Morgunblaðið - 25.05.2002, Qupperneq 63
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 63
FREMUR lítið hefur sést til stóru
Þingvallaurriðanna það sem af er
vori, en fyrir skemmstu veiddust þó
tveir í landi
Kárastaða. Þeir
voru 6 og 7 punda
og veiddust báðir
á maðk.
Mikill lengdar-
munur var á fisk-
unum, sá léttari
var feitur og fallegur 56 sentimetra
fiskur, en sá þyngri horuð 71 senti-
meters löng hrygna. Af myndunum
að marka hefur sá fiskur hrygnt í
fyrra og á eftir að ná góðum holdum
á ný. Miðað við lengd er ekki ólíklegt
að sá fiskur ætti að vera 10-11 pund í
sínu besta ásigkomulagi.
Það voru feðgarnir Snæbjörn
Stefánsson og
Helgi Þór Snæ-
björnsson sem
veiddu fiskana.
Þetta var um
hvítasunnuhelg-
ina. Veður var
fremur kalt og
vindsperringur. Þeir feðgar höfðu
lengi dorgað án árangurs, en skyndi-
lega tóku báðir fiskarnir svo að segja
á sama augnablikinu. Þetta voru
einu fiskarnir sem feðgarnir veiddu
yfir helgina.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Kristófer litli Helgason sýnir hér stórfiskana tvo úr Þingvallavatni.
Vænir urriðar úr
Þingvallavatni
133 NEMAR frá Menntaskólanum í
Kópavogi voru brautskráðir við há-
tíðlega athöfn í Digraneskirkju 17.
maí síðastliðinn. Alls 78 stúdentar,
31 iðnnemi, 5 matartæknar, 11
nemendur af skrifstofubraut og í
fyrsta skipti var útskrifað af heim-
ilisbraut skólans, alls 4 nemar.
Þá brautskráðust 4 nemar úr
meistaraskóla matvælagreina.
Einnig útskrifuðust frá skól-
anum á þessu vori 33 ferða-
fræðinemar, 8 matsveinar, 4 nemar
úr framhaldsnámi á skrif-
stofubraut og 39 leiðsögumenn
þannig að alls voru brautskráðir
219 nemar frá Menntaskólanum í
Kópavogi á þessu vori.
Í máli Margrétar Friðriksdóttur,
skólameistara við athöfnina 17. maí
kom m.a. fram að á skólaárinu hef-
ur staðið yfir undirbúningur sem
miðast að því að norðurálma skól-
ans verði rifin og ný tveggja hæða
viðbygging komi í hennar stað.
Með byggingunni má tryggja við-
unandi stöðu framhaldsskólamála í
Kópavogi næstu árin en mikilvægt
er að huga að undirbúningi að nýj-
um framhaldsskóla í bænum, segir
í frétt frá MK.
Ný skólanámskrá
Margrét sagði að við upphaf
haustannar hefði komið út ný
skólanámskrá fyrir Menntaskólann
í Kópavogi í anda nýrrar aðal-
námskrár framhaldsskóla. Inn-
tökuskilyrði á einstakar náms-
brautir væru ólík því sem verið
hefði og stúdentsprófsbrautir væru
nú þrjár, málabraut, nátt-
úrufræðabraut og félagsfræða-
braut. Í MK væri mikil áhersla lögð
á sjálfstæði nemenda og um leið
ábyrgð þeirra, lífsleikni væri nú
orðin skyldugrein og væri tilgang-
urinn að stuðla að alhliða þroska
nemenda og auka færni þeirra til
að takast á við síbreytilegt og flók-
ið samfélag.
Einnig vakti Margrét athygli á
því að tekin yrðu upp samræmd
próf í framhaldsskólum árið 2003–
2004.
Starfsmenntaverðlaunin árið
2001 og Evrópumerkið 2001
Skólameistari sagði að Mennta-
skólinn í Kópavogi hefði, á und-
anförnum árum, lagt metnað sinn í
að bjóða fram fjölbreytilegar náms-
leiðir jafnt í bóknámi sem starfs-
námi á ferðamálasviði og hótel- og
matvælasviði. Skólinn hefði nú
uppskorið í samræmi við það metn-
aðarfulla starf sem unnið hefði ver-
ið af kennurum, nemendum og
stjórnendum á þessum sviðum en
skólanum voru veitt Starfs-
menntaverðlaunin árið 2001. Mark-
mið verðlaunanna er að styðja við
nýsköpun og framþróun starfs-
menntunar á Íslandi ásamt því að
vekja athygli á því sem vel er gert á
þessu sviði.
Í lok ræðu sinnar talaði skóla-
meistari um þá spennandi tíma sem
framundan væru í skólamálum og
hve áhugavert væri fyrir skólann
að vera þátttakandi í þeirri þróun
sem upplýsingatæknin byði upp á
og geta opnað áður óþekktar leiðir
til náms og kennslu, eflt tengsl
skóla við umheiminn og veitt ný
tækifæri í samskiptum. Eitt stærsta
verkefni skólaársins hefði verið að
hefja kennslu með nýrri far-
tölvutækni. Skólinn hefði gert
samning við tölvufyrirtæki um
uppsetningu á þráðlausu netkerfi
sem veldur byltingu í notkun á tölv-
um hvar sem er í skólahúsnæðinu.
Öllum nýnemum á bóknáms-
brautum var gert að hafa yfir að
ráða ferðatölvu og kennarar hefðu
á undangengnum árum setið fjöl-
mörg tölvunámskeið til að allur
undirbúningur væri sem bestur.
Kennarar MK hefðu því staðið í
fararbroddi í að undirbúa nem-
endur til starfa í alþjóðlegu þekk-
ingar- og tæknisamfélagi 21. aldar
og í nóvember síðastliðnum hlaut
skólinn viðurkenninguna Evr-
ópumerkið 2001 sem er veitt af
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins og menntamála-
yfirvöldum á Íslandi fyrir ný-
breytni í tölvustuddri
tungumálakennslu.“
Forseti bæjarstjórnar, Bragi
Michaelsson, afhendi útskrift-
arnemum viðurkenningar úr Við-
urkenningarsjóði MK sem stofn-
aður var af bæjarstjórn Kópavogs
1993. Fjórir nemendur hlutu við-
urkenningu að þessu sinni: Stúd-
entarnir Matthías Birgir Nardeau,
Einar Benediktsson, Heiðrún P.
Maack og matartæknaneminn
Bryndís Erla Pálsdóttir.
Rótarýklúbbur Kópavogs veitti
Heiðrúnu Maack styrk fyrir góðan
árangur í raungreinum á stúdents-
prófi, Rótarýklúbburinn Borgir
veitti Ara Arnarsyni styrk fyrir
góðan námsárangur í sérgreinum
verknáms á lokaprófi og Sparisjóð-
ur Kópavogs veitti Frosta Ólafssyni
styrk fyrir góðan námsárangur í
viðskiptagreinum á stúdentsprófi.
219 nemar útskrif-
aðir frá MK í vor
Skólameistari ásamt nýstúdentunum Einari Hjörvari Benediktssyni,
Guðmundi Karli Einarssyni, Heiðrúnu P. Maack og Matthíasi Birgi
Nardeau sem var veitt sérstök viðurkenning fyrir afburðaárangur í
stærðfræði en samtals hafa þau fengið 26x10 í stærðfræði á lokaprófum.
LÖGREGLAN á Selfossi lýsir eftir
bifreiðinni XR 048 sem var stolið af
bílastæði við Breiðumörk 29 í
Hveragerði á tímabilinu frá mið-
nætti til kl. 17 sunnudaginn 19. maí
síðastliðinn.
Ekki er útilokað að bifreiðinni
hafi verið ekið frá Hveragerði til
höfuðborgarsvæðisins. XR 048 er
rauður Suzuki Swift GL árgerð
1994. Þeir sem veitt geta upplýs-
ingar um ferðir XR 048 eftir 19.
maí sl., eða vita hvar hana er að
finna, eru beðnir um að hafa sam-
band við lögregluna í á Selfossi í
síma 480 1010.
Lýst eftir
bifreið
FÉLAG stjórnmálafræðinga
og fastanefnd framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins
(ESB) fyrir Ísland og Noreg, í
samstarfi við Háskóla Íslands,
boða til fundar um framtíð
Evrópusambandsins þar sem
sjónum verður einkum beint
að framtíðarráðstefnunni sem
nú stendur yfir og ætlað er að
vinna að nýjum grunnsátt-
mála, eða stjórnarskrá, fyrir
ESB.
Markus Ferber, sem á sæti
á Evrópuþinginu og situr með-
al annars í sameiginlegu EES
þingmannanefndinni, mun
halda fyrirlestur um „stjórn-
arskrárbundna framtíð Evr-
ópusambandsins“ og fjalla um
hugmyndir um „nálægðarvald,
lýðræði og gagnsæja stjórn-
sýslu“. Eduardo Garrigues
López-Chicheri, sendiherra
Spánar, flytur ávarp. Rósa Er-
lingsdóttir, jafnréttisfulltrúi
Háskóla Íslands, stjórnar
fundi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fundurinn fer fram mánu-
daginn 27. maí kl. 12.15 -13 í
Háskóla Íslands, í stofu 101 í
Odda.
Fundur
um fram-
tíð Evr-
ópusam-
bandsins
ÁGÚST Björgvinsson, unglinga-
landsliðsþjálfari, og Pétur Guð-
mundsson verða með körfubolta-
skóla dagana 25. og 26. maí.
Á Ísafirði verður kennslan í dag,
laugardaginn 25 maí, kl. 10.30-12
fyrir 8-11 ára og kl. 13-16 fyrir 12-16
ára. Skráning hjá Gauja.
Í Stykkishólmi verður kennsla á
morgun, sunnudaginn 26 maí, kl. 14-
16 fyrir 10-15 ára. Skráning í
íþróttahúsinu. Lögð verður áhersla
á helstu undirstöðuatriði körfubolt-
ans, s.s. sendingar, skot og knattrak.
Farið verður yfir helstu atriði
samspils og mikilvægi þess bæði í
vörn og sókn.
Verðlaun verða veitt fyrir ýmsar
aldursskiptar þrautir og allir fá boli
merkta skólanum, segir í fréttatil-
kynningu.
Körfuboltaskóli á Ísa-
firði og í Stykkishólmi
GENGIÐ verður fyrir konur í Afg-
anistan sunnudaginn 26. maí kl.
14. Hist verður á bílastæði við Víf-
ilsstaðahlíð og farið í stutta göngu-
ferð um svæðið. UNIFEM á Ís-
landi vinnur nú að fjáröflun fyrir
starf UNIFEM í Afganistan.
Dagarnir 22.-29. maí eru tileink-
aðir baráttu afganskra kvenna
með þeim hætti að Íslendingar
gangi, skokki eða hlaupi þeim til
stuðnings.
Hugmyndin er að fólk gangi eða
hlaupi visst marga kílómetra þessa
daga og láti ákveðna upphæð fyrir
hvern km af hendi rakna til UNI-
FEM. Einnig er hægt að vera með
í gönguferð UNIFEM sunnudag-
inn 26. maí í Heiðmörk. Farið
verður í stutta göngu með félögum
í UNIFEM þar sem hægt verður
að nálgast upplýsingar um starf
UNIFEM í Afganistan, segir í
fréttatilkynningu.
Gengið fyrir
konur í
Afganistan
KOSNINGASKRIFSTOFA Sam-
fylkingarinnar í Alþýðuhúsinu á
Strandgötu 32 í Hafnarfirði verður
opin frá kl. 8-22 á kosningadag.
Boðið er uppá akstur á kjörstað og
kosningakaffi. Upplýsingar verða
veittar um kjördeildir og kjörskrá.
Allir eru velkomnir.
Kosningakaffi verður í Firði á 2.
hæð, þar verða veisluhöld og
skemmtidagskrá frá kl. 10-18. Kosn-
ingavaka, sem standa mun fram eftir
nóttu, hefst kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu
og í Firði, segir í frétt frá Samfylk-
ingunni.
Samfylkingin
í Hafnarfirði
Kosningakaffi
og akstur
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
býður Kópavogsbúum í kaffi og
meðlæti á kosningaskrifstofum
flokksins á kjördag. Kosningaskrif-
stofurnar eru til húsa í Bæjarlind
12 og Hamraborg 1, 3. hæð. Sjálf-
stæðisflokkurinn býður þeim sem
þurfa að láta sækja sig upp á akst-
ur til og frá kjörstað, segir í frétta-
tilkynningu.
Kosningakaffi
sjálfstæðis-
manna í
Kópavogi
Höfundarnafn misritaðist
Nafn Gunnars Guðmundssonar
frá Heiðarbrún misritaðist í upphafi
greinar hans, „Til frændfólks og vina
í Reykjavík“, sem birtist í blaðinu í
gær.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
AÐALFUNDUR SAMFOK verður
haldinn þriðjudaginn 28. maí kl. 20 í
Álftamýrarskóla; gengið inn frá
Safamýri.
Óskar Ísfeld Sigurðsson, formað-
ur SAMFOK, setur fundinn. Erindi-
halda: Sigurgrímur Skúlason, deild-
arstjóri hjá Námsmatsstofnun, og
Jón Pétur Ziemsen, formaður Fé-
lags náttúrufræðikennara í grunn-
skólum. Fyrirspurnir og umræður.
Kosning nýs formanns SAMFOK og
áheyrnarfulltrúa foreldra í fræðslu-
ráði, meðstjórnanda, tveggja vara-
manna og varaáheyrnarfulltrúa for-
eldra í fræðsluráði.
Fjallað verður m.a. um sam-
ræmdu prófin og hvort ósamræmi sé
á milli kennslu og prófa, segir í frétt
frá SAMFOK.
Aðalfundur
SAMFOK