Morgunblaðið - 25.05.2002, Page 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 43
Bæjaryfirvöldum í
Hafnarfirði er kapps-
mál að í Hafnarfirði
þrífist öflugt og fjöl-
breytt menningarlíf.
Það var að frumkvæði
Sjálfstæðisflokksins
að komið var á fót
menningarmálanefnd
og menningarfulltrúi
ráðinn.
Um skrifstofu
menningarfulltrúa
fara fjölmörg erindi
daglega og menning-
armálanefnd leggur
línurnar í stefnumót-
un fyrir málaflokkinn.
Í tengslum við nefnd-
ina starfa ýmsar menningarstofn-
anir í bænum og hér eru dæmi um
nokkrar þeirra:
Það var í tíð núverandi bæjar-
stjórnar að ákveðið var að bæta úr
húsnæðismálum Bókasafns Hafn-
arfjarðar og það svo um munar.
Það er staðsett í miðbænum ásamt
Kvikmyndasafni Íslands, sem
starfrækt er af ríkinu. Með stuðn-
ingi bæjarins hefur það fengið að-
stöðu til afnota fyrir sýningarhald í
Bæjarbíói.
Byggðasafnið hefur eflst á und-
anförnum árum, glæsilegar sérsýn-
ingar og gestafjöldi eykst ár frá
ári. Ánægjulegt er að geta þess að
Byggðasafnið er handhafi hvatn-
ingarverðlauna ferðamálanefndar
Hafnarfjarðar fyrir árið 2001.
Vestnorræna menningarsetrið
stuðlar að auknum samskipta þjóða
og Fjörukráin og það hafa sann-
arlega komið Hafnarfirði á kort
sem bæ handverks og víkinga.
Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóð-
ur og Háðvör hefur skipað sér
traustan sess í menningar- og leik-
húslífi landsins meðal annars
vegna frumsýninga nýrra íslenskra
verka.
Í listamiðstöðinni Straumi, sem
staðsett er í fallegu umhverfi, fá
listamenn inni fyrir starfsemi í tak-
markaðan tíma hverju sinni, er-
lendir og innlendir.
Listsýningar, tónleikar og aðrir
viðburðir eru haldnir í Hafnarborg,
en starfsemi þar hefur ótvírætt
fest sig í sessi í listalífi landsins.
Allmörg athyglis-
verð verk er að sjá í
alþjóðlega högg-
myndagarðinum á
Víðistaðatúni.
Markmið með ár-
legri úthlutun styrkja
menningarmálanefnd-
ar er að veita aðilum
sem stunda menning-
ar- og listastarfsemi í
Hafnarfirði stuðning
við einstök verkefni.
Þessir styrkir eru þó
yfirleitt ekki nema lít-
ill hluti af því sem til
þarf, en í þeim felst
ekki síður viðurkenn-
ing og hvatning en fjárhagslegur
stuðningur.
Æskilegt er að sem flestir komi
að menningarstarfi í Hafnarfirði,
gefendur jafnt sem þiggjendur.
Eru bæjarbúar jafnt og aðrir
hvattir til að taka þátt í því sem í
boði er.
Bæjaryfirvöld stuðli að rekstri
menningarstarfsemi í samræmi við
áhuga og þarfir íbúa Hafnarfjarð-
ar. Koma mætti betur til móts við
óskir og samræmingu hvað varðar
opnunartíma, kynna starfsemina
enn frekar í hópum barna og ung-
linga til eflingar listmenntun
þeirra. Gildi menningar fyrir Hafn-
arfjörð eru auk annars að auka
tækifæri einstaklinga og skapa
betra og ánægjulegra mannlíf.
Mannlíf
og menning
Helga Ragnheiður
Stefánsdóttir
Hafnarfjörður
Æskilegt er, segir
Helga Ragnheiður Stef-
ánsdóttir, að sem flestir
komi að menningar-
starfi í Hafnarfirði,
gefendur jafnt sem
þiggjendur.
Höfundur skipar 8. sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins og á sæti í menning-
armálanefnd Hafnarfjarðar.
ÚRSLIT kosninganna
í dag skipta miklu máli.
Framrás harðrar hægri
stefnu Sjálfstæðisflokks-
ins verður því aðeins
stöðvuð að sjónarmið
jafnaðarstefnunnar fái
öflugan stuðning um allt
land. Undirtökin í lands-
málunum hafa alltof lengi
verið í höndum Sjálfstæð-
isflokksins. Fámennis-
vald hans er farið að
bitna á félagslegri þjón-
ustu og uppbyggingu fyr-
ir þá Íslendinga sem
þurfa á hjálparhönd sam-
félagsins að halda. Þeir,
sem vilja auka jöfnuð og
samhjálp, geta því ekki greitt sjálf-
stæðismönnum atkvæði sitt í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkis-
stjórn. Hann hefur gríðarleg áhrif á
skoðanamyndun gegnum tök sín á
fjölmiðlum. Allir helstu stjórnartaum-
ar í viðskipta- og atvinnulífi landsins
liggja um hendur hans. Yrði það hollt
lýðræðinu ef Sjálfstæðisflokkurinn
fengi líka meirihluta í sveitarfélögum
einsog Reykjavík, Kópavogi, Hafnar-
firði, Reykjanesbæ og Akureyri?
Nei. Það myndi ekki efla lýðræðið
heldur ýta undir fá-
mennisvald eins
flokks.
Gullni
þríhyrningurinn
Öfgalaust mótvægi
klassískrar jafnaðar-
stefnu við hvassri
hægri stefnu Sjálf-
stæðisflokksins er í
dag aðeins að finna í
Samfylkingunni. Þjóð-
inni hefur alltaf reynst
farsælt, þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn er í
ríkisstjórn, að efla
flokk einsog Samfylk-
inguna, sem stendur
vörð um jöfnuð, samhjálp og fé-
lagslega þjónustu við þá sem þurfa á
hjálparhönd samfélagsins að halda.
Markmið okkar er að skapa góða
velferðarþjónustu, sem hvílir á öflugu
atvinnulífi, sem styðst við öflugt
menntakerfi. Þetta er hinn gullni þrí-
hyrningur Samfylkingarinnar. Mað-
urinn og velferð hans er sett í önd-
vegi. Málflutningur Samfylkingar-
innar er öfgalaus, en byggist á ástríðu
fyrir auknum jöfnuði, bættum hlut
kvenna og umhyggju fyrir æsku
landsins. Hann hefur fallið lands-
mönnum vel í geð í þessum kosning-
um. Byrinn er víða í segl Samfylking-
arinnar.
Lýðræðið þarf á því að halda, að í
sveitarfélögum landsins verði til
sterkt mótvægi við Sjálfstæðisflokk-
inn. Besta vörnin gegn ofurtökum
Sjálfstæðisflokksins er að styðja
Samfylkinguna, og þau framboð sem
hún á aðild að víðs vegar um landið.
Tilraunastöðin
Kosningarnar í dag snúast um
grundvallaratriði. Nái Sjálfstæðis-
flokkurinn meirihluta í einhverju
stóru sveitarfélaganna er hætta á að
hann misnoti stöðu sína til að gera
grundvallarbreytingar á félagslegri
þjónustu við íbúana. Hann mun inn-
leiða einkavæðingu í stórum stíl, þar
sem hún á alls ekki við, telji hann sig
fá nógu sterkt umboð kjósenda.
Þetta speglast hvergi betur en í
Hafnarfirði. Þar hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn sett upp tilraunastöð til að
prufukeyra þær hugmyndir sem
flokkurinn hyggst ryðja til rúms í
þeim sveitarfélögum, sem hann stefn-
ir á meirihluta í. Þar láta sjálf-
stæðismenn sér ekki nægja að beita
umdeildum aðferðum einkafram-
kvæmdar til að reisa skóla, með þeim
afleiðingum að íbúar Hafnarfjarðar
eru klyfjaðir skuldum langt inn í
framtíðina. Þeir ganga miklu lengra.
Í krafti þeirrar hugmyndafræði
sem lesa má úr ræðum og ritum
Hannesar Hólmsteins og Björns
Bjarnasonar, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, hafa þeir gengið svo
langt að einkavæða rekstur skóla, þar
með talda kennsluna sjálfa. Einka-
væðing skólakerfisins er gamall
draumur nýfrjálshyggjusinna í Sjálf-
stæðisflokknum. Björn Bjarnason
setti háar upphæðir í einkarekinn til-
raunaskóla á framhaldsstigi í Reykja-
vík, og fékk Magnús bæjarstjóra í
Hafnarfirði til að gera hina alræmdu
tilraun með einkavæðingu grunn-
skóla í Hafnarfirði.
Hafnfirðingar virðast einfærir um
að endurgjalda Sjálfstæðisflokknum
viðurgjörninginn. Hinu þurfa menn
ekki að ganga að gruflandi, að jafnt í
Hafnarfirði, Reykjavík, og annars
staðar munu Sjálfstæðismenn ekki
hika við að halda áfram einkavæðingu
grunnskólans, nái þeir hreinum
meirihluta. Háttsemi þeirra í Hafn-
arfirði sannar það.
Pólitísk átök um grundvallarstefnu
birtast líka í aðför sjálfstæðismanna
að þeirri félagslegu uppbyggingu sem
sameinað afl jafnaðar- og fé-
lagshyggjufólks hefur staðið fyrir í
Reykjavík. Það kom rækilega fram í
dólgslegri atlögu flokksins að fjölgun
hjúkrunarrýma fyrir aldraða í höfuð-
borginni.
Öll eigum við vonandi eftir að verða
gömul. Það er ekki ólíklegt að mörg
okkar þurfi á lokaspöl ævinnar á ríku-
legri umönnun að halda á hjúkrunar-
heimilum. Þessvegna er það baráttu-
mál margra, ekki síst þeirra sem eru
á besta aldri en eiga aldraða og las-
burða foreldra, að auka við hjúkrun-
arrými fyrir aldraða. En hvað gerðist,
þegar borgarstjóri og Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráðherra birtu lang-
þráða tímamótayfirlýsingu um fjölg-
un hjúkrunarrýmanna?
Forysta Sjálfstæðisflokksins, að
Birni Bjarnasyni meðtöldum, gekk
berserksgang! Viðbrögð þeirra voru
óskiljanleg. Geir, Davíð og Björn
fundu málinu allt til foráttu. Svona
haga menn sér ekki, jafnvel þótt þeir
séu á bólakafi i kosningabaráttu sem
gengur ekki nógu vel. Vinnubrögð af
þessu tagi eru andstæð öllu sem Sam-
fylkingin berst fyrir.
Í þessum kosningum mun koma
fram, hvert er bakland nýju flokk-
anna á vinstri vængnum. Niðurstaðan
mun sýna, hvaða flokk kjósendur vilja
efla til mótvægis við Sjálfstæðisflokk-
inn. Kosningarnar í dag eru því upp-
taktur fyrir alþingiskosningarnar
næsta vor. Þessvegna er nauðsynlegt
fyrir öflugt og framsækið samfélag,
að flokkur einsog Samfylkingin fái
kraftmikinn stuðning um allt land.
Samfélagið þarf á sterkum, öfgalaus-
um jafnaðarmannaflokki einsog Sam-
fylkingunni að halda.
Ég hvet alla þá, sem leggja vilja
áherslu á jöfnuð, velferð og umhyggju
til að styðja Samfylkinguna, og öll þau
framboð sem hún á aðild að.
Samfylkingin og gullni
þríhyrningurinn
Össur
Skarphéðinsson
Kosningar
Í þessum kosningum
mun koma fram, segir
Össur Skarphéðinsson,
hvert er bakland nýju
flokkanna á vinstri
vængnum.
Höfundur er formaður Samfylking-
arinnar.
Í borgarstjórnar-
kosningunum í dag er
tekist á um grundvall-
aratriði eins og ábyrga
fjármálastjórn, varð-
veislu dýrmætra auð-
linda í eigu almennings,
réttláta fjölskyldu-
stefnu, öflugt velferð-
ar- og öryggisnet og
betra umhverfi fólksins
í borginni.
Sum framboðanna
vilja helst lofa öllum
öllu án sýnilegrar for-
gangsröðunar. F-list-
inn hafnar slíkum
vinnubrögðum og legg-
ur áherslu á breytta
forgangsröðun, þar sem áhersla er
lögð á góða þjónustu við fólkið í borg-
inni og hlúð að þeim sem þurfa á að-
stoð að halda. Velferð borgarbúa hef-
ur því miður ekki aukist í takt við
margumrætt góðæri í landinu og
auknar tekjur borgarinnar.
Auðvelt er að benda á fjölmörg
dæmi um óvandaða meðferð al-
mannafjár, bæði hjá borgaryfirvöld-
um og ríkisvaldinu, og því miður hafa
mörg spillingarmál litið dagsins ljós
á þessu vori. Þegar stjórnmálamenn
hafa verið lengi við völd er hætta á
því að þeir gleymi hvaðan þeir hafa
umboð sitt og telji völdin sjálfsögð.
Þetta leiðir stundum til hroka, vald-
þreytu og jafnvel spillingar. Stjórn-
málamenn og stjórnvöld þurfa að-
hald og nýir vindar þurfa að blása í
kringum þá. Slíks er greinilega þörf í
borgarstjórn Reykjavíkur. Til að
veita núverandi borgaryfirvöldum
það aðhald sem þau og lýðræðið í
borginni þurfa á að halda eru tveir
valkostir sem telja má raunhæfa.
Annar kosturinn er að styrkja svo
mjög Sjálfstæðisflokkinn í kosning-
unum á laugardaginn að hann nái
meirihluta í borginni. Ég held að það
væri ekki góður kostur. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur verið mjög valda-
mikill á flestum sviðum
þjóðlífsins og löng
valdaseta í ríkisstjórn
og skortur á lýðræðis-
legu aðhaldi hefur leitt
til þess að spillingarmál
tengd flokknum hafa
hrannast upp á undan-
förnum mánuðum.
Sjálfstæðisflokkurinn
hefur líka í samstarfi
sínu við Framsóknar-
flokkinn sýnt það í
verki að hann kann að
fara illa með almannafé
og að forgangsraða
nýtingu almannafjár
óskynsamlega. Sterk
öfl innan flokksins
ganga hart fram við að koma dýr-
mætum sameignum almennings í
hendur einkaaðila oft fyrir hlægilega
lítið verð. Öllu verra er þó þegar
sölsa á undir sig auðlindir á borð við
jarðhita og drykkjarvatn. Sú hætta
er því miður raunveruleg, að dýr-
mætasta mjólkurkýr okkar Reykvík-
inga, sjálf Orkuveitan, verði seld úr
höndum okkar ef Sálfstæðisflokkur-
inn nær völdum í borginni. Auk þess
yrði loforðalisti Sjálfstæðisflokksins
svo dýr í framkvæmd að hann myndi
setja borgina á höfuðið.
Hinn kosturinn er að efla nýtt og
óspillt afl í borginni til áhrifa, sem
gæti veitt þeirri fylkingu sem fer
með völdin nauðsynlegt aðhald. Nýtt
afl gæti haft enn meiri áhrif með því
að komast í oddaaðstöðu. Eini raun-
hæfi kosturinn til hleypa ferskum
vindum aukins lýðræðis og valddreif-
ingar inn í borgarstjórn Reykjavíkur
er að kjósa F-listann til áhrifa í kosn-
ingunum í dag.
Það hefði í för með sér meira að-
hald í fjármálastjórn borgarinnar en
þó umfram allt breytta forgangsröð-
un, þar sem brýnar úrbætur í þjón-
ustu við fólkið í borginni yrðu settar
ofar pólitískum gæluverkefnum.
Sóun fjármuna Okuveitu Reykjavík-
ur yrði hætt og tryggt að fjármunir
fyrirtækisins yrðu fyrst og fremst
nýttir til að veita borgarbúum ódýra
orku og drykkjarvatn en einnig
kæmi til greina að endurbætta stöðu
fyrirtækisins til að styrkja brýn
verkefni í þágu borgarbúa og þá
einkum tengd velferðar- og öryggis-
málum. Mun meira aðhald þarf við
ýmsar framkvæmdir á vegum borg-
arinnar til að nýta fjármuni betur.
Draga þarf úr yfirbyggingu stjórn-
kerfis borgarinnar, stytta boðleiðir
og færa völdin nær fólkinu.
Ekki er unnt að telja upp allar þær
áherslubreytingar sem borgarbúar
yrðu varir við ef F-listinn kæmist til
áhrifa eftir kosningarnar. Í stuttu
máli koma þær best fram í áherslum
listans á velferðar-, öryggis- og um-
hverfismál og þeim verkum sem
frambjóðendur listans hafa staðið
fyrir. Vegna þessa er stefnuskrá F-
listans mun trúverðugri en stefnu-
skrár R- og D-lista. Okkur er alvara
með því að rétta hlut þeirra sem
minna mega sín í borginni og tryggja
íbúunum öruggt umhverfi í réttlátu
borgarsamfélagi þar sem þátttaka
allra er markmiðið. Við teljum að það
yrði til farsældar fyrir borgarbúa að
veita F-listanum brautargengi í
kosningunum í dag.
F-listinn til farsældar
fyrir Reykjavík
Ólafur F.
Magnússon
Reykjavík
Það yrði til farsældar
fyrir borgarbúa, segir
Ólafur F. Magnússon,
að veita F-listanum
brautargengi í kosning-
unum í dag.
Höfundur er læknir og borgar-
fulltrúi og skipar 1. sæti F-listans
í Reykjavík.