Morgunblaðið - 25.05.2002, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 25.05.2002, Qupperneq 66
DAGBÓK 66 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Dýrtíð í fjölskyldugarði ÉG fór með nokkrum kon- um af mömmumorgnum í Grafarvogi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn s.l. mið- vikudag, þ.e. 15. maí, dag- inn sem hann opnaði aftur eftir veturinn og höfðum við það notalegt þarna í góðu veðri. Þegar við komum niður- eftir var að sjálfsögðu rukkað við innganginn, en þegar inn var komið feng- um við áfall þegar við rák- um augun í það að það ætti að taka gjald fyrir einstök tæki! Ég er ekki sátt við þetta. Hvað er í gangi? Er þetta að verða garður fyrir þá sem eru með helst engin börn og rosatekjur? Fjöl- skyldu-hvað? Ég settist niður og reiknaði það út að ef við hjónin færum með börnin okkar þrjú og leyfðum hverju að fara í tvö þessara tækja á mann, af 5 mögu- legum, þá kostar þetta svona: Inn í garðinn 1.950 kr., 2 tæki á mann 780 kr., alls 2.730 kr. Bara þetta. Svo er eftir að grilla pylsur og fá sér að drekka með. Það fer að verða al- gjör lúxus að geta leyft sér þetta kannski einu sinni á sumri. Er nauðsynlegt að hafa öll þessi gjöld í garðinum, eða hvað? Við búum í Grafarvogi, nánar tiltekið í Rimahverfi, þannig að við höfum um fá græn svæði að velja, þar sem Landssímalóðin á að fara undir hvert stórhýsið á fætur öðru. Og börnin okkar eiga að leika sér – já hvar – inni hjá sér kannski? Nú nálgast kosningar og allir flokkar segjast vera fjölskylduvænir. Ég finn lítið fyrir svoleiðis löguðu héðan úr Grafarvogi þessa dagana. Mitt atkvæði fer kannski bara ekkert í kosn- ingakassa þessar kosning- ar! Eva Rós Vilhjálmsd. Ábyrgð borgarinnar ÉG ER 75% öryrki og bý í íbúð hjá Félagsbústöðum. Ég hef 80 þús. í bætur á mánuði, leigan er 57.256 kr. á mánuði fyrir utan raf- magn. Eftir eru rúmar 20 þús. kr. til þess að lifa af. Þess vegna ræð ég ekki við þessa miklu leigu og bíð þess nú að verða borin út vegna vanskila. Ég leitaði til Félagsþjónustunnar þar sem mér var boðið lán uppá 210 þús. til þess að fara út á almennan leigumarkað, en ég ræð nú ekkert frekar við það. Ég fór til lögmanns sem hefur mál mitt til með- ferðar til þess að fá að vita hvenær aðgerðir gegn mér hefjast. Hann var dónaleg- ur við mig og talaði niður til mín, svo ég var algjörlega miður mín þegar ég kom þaðan. Ég veit að margt fólk á í miklum erfiðleikum eins og ég. Ég heyrði í út- varpinu fólk vera að hringja inn og tjá sig um að það hefði of lág laun til þess að kaupa íbúðir og of há laun til þess að fá félagsleg- ar leiguíbúðir. Fólk lendir algjörlega milli stafs og hurðar í kerfinu. Hvað er eiginlega að ske í samfélaginu? Hvers vegna er farið svona illa með fólk í góðærinu? Eitt sinn átti ég íbúð en bæði heilsubrestur og erf- iðleikar komu mér í þessa hræðilegu fátæktargildru. Ég á ungling sem er í námi og mig langar til þess að hafa hana hjá mér, en það verður ekki hægt við þessar aðstæður. Ég þoli illa þessa meðferð og heilsu minni hefur hrakað mjög. Ég er meðal annars hjarta- sjúklingur og þess vegna má ég ekki lifa við svona kvíða og óöryggi. Annaðhvort verður það nú R-listinn eða D-listinn sem sigrar í komandi kosn- ingum og vonandi gerir sig- urvegarinn eitthvað í mál- unum. Félagsþjónustan er á ábyrgð borgarinnar og efla þyrfti starfsemi hennar til muna. Sigrún Jónsdóttir. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... ÞAÐ er einhver fiðringur lengstoní mallanum á Víkverja. Ein- hver eftirvænting sem kraumar í hverju beini í skrokknum. Einhver hríslandi tilfinning um að eitthvað sé í vændum. Víkverji hefur svolítið verið að velta því fyrir sér hvað veldur. Ekki eru það kosningarnar, þótt kosn- ingar séu oft bæði skemmtilegar og spennandi. En núna eru þær hvor- ugt og satt best að segja hefur kosningabaráttan verið hálf krampakennd á báða bóga. Bæði keppast stóruframboðin fyrir borg- arstjórnarkosningarnar við að „leið- rétta“ málflutning hins aðilans þannig að kjósendur standa eftir í sannkallaðri ringlulreið og fjáraust- urinn í auglýsingar er með eindæm- um. Víkverji saknar gamla góða tím- ans þegar sjónvarpsauglýsingar fyr- ir kosningar þóttu fjarstæðukennd- ar og í besta falli hallærislegar. Þegar menn þóttu grand ef þeir splæstu á svolítinn miða með mynd af frambjóðendum sem borinn var í hvert hús. Þegar kappræður í sjón- varpi og útvarpi voru leið frambjóð- enda til að koma málum sínum á framfæri. Víkverji veit ósköp vel að þetta heyrir sögunni til en getur ekki var- ist þeirri hugsun að á þeim tíma hafi kosningabaráttan verið ögn mál- efnalegri. En kannski er það bara fortíðarglýjan í augum Víkverja sem fegrar í minningunni kosninga- baráttu fyrri tíma. x x x VÍKVERJI verður líka var við aðáhugi fólks á kosningunum er lítill og hefur jafnvel heyrt að sumir ætli ekki einu sinni að kjósa. Vík- verji er alinn upp við að kosninga- rétturinn sé ein mikilvægustu rétt- indi manns og að nota hann ekki sé nánast glæpur. Íslendingar hafa reyndar alltaf verið duglegir að nota kosningarétt sinn miðað við aðrar þjóðir og vonandi verður svo áfram. Menn geta alltaf skilað auðu, ef þeir hafa ekki þóknun á neinu framboði. x x x EN ÞAÐ voru gormarnir í mag-anum á Víkverja. Evróvisjón- keppnin er í kvöld en Víkverji finn- ur ekki fyrir minnsta spenningi vegna hennar og hefur reyndar ekki gert í mörg herrans ár. Í kvöld er keppnin reyndar með eindæmum óspennandi þar sem Ís- lendingar taka ekki einu sinni þátt. Nema Logi Bergmann Eiðsson, sem ætlar að lýsa keppninni fyrir Íslend- ingum, sem líklega verða flestir að horfa á kosningavökuna á Stöð tvö. Það er margt skrýtið í kýrhausnum, eins og þar stendur. x x x NEI, líklega er það bara voriðsem er að kitla Víkverja þessa dagana. Gróðurinn, sem verður grænni með hverjum deginum og gefur fyrirheit um betri tíð með blóm í haga. Gróðuranganin, sem umlykur þá sem reka nefið út undir bert loft og endurnærir og hressir. Hlýindin, sem hafa verið svo mikil að menn keppast við að dusta rykið af tjaldbúnaðinum og skipuleggja útilegur eins og vitlausir væru. Og loks birtan, sem fyllir menn og mýs bjartsýni og áræðni til að takast á við hvaða verkefni sem er. Sumarið er komið! LÁRÉTT: 1 skraut, 4 hnöttum, 7 ánægja, 8 lagvopn, 9 voð, 11 heimili, 13 hlífa, 14 gróði, 15 dæld, 17 klúr- yrði, 20 bókstafur, 22 út- deilir, 23 ávani, 24 stal, 25 hás. LÓÐRÉTT: 1 mergð, 2 greinin, 3 mjó gata, 4 köggul, 5 nam, 6 skadda, 10 uxans, 12 mis- kunn, 13 tré, 15 vökvi, 16 rolan, 18 læsum, 19 lofar, 20 stríði, 21 bjartur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 geðprúðar, 8 lútur, 9 Ingvi, 10 kol, 11 tinna, 13 linna, 15 flagg, 18 snæða, 21 ætt, 22 skarf, 23 aular, 24 hlunnfara. Lóðrétt: 2 ertin, 3 purka, 4 úrill, 5 aggan, 6 hlýt, 7 fita, 12 nag, 14 inn, 15 fisk, 16 aðall, 17 gæfan, 18 starf, 19 ætlar, 20 aurs. K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 HVAR eiga fatlaðir að kjósa var fyrirsögn grein- ar Þórðar Jónssonar í Morgunblaðinu. Tek ég undir að vert væri að fá svar við þessari spurn- ingu. Því sem talsmaður og aðstandandi öryrkja spyr ég um ástæðu þess að kjördeild fyrir fatlaða í Hátúni var lögð niður. Ég á bæði son og móður sem bundin eru hjólastól- um og móðir mín býr í Hátúni 10. Við síðustu kosningar varð hún einn- ig heima að sitja vegna örðugleika við að komast á kjörstað. En í kosning- unum þar á undan var okkur kleift að komast úr Hátúni 10 í Hátún 12 með hjólastólinn. Nú eru margir fatlaðir sem eiga ekki heimangengt nema með mikilli aðstoð um skamman veg. Gott að- gengi fyrir alla að öllum kjörstöðum er lágmarks- krafa sem bæði á við í borg og bæjum. Elín Birna Árnadóttir. Gott aðgengi fyrir alla Skipin Reykjavíkurhöfn: Ottó N. Þorláksson fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Trinket kom til Straumsvíkur í gær. Obsha og Ostankino fóru í gær. Michig- anborg kemur í dag. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðju- og fimmtudaga kl. 14-17. Félag frímerkjasafn- ara. Opið hús laug- ardaga kl. 13.30-17. Mannamót Aflagrandi 40. Í dag laugardaginn 25. maí: Vor í Vesturbæ, húsið opnað kl.13, kl. 14 tón- list Jónas Þ.Dagbjarts- son og Jónas Þórir leika Vínartónlist í bland við íslenska tónlist. Signý Sæmundsdóttir syngur, undirleikari er Jónas Þórir. Harmonikuball: Léttsveit Harmoniku- félags Reykjavíkur leik- ur. Veislukaffi allan dag- inn. Allir aldurshópar velkomnir. Bólstaðarhlíð 43. Dag- ana 25. 26. og 27 maí kl 13-17 verður sýning á munum sem unnir hafa verið í félagsstarfinu í vetur, harmonikkuleikur sunnudag og mánudag, kaffi og meðlæti. Allir velkomnir. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið Hlaðhömrum er á þriðju- og fimmtudögum kl. 13-16.30, spil og fönd- ur. Lesklúbbur kl. 15.30 á fimmtudögum. Jóga á föstudögum kl 11. Kór- æfingar fimmtudaga kl. 17-19. Uppl. hjá Svan- hildi í s. 586 8014, kl. 13- 16. Uppl. um fót-, hand- og andlitssnyrtingu, hárgreiðslu og fótanudd, s. 566 8060 kl. 8-16. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Sameig- inleg sýning á handverki eldri borgara í Hafn- arfirði verður í dag, laugardag, og á sunnu- dag og mánudag í Hraunseli Flatahraunu 3. Opið frá kl. 13-17, kaffisala. Morg- ungangan í dag kl. 10 frá Hraunseli. Vestmannaeyjaferð 2. til 4. júlí, rúta, Herjólfur og gisting í 2 nætur. Upp- lýsingar og skrásetning í Hraunseli sími 555 0142. Félag eldri borgara í Kópavogi. Farið verður til Vestmannaeyja mánudag 24. júní með Herjólfi og komið til baka miðvikudag 26. júní. 1. dagur. Farið frá Þorlákshöfn kl. 12 og farin skoðunarferð um eyjar, kvöldverður. 2. dagur, skoðunarferðir á landi og sjó, kvöldverð- ur. 3. dagur. Brottför frá Eyjum kl. 15.30. Innifalið er: Herjólfs- ferðir, gisting 2 nætur m/morgunmat, 2 kvöld- verðir, skoðunarferðir á landi og sjó og nauðsyn- legur akstur á Heima- ey. Væntanlegir þátt- takendur skrái sig sem fyrst á þátttökulistann. Rútuferð frá Gjábakka kl. 10.15 og Gullsmára kl.10.30. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Mánudagur 27. maí kl. 9 gler- skurður, kl. 11.15 og 12.05 leikfimi, Miðviku- dagur 29. maí kl. 11.15 og 12. 05 leikfimi. Fimmtudagur 30 maí kl. 13 gönguhópur. Vinnustofur fyrir gler- skurð og leirmótun eru opnar áfram á umsömd- um tíma. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Fræðslunefnd FEB stendur fyrir ferð í Skrúðgarða Reykja- víkur 29. maí. Brottför frá Ásgarði kl. 13. 30, skráning á skrifstofu FEB. Á morgun spiluð félagsvist kl. 13. 30. Síð- asta félagsvistin á þess- ari önn. Mánudagur: Brids kl. 13. Þriðjudag- ur: Skák kl. 13. síðasta sinn á þessari önn. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Hlemmi, línudans- kennsla kl. 19.15. Aðal- fundur leikfélags Snúðs og Snældu verður mið- vikudaginn 29. maí kl. 14 í Ásgarði. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum frá kl. 10-12 í s. 588 2111. Skrifstofa félagsins er flutt í Faxa- fen 12, sama síma- númer og áður. Fé- lagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upp- lýsingar á skrifstofu FEB. Gjábakki, Fannborg 8. Miðvikudaginn 29. maí verður kynnt dagskrá sumarsins í Gjábakka og Gullsmára kl. 15, þeir em hafa áhuga á hópastarfi í sumar vin- samlega komið boðum til starfsmanna fyrir 29. maí. Að lokinni kynn- ingu verða kynntir ferðamöguleikar á veg- um Vestfjarðaleiða á sumri komanda, síminn í Gjábakka er 554 3400. Gerðuberg, félagsstarf, Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug á veg- um ÍTR á mánu- og fimmtudögum kl. 9.30. Boccia á þriðjudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 9.30. Veitingar í Kaffi Berg. Upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í s. 575 7720. Norðurbrún 1. Hand- og listmunasýning verð- ur 26. og 27. maí í borð- sal félagsstarfsins kl. 13.30 til 17 báða dag- ana, kaffiveitingar, allir velkomnir. Tómstundastarf eldri borgara í Reykjanesbæ. Sýning á handverki eldri borgara dagana 26.-31. maí, að báðum dögum meðtöldum. Kaffihúsastemning og lifandi tónlist. Tekið á móti munum á sýn- inguna þriðjud. 21. maí í Selinu. Vitatorg. Vor- og sum- arfagnaður verður hald- inn fimmtudaginn 30. maí kl. 17. Matur, gleði, söngur, gaman. Allir velkomnir. Upplýsingar í síma 561 0300. Vesturgata7, Mánudag 27. maí kl. 13 verður far- ið á handverkssýningar í Bólstaðarhlíð 43 og fé- lagsmiðstöð aldraðra, Hraunseli Hafnarfirði , kaffiveitingar. Skoð- unarferð um Kópavog. Skráning í síma 562 7077, takmarkaður sætafjöldi. Miðvikudag 29. maí kl.13:15 verður spilað bingó, rjómaterta með kaffinu, allir vel- komnir Gönguklúbburinn Hana-nú. Morgunganga kl. 10 frá Gjábakka í Kópavogi laugardags- morgna. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjudag kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3-5, og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigs- veg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 á Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA- samtakanna. Félag breiðfirskra kvenna. Sumarferð fé- lagsins á Snæfellsnes verður laugardaginn 1. júní, farið frá Umferð- armistöðinni kl. 9. Upp- lýsingar og skráning fyrir miðvikudaginn 29. maí, sími 553 0491 Mar- grét eða 564 5365 Gunn- hildur. Bandalag kvenna í Reykjavík. Gróðursetn- ingaferð verður þriðju- daginn 28. maí kl. 17 frá Hallveigarstöðum, látið vita um þátttöku fyrir sunnudagskvöld í síma 552 5926, Karitas, 553 3454 Ágústa eða 553 3439 Björg. Gerðuberg félagsstarf. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug á vegum ÍTR á mánu- og fimmtudögum kl. 9.30. Boccia á þriðjudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 9.30, Í dag og morgun kl. 13-16 myndlistarsýning Huga Jóhannessonar opin. Í dag er laugardagur 25. maí, 145. dagur ársins 2002. Urbanusmessa. Orð dagsins: En til eru síðastir, er verða munu fyrstir, og til eru fyrstir er verða munu síðastir. (Lúk. 13, 30.)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.