Morgunblaðið - 26.05.2002, Side 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SMÁRALIND S. 569 1550
KRINGLUNNI S. 569 1590
AKRANESI S. 430 2500
Þú kau
pir nún
a en bo
rgar ek
ki fyrst
u
afborg
un fyrr
en eft
ir
4 mánu
ði, vax
talaust
.
Og þá
er mög
uleiki
á allt a
ð 32 m
ánaða
raðgre
iðslu.
FYRSTA
AFBO
RGUN
Í OKTÓ
BER!
0VEXTIR%
Kenwood bíltæki KDC-2021
4 x 45 w útgangsafl. Útvarp og
geislaspilari. Krafmikið og
fallegt tæki sem sómir sér vel
í hvaða bíl sem er.
27.995,-
KJÓSTU
KENWO
OD!
HÆKKAÐU
Í BOTN!
Fyrirlestraröð Arkítektafélagsins
Áhersla lögð á
blandað úrval
í fyrirlestrum
Arkítektafélag Ís-lands heldur útinokkuð öflugu
fræðslustarfi samhliða
öðru starfi sem heyrir
undir stéttarfélög. Má í
því sambandi nefna fyrir-
lestraröð sem félagið
stendur fyrir og er fyrir
nokkru hafin. Nokkrir fyr-
irlestrar hafa þegar verið
fluttir, en nokkrir eru líka
eftir. Í næstu viku er næsti
fyrirlestur fyrirhugaður.
Sérstök nefnd á vegum fé-
lagsins heldur utan um
þetta fræðslustarf, sem á
sér nokkuð langa forsögu.
Í þeirri nefnd er m.a. Örn
Baldursson arkítekt hjá
teiknistofunni Inni og úti
og svaraði hann nokkrum
spurningum Morgun-
blaðsins um þessa fyrirlestra og
starfsemi Arkítektafélagsins.
– Hver er tilurð fyrirlestrarað-
arinnar og tilgangur hennar?
„Fyrirlestraröð Arkítekta-
félags Íslands, AÍ, er vettvangur
félagsmanna AÍ til þess að fylgj-
ast með hvað starfsbræður þeirra
hérlendis og erlendis eru að gera.
Það má því segja að þetta sé bæði
tækifæri til endurmenntunar og
umræðna um byggingarlist.“
– Segðu okkur eitthvað um fyr-
irlestrana?
„Fyrirlestrarnir á vordagskrá
AÍ eru sex. Búið er að halda fjóra
og tveir eru eftir. Elísabet Gunn-
arsdóttir arkítekt frá Ísafirði
fjallaði um eigin verk. Síðan kom
Fanney Hauksdóttir arkítekt frá
Akureyri og fjallaði einnig um
eigin verk. Þriðji fyrirlesturinn
var helgaður Scmidt, Hammer &
Larsen arkítektarstofu í Árósum
í Danmörku. Morten Scmidt
fjallaði um verk stofunnar, þ.á m.
Skuggahverfið í Reykjavík. Á
fjórða fyrirlestrinum kom Sig-
björn Kjartansson frá Glámu/
Kím arkítektastofu og fjallaði um
verk stofunnar.
Næstkomandi fimmtudag er
síðan fimmti fyrirlesturinn. Þá er
fyrirlestur um hollensku arkí-
tektastofuna OMA en Dan Wood
mun flytja hann. Hann er meðeig-
andi Rem Koolhaas sem stofnaði
OMA. Stofan er mjög þekkt á
heimsmælikvarða og er fengur að
því að fá þá til þess að koma hing-
að til lands. OMA hefur alla tíð
þótt framsækin arkítektastofa
hvort sem er á sviði skipulags-
mála eða byggingahönnunar.
Stærsta heildstæða verk þeirra
er endurskipulagning og hönnun
hverfa í borginni Lille í Frakk-
landi auk fjölda annarra stærri og
smærri verkefna á sviði bygging-
arlistar.
Fimmtudaginn 6. júní er svo
sjötti og síðasti fyrirlesturinn að
þessu sinni. Jean-Francois Lej-
eune, prófessor við háskólann í
Miami í Flórída, er
belgískur arkítekt og
skipulagsfræðingur
sem hefur verið mjög
virkur í skipulagsfræð-
um. Hann hefur komið
víða við með fyrirlestra, sýningar
og gefið út fjölda bóka um skipu-
lag sem byggjast að mestu leyti á
„The New Urbanism“ kenningum
í skipulagsfræðum.“
– Fyrir hverja eru þessir fyr-
irlestrar og hverjir sækja þá
helst?
„Fyrirlestrarnir eru öllum opn-
ir en það eru helst arkítektar sem
sækja þá.“
– Hvaða áherslur eru helstar,
frá hendi Arkítektafélags Ís-
lands, í þessum fyrirlestrum?
„Fyrirlestrarnir eru helst um
eigin verk þeirra arkítekta eða
stofa sem við bjóðum hverju
sinni. Í vor höfum við lagt áherslu
á að blanda úrvalið þ.e. við höfum
verið með þrjár íslenskar stofur
sem hafa kynnt sín verk og svo
eru þrjár erlendar sem kynna sín
verk. Scmidt, Hammer & Larsen
kynnti eigin verk og Skugga-
hverfið, frægð OMA er svipuð
eins og U2 fengist til að halda tón-
leika á Íslandi og Jean-Francois
Lejeune fjallar um skipulagsmál
sem eru í brennidepli hér á landi
um þessar mundir. Að loknum
fyrirlestrum eru félagsmenn
hvattir til þess að spyrja fyrirles-
ara spurninga til þess að koma á
umræðum um efni fyrirlestranna
og byggingarlist almennt.“
– Eiga svona fyrirlestrar sér
langa hefð hjá Arkítektafélagi Ís-
lands?
„Já, en það var um það bil 1990
sem þetta komst í fastar skorður
með stofnun dagskrárnefndar AÍ.
Þá var farið að gefa út sérstakt
vor- og haustyfirlit AÍ með helstu
viðburðum. Þar á undan hafði
skemmtinefnd félags-
ins haldið utan um
þetta þ.e. hefðin fyrir
fyrirlestrum er löng.“
– Eru menn duglegir
að mæta á fyrirlestr-
ana og hlýða á boðskap þeirra?
„Það er misjafnt eftir efni fyr-
irlestranna hverju sinni, en þetta
rokkar frá 30 til 100 manns. Þess
ber að geta að heildarfjöldi fé-
lagsmanna AÍ á Íslandi er um það
bil 250 þannig að 30 manns er
rúmlega 10% félagsmanna svo
maður vitni nú í þessa frægu að-
sókn miðað við höfðatölu.“
Örn Baldursson
Örn Baldursson fæddist í
Reykjavík 8. október 1967. Lauk
prófi í arkítektúr frá Tækniskól-
anum í Þrándheimi í Noregi árið
1994. Starfaði síðan í Þránd-
heimi fram í október árið 1997,
en kom þá heim til Íslands og hóf
störf á teiknistofunni Úti og inni
í Reykjavík þar sem hann vinnur
enn í dag. Hann er einn þriggja
arkítekta í framkvæmdanefnd
Arkítektafélags Íslands sem sér
m.a. um fyrirlestraraðirnar sem
um ræðir í viðtalinu. Maki Arnar
er Bergþóra Njála Guðmunds-
dóttir blaðamaður og eiga þau
eitt barn, Kolbein Arnarson,
fjögurra ára.
Hefðin fyrir
fyrirlestrum
er löng
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi á föstudag sjóntækjafræðing
í þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að hafa dregið sér
vörur fyrir rúma milljón króna af
lager gleraugnabúðar Hagkaupa í
Skeifunni og tekið 50.000 krónur úr
sjóðsvél. Samstarfsmaður mannsins
var sýknaður af ákærunni.
Vörurnar voru hafðar til sölu í
verslun á Laugavegi sem sakborn-
ingarnir áttu stóran hlut í.
Rannsókn málsins hófst árið 1999
vegna gruns um fjárdrátt og trygg-
ingasvik hjá starfsfólki gleraugna-
búðarinnar. Við athugun reyndist
óútskýrð vörurýrnun birgða nema
rúmlega 6,2 milljónum króna. Þegar
grunur vaknaði um brotin merktu
starfsmenn Hagkaupa 300 pakka
með sjónlinsum á lager gleraugna-
búðarinnar með því að stinga með
nál í umbúðirnar. Fundust 52 slíkir
pakkar við húsleit í versluninni á
Laugavegi auk lesgleraugna, sjón-
auka og stækkunarglers svo eitt-
hvað sé nefnt. Sá sem var dæmdur
sagðist hafa fengiðstóran hluta af
vörunum frá heildverslun sem einn-
ig var í viðskiptum við gleraugna-
búðina en mikill losarabragur var á
afhendingu á vörum. Þá var bók-
haldi fyrirtækisins og birgðaskrá
svo ábótavant að ekki var á því
byggt fyrir dómi. Ekki var heldur
byggt á framburði manna sem báru
að þeir hefðu flutt mikið magn af
vörum á milli verslananna, vitandi
að þær voru illa fengnar, þar sem
þeir áttu hlut í versluninni á Lauga-
vegi. Annar var því sýknaður en
hinn dæmdur fyrir hluta ákæruat-
riðanna.
Bótakröfu var vísað frá dómi þar
sem hún var sett fram af Hagkaup-
um en málið var upphaflega kært
f.h. Baugs hf. Í dómnum segir að
rannsókn lögreglu hafi dregist úr
hófi fram og m.a. af þeim sökum var
dómurinn skilorðsbundinn til
tveggja ára.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
kvað upp dóminn. Af hálfu lögreglu-
stjórans í Reykjavík flutti Guðjón
Magnússon málið. Hilmar Magnús-
son hdl. varði þann sem sýknaður
var en Hilmar Ingimundarson hrl.
var hinum til varnar.
Dró sér vörur hjá Hagkaup-
um og seldi annars staðar
Í Nato nafni, amen.
HARALDUR ÖRN Ólafsson Ever-
est-fari kemur til landsins í dag,
sunnudag. Klukkan 17 mun bak-
varðasveit hans standa fyrir mót-
tökuathöfn í Vetrargarði Smára-
lindar. Skemmtiatriði verða í boði.
Með Everestgöngunni lauk Sjö-
tindaleiðangri Haraldar Arnar
sem hófst með uppgöngu á Denali
9. júní í fyrra. Haraldur Örn er
fimmti maðurinn í heiminum til að
komast á hæsta tind hverrar
heimsálfu og suður- og norðurpól-
inn. Haraldur setti jafnframt
heimsmet í því að komast á pól-
ana og Hátindana sjö á sem
skemmstum tíma, eða á hálfu
fimmta ári.
Heimsmet-
inu fagnað í
Smáralind
♦ ♦ ♦