglustjóri í Wash-
ington, sagði þó líklegt að menn
vildu ræða við hann á nýjan leik, nú
þegar lík Levy er fundið.
Þá sagði lögreglan að hún myndi
yfirheyra að nýju mann sem nú af-
plánar tíu ára fangelsisdóm en hann
réðst á tvo skokkara í maí og júlí í
fyrra nærri þeim stað þar sem lík
Levy fannst.
Ramsey sagði að lögreglan hefði
yfirheyrt manninn, Ingmar Guand-
eque, í fyrra eftir að henni hafði ver-
ið gert viðvart um handtöku hans.
„Hann veitti engar upplýsingar sem
gætu tengt hann þessu máli en þá
ber að hafa í huga að við höfðum
ekki vitneskju [á þeim tíma] um að
lík Levy væri í Rock Creek Park,“
sagði Ramsey.
Leit að sönnunargögnum var
haldið áfram í gær á þeim stað, þar
sem lík Levy fannst. Ramsey vildi
ekki greina frá því hvort ummerki
bentu til að átök hefðu átt sér stað
en Terrance W. Gainer, aðstoðarlög-
reglustjóri, viðurkenndi að höfuð-
kúpa Levy hefði verið brotin. Ekki
væri hins vegar hægt að segja til um
það á þessu stigi hvort þeir áverkar
komu fyrir eða eftir að Levy dó.
Flest bendir til að
Levy hafi verið myrt
Reuters
Lögreglumaður á þeim stað þar sem lík Chöndru Levy fannst.
Washington. AP, AFP.
FARÞEGAÞOTA teiknar rák á
kvöldhimininn yfir Portsmouth í
New Hampshire í Bandaríkjunum.
Flugvélarslóði sem þessi er úr
vatnsdropum eða ísögnum og
myndast af útblæstri hreyflanna í
köldu lofti.
Tunglflug
AP
JÓHANNES Páll páfi sagði í gær að
hann hefði aldrei lagt trúnað á stað-
hæfingar þess efnis að búlgarska
leyniþjónustan hefði hugsanlega
staðið á bak við tilræðið við páfa árið
1981. „Ég trúði aldrei þessum
meintu tengslum við Búlgaríu vegna
þess að ég ber of mikla virðingu fyrir
búlgörsku þjóðinni,“ sagði Jóhannes
Páll við Georgi Parvanov, forseta
Búlgaríu, að því er talsmaður Páfa-
garðs greindi frá.
Páfi er í fjögurra daga opinberri
heimsókn til Búlgaríu og er ferðin
liður í viðleitni hans til að bæta sam-
skipti kaþólsku kirkjunnar og rétt-
trúnaðarkirkjunnar, sem er stærsta
kirkjan í mörgum ríkjum er áður til-
heyrðu austurblokkinni. Vonast
fulltrúar Páfagarðs til að heimsóknin
til Búlgaríu geti stuðlað að því, að
páfa verði kleift að heimsækja Rúss-
land fyrr en síðar. Rétttrúnaðar-
kirkjan þar í landi hefur í gegnum
tíðina haft illan bifur á kaþólsku
kirkjunni og sakað hana um að vilja
seilast til áhrifa þar í landi, þ.e. fá
fólk til að snúast til kaþólskrar trúar.
Jóhannes Páll páfi hefur ekki áður
tjáð sig opinberlega um grunsemdir
um að Tyrkinn Mehmet Ali Agca,
sem reyndi að skjóta páfa til bana í
Róm 13. maí 1981, hefði verið á veg-
um búlgörsku leyniþjónustunnar.
Dómstóll á Ítalíu sýknaði á sínum
tíma þrjá búlgarska menn af
ákærum um að hafa verið meðsekir í
tilræðinu, en ekki þóttu nægar sann-
anir liggja fyrir um sekt þeirra.
Reuters
Jóhannes Páll páfi virðir fyrir
sér mannfjöldann, sem fagnaði
honum í Sofiu í gær.
Trúði aldr-
ei kenning-
um um að-
ild Búlgara
Sofiu. AP.