Morgunblaðið - 25.05.2002, Page 44

Morgunblaðið - 25.05.2002, Page 44
UMRÆÐAN 44 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ KJÖRDAGUR er runninn upp. Nú ríður á að stuðningsmenn D-lista fjölmenni á kjörstað og leggi okk- ur lið. Hvert atkvæði skiptir máli í barátt- unni um framtíð Sel- tjarnarness. Sigurinn er engan veginn í höfn og úrslitin geta ráðist á einu atkvæði, ef til vill þínu! Áhugi á skoðunum fólks Kosningabarátta sjálfstæðismanna hef- ur einkennst af já- kvæðu hugarfari, framfarasókn og vilja til að hlusta á sjónarmið allra íbúa. Ólíkt keppinautum okkar höfum við haft dirfsku, áhuga og burði til leita út fyrir okkar eigin raðir og eiga orðastað við kjós- endur milliliðalaust. Barátta okk- ar, framtíðarsýn og stefnumið eru því hvorki soðin saman í skyndi í bakherbergjum né takmarkast inntak þeirra við málflutning, þar sem meira virðist lagt upp úr að þyrla upp ryki og valda geðshrær- ingu en skapa forsendur til fram- fara fyrir hönd okkar Seltirninga. Umboð nýtt til góðra verka Eftir kraftmikla baráttu og með jákvæð viðbrögð bæjarbúa í far- teskinu göngum við upplitsdjörf til kosninga. Sem fyrr treystum við dómgreind kjósenda til að marka framtíð bæjarins. Sjálfstæðisflokk- urinn teflir fram ferskum lista sem á sterkar rætur í vilja íbúanna. Fái D-listinn endurnýjað umboð til forystu er það höfuðmarkmið okk- ar er að rísa undir trausti bæj- arbúa og nýta það sem viðspyrnu til góðra verka. Stöðugleiki og traust fjármálastjórn Á morgun verður kosið um framtíðarsýn og stefnumið fram- boðanna tveggja á Seltjarnarnesi. Þar standa sjálfstæðismenn vel að vígi. Það er ljóst að efst í huga flestra kjósenda er áfram- haldandi stöðugleiki í fjármálum bæjarins, styrk fjármálastjórn og góð þjónusta. Þetta er skynsamleg forgangsröðun. Sel- tjarnarnes er vel rek- ið bæjarfélag og við höfum mikinn hag af því að svo verði áfram. Lágmarksálög- ur, ráðdeild í rekstri og lækkun skulda eru meðal markmiða Sjálfstæðisflokks fyrir næsta kjörtímabil. Í fararbroddi Stefnuskrá flokksins í skólamál- um hefur vakið athygli og ber vitni um mikinn metnað. Seltjarnarnes er í fararbroddi á þessu sviði og stenst samjöfnuð við það sem best gerist hérlendis og þótt víðar væri leitað. Markvisst hefur verið hlúð að skólastarfinu og svo verður áfram. Sjálfstæðismenn hafa sett fram á þriðja tug markmiða sem öllum er ætlað að efla skólana og stuðla að auknum árangri. Sel- tjarnarnes er eftirsóknarverður bústaður fyrir fjölskyldufólk. Öfl- ugt félagslíf, þróttmiklir skólar, góð aðstaða til íþrótta og heilsu- ræktar og einstök náttúrugæði skapa ákjósanlega umgjörð fyrir unga sem aldna. Eftirvænting eftir íbúaþingi Skipulagsmál hafa verið í brennidepli. Mikill tími og orka hafa farið í það hjá keppninautum okkar að gera Sjálfstæðisflokkinn tortryggilegan í þeim efnum, svo mikill að minna hefur borið á öðr- um og uppbyggilegri málflutningi. Ég fullyrði að ótti og geðhræring vegna fyrirætlana okkar í skipu- lagsmálum er óþörf. Við höfum rætt við hundruð Seltirninga á undanförnum vikum og ljóst er að stefnumið okkar um opið íbúaþing um skipulagsmál, sem haldið verð- ur í haust, hefur feikilegan hljóm- grunn í bæjarfélaginu. Ég hlakka til íbúaþings. Bjartsýni, ábyrgð, festa Af málflutningi keppinauta okk- ar mætti ætla að á Seltjarnarnesi sé allt á hverfanda hveli, að sam- félag okkar sé að hruni komið, óskilgreindar hættur steðji að úr öllum áttum og við, frambjóðendur Sjálfstæðisflokks, sætum færis um að ganga á bak orða okkar í öllum málum. Þetta er ekki uppbyggileg- ur og trúverðugur málflutningur. Í dag er ekki aðeins kosið um flokka og stefnumið, heldur ekki síður um þá einstaklinga, sem bæjarbúar telja traustsins verða til að verja hagsmuni okkar allra og leiða okk- ur inn í nýtt kjörtímabil, nýja tíma, af bjartsýni, ábyrgð og festu. Veldu þér í vil! Traust forysta til framtíðar Jónmundur Guðmarsson Höfundur er forseti bæjarstjórnar og leiðir lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórn- arkosningar. Seltjarnarnes Hvert atkvæði skiptir máli, segir Jónmundur Guðmarsson, í barátt- unni um framtíð Sel- tjarnarness. KOSNINGARNAR í Garðabæ snúast um lýðræðið í bænum. Eftir 36 ára valda- tíma eru sjálfstæðis- menn löngu hættir að kunna að taka gagn- rýni. Þeir hlusta ekki eftir röddum bæjar- búa nema rétt fyrir kosningar. Þess á milli þarf undir- skriftasafnanir og fjölmiðlaumfjöllun til að ná eyrum þeirra. Þeir kalla það nei- kvæða kosningabar- áttu ef einhver gagn- rýnir stjórnarhætti Sjálfstæðis- flokksins. Þeir kjósa að búa til glansmynd, sem flestir bæjarbúar þekkja af eigin raun, að er ekki í samræmi við veru- leikann. Varla er til sú ósk bæjarbúa sem sjálf- stæðismenn segjast ekki ætla að uppfylla á næsta kjörtímabili. Nú á loks að reisa íþróttamannvirki og skólabyggingar og bæta þjónustu á öll- um sviðum. Skýr framtíðarsýn er ekki til, forgangsröðun vantar. B-listinn hefur sett fram skýra og raun- hæfa stefnu í málum bæjarfélagsins til næstu ára. Hann býður upp á lausnir, en hafnar vinnubrögðum fums og fálms. Vandræðagangur- inn með nýjan grunnskóla í Ása- hverfi er skýrt dæmi um van- hæfni Sjálfstæðisflokksins til að taka ákvarðanir áður en í óefni er komið. Í þessum kosningum skiptir hvert atkvæði máli. Sjálfstæðis- flokkurinn álítur kosningarnar nánast vera formsatriði. Þær eru mikilvægar vegna þess að í kjör- klefanum getur hver og einn sagt skoðun sína. Í kjörklefanum er kjósandinn einn. Leynilegar kosningar eru hornsteinn lýðræð- isins. Ágæti kjósandi! Hugsaðu málið vandlega. Þú einn getur breytt. Kjóstu X-B. Hvert atkvæði skiptir máli Einar Sveinbjörnsson Garðabær Sjálfstæðismenn hlusta ekki eftir röddum bæj- arbúa nema rétt fyrir kosningar, segir Einar Sveinbjörnsson. Þess á milli þarf undirskrifta- safnanir og fjölmiðla- umfjöllun til að ná eyrum þeirra. Höfundur skipar 1. sæti á B-lista, óháðra og framsóknarmanna. ÞAÐ hefur örugg- lega ekki farið fram hjá neinum, hvað upp- bygging í Kópavogi hefur verið hröð nú síðustu ár. Meirihlutasamstarf- ið hefur gengið vel og þar hefur oddviti Framsóknarflokksins í Kópavogi, Sigurður Geirdal bæjarstjóri, sýnt með framsýni og festu hvernig byggt er upp bæjarfélag sem fleiri og fleiri vilja búa í. Framsóknarflokkur- inn hefur sett fram mjög metnaðarfulla stefnuskrá, en þar gerum við fram- kvæmdaáætlun upp á 6 milljarða króna og það sem meira er við þurfum ekki að taka krónu að láni til þess að hægt verði að uppfylla hana. Stjórnun íþrótta- og æskulýðs- mála hefur verið í höndum Fram- sóknarflokksins og uppbyggingin er ævintýraleg. Stórstígum fram- kvæmdum er lokið á undraverðum tíma og aðrar eru hafnar, alls fyrir um 1,5 milljarð króna. Ný og glæsileg 10.000 m² íþrótta- og sýn- ingarhöll, sem fengið hefur nafnið Fífan var nýlega tekin í notkun: Knattspyrnuvöllurinn er 105x68 m, þá eru fjórar 100 metra hlaupabrautir og sex 60 metra brautir, langstökks- og stangarstökksað- staða og 1.600 m² göngu- og skokkað- staða á gerviefni. Íþróttasvæði Breiða- bliks og HK hafa ver- ið í mikilli upp- byggingu og Fram- sóknarflokkurinn hefur fullan hug á að ljúka þeirri vinnu. Gervigras er komið í Kópavogsdal og við ætlum líka að setja gervigrasvöll í Foss- vogsdalinn. Gerpla er að fá nýja og glæsi- lega aðstöðu í Sölunum. Þar verður byggt 2200 m² fjölnota íþróttahús, íþróttavellir og einnig tvær sund- laugar 25x15 m laug úti og 16 2⁄3x10 m laug inni. Þá hafa miklar fjár- hæðir farið í uppbyggingu á golf- vellinum og áfram mætti upp telja. Í heildina hafa á kjörtímabilinu verið lagðir 3,5–3,6 milljarðar í rekstur og stofnframkvæmdir vegna íþrótta í Kópavogi. Framlög til íþróttamála hafa aukist verulega frá árinu 1999 til ársins 2001.  Beinir styrkir til íþróttafélag- anna hafa hækkað á tímabilinu um 66%, úr 10 milljónum í 17,3 milljónir.  Styrkir vegna afnotaréttinda hafa hækkað um 29%, úr 77 milljónum í 101 milljónir króna.  Iðkendastyrkir voru 5,7 milljónir en eru nú 9,9 milljónir og iðk- endastyrkir í svokölluðum brott- fallshópi hafa verið tvöfaldaðir.  Árið 1990 veitti Kópavogsbær 101 milljón til rekstrar íþrótta- og æskulýðsmála, en árið 2002 verða það 310 milljónir!  Árið 1990 voru íþróttmannvirki Kópavogsbæjar alls 38.900 m² en eru nú árið 2002 376.900 m². Hverjum dettur síðan í hug að halda því fram að framlög til íþrótta- og tómstundamála séu lág? Það eru andstæðingarnir sem hafa haldið því fram að framlög á íbúa til málaflokksins séu lægri í Kópa- vogi, en hjá nágrannasveitarfélög- unum. Það er ekki rétt. Það sem rétt er að bókhaldslegar færslur sveitarfélaganna eru ekki gerðar með sama móti, en eftirsóknarvert væri að samræma þær. Afnot skóla af íþróttamannvirkum, sem og rekstur og viðhald húsnæðis fé- lagsmiðstöðva ÍTK í skólunum, alls um 55 milljónir króna eru hjá Kópavogi t.d. ekki færðar sem framlög til íþrótta- og æskulýðs- mála. Sama má segja um þá fjár- muni sem lagðir hafa verið til skemmtanahalds 17. júní, sumar- daginn fyrsta og jólatrésskemmt- unarinnar. Þá færa sum sveitar- félög stofnkostnað vegna bygg- ingar íþróttamannvirkja sem styrk til íþróttafélaga, en það er ekki gert í Kópavogi. Væru þessir liðir færðir sem framlög til íþrótta- og æskulýðsmála eins og hin sveit- arfélögin gera, stenst Kópavogs- bær fyllilega samanburð við hin sveitarfélögin og gott betur. Við framsóknarmenn í Kópavogi höldum ótrauðir áfram og höfum sett byggingu sundlaugar í Foss- vogsdal sem eitt af þrem helstu verkefnum sem við viljum vinna að á næsta kjörtímabili. Framsóknarmenn vilja að öll börn í Kópavogi geti þegar hefð- bundnum skólatíma lýkur sótt fjöl- breytt íþrótta- og tómstundastarf. Ég hef lengi átt mér þann draum að við fengjum íþrótta- og tóm- stundafélögin til samstafs við ÍTK og þau kæmu að dægradvöl skól- anna. Þar gæti því farið fram heimanám, íþróttir og tómstundir sem allir hefðu gagn og gaman af. Við teljum einnig mikilvægt að Kópavogsbær greiði íþróttaþjálfun barna að 10 ára aldri. Samið verði við íþróttafélögin um að veita þessa þjónustu og að menntað fag- fólk annist þjálfunina. Þetta er mjög mikilvægt skref í átt að auknu jafnrétti þar sem með þessu móti geta öll börn stundað íþróttir óháð efnahag foreldranna. Félagsmiðstöðvarnar voru færð- ar frá skólanefnd til ÍTK í upphafi kjörtímabilsins og samhliða fjölgun þeirra úr tveim í 7 á fjórum árum höfum við líka undirbúið að koma á fót félagsmiðstöð fyrir 16 ára og eldri. Í stefnuskrá okkar Fram- sóknarmanna setjum við fram vilja til að koma á fót félagsmiðstöð 16+ sem yrði mistöð samveru og fjöl- breyttrar afþreyingar og áhersla væri lögð á að unglingarnir sjálfir fengju að taka þátt í mótun starfs- ins. Jafnrétti í íþróttum hefur aukist á liðnu kjörtímabili. Strax í upphafi lagði undirrituð til að kjöri íþrótta- manns Kópavogs yrði breytt og 1999 var kjörin íþróttakona Kópa- vogs og íþróttakarl Kópavogs. Þetta fyrirkomulag skiptir miklu 3,6 milljarðar til íþrótta- og æskulýðsmála Una María Óskarsdóttir Kópavogur Við teljum mikilvægt, segir Una María Ósk- arsdóttir, að Kópavogs- bær greiði íþróttaþjálf- un barna að 10 ára aldri. Golfkúlur 3 stk. í pakka aðeins 850 kr. NETVERSLUN Á mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.