Morgunblaðið - 25.05.2002, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 67
DAGBÓK
Heiti Potturinn
Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G
og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
5. flokkur, 24. maí 2002
Einfaldur kr. 4.462.000.- Tromp kr. 22.310.000.-
16495B kr. 22.310.000,-
16495E kr. 4.462.000,-
16495F kr. 4.462.000,-
16495G kr. 4.462.000,-
16495H kr. 4.462.000,-
Barnabolir
Nýbýlavegi 12, Kópavogi,
sími 554 4433.
með myndum kr. 590
Mikið úrval
FRÉTTIR
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur hugsjónir og nýtur
velgengni vegna styrks þíns
og raunsæis. Þú berst fyrir
því sem þú trúir á, þar á
meðal frelsi í þjóðfélaginu. Á
árinu munt þú kynnast þín-
um innri manni betur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er líklegt að þú rífist við
systkini þín eða nágranna í
dag því allir vilja halda fast við
sínar skoðanir. Reyndu að
finna einhvern flöt á sam-
komulagi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur áhyggjur af vinnunni
og fjármálum þínum í dag. Þú
vilt ná betri tökum á lífi þínu
en þá þurfa að eiga sér stað
miklar breytingar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Í dag kemstu að raun um að
stefnuna sem þú tókst í lífinu
má rekja til einhvers sem
gerðist fyrir 14 árum. Þú veist
í hvaða átt skal stefna í fram-
tíðinni og hvað þú átt að forð-
ast.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Valdamikið fólk í vinnunni er
ekki sammála þér í dag. Gerðu
því ljóst að það græði ekkert á
að þú tapir og hafi allt að vinna
ef þú sigrar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vonir þínar og draumar um
framtíðina virðast ekki ætla að
rætast um þessar mundir. Þú
verður að horfast í augu við
staðreyndir og reyna að
bjarga því sem bjargað verður.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur byggt upp ákveðið
kerfi til að hafa stjórn á lífi
þínu. Í dag sérðu glöggt hvað
virkar í því sambandi og hvað
ekki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Hugsaðu um daglegt líf þitt og
venjur. Taktu ákvörðun um að
draga úr ósiðum og reyndu að
hlúa betur að jákvæðu þáttun-
um.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft að taka fjármál þín til
rækilegrar endurskoðunar,
m.a. hvernig þú lítur á skuldir
og hvernig þú ferð með fjár-
muni. Jafnvel þótt þú eigir
ekki við fjárhagserfiðleika að
etja er breytinga þörf.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er ljóst að sumir vinir og
sambönd eru ekki lengur eins
dýrmæt og þau voru. Þú hefur
vaxið upp úr þeim.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú er rétti tíminn til að hugsa
betur um heilsuna. Reyndu að
draga úr því sem veldur þér
streitu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er ekki hægt að vinna
valdabaráttu við börn og ungt
fólk með offorsi. Reyndu að
finna sameiginleg mál sem all-
ir geta orðið sammála um.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Eitthvað sem gerist í dag kann
að leiða til þess að þú skiptir
um verustað síðar. Ekki berj-
ast á móti þessari breytingu
heldur sættu þig við hana.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SVAR á grandi við opnunar-
dobli hefur sömu merkingu
og grandsvar við litaropnun
í Standard – sýnir 6-10
punkta. Í því ljósi virðist
hækkun norðurs í tvö grönd
á 14 punkta óþarflega hörð.
Hvað finnst lesandanum um
það?
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 5
♥ K54
♦ ÁD42
♣KD764
Suður
♠ D10843
♥ Á76
♦ K73
♣52
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði Dobl Pass 1 grand
Pass 2 grönd Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vissulega gerir norður
sér grein fyrir því að hann
er á leiðinni í þunnt geim, en
það er margt jákvætt við
spilin hans sem ekki er talið
til punkta. Fimmliturinn í
laufi er góður, ekki síst
vegna þess að ásinn er
örugglega réttur (ef suður á
hann ekki). Þá er einspilið í
spaða jákvætt, en það bend-
ir á langlit hjá makker og
hugsanlega tvær fyrirstöð-
ur. Loks er það lærdómur
reynslunnar að þrjú grönd
vinnast oft á 22-23 punkta
þegar varnarstyrkurinn er
allur á annarri hendinni.
Spilamat norðurs er því
gott.
En er úrspilstækni félaga
hans jafn góð? Taktu að þér
það hlutverk. Út kemur
smár spaði, austur lætur
gosann og þú tekur með
drottningu. Þú spilar strax
laufi að blindum og vestur
kemur með gosann. Hver er
áætlunin?
Þrír slagir á lauf er nóg til
vinnings, svo það er óþarfi
að treysta á ásinn þriðja í
vestur. Hins vegar má aust-
ur aldrei komast inn til að
spila spaða og því er sjálf-
sagt að dúkka laufgosann!
Norður
♠ 5
♥ K54
♦ ÁD42
♣KD764
Vestur Austur
♠ ÁK976 ♠ G2
♥ D1083 ♥ G92
♦ 96 ♦ G1085
♣ÁG ♣10983
Suður
♠ D10843
♥ Á76
♦ K73
♣52
Í þessari legu er þetta
nauðsynleg varúrðarráð-
stöfun, því annars kemst
austur inn á lauftíu síðar og
sendir spaða í gegnum D8xx
og vestur fær þar þrjá slagi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 25.
maí, er áttræður Magnús
Ágústsson, fyrrverandi út-
gerðarmaður, Hafnargötu
9, Vogum, Vatnsleysu-
strönd. Kona hans er Hall-
veig Árnadóttir. Magnús er
að heiman í dag.
95 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 25.
maí, er 95 ára María Jó-
hannsdóttir, fv. stöðvar-
stjóri Pósts og síma, Flat-
eyri. Hún tekur á móti
gestum í dag á heimili sonar
síns, Einars Odds, Sól-
bakka, Flateyri.
1.c4 f5 2. g3 Rf6 3.
Bg2 e6 4. Rf3 d5 5.
O-O Bd6 6. Rc3
O-O 7. d3 c6 8.
cxd5 exd5 9. e4 d4
10. Rxd4 Bxg3 11.
Rxf5 Bc7 12. Rg3
Rg4 13. Be3 Dh4
14. h3 Rf6 15. Kh2
15... Bxh3 16.
Bxh3 g5 17. Db3+
Kh8 18. Bxg5
Rg4+ 19. Kg2
Staðan kom upp
á Reykjavíkur-
skákmótinu sem
lauk í mars sl.
Kjartan Guðmundsson
(2.034) hafði svart gegn Sig-
urði Ingasyni (2.059).
19...Hxf2+! 20. Hxf2 Dxg3+
og hvítur gafst upp enda mát
í næsta leik.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
DRAUMUR
Fannhvítu seglin flytja
fleyið að óþekktri strönd,
innanborðs erum við bæði
og ætlum að nema þar lönd,
sem vitið og víðsýnið ráða
og voldug mannúðin býr,
þar friður og farsældin ríkir
og finnast ei mannleg villidýr.
Nú hillir þau óskalönd uppi,
en efinn mig tekur við hönd:
ef til vill brjótum við bátinn
og berumst sem lík upp að strönd.
Albert G. Sölvason
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 25.
maí, er fimmtugur Rafn
Benediktsson, bóndi á Stað-
arbakka 1, Húnaþingi
vestra. Af þessu tilefni mun
hann, og fjölskylda hans,
taka á móti gestum í félags-
heimilinu Ásbyrgi, Laugar-
bakka, frá kl. 20 sunnudag-
inn 16. júní nk.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgðar-
manns og símanúmer.
Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið
ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Með morgunkaffinu
Konan mín skilur mig ekki og ekki þjónninn heldur.
VIÐ skólaslitaathöfn í Vélskóla
Íslands þann 18. maí síðastliðinn
voru brautskráðir 35 vélstjórar
og vélfræðingar. Athöfnin fór
fram í hátíðarsal Sjómannaskól-
ans að viðstöddum fjölmörgum
gestum.
Þrír voru brautskráðir með 1.
stig, nítján með 2. stig og þrettán
með 4. stig sem er grunnurinn
undir hæstu starfsréttindi og er
það 208 eininga nám.
Að lokinni útskriftarathöfn
fengu eftirtaldir 4. stigs útskrift-
arnemar verðlaun fyrir góðan
námsárangur: Hallgrímur Steins-
son, fyrir vélfræðigreinar, verð-
laun sem veitt eru af Lands-
sambandi íslenskra útvegsmanna.
Jóhann Rúnar Guðbergsson, fyrir
véltækniáfanga og einnig fyrir
rafeindatækni og iðntölvur, verð-
laun sem veitt eru af skólanum.
Jón Ölver Kristjánsson, fyrir raf-
magnsfræðigreinar, verðlaun sem
veitt eru af Olíufélaginu ESSO hf.
Einnig fékk hann verðlaun fyrir
raungreinar sem veitt eru af skól-
anum. Snæþór Vernharðsson, fyr-
ir skipahönnun og stöðugleika,
verðlaun sem veitt eru af VER
skiparáðgjöf ehf.
Vélstjórafélag Íslands veitti Elís
Pétri Elíssyni sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir störf að félagsmálum.
Eftirtaldir útskriftarnemar 2.
stigs fengu verðlaun fyrir al-
mennt góðan námsárangur: Vig-
fús Þormar, Hermann Guðberg
Gíslason, Júlíus Víðir Guðnason
og Ingimar Kristinsson.
Margir afmælisárgangar eða
fulltrúar þeirra mættu við skóla-
slitin og má þar nefna 25, 30, 40
og 50 ára útskriftarnema.
Í ræðu sinni minntist skóla-
meistari Björgvin Þór Jóhannsson
á að úttekt hefði verið gerð á
námi skólans og uppfyllti hann
námskröfur Alþjóða siglingastofn-
unar sem er grunnur að alþjóð-
legum atvinnuréttindum. Jafn-
framt gat hann þess að há-
skólastigið hefði opnast gagnvart
skólanum og væri 4. stigs vél-
stjórapróf því ígildi góðs stúd-
entsprófs þegar um væri að ræða
raunvísindafög á háskólastigi svo
sem tæknifræði og verkfræði svo
dæmi séu tekin, segir í frétta-
tilkynningu.
Í upphafi skólaslitaathafn-
arinnar lék Ástríður Alda Sigurð-
ardóttir lag á píanó. Að athöfn
lokinni var öllum viðstöddum boð-
ið til kaffidrykkju í matsal skól-
ans en Kvenfélagið Keðjan sá um
veitingar, segir ennfremur í frétt.
Útskriftarnemendur 4. stigs vor 2002.
Brautskráning
frá Vélskóla Íslands
HEIMSÞORP – samtök gegn kyn-
þáttafordómum á Íslandi – halda upp
á eins árs afmælið sunnudaginn 26.
maí kl. 15 í Hinu húsinu við Póst-
hússtræti. Boðið verður upp á kaffi
og með því, að loknum skemmtiatrið-
um og ræðuhöldum. Þau grundvall-
arréttindi að fólk sé metið af sínum
eigin verðleikum en ekki húðlit eða
fyrirfram mótuðum staðalmyndum
verða grunnstefið í starfi Heims-
þorps, segir í fréttatilkynningu.
Eins árs afmælishátíð Heimsþorps