Morgunblaðið - 25.05.2002, Page 35
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 35
SLAGHLJÓÐFÆRI er nýjasta
viðbótin í safni klassískra hljóðfæra
og mun Franz Liszt vera meðal
hinna fyrstu til að nota fleiri slag-
hljóðfæri en pákuna í sínum hljóm-
sveitarverkum en Edgar Varése í
Ionisation (1932) fyrstur til að semja
eingöngu fyrir slaghljóðfæri. Í
djasstónlist gegndi tromman ein-
leikshlutverki og fyrir áhrif afrískr-
ar trommutónlistar og austurlensks
málmgjallaleiks varð til það sem nú
kallast hefðbundin slaghljómsveit.
Sílófónninn er eldri í tónlistarsögu
Evrópu en flest venjuleg slaghljóð-
færi og nú eru til margar gerðir síló-
fóna sem tengjast, allt frá klukku-
spilum til stórra konserthljóðfæra,
og er víbrafónninn þannig tilkominn
(Lionel Hampton, Alban Berg í Lulu
1934). Marimban er gamalt hljóð-
færi í Afríku en frekar stutt síðan
það hljóðfæri komst almennt í notk-
un hjá klassískum höfundum (Percy
Grainger 1929, Milhaud, konsert
fyrir víbrafón og marimbu 1947).
Áskell Másson og Guðmundur
Hafsteinsson eru frumkvöðlar hér á
Íslandi í gerð tónverka fyrir slag-
hljóðfæri og Áskell hefur öðlast al-
þjóðlega viðurkenningu, sem höf-
undur margvíslegra verka fyrir
slaghljóðfæri.
Félagarnir Tomer Yariv og Adi
Morag frumfluttu nýsamið verk eftir
Áskel, sem hann nefnir Tromma,
sérlega fallegt verk er var frábær-
lega vel flutt. Þeir félagar eru sann-
kallaðir galdramenn hvað snertir
stundvísi í tóntaki og samleik, hvort
sem leikið var á trommurnar eða
tré- og málmplötuhljóðfæri, eins og
t.d. í umritun á Alborada del grac-
ioso eftir Ravel, í Paradigma eftir
Vladimir Torchinsky og Tökkötu,
hefðbundnum tvíleik fyrir marimbu
og víbrafón eftir Anders Koppel, og
Marimba spiritual eftir Minoru
Miki.
Önnur verk eftir Evner Dorman,
Andy Pape og Adi Morag eru sam-
kvæmt því sem kalla mætti „hefð-
bundnar slagverkstónsmíðar“,
samdar af kunnáttu og voru frábær-
lega vel fluttar. Eins og fyrr segir
eru félagarnir einstæðir slagverks-
snillingar og voru tónleikar þeirra í
Listasafni Reykjavíkur ótrúleg upp-
lifun.
Slagverkssnillingar
TÓNLIST
Listasafn Reykjavíkur
Tomer Yariv og Adi Morag fluttu tónverk
samin fyrir ýmsar gerðir slagverks.
Mánudagurinn 20. maí, 2002.
SLAGVERKSLEIKUR
Jón Ásgeirsson
Listahátíð í Reykjavík
Dagskráin í dag
Laugardagur 25. maí
Kl. 14 og 17 Íslenska óperan
Sápukúlusýningin Ambrossia. Spænski
arkitektinn og listamaðurinn Pep Bou frá
Barcelona gerir ótrúlegar kúnstir með lit-
skrúðugum sápukúlum. Sýning fyrir alla
fjölskylduna.
Kl. 15 og 17 Gerðuberg
Týndar mömmur og talandi beinagrindur.
Barnasýning frá Pero leikhúsinu í Stokk-
hólmi. Sýningin er fyrir börn á aldrinum
þriggja til fimm ára. Höfundur og aðal-
leikari: Bára Magnúsdóttir. Sellóleikari
Katrin Forsmo. Leikstjóri: Peter Engkvist.
Kl. 16.00 Nýlistasafnið
Myndlistarmaðurinn Aernout Mik. Sýning
hins þekkta hollenska myndlistarmanns
sem gengur þvert á allar viðteknar hefðir
í list sinni.
Kl. 21.00 Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús
Hafnarhússkvöld. Sveifla með Jörgensen.
Danski fiðluleikarinn Kristian Jørgensen
(Tango Orkestret), gítarleikarinn Björn
Thoroddsen og kontrabassaleikarinn Jón
Rafnsson leika á kosningakvöldi. Hægt
verður að fylgjast með úrslitum kosning-
anna á stórum sjónvarpsskermi í safn-
inu.
Í STÖÐLAKOTI, Bókhlöðustíg 6,
opnar Hulda Jósefsdóttir sýningu í
dag, laugardag, kl. 15. Hún sýnir
handprjónuð textílverk en Hulda
hefur unnið að textílhönnun frá
árinu 1952 með aðaláherslu á prjón.
Hún hefur tekið þátt í fjölda listsýn-
inga bæði hér heima og í útlöndum.
Hún hefur einnig skrifað greinar um
hönnun í blöð og tímarit og haldið
fyrirlestra.
Hulda er framkvæmdastjóri list-
húss Stöðlakots frá árinu 1983.
Sýningin er opin daglega frá kl.
15–18 og lýkur sunnudaginn 9. júní.
Morgunblaðið/Ásdís
Textíllistakonan Hulda Jósefs-
dóttir í Stöðlakoti.
Textíll í
handprjóni
DANSKI djassfiðluleikarinn Krist-
ian Jörgensen er nýjasta stjarna
Dana í fiðluleik. Hann er hingað
kominn á Lista-
hátíð og leikur
með Birni Thor-
oddsen gítarleik-
ara og Jóni
Rafnssyni
kontrabassaleik-
ara í Listasafni
Reykjavíkur,
Hafnarhúsinu, í
kvöld kl. 21.
Kristian leiðir
hina þekktu hljómsveit Tango Ork-
estret auk þess að reka sína eigin
hljómsveit.
Þótt aldur Kristians sé ekki hár í
árum talið er tónlistarferillinn hins
vegar nokkuð langur. Hann byrjaði
að leika á fiðlu níu ára gamall og lék á
sína fyrstu djassplötu fimmtán ára
gamall með ekki ómerkari mönnum
en Ed Thigpen og Jesper Lundgaard
og hefur ferillinn síðan legið uppávið.
Björn og Jón eru Íslendingum að
góðu kunnir. En Björn hefur verið í
framlínu íslenska djassins um ára-
tuga skeið eða allt frá því að hann var
gítaristi í kvartett Guðmundar Ing-
ólfssonar.
Jón hefur víða komið við á sínum
ferli og síðustu árin hefur hann verið
einn af eftirsóttustu bassaleikurum
Íslandsdjassins og eru þeir félagar
meðlimir í Guitar Islancio.
Danskur djass-
fiðluleikari á
tónleikum í
Hafnarhúsinu
Kristian
Jörgensen
SUZUKITÓNLISTARSKÓLINN
Allegro efnir í dag kl. 14 til tón-
leika í Langholtskirkju. Tónleik-
arnir eru til styrktar tónlistar-
sumarbúðum barna í Skálholti í
sumar. Á tónleikunum leika nú-
verandi og fyrrverandi nemendur
skólans, en sumir þeirra eru
komnir í Tónlistarskólann í
Reykjavík og Listaháskólann.
Þetta eru á milli tuttugu og þrjá-
tíu krakkar á aldrinum fimm til
sautján ára.
Lilja Hjaltadóttir, fiðlukennari í
Allegro Suzukitónlistarskólanum,
segir að námskeið fyrir hljóðfæra-
nemendur verði haldið í Skálholti
9. til 25. ágúst í sumar. Hún hefur
staðið fyrir slíkum námskeiðum í
tíu ár, en nú stendur til að færa út
kvíarnar.
„Námskeiðið hefur hingað til
verið fyrir yngri hóp suzuki-
nemenda, en í sumar bjóðum við
nemendum á fimmta stigi og upp-
úr að vera með og þá um leið
nemendum úr öðrum tónlist-
arskólum. Þetta er nýtt hjá mér;
mig langar að þróa þessa hug-
mynd aðeins áfram. Mig langar
sérstaklega að bjóða nemendum
úr öðrum tónlistarskólum að taka
þátt í námskeiðinu. Þetta tengist
svolítið nemendum sem hafa verið
hjá mér frá upphafi, en eru nú
komnir í Tónlistarskólann í
Reykjavík og jafnvel í Listahá-
skólann þeir sem lengst eru
komnir. Þessir krakkar vilja allir
vera með á námskeiðinu ennþá,
þótt þeir séu komnir annað í nám.
Upphaflega voru bara yngri nem-
endur á námskeiðunum, en svo
vaxa krakkarnir og ég hef verið
að taka eldri krakka með og í
fyrra komu krakkar á námskeiðið
sem voru komnir alveg upp á 7.-8.
stig.“
Á námskeiðinu í Skálholti er
spilað í þrjá til sjö tíma á dag í
hóptímum, einkakennslu og
kammermúsík. Það er líka boðið
upp á masterklassa.
„Ég hef fengið til liðs við mig
Auði Hafsteinsdóttur og Sig-
urbjörn Bernharðsson fiðluleikara
og Örnólf Kristjánsson og Helgu
Torfadóttu sellóleikara, en auk
þeirra kennir maðurinn minn,
Kristinn Örn Kristinsson, líka á
námskeiðinu. Námskeiðið er mjög
fjölbreytt og nám hvers nemanda
miðað við það á hvaða stigi hann
er. Krakkarnir sem hafa verið á
námskeiðunum bíða eftir þeim ár
hvert og hlakka til. Þetta er mjög
félagslegt og við gerum margt
fleira en að spila; förum í göngu-
ferðir, sund, hlustum mikið á tón-
list og gerum margt fleira. Fyrir
yngri krakkana er það mjög örv-
andi að hafa eldri og lengra
komna nemendur með og heldur
þeim við efnið. Krökkunum, sem
taka þátt í sumarnámskeiðunum,
gengur líka miklu betur að kom-
ast í gang á haustin þegar skólinn
byrjar aftur.“
Það eru fiðlu- og sellónemendur
sem geta verið með á námskeiðinu
í Skálholti, en Lilja tekur fram að
nemendur í tónlistarskólum á
landsbyggðinni geti að sjálfsögðu
sótt um að vera með.
Morgunblaðið/Kristinn
Hluti krakkanna sem leika á tónleikunum í Langholtskirkju í dag kl. 14
og kennari þeirra, Lilja Hjaltadóttir, lengst til hægri.
Spilað til styrkt-
ar sumarbúðum
Rose Bruford College
LEIKLISTARNÁM
Rose Bruford College, sem var stofnaður árið 1950, er einn helsti
leiklistarskóli Evrópu og býður upp á nám á öllum sviðum leiklistar og
skyldra listgreina. Hæfnispróf og viðtöl fara fram í Reykjavík 11.-12.
júní vegna eftirfarandi greina, en kennsla hefst í september 2002:
Einnig munum við veita viðtöl vegna meistara- og doktorsnáms,
sumarskóla og eins árs alþjóðlegs undirstöðunáms. Komið og ræðið
við okkur um starfsferil í leikhúsi. Nánari upplýsingar veitir:
Ms. Terri Minto, Admissions Officer, Rose Bruford College,
Lamorbey Park, Sidcup, Kent, DA15 9DF.
Sími: +44 (0) 20 8308 2611 Fax: +44 (0) 20 8308 0542,
netfang: admiss@bruford.ac.uk
Skoðið heimasíðu okkar: www.bruford.ac.uk
Tónlist leikara
Evrópsk leiklist
Hönnun lýsingar
Leiklist
Búningar
Leikmynd
Tónlistartækni
Sviðstjórnun
Leikstjórn
Bandarísk leikhúslist
Hljóð- og myndhönnun
Bresk háskólastofnun Skólastjóri: Prof. Alastair Pearce
JORIS Rademaker opnar sýninguna
„VooDoo...“ í Slunkaríki á Ísafirði í
dag, laugardag, kl. 16.
„Á síðustu fjórum árum hef ég
notað tré og tannstöngla mikið í verk
mín. Það er sýnilegt að ég hef mikinn
áhuga á dansi, hreyfingu og því sem
er óljóst. Það búa einhverjir töfrandi
möguleikar í tannstönglum.
Þeir hafa sterk sjónræn áhrif og
þeir eru bæði viðkvæmir og hvassir.
Þeir eru þrælar munnsins, samt
ómissandi.
Þeir hafa táknrænt gildi fyrir mig.
Það er eitthvert „voodoo“ í þeim,
eins og lífinu,“ segir listamaðurinn.
Sýningin í Slunkaríki er opin
fimmtudaga til sunnudaga kl. 16-18.
Til 16. júní.
Tannstönglar
í Slunkaríki
♦ ♦ ♦
GUÐ minn góður! Apocalypse
Now! Meira af Apocalypse Now.
Hver hefur ekki lent í samræðum um
kvikmyndir og þá kemur kvikmynd-
in Apocalypse Now upp. Enn og aft-
ur. Það er einsog hún sé uppáhalds-
mynd allra karlmanna. Og mér hefur
aldrei fundist hún sérstaklega
skemmtileg. Allt í lagi, ég viðurkenni
að vissulega er þetta mikið kvik-
myndaverk, ótrúlegt afrek og fyrsta
kvikmyndin sem sýndi Víetnam-
stríðið á raunsæjan hátt. Þetta er vel
leikin mynd, já, tökurnar ótrúlegar,
o.s.frv. En mér hefur aldrei fundist
áhugaverð sagan um Kurtz hers-
höfðingja sem brotnar niður, tekur
hrylling stríðsins einu skrefi lengra
og skapar samfélag þar sem grimmd
og dauði er upplifaður á hreinskilinn
hátt. Þessi hluti myndarinnar er
heldur ekki jafn vel skrifaður og sá
fyrri. Hershöfðinginn er kvikmynda-
ður á dulúðugan máta, en ég skil ekki
hvað í hugsun hans eða framkomu
gat laðað til sín þetta fólk. Og Dennis
Hopper er ekki trúverðugur sem
ljósmyndarinn sem hefur heillast af
honum. Nei, mér finnst þetta hvorki
áhugavert né sannfærandi.
En þessi útgáfa af Apocalypse
Now er önnur saga fyrir mig, og frá-
bær kvikmynd. Atriði, sem bætt hef-
ur verið við, gera myndina mun fyllri
og víðari. Myndin sýnir betur hryll-
inginn, hversu margra hann náði til,
hversu absúrd hann var og tilgangs-
laus. Fyrir mér er flétta fyrri útgáf-
unnar; ferðin eftir ánni til að ná til
hershöfðingjans, frekar orðin afsök-
un fyrir upplýsandi ferðalagi í gegn-
um þá sérstöku veröld sem Víetnam
stríðsins var, þar sem komið er við
hjá fjölbreyttum hópi íbúa hennar.
Eftir að sjá allt þetta næ ég betra
sambandi við hershöfðingjann, sem
er ekki lengur miðja myndarinnar,
afstyrmi, heldur einn af hinum og á
vissan hátt skiljanleg afleiðing þess
sem við erum þegar búin að sjá.
Ég vil ekki segja að þetta sé betri
útgáfa af myndinni, þótt hún hafi
virkað betur fyrir mig. Fyrir aðdá-
endur gömlu útgáfunnar gætu auka-
atriðin bara verið óþarfa lenging
sem bætir engu við fléttuna. Það fer
sem sagt eftir hverju fólk er að leita.
Það er þó ekki spurning að hún er
áhugaverð fyrir alla.
Fyrst ég sá þessa 200 mínútna út-
gáfu, þá langar mig eiginlega til að
sjá 330 mínútna útgáfuna sem Copp-
ola klippti fyrst saman, þegar mynd-
in kom út árið 1979. Þetta er stór-
kostleg heimild um gerð tíma-
mótamyndar sem allir tala alltaf um
aftur og aftur. Allt þetta efni! Og allt
þetta erfiði! Ég skal fúslega trúa því
að Coppola hafi verið á barmi tauga-
áfalls við upptökur myndarinnar.
Það lá við að ég færi sjálf á taugum
við að horfa á sum atriðin.
Góða skemmtun.
Önnur hryllingssaga
KVIKMYNDIR
Háskólabíó
Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Hand-
rit: John Milius, Michael Herr og Francis
Ford Coppola, byggt lauslega á smásögu
Josephs Conrads Heart of Darkness.
Kvikmyndataka: Vittorio Storaro. Aðal-
hlutverk: Martin Sheen, Robert Duvall,
Laurence Fishburne, Dennis Hopper,
Frederic Forrest, Sam Bottoms, Albert
Hall, Harrison Ford og Marlon Brando.
202 mín. USA. United Artists 2001.
APOCALYPSE NOW REDUX
Hildur Loftsdóttir