Morgunblaðið - 25.05.2002, Qupperneq 68
FÓLK Í FRÉTTUM
68 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
!
#
" ##$%
"
##$% &'( )" ##$%
(*+"##$%(," ##$%
"'-.%(/-0$(1
(
".%( (*"##$% ("##$% )"
'.%( +"'-.%( KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel
Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss.
Fö 31. maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 1. júní kl 20
Fö 7. júní kl 20
Fi 13. júní kl 20
Síðustu sýningar í vor
BOÐORÐIN 9 eftir Ólaf Hauk Símonarson
Su 26. maí kl 20 - Næst síðasta sýning
Tilboð í maí kr. 1.800
Su 2. júní kl 20 - SÍÐASTA SÝNING
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í kvöld kl 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 8. júní kl 20 - AUKASÝNING
Ath: ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
AND BJÖRK OF COURSE ...
e. Þorvald Þorsteinsson
Su 26.maí kl 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 1. júní kl 20 - LAUS SÆTI
FYRST ER AÐ FÆÐAST e. Line Knutzon
Í kvöld kl 20 - AUKASÝNING
ATH: Síðasta sinn
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Su 26. maí kl 16 - Ath. breyttan sýn.tíma
Fi 30. maí kl 20 - LAUS SÆTI
ATH: Síðustu sýningar í Reykjavík
SUMARGESTIR e. Maxim Gorki
Nemendaleikhús Listaháskólans og LR
Þri 28. maí kl 20
Mi 29. maí kl 20
Lau 1. júní kl 15
Su 2. júní kl 15
Ath: AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
JÓN GNARR
Fö 31. maí kl 20 - LAUS SÆTI
Ath. Afsláttur sé greitt með MasterCard
GESTURINN e. Eric-Emmanuel Schmitt
Í kvöld kl 20 - Næst síðasta sinn
Fö 31. maí kl 20 - Síðasta sinn
Ath. Sýningum lýkur í maí
Stóra svið
Nýja sviðið
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Litla sviðið
3. hæðin
5 . 6% % 5 - 7*%$
!8$ 6% BREIÐIN, Akranesi: Dansleikur
með Lúdó og Stefán.
BROADWAY: Kosningavaka R-
listans laugardagskvöld. Hljómsveit-
in Magga Stína og Hringir leika fyr-
ir dansi.
CAFÉ AMSTERDAM: Rokk-,
salsa-, pönk- diskó- og sálartríóið
Úlrik.
CAFÉ CATALÍNA: Hljómsveitin
Ari Jóns og Hilmar Sverrisson.
CAFE RÓM, Hveragerði: Ber
skemmtir.
EGILSBÚÐ, Neskaupstað: Kosn-
ingavaka allra flokka laugardags-
kvöld kl. 23:00 til 3:00. Kosninga-
sjónvarp á breiðtjaldi. Þorfunkel,
Vladimir og Sævi leika.
GAMLI BAUKUR HÚSAVÍK: KK.
GAUKUR Á STÖNG: SSSÓL
GULLÖLDIN: Stórsveit Ásgeirs
Páls skemmtir.
HÖLLIN, Vestmannaeyjum: Stuð-
menn.
KAFFI REYKJAVÍK: Ný Dönsk.
KRINGLUKRÁIN: Hljómsveitin
Léttir sprettir.
NASA: Kosningavaka D-listans.
NIKKABAR, Hraunbergi 4:
Mæðusöngvasveit Reykjavíkur leik-
ur og syngur.
O’BRIENS, Laugavegi 73: Dúett-
inn Mogadon.
ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm-
sveit Geirmundar Valtýssonar.
SJALLINN, Akureyri: Í svörtum
fötum.
SJÁVARPERLAN, Grindavík:
Hljómsveitin Spútnik.
SPOTLIGHT: Eurovision og kosn-
ingastemmning til miðnættis laug-
ardagskvöld, kl. 17:00 til 6:00 DJ-
CESAR í búrinu. 20 ára aldurstak-
mark.
VALASKJÁLF, EGILSSTÖÐUM:
Á móti sól leikur laugardagskvöld
ásamt DJ Þresti 3.000 og ljósálfinum
Geir glæsimenni.
VALHÖLL, Eskifirði: Buff.
VESTURPORT, Vesturgötu 18:
Kosningasjónvarpið á breiðtjaldi
laugardagskvöld kl. 19:00. Hljóm-
sveitin BÍTLARNIR flytur gömlu
góðu bítlalögin fram á nótt. Fram-
bjóðendur líta inn og taka lagið.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Ljósbrá kemur saman eftir
margra ára hlé.
VÍDALÍN: F-listinn með kosn-
ingavöku laugardagskvöld. Allir vel-
komnir. Miðnes spila.
FráAtilÖ
IRRÉVERSIBLE, mynd argentínska kvikmyndagerð-
armannsins Gaspar Noé, sem þátt tekur í keppninni
um Gullpálmann og var frumsýnd í gær, hefur aldeil-
is ýtt við fólki í Cannes, sökum óheflaðs ofbeldis og
kynlífslýsinga.
Á blaðamannasýningu sem blaðamaður Morg-
unblaðsins sótti ofbauð mörgum áhorfendum svo að
þeir yfirgáfu salinn er myndin var skammt á veg
komin á meðan aðrir létu sig hafa það að sitja hana í
gegn og bauluðu síðan hástöfum. Sagan er einföld
hefndarsaga en kvikmyndagerðin er í óhefðbundnara
lagi og einkar tilraunakennd, myndavélin á fleygiferð
alla liðlanga myndina, upp og niður og fram og til
baka, eins og tökumaðurinn sé staddur á skipsdalli í
brotsjó. En það sem gerir myndina hvað skringileg-
asta er að sagan er sögð afturábak – sem virðist vera
orðið vinsælt í kjölfar bandarísku spennumynd-
arinnar Memento – og byrjar á hrottafengnu hefnd-
arverki, svo opinskáu ofbeldisatriði að annað eins
hefur vart sést á almennum kvikmyndasýningum.
Ekki bætti svo líðan áhorfenda á blaðamannasýning-
unni er stuttu síðar var komið að nær fimmtán mín-
útna löngu, berskjölduðu nauðgunaratriði, svo til
óklipptu, þar sem engar málamiðlanir eru gerðar eða
tilraunir til að hylja hrottaskap slíks ofbeldisverks.
Á blaðamannafundi sem haldinn var fyrir frumsýn-
inguna í gær sáu nokkrir blaðamenn ástæðu til þess
að baula á aðstandendur myndarinnar er þeir gengu í
salinn. Leikstjórinn Noé (Carnie, Seul Contre Tous)
sagðist vel hafa gert sér grein fyrir að myndin yrði
umdeild en hann áréttaði fyrir mönnum að hafa hug-
fast að þetta væri bara bíómynd og sviðsett ofbeldi,
yfirlýsing sem vakti kurr meðal margra viðstaddra.
Leikarar myndarinnar, þau Monica Bellucci (Broth-
erhood of the Wolf, verður í næstu Matrix-myndum),
Vincent Cassel, unnusti hennar (Brotherhood of the
Wolf og Le Haine), og Albert Dupontel tóku undir
með leikstjóranum og varð tíðrætt um að ólíkt sjón-
varpinu, þar sem verið væri að mata mann stöðugt og
óumbeðið af ofbeldi, hefði maður völina á því hvort
maður legði leið sína í bíó til að sjá slíka mynd.
„Svona myndum hef ég einfaldlega gaman af,“ sagði
leikstjórinn og virtist ekki láta hörð viðbrögð mikið á
sig fá. „Ef þessi mynd veldur hneykslan“, bætti Cass-
el við, „þá er það vegna þess að Cannes þarf á
hneyksli að halda.“
Baulað í bíói
Cannes. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Vincent Cassel, Monica Belluci og Albert Dupontel
eru aðalleikarar í hinni umdeildu Irréversible.
Mynd í aðalkeppninni í Cannes veldur reiði
skarpi@mbl.is
Í DAG frumsýnir Barnakórinn
Heimsljósin nýjan söngleik sem
nefnist Söngurinn í skóginum og
er byggður á ævintýri frá Víet-
nam. Leikurinn fer fram á íslensku
en samtvinnuð eru kórlög frá Víet-
nam. Barnakórinn Heimsljósin er
fjölmenningarlegur barnakór og
markmið hans er að veita innsýn í
aðra menningarheima og stuðla að
samvinnu barna af ólíkum upp-
runa í skapandi starfi. Í kórnum
hafa verið börn sem eiga rætur
sínar að rekja til Víetnam, Taí-
lands, Albaníu, Tyrklands, Þýska-
lands, Írlands, Bandaríkjanna,
Japan, Rússlands og Filippseyja.
Verkefni kórsins hafa verið lög frá
þessum löndum, og nokkrum til,
sungin yfirleitt bæði á frummálinu
og íslensku, segir meðal annars í
fréttatikynningu frá Heimsljósum.
Þórey Sigþórsdóttir leikstýrir
og gerir leikgerð, John Speight út-
setti lögin frá Víetnam og semur
alla tónlist í söngleiknum og tón-
listarstjóri er Júlíana Rún Indr-
iðadóttir.
Söngurinn í skóginum hefst
klukkan 17 í Tjarnarbíói.
Börn leika fyrir börn
Morgunblaðið/Kristinn