Morgunblaðið - 25.05.2002, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
SNÖGGUR samdráttur í fram-
kvæmdum í kjölfar fjárfestingar-
toppa vegna stækkunar ISAL auk
byggingar álvers á Reyðarfirði
gæti valdið tímabundinni stöðnun
hér á landi. Þetta er mat Þjóð-
hagsstofnunar og kemur fram í
viðauka með matsskýrslu vegna
fyrirhugaðrar stækkunar álvers
ISAL í Straumsvík um allt að 260
þúsund tonn sem birt var fyrr í
vikunni. Er þá gert ráð fyrir 390
þúsund tonna álveri Reyðaráls.
Í greinargerð Þjóðhagsstofnun-
ar er lagt mat á þjóðhagsleg áhrif
stækkunar ISAL. Þrjú dæmi eru
skoðuð. Í fyrsta lagi eru athuguð
þjóðhagsleg áhrif stækkunar
ISAL eingöngu. Í öðru lagi er gert
ráð fyrir stækkun álvers Norður-
áls á Grundartanga úr 90 þúsund
tonnum í 240 þúsund tonn auk
stækkunar ISAL. Að síðustu er
reiknað með 390 þúsund tonna ál-
veri Reyðaráls á Reyðarfirði auk
stækkunar ISAL.
Þjóðarframleiðsla eykst
Þjóðhagsstofnun segir að til
lengdar sé líklegt að stækkun
ISAL auk byggingu Reyðaráls
leiði til þess að þjóðarframleiðsla
aukist um 1½% og að landsfram-
leiðsla aukist um 2½%. Áhrifin af
stækkun ISAL auk stækkunar
Norðuráls á landsframleiðsluna
eru talin verða 1½% aukning auk
þess sem gert er ráð fyrir að þjóð-
arframleiðslan verði 1% meiri.
Langtímahrifin af stækkun ISAL
eingöngu á þjóðar- og landsfram-
leiðsluna metur Þjóðhagsstofnun
vera 1% aukningu.
Í greinargerð Þjóðhagsstofnun-
ar kemur fram að viðskiptajöfn-
uður á framkvæmdatíma verði
óhagstæðari en ella sem nemur
um 3% af landsframleiðslu verði
ráðist í stækkun ISAL auk bygg-
ingar Reyðaráls. Segir í greinar-
gerðinni að þegar framkvæmdir
standi sem hæst geti áhrifin numið
10–12% af landsframleiðslu.
Um stækkun ISAL auk stækk-
unar Norðuráls segir stofnunin að
viðskiptajöfnuður verði að líkind-
um um 3½% af landsframleiðslu
óhagstæðari en ella á fram-
kvæmdatíma. Af þessum sökum sé
líklegt að erlend staða þjóðarbús-
ins verði tæpum 20% lakari sem
hlufall af landsframleiðslu við lok
framkvæmda.
Um stækkun ISAL eingöngu
spáir Þjóðhagsstofnun að að lokn-
um framkvæmdum megi reikna
með að viðskiptajöfnuður verði
hagstæðari um skeið en ella.
Þá segir í greinargerð Þjóð-
hagsstofnunar að aukinn álútflutn-
ingur skapi forsendur til u
á viðskiptajöfnuði og hær
gengis en ella.
Aukið atvinnuleys
loknum framkvæm
Fram kemur í gre
Þjóðhagsstofnunar að atv
gæti orðið um 1% minna
kvæmdatíma án mótvægi
ef ráðist yrði í stækkun I
byggingu Reyðaráls. Atvi
ið myndi hins vegar au
1,6% á fyrstu árunum
framkvæmda en verða u
minna en ella þegar til len
er litið.
Áhrifin af stækkun IS
stækkunar Norðuráls á
ástandið myndi að mati Þ
stofnunar leiða til um 0,9
atvinnuleysis á framkvæ
en um 1,1% aukningar
leysis á fyrstu árunum
framkvæmdum lýkur.
Stækkun ISAL ein og s
in leiða til um 0,3% minna
leysis á framkvæmdatíma
Þegar mest lætur tel
hagsstofnun að verðbólga
Mat Þjóðhagsstofnunar á þjóðhagslegu
Tímabundi
un talin hug
AÐ sögn Friðriks Sophus-sonar, forstjóra Lands-virkjunar, er ljóst aðNorðlingaölduveita er
hagkvæmasti virkjunarkosturinn á
Þjórsársvæðinu. „Það er ekki hægt
að sleppa Norðlingaölduveitu ef
Landsvirkjun er ætlað að vera eitt
af þeim fyrirtækjum sem munu út-
vega orku til stækkunar álvera
Norðuráls eða ISAL á næstu ár-
um,“ segir Friðrik.
Fram hefur komið að Lands-
virkjun getur ekki annað orkuþörf
bæði Norðuráls og ISAL vegna
fyrirhugaðrar stækkunar álvera
fyrirtækjanna á Grundartanga og í
Straumsvík. Orkan getur einnig
komið frá Orkuveitu Reykjavíkur
og Hitaveitu Suðurnesja.
Engar eiginlegar samninga-
viðræður við ISAL
Landsvirkjun hefur hafið undir-
búningsframkvæmdir við virkjun
við Búðarháls og áformaðar eru
framkvæmdir við Norðlingaöldu-
veitu þegar leyfi hefur fengist og
samningar náðst. Þessar virkjanir
gætu komist í gagnið árið 2005 en
virkjanir við Núp og Urriðafoss
yrðu seinna á ferðinni, eða í árs-
byrjun 2007. Orka frá öllum þess-
um stöðum annar orkuþörf annað-
hvort fullstækkaðs álvers ISAL í
Straumsvík eða fullstækkaðs ál-
vers Norðuráls á Grundartanga.
Engar eiginlegar samningavið-
ræður standa yfir við ISAL, að
sögn Friðriks, en Norðurál og
Landsvirkjun hafa verið í samn-
ingaviðræðum vegna fyrirhugaðr-
ar stækkunar á Grundartanga í um
tvö ár. Friðrik er spurður að því
hvort líklegra sé að Norðurál fái
orku frá Landsvirkjun en að ISAL
fái hana?
„Þetta fer eftir því hvernig
samningaviðræður þróast. Ef það
kemur í ljós að það næst samkomu-
lag um verð og afhendingartíma á
næstunni við Norðurál, þá gerum
við auðvitað samninga við þá. Það
þrengir augljóslega kosti okkar til
að afhenda öðrum,“ segir Friðrik.
Aðspurður segir Friðrik Norð-
lingaölduveitu nauðsynlega fram-
kvæmd vegna stækkunar Norður-
áls. „Auk þess sem Norðlinga-
ölduveita er langsamlega hag-
kvæmust, tekur hún stystan tíma í
framkvæmd. Þar er einungis um
að ræða stíflu og göng en ekki þarf
að byggja virkjun. Það liggur fyrir
að þessi 150 þúsund tonna viðbót
hjá Norðuráli þarf að vinnast í
tveimur áföngum. Orka frá Norð-
lingaölduveitu og Búðarhálsi full-
nægir þörf fyrir 90 þúsund tonna
aukningu á framleiðslu hjá Norð-
uráli. Við getum ekki framleitt
orku úr neðri hluta Þjórsár fyrr en
seinna og Norðlingaölduveita og
Búðarháls eru einu kostirnir sem
til greina koma ef það á að afhenda
orku á þeim tíma sem Norðurál
hefur óskað eftir.“
Viðræðum Norðuráls og
Landsvirkjunar lýkur fyrir
haustið
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fjármála- og stjórn-
unarsviðs Norðuráls, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að
við Landsvirkjun hafi sta
þrjú ár, þar af formlegar
„Við sjáum fyrir endann
viðræðum í sumar eða h
það liggur ekki endanle
hvaða orkuöflunarkostir
boði, þar sem það liggja
fyrir heimildir fyrir N
ölduveitu. Fyrr en slíkt lig
ir, er erfitt að segja hva
kvæmdir er hægt að ráðas
Ragnar segir að en
tímasetningar verði ákveð
Landsvirkjun þar sem
taki að jafnaði lengri
stækkanir álvera.
Norðurál áformar stæk
150 þúsund tonn, ef allar f
eru fyrir hendi, s.s. varðan
framboð og orkuverð. Ek
verið ákveðið hvort ráðist
stækkunina í einu eða
þrepum. Afkastagetan ve
alls 240 þúsund tonn og ge
fyrir að hægt verði smám s
auka strauminn og auka
framleiðsluna upp í allt að
und tonn alls. Orkan til
framleiðslu gæti komið fr
hálsi og Norðlingaölduve
90 þúsund tonn af þessum
und. „En 60 þúsund tonni
bótar gætu jafnvel komið
iðafossi og Núpi seinna.
Orkuveita Reykjavíkur m
virkjunarmöguleika, t.d.
Álver Norðu
Norðlingaöldu
synleg fyrir
Landsvirkjun getur ekki annað orkuþörf
vegna stækkunaráforma bæði Norðuráls
og ISAL að sögn forstjóra Landsvirkj-
unar. Að mati Þjóðhagsstofnunar gæti
snöggur samdráttur í framkvæmdum í
kjölfar fjárfestingartoppa vegna álvera
valdið tímabundinni stöðnun hér á landi.
KOSNINGADAGUR
Baráttan fyrir sveitarstjórnarkosn-ingarnar er nú á enda og í dag ergengið að kjörborðinu. Úrslit
kosninganna, sem koma í ljós í kvöld,
ráða því auðvitað hverjir verða við völd í
einstökum sveitarfélögum næstu fjögur
árin. En kosningarnar eru að sjálfsögðu
líka ákveðin styrkleikamæling flokk-
anna á landsvísu fyrir þingkosningarnar
á næsta ári.
Þannig er mikilvægt fyrir t.d. vinstri
græna að fá góða útkomu þar sem þeir
bjóða fram eigin lista, til að staðfesta að
það fylgi, sem flokkurinn hefur mælzt
með í skoðanakönnunum á landsvísu, sé
til í raunveruleikanum. Samfylkingin er í
svipaðri stöðu; þetta eru fyrstu sveitar-
stjórnarkosningarnar frá því flokkurinn
varð til og útkoma Samfylkingarfram-
boða og annarra sameiginlegra fram-
boða á vinstri vængnum, þ.m.t. Reykja-
víkurlistans, mun ráða miklu um þann
byr, sem Samfylkingin fær fyrir þing-
kosningarnar. Þá verður fróðlegt að sjá
hvort Frjálslynda flokknum og banda-
mönnum hans tekst að halda áfram at-
lögu sinni að fjögurra flokka kerfinu og
ná fótfestu í einhverjum þeim sveitar-
félögum, þar sem boðinn er fram F-listi,
eða hvort hreyfingin rennur út í sandinn
eins og öll önnur framboð, sem hafa
reynt að verða fimmti flokkurinn und-
anfarna áratugi.
Framsóknarflokkurinn, sem hefur
fengið lítinn stuðning í könnunum á
landsvísu allt kjörtímabilið, á mikið und-
ir því að útkoma hans nú verði bærileg,
en auðvitað háir það flokknum að geta
ekki fengið neina glögga styrkleikamæl-
ingu í Reykjavík. Í raun er Sjálfstæð-
isflokkurinn eini flokkurinn, sem getur
fengið skýra vísbendingu um stöðu sína
út frá heildaratkvæðamagni í sveitar-
stjórnarkosningunum.
Það verður æ algengara að fólk kvarti
undan því að kosningabaráttan sé leið-
inleg og daufleg og fátt nýtt komi fram.
Það er vissulega rétt að þau hörðu hug-
myndafræðilegu átök, sem áður ein-
kenndu oft kosningabaráttuna, eru að
mestu úr sögunni. En kosningabaráttan
þjónar m.a. því hlutverki að draga ýmis
mál fram í dagsljósið, sem betur mættu
fara. Þetta hefur komið skýrt fram í
kosningabaráttunni í Reykjavík. Í að-
draganda kosninganna hefur t.d. komið
fram hversu slæm staðan er í húsnæðis-
málum tekjulægsta fólksins og aukið
þrýsting á stjórnmálamenn að greiða úr
þeim vanda. Kastljósið hefur jafnframt
beinzt að skorti á hjúkrunarrýmum fyrir
aldraða, sem brennur mjög á viðkomandi
einstaklingum og fjölskyldum þeirra.
Sjálfstæðisflokkurinn lofaði að leysa úr
þessum vanda og viðbrögð Reykjavíkur-
listans voru þau að undirrita hina um-
deildu viljayfirlýsingu með heilbrigðis-
ráðherra og skuldbinda sig um leið til að
leggja mun meiri fjármuni til málsins en
gert hefur verið á kjörtímabilinu sem nú
er á enda. Hver sem niðurstaða kosning-
anna verður geta stjórnmálamenn ekki
komizt undan því að leysa úr þessum
vanda margra aldraðra Reykvíkinga og
fjölskyldna þeirra.
Í kosningabaráttunni hafa líka komið
fram í dagsljósið mál, sem varða stjórn-
sýslu borgarinnar, sem full þörf var á að
kæmust í almenna umræðu. Dæmi um
slíkt er málsmeðferð borgaryfirvalda
varðandi byggingu líkamsræktarstöðvar
við Laugardalslaug. Annað dæmi var
rakið í Morgunblaðinu í gær, af foreldr-
um barns á einkareknum leikskóla sem
fóru fram á að fá sama stuðning frá borg-
inni og hún veitir foreldrum barna á leik-
skólum borgarinnar sem eru í sömu
stöðu. Þetta fólk fékk ekki leiðréttingu
sinna mála fyrr en meira en tveimur ár-
um eftir að það sendi leikskólum Reykja-
víkur fyrsta bréf sitt. Raunar fékk það
engin svör um að komið yrði til móts við
það fyrr en umboðsmaður Alþingis var
farinn að senda borgaryfirvöldum ítrek-
aðar fyrirspurnir vegna málsins, en þá
hafði það velkzt í borgarkerfinu í 22
mánuði. Það er eðlilegt að þeir, sem fá
svona afgreiðslu hjá sveitarfélagi sínu,
reyni að vekja athygli á málinu í aðdrag-
anda kosninga og það verður vonandi til
þess að slíkt endurtaki sig ekki.
Til þessa hafa kjósendur vanizt því að
hafa bein áhrif á gang mála á fjögurra
ára fresti með því að velja fulltrúa til
setu í sveitarstjórn. Í dag ættu kjósend-
ur ekki að líta svo á að þetta sé þeirra
eina tækifæri til áhrifa næstu fjögur ár-
in. Mörg framboð og margir stjórnmála-
menn hafa heitið því í kosningabarátt-
unni að færa ákvarðanatöku nær
borgurunum, hafa meira samráð við al-
menning og leyfa kjósendum að hafa
áhrif á mikilvæg mál milli kosninga. Það
er full ástæða til að kjósendur minni
stjórnmálamennina á þau loforð eftir
kosningar.
ALCOA OG ÁLVERIÐ
Hröð atburðarás í viðræðum viðbandaríska fyrirtækið Alcoa um
álver í Reyðarfirði eftir að forráðamenn
Norsk Hydro ákváðu að beina kröftum
sínum fyrst og fremst annað á næstunni
hefur komið á óvart. Á fimmtudag var
skrifað undir samkomulag milli Fjár-
festingarstofnunar – orkusviðs og
Johns Pizzeys, aðstoðarforstjóra Alcoa,
um að halda áfram viðræðum vegna
hugsanlegrar þátttöku bandaríska ál-
fyrirtækisins í byggingu álvers í Reyð-
arfirði. Hyggst fyrirtækið reisa 320
þúsund tonna álver í einum áfanga ef af
verður. Samkomulagið, sem var undir-
ritað á fimmtudag, kveður á um að ráð-
ist verði í viðræður, sem standi yfir sjö
vikur og þá liggi niðurstaða fyrir, en
minna má á að lokaákvörðun af hálfu
Norsk Hydro átti að liggja fyrir 1. sept-
ember. John Pizzey kvað fast að orði á
blaðamannafundi á miðvikudag: „Við
getum fullvissað ykkur um að eftir sjö
vikur munum við ekki fresta ákvörð-
unum um aðrar sjö vikur. Auðvitað get-
ur brugðið til beggja vona en við teljum
að miðað við okkar þarfir og forsendur
þá muni verða af þessu verkefni.“
Það er greinilegt á þessum orðum að
fyrirtækið er ekki lengur í þreifingum
við Íslendinga um að reisa álver í Reyð-
arfirði, heldur býr full alvara að baki.
Þá er góðs viti að fyrirtækið hyggist
fjármagna framkæmdina sjálft þannig
að ekki verði leitað til íslenskra fjár-
festa á borð við lífeyrissjóði í því skyni.
Ef til þess kemur að Alcoa ráðist í að
reisa álver hér á landi gæti skapast
mjög sérkennileg staða á íslenskum
orkumarkaði. Norðurál áformar stækk-
un álvers og hugmyndir um stækkun
hafa einnig komið fram hjá Ísal. Verði
af þessu öllu saman myndi Landsvirkj-
un þurfa að ráðast í verulegar virkj-
unarframkvæmdir og yrði erfitt að full-
nægja allri þeirri orkuþörf, sem myndi
skapast fyrir utan þær hörðu deilur,
sem áform um svo stórtækar virkjanir
myndu hrinda af stað um umhverfis-
mál.
Áður en lengra er haldið er hins veg-
ar rétt að hafa hugfast að áður hafa
kviknað vonir um stóriðju hér á landi án
þess að af yrði. Álver í Reyðarfirði er
sýnd veiði en ekki gefin enn sem komið
er.