Morgunblaðið - 25.05.2002, Side 33
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 33
kemur í ljós að 48,3% 26–55 ára telja
að lambakjötið sé of dýrt, 37,7% í
hópnum 55 ára og eldri og 33,5% í
hópi 18–26 ára.
Lærið er eftirlætishluti 39,8% og
hryggurinn 23,7% aðspurðra. 18,7%
velja lambafilé og 9,6% lambalundir.
Lærið er einnig ósvikinn sunnu-
dags- eða helgarmatur í augum 69,2%
aðspurðra og 10% velja nautasteik og
kjúkling. Í aldurshópnum 55 ára og
eldri telja 79,7% lambalæri ósvikinn
sunnudags- eða helgarmat og 72,2% í
hópnum 26–55 ára. Í hópi 18–26 ára
eru 52,6% þeirrar skoðunar að lamba-
læri sé ósvikinn sunnudags- eða helg-
armatur.
Spurt var hvort þátttakendur
keyptu pakkað kjöt úr kæliborði eða
beint úr kjötborði og svaraði 71,3%
jafnt við þeirri spurningu, 15,5%
kváðust kaupa úr kjötborði og 13,2%
úr kæliborði.
Aldursgreining á svörunum leiðir í
ljós áþekka hegðun milli hópa hvað
þetta varðar.
Þá voru þátttakendur inntir eftir
því hvort þeir ákveddu fyrirfram
hvaða kjöttegund þeir hygðust kaupa
og sögðu 46,7% að það væri fyrirfram
ákveðið, 38,9% að það ylti á framsetn-
ingu kjötborðs og 14,4% sögðust velja
vegna verðtilboða. Nokkuð jöfn dreif-
ing var einnig milli aldurshópa hvað
þessu viðvíkur.
Spurt var hvort viðkomandi hefði
breytt kjötneyslu sinni á undanförn-
um mánuðum og sögðust 53,2% ekki
hafa breytt neyslunni og 25% kváðust
borða minna kjöt. Flestir í hópi 55 ára
og eldri kváðust ekki hafa breytt
neyslunni eða 60,4%.
Tæp 48% velja
eftir verðtilboðum
Verðtilboð hafa áhrif á kauphegðun
47,9% sem svöruðu þeirri spurningu
játandi, 38,7% svöruðu stundum og
13,3% sögðu nei.
Nokkur munur er á yngsta aldurs-
hópnum og þeim elsta hvað þetta
varðar en 36,5% 18–26 ára sögðu að
verðtilboð á kjöti hefðu áhrif á kaup-
hegðun en 52,2% í hópi 55 ára og eldri.
Rúmt 41% fer ekki alltaf í sömu
verslunina til matarinnkaupa, 30,4%
fara alltaf í sömu verslunina og 28,5%
fara í nokkrar verslanir til skiptis.
Samkvæmt könnuninni hafa 83%
þátttakenda eldað alíslenska lamba-
kjötsrétti/kjötsúpu eða saltkjöt og
baunir, 93,3% þeirra eru í aldurs-
hópnum 55 ára og eldri, 83,5% í hópn-
um 26–55 ára og 68,5% í hópi 18–26
ára.
Lambakjöt er mjög gott sem grill-
kjöt að mati 47,8% og gott í þeim til-
gangi hjá 32,3%. 51% aðspurðra óskar
eftir nýjungum í framsetningu eða
framboði á lambakjöti og 68% velja
lambakjöt á matseðlum veitingahúsa
standi það til boða. 32% svara síðustu
spurningunni neitandi og eru 39% í
hópi 18–26 ára, 31,3% í hópi 26–55 ára
og 26,5% í hópnum 55 ára og eldri.
Einnig var spurt um þekkingu
þátttakenda á matreiðslu lambakjöts
og kváðust 53,9% kunna alla algenga
rétti og 27,7% kunna nokkra algenga
rétti. Talsverður munur var á aldurs-
hópum í matreiðslukunnáttunni því
63,7% 55 ára og eldri kváðust kunna
alla algenga rétti og 58,3% 26–55 ára
en 30,3% 18–26 ára töldu sig búa yfir
slíkri færni. Síðast var spurt hvort
þátttakendur óskuðu eftir nýjum
uppskriftum eða almennum leiðbein-
ingum um matreiðslu á lambakjöti og
svaraði 53,1% spurningunni játandi
og 20,1% svaraði neitandi. Nokkuð
jöfn skipting var í svörum eftir aldri,
en 48,6% 18-26 ára sögðu já, 55,3% í
hópi 26-55 ára og 53,4% í hópnum 55
ára og eldri.
Söluaukning undanfarið eftir
mikinn samdrátt
Söluaukning varð á lambakjöti í
mars og apríl eftir mikinn samdrátt
undanfarna mánuði, nánar tiltekið um
29% í mars og 22% í apríl, og segir Öz-
ur Lárusson, framkvæmdastjóri
Landssamtaka sauðfjárbænda, að
samdráttur í sölu í fyrir jól og eftir
áramót, hafi verið sá mesti sem menn
hafi séð í greininni. Sala á lambakjöti
dróst saman um 43% í desember,
17,4% í janúar og 24,2% í febrúar, að
hans sögn. „Hvarf Goða af markaðin-
um fór illa með allt sölustarf, enda var
markaðshlutdeild þeirra um 50%.
Hvað aukningu síðustu mánaða varð-
ar hefur margt hjálpast að. Við höfum
eflt markaðsstarf en síðan hafa ýmis
ytri skilyrði, svo sem sýkingar í öðr-
um búgreinum og skortur á kjúklingi,
lagt sitt af mörkum.
Engin könnun hefur verið gerð um
lamba- og kindakjöt um nokkurt
skeið og segir Özur að upplýsingar
sem fyrir hendi voru hafi verið löngu
úreltar. „Könnunin gefur góða mynd
af veikleikum okkar og styrkleika og
útkoman er jákvæð í heild. Við áttum
ekki von á að lambið fengi svo mikinn
meðbyr frá neytendum,“ segir hann.
Á næstu vikum verður efnt til
funda með smásölum og fulltrúum af-
urðastöðva og farið yfir niðurstöður
könnunarinnar og segir Özur að sjón-
um verði beint sérstaklega að aldurs-
hópnum18–26 ára í markaðsstarfi. Á
döfinni er til að mynda að setja fljót-
lega og einfalda lamba- og kindakjöts-
rétti á markað fyrir þann aldurshóp,
að hans sögn.
Lambakjot.is á næsta leiti
Þá er verður opnaður alfræðivefur
um kindakjöt (www.lambakjot.is) eft-
ir um það bil tvær vikur þar sem verð-
ur að finna uppskriftir og upplýsingar
um lamba- og kindakjöt og annað sem
því tengist. Nanna Rögnvaldardóttir
tekur saman uppskriftir. Özur segir
loks að á vefnum verði allt sem við-
kemur kindakjöti og að upplýsingum
verði hagað eftir árstíma. Í sláturtíð
verði til að mynda hægt að fá allar
upplýsingar um sláturgerð.
Rúm 62%
telja lamba-
kjötið best til
matreiðslu
!
"
"
!"
"#"
""
"
!#"
! "
!"
Markaðsráð lambakjöts hefur látið gera
könnun um viðhorf fólks til lambakjöts.
Helga Kristín Einarsdóttir tók saman nið-
urstöður og ræddi við framkvæmdastjóra
Landssamtaka sauðfjárbænda.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LISTIR
ÞAÐ er hrá og ógnandi mynd sem
mexíkóski leikstjórinn Alejandro
González Inárritu dregur upp af
Mexíkóborg í þessari frumraun
sinni á sviði kvikmyndagerðar. Af-
urðin heitir Amores Perros (Ástin er
skepna) og vakti mikla athygli í hin-
um alþjóðlega kvikmyndaheimi, m.a.
á Cannes-hátíðinni, enda þykja leik-
stjóri og handritshöfundur hafa sýnt
mikinn þroska í sinni frumraun.
Amores Perros er vandlega unnin
og húmanískt innblásin saga af til-
vist og tilfinningum nokkurra mann-
eskja af ólíkum stéttum. Sögusviðið
er milljónaborgin Mexíkóborg, þar
sem fjölmenni, misrétti og ofbeldi
móta líf einstaklinganna, ekki síst
þeirra fátækari. Við kynnumst
þremur persónuhópum, og er sagan
þrískipt í frásögn sinni af þeim, en
lýstur saman á einum efnislegum
stað, í harkalegu bílslysi. Það eru
Octavio og mágkona hans Susana,
sem búa á fátæku heimili. Ocatvio
dreymir um betri tilveru, er ástfang-
inn af Susönu og ákveður loks að
taka málin í sínar hendur. Hann fer
með Rottweilertík heimilisins inn í
blóðuga velli hundabardaga og fer
að græða á tá og fingri á vígahæfi-
leikum hundsins. Við kynnumst
einnig ofurfyrirsætunni Valeriu (og
kjölturakka hennar), en fyrirsætan
á í ástarsambandi við giftan mann,
og þarf að takast á við umhverfða
tilveru í kjölfar bílslyss. Þriðja og
síðasta aðalsögupersónan er úti-
gangsmaðurinn Chivo, fyrrum liðs-
maður pólitískra hryðjuverkasam-
taka sem býr nú á götunni, þar sem
hann hefur tekið að sér hóp úti-
gangshunda, og vinnur fyrir sér sem
leigumorðingi. Það eru áhugaverðar
sögur sem hér eru sagðar, og tákn-
rænn samanburðurinn við tilvist
hunda er eitt magnaðasta stílbragð
myndarinnar.
Í frásögninni er notast við þá teg-
und af brotakenndri frásögn sem
Quentin Tarantino gerði fræga með
kvikmyndinni Pulp Fiction, en ólíkt
mörgum kvikmyndum sem sverja
sig í þá hefð, fer þessi lengra og
dýpra, og heldur áfram langt fram
yfir hæfilega „smellna“ tímalengd.
Leikstjórinn ungi sem hér um
ræðir hafði um margra ára skeið alið
manninn í auglýsingagerð og segist
sjálfur hafa hlotið þar þá reynslu
sem hann byggir nú á. Áhrifa þessa
bakgrunns leikstjórans gætir greini-
lega í kvikmyndinni, en líkt og í aug-
lýsingum og tónlistarmyndböndum
er hráleikinn stíl- og gljáfægður að
allt að því ósýnilegu marki, svona
rétt til þess að gleðja auga áhorfand-
ans og slípa efniviðinn sem unnið er
með. Önnur áhrifameðul eru jafn-
framt notuð óspart, tónlistarhljóð-
rásin er notuð til að búa til mikið
dúndur og nokkrir leikarar hafa
augnaráðsfestandi fyrirsætuútlit.
Það var kannski fyrst og fremst í
kynningarmyndbandi Amores Perr-
os sem þetta auglýsingavæna eðli
hennar kom best í ljós og held ég að
margir áhugamenn djúphugullar og
óamerískrar kvikmyndagerðar hafi
jafnvel fælst frá myndinni við að sjá
þá kynningu.
Á heildina litið er Amores Perros
mynd sem kraumar í senn af hæfi-
leikum og krafti, en er örlítið óörugg
í frásagnaraðferð sinni. Myndin
kynnir til sögunnar leikstjóra sem
er greinileg afurð fjölmiðlaumhverf-
is samtímans og nýtir sér þá reynslu
til að kafa dýpra og snerta við áhorf-
andanum.
Hundar
og menn
KVIKMYNDIR
Sambíóin Snorrabraut
Leikstjóri: Alejandro González Inárritu.
Handrit: Guillermo Arriaga Jordan. Kvik-
myndataka: Rodrigo Prieto. Aðalhlut-
verk: Emilio Echevarría, Gael García
Bernal, Goya Toledo, Álvaro Guerrero,
Vanessa Bauche, o.fl. Sýningartími: 153
mín. Mexíkó, 2000.
AMORES PERROS (ÁSTIN ER SKEPNA)
Heiða Jóhannsdóttir
Listasafn Íslands Leiðsögn í fylgd
Rakelar Pétursdóttur um rússnesku
sýninguna Hin nýja sýn kl. 14–14.40.
Sögustund og leiðsögn fyrir börn í
fylgd Kjuregej Alexöndru Argunova
fjöllistakonu kl. 15–15.30.
Handverk og hönnun, Aðalstræti
12 Sýning á íslenskum þjóðbún-
ingum verður opnuð kl. 12.
Sýndir verða búningar í eigu Heim-
ilisiðnaðarfélags Íslands og fé-
lagsmanna þess, Þjóðdansafélags
Reykjavíkur og Búningaleigu Kol-
finnu Sigurvinsdóttur. Einnig er til
sýnis og sölu handverk með þjóðbún-
ingana að yrkisefni.
Sýningin stendur til 2. júní.
Heimilisiðnaðarskólinn að Lauf-
ásvegi 2 hefur opið hús laugardagana
25.maí og 2. júní frá kl.13-17. Sýnd
verða nemendaverk frá liðnu skóla-
ári, einnig er sýnikennsla í þjóðbún-
ingagerð, vefnaði, spjaldvefnaði, þæf-
ingu, útsaumi, knipli og tóvinnu.
Tónlistarskóli Garðabæjar Vor-
tónleikar söngnema Snæbjargar
Snæbjarnardóttur verða kl. 17. Flutt
verða íslensk og erlend lög og aríur
úr óperum.
Breiðholtsskóli Skólahljómsveit
Árbæjar og Breiðholts heldur vor-
tónleika kl. 14. Stjórnandi er Lilja
Valdimarsdóttir.
Árbæjarkirkja Vortónleikar Tónlist-
arskóla Árbæjar verða kl. 11 og 13.
Fram koma nemendur skólans og
samspilshópar.
Tónlistarskóli FÍH, Rauðagerði 27
Vortónleikar verða kl. 14. Fram
koma nemendur á öllum stigum,
einnig samspilsbönd og Stórsveit
skólans.
Neskirkja Vortónleikar Suzuki-
tónlistarskólans í Reykjavík verða kl.
13 og 14.30. Á efnisskránni eru ein-
leiks- og samleiksatriði þar sem nem-
endur skólans leika á fiðlu, víólu,
selló og píanó auk þess koma söng-
nemendur fram.
Seljakirkja Barnakórar Seljakirkju
halda tónleika í dag. Kórarnir eru
þrír og syngur Krúttkórinn kl. 14,
Litli kórinn kl. 15.30 og Stóri kórinn
kl. 17. Stjórnandi kóranna er Gróa
Hreinsdóttir. Foreldrar elstu
barnanna verða með kaffisölu til fjár-
öflunar ferðasjóðs Stóra kórs í safn-
aðarsal kirkjunnar.
Hús málarans Gotti Bernhöft opnar
myndlistarsýninguna Kall. Verkin
eru unnin með þurr-pastel og er
mannslíkamanum beitt til að undir-
strika ýkjur samtímamannsins.
Hönnuðurinn og myndlistamaðurinn
Gotti Bernhöft hóf feril sinn sem
veggjakrotari og myndasöguteikn-
ari. Hann hefur m.a. hannað fyrir
hljómsveitina Sigur Rós. Kall er
þriðja einkasýning Gotta og stendur
til 15. júní.
Safnahús Borgarfjarðar Nem-
endur í 7., 8. og 9. bekk Grunnskólans
í Borgarnesi lesa úr verkum Halldórs
Laxness kl. 14. Lesnir verða valdir
kaflar úr skáldsögunum Sölku Völku,
Heimsljósi og Atómstöðinni og ýmis
gullkorn úr verkum skáldsins. Þá
verða flutt ljóð eftir Halldór og tón-
list sem samin hefur verið við þau.
Dagskráin ber yfirskriftina: Börn í
verkum Halldórs Laxness. Hún er
samstarfsverkefni Safnahúss Borg-
arfjarðar og Grunnskólans í Borg-
arnesi í tilefni af 100 ára fæðing-
arafmæli skáldsins.
Lesarar voru öll fulltrúar skólans á
lokahátíðum stóru upplestrarkeppn-
innar undanfarin ár.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is