Morgunblaðið - 25.05.2002, Síða 70
FÓLK Í FRÉTTUM
70 LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKT fyrirtæki hlaut Cool
Stuff-verðlaun fréttablaðsins Radio
World á ráðstefnu bandarískra ljós-
vakamiðla í Las Vegas.
Það var hugbúnaðarfyrirtækið
Gangverk sem hlaut hin eftirsóttu
verðlaun, sem fréttablaðið Radio
World veitir árlega á ráðstefnu og
sýningu NAB (National Association
of Broadcasters), sem var haldin í
Las Vegas. Um 12–15 fyrirtæki fá
viðurkenningu fyrir flotta hönnun,
hugbúnaðarþróun og almennt nýjar
hugmyndir í greininni. Um 150 þús-
und manns sækja sýninguna árlega,
og fyrirtækin sem sýna eru tugir
þúsunda.
Radio World er stærsta frétta-
blað sinnar tegundar. Það er ætlað
stjórnendum og starfsmönnum ljós-
vakamiðla. Blaðið er gefið út á átta
tungumálum í rúmlega 100 þjóð-
löndum.
Einróma lof gagn-
rýnenda og dómara
„Aðeins örfá þeirra fyrirtækja
sem sýna nýjar vörur á NAB eru
tilnefnd til þessara verðlauna okkar
og enn færri eru verðlaunuð,“ segir
Paul McLane, ritstjóri Radio
World. „Mayo-útvarpskerfið fékk
einróma lof gagnrýnenda og dóm-
nefndarinnar. Það fór aldrei á milli
mála að Gangverk fengi verðlaunin
í ár.“
Mayo-útvarpskerfið gerir venju-
lega útvarpsstöð að nútímalegum
gagnvirkum miðli, þar sem hlust-
endur geta valið lög til spilunar,
fengið upplýsingar um lagið sem er
í spilun á hverjum tíma, skráð sig
fyrir SMS-tilkynningum þegar
uppáhaldslag þeirra er að fara í
spilun, tekið þátt í leikjum í auglýs-
inga- og kynningarskyni, ásamt
fjölmörgu öðru með aðstoð GSM-
símans eða vefsíðu útvarpsstöðvar-
innar.
„Dómnefndin var sérstaklega
hrifin af hvernig MAYO-útvarps-
kerfið gefur hlustendum vald til að
velja tónlist og annað dagskrárefni
sem á að útvarpa, og þá ekki síst
hvernig kerfið eykur tekjumögu-
leika útvarpsstöðvanna með SMS-
samskiptum við hlustendur sína,“
segir Paul McLane, ritstjóri Radio
World, ennfremur.
„Cool Stuff-verðlaunin eru mikill
heiður fyrir fyrirtæki okkar og
gæðastimpill á Mayo-kerfið,“ segir
Óli Björn Stephensen, fram-
kvæmdastjóri Gangverks. „Verð-
launin segja okkur einnig að við er-
um á réttri braut í þróun
hugbúnaðar fyrir útvarp, en að okk-
ar áliti hefur útvarpsrekstur lengi
staðið í stað hvað varðar gagnvirkni
og aðgang hlustenda að dagskrá
uppáhalds útvarpsstöðva sinna.“
Fyrsta útvarpsstöðin sem notar
Mayo kerfið er Muzik 88,5
(www.muzik.is), en á aðeins átta
mánuðum hefur Muzik 88,5 náð
rúmlega 10% hlustun áheyrenda á
aldrinum 12–24 ára, en rúmlega níu
þúsund manns eru skráðir notend-
ur. Mayo-kerfið sendir frá sér
SMS-skilaboð til hlustenda sinna
svo hundruðum skiptir, hvern dag,
en skilaboðin tryggja stöðinni mik-
ilvægar tekjur.
Gangverk á nú í samningavið-
ræðum við útvarpsstöðvar víða um
heim. Fyrsta uppsetning kerfisins
erlendis stendur yfir þessa dagana.
Kerfið hefur verið kynnt fyrir bæði
sjálfstæðum og ríkisreknum út-
varpsstöðvum í Evrópu.
„Erum á réttri braut“
Morgunblaðið/Jim Smart
Gangverksmenn horfa björtum augum til framtíðar.
Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki verðlaunað í Las Vegas
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
PÁLMI Gestsson er einn af ástsæl-
ustu leikurum þjóðarinnar og þarf
hann vart að kynna. Hann hefur á
leikferlinum túlkað fjöldan allan af
fjölbreyttum persónum, hvort sem
er á leiksviði eða á hvíta tjaldinu.
Pálmi var einnig einn fimmenning-
anna sem kitluðu hláturtaugar
landsmanna árum saman á laug-
ardagskvöldum undir formerkj-
um Spaugstofunnar.
Um þessar mundir fagnar
Pálmi tuttugu ára leikafmæli
sínu og samþykkti af því tilefni að
svara áleitnum spurningum.
Hvernig hefurðu það í dag?
Ljómandi gott.
Hvað ertu með í vösunum?
Í augnablikinu: lítinn penna, klink
og saxófónblað.
Er mjólkurglasið hálf-
tómt eða hálffullt?
Það er ekkert mjólkurglas!!
Ef þú værir ekki leikari hvað
vildirðu þá helst vera?
Hrossabóndi.
Hefurðu tárast í bíói?
Já, örugglega, man ekki
hvenær það var síðast.
Hverjir voru fyrstu tón-
leikarnir sem þú fórst á?
Vortónleikar Tónlistar-
skóla Bolungarvíkur fyrir
um 35 árum. Ég spilaði þar
sjálfur á saxófón.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar
á þér?
Það fer enginn leikari í taugarnar á
mér.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Lystugur með afbrigðum!
Finndu fimm orð sem lýsa per-
sónuleika þínum vel.
Köttur, klukka, hreindýr, svín og
endur...
Bítlarnir eða Rolling Stones?
Bítlarnir.
Hver var síðasta bók sem þú last
tvisvar?
Gróður Jarðar eftir Knut Hamsun.
Hvaða lag kveikir blossann?
„Do you love me“ með Meat Loaf.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Óperuna Tannhäuser eftir Wagner.
Hvert er þitt mesta prakk-
arastrik?
Það er of ljótt til að segja frá því!
Hver er furðulegasti matur sem
þú hefur bragðað?
Enginn sérstakur. Hef borðað ótrú-
legustu hluti og finnst ekkert
furðulegt við það.
Hverju sérðu mest eftir í lífinu?
Að hafa ekki haldið áfram í saxó-
fónnámi.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Já.
Ekkert mjólkurglas!
SOS
SPURT & SVARAÐ
Pálmi
Gestsson