Morgunblaðið - 26.05.2002, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 26.05.2002, Qupperneq 30
LISTIR 30 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SÝNING Bjarkar Guðnadóttur lætur lítið yfir sér, svo lítið reyndar að það er enginn vandi að skoða hana án þess að sjá nokkurn skapaðan hlut. Ef menn eru hins vegar nægi- lega forvitnir – innvígðir, eins og rót- artungurnar kjósa fremur að kalla þá sem haldnir eru heilbrigðum áhuga, í von um að geta stimplað listir sem sérhagsmunamál fáeinna, helst stéttalega útvalinna – opnast fyrir þeim sýn á okkar ástkæra samfélag sem okkur skortir sjónarhorn til að átta okkur á að sé reynd mála. Björk afhjúpar nefnilega með einkar sparsömum hætti einangrun manns frá manni í okkar ofureinka- vædda nútímasamfélagi þar sem samskipti og boðskipti fara fram óbeint með gluggapósti, bæklingum og ruslpósti af hvers kyns toga. Það er í illa upplýstu anddyri fjölbýlis- húsa sem óvænt stefnumót eiga sér helst stað milli íbúanna, á leið í og úr vinnu. Gallinn er bara sá að slík sam- skipti eru fullkomlega skilyrt af klukkunni og vinnutímanum. Í leið- inni er staldrað við pósthólfin og að- gætt hvað þar er að finna. En því miður er flestur póstur eins og fyr- irmæli í endalausum píluleik. Rukk- unarbréf senda okkur í bankann, skattskýrslan til skattstjórans og auglýsingapésarnir í stórmarkaðinn. Til þess er leikurinn gerður að hafa áhrif á daglegt líf okkar. En til hvers er þá verið að leita log- andi ljósi með stækkunargleri í rökkvuðu anddyrinu? Eina raunhæfa svarið virðist vera að Björk sé á hött- unum eftir beinum mannlegum sam- skiptum, nokkru sem fer þverrandi í niðurnjörfuðu og ofurskipulögðu lífi okkar nútímamanna jafnvel þótt við búum nær hver öðrum en nokkru sinni fyrr í sögunni. Því gæti óvæntur glaðningur í formi kærkominnar sendingar í póstkassanum, eða óvæntra funda við aðra persónu af holdi og blóði rofið nauðhyggju æv- intýrasnauðrar hversdagstilveru. Slíkur happafengur væri á við heilaga stund, boðun og endurlausn. Vegna þess hve lítið er um slíka félagslega könnun í íslenskri list verður að telja sýningu Bjarkar Guðnadóttur meðal þeirra athyglisverðustu í galleri- @hlemmur.is á þessu ári. Óður til einmanaleikans MYNDLIST galleri@hlemmur.is Til 26. maí. Opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18. MYNDBAND & LJÓSMYNDIR BJÖRK GUÐNADÓTTIR Frá sýningu Bjarkar Guðnadóttur – Heilagar stundir. Halldór Björn Runólfsson HÚBERT Nói opnar myndlistarsýn- ingu í anddyri Hallgrímskirkju í dag, sunnudag, kl. 12.15. Á sýning- unni, sem er á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju, sýnir Húbert olíu- málverk sem eru unnin á þessu og síðasta ári. Verkin eru úr flokki verka sem hann hefur unnið frá árinu 1996 og eru staðsetning- arverk þar sem notast er við stað- setningartæki (GPS) þannig að sjón- punktur og sjónstefna eru skráð á ramma verksins og er markmið verkanna að skoða saman hátækni (vitsmuni) og tilfinningaminni. Þetta tvíeðli er einkennandi fyrir verk Húberts Nóa sem og staðsetn- ingar, þ.e. hvar vitsmunir og tilfinn- ingar eiga sér snertiflöt. Húbert Nói er fæddur árið 1961 og lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987. Hann hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýningin stendur til 29. ágúst og er opin alla daga frá 9–18. Verk eftir Húbert Nóa. Snertiflötur vits- muna og tilfinninga Listahátíð í Reykjavík Dagskráin í dag Sunnudagur 26. maí Kl. 14 og 17 Íslenska óperan Sápukúlusýningin Ambrossia. Spænski arkitektinn og listamaðurinn Pep Bou frá Barcelona gerir ótrúlegar kúnstir með litskrúðugum sápukúlum. Sýning fyrir alla fjölskylduna. Kl. 14 og 15 Gerðuberg Týndar mömmur og talandi beinagrindur. Barnasýning frá Pero leikhúsinu í Stokk- hólmi. Sýningin er fyrir börn á aldrinum þriggja til fimm ára. Höfundur og aðal- leikari: Bára Magnúsdóttir. Sellóleikari Katrin Forsmo. Leikstjóri: Peter Engkvist. Kl. 20.00 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Hafnarhússkvöld. Shakuhachi og fleiri flautur. Teruhisa Fukuda einn helsti núlif- andi meistari shakuhachi-flautunnar og Kolbeinn Bjarnason flautuleikari leika saman á shakuhachi og fleiri flautur. Meðal verka á efnisskránni er verk eftir Atla Heimi Sveinsson. Gestaleikari á tón- leikunum verður shamisenleikaranum Shiho Kineya. Shamisen er japanskt strengjahljóðfæri Kl. 20.00 Þjóðleikhúsið Hollendingurinn fljúgandi. Síðasta sýning. SENDIRÁÐ Spánar og Salurinn í Kópavogi standa fyrir gítartón- leikum í Salnum í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20. Þar mun gítar- leikarinn Josep Henrí- quez leika verk eftir spænsk tónskáld, auk eigin verka. Á efnis- skrá verða meðal ann- ars verk eftir Gaspar Sanz, Joaquín Rodrigo, Valentín Bielsa, Delfín Colomé, Enrique Granados og Isaac Albéniz. Sendiherra Spánar, rithöfundurinn Eduardo Garrigues, verður viðstaddur tónleikana en ætl- unin er að blása nýju lífi í menning- arfélag hins spænskumælandi heims, Hispania. Tilgangur félagsins er að standa fyrir menningarvið- burðum sem snerta þau fjölmörgu lönd sem hafa spænsku að þjóðmáli. Sem hluti af endurnýjun menning- arfélagsins mun dr. Enrique Fierro ljóðskáld og há- skólaprófessor halda fyrirlestur í Odda, stofu 101 á þriðjudag kl. 16.15. Hann mun fjalla um ljóðagerð í Rómönsku-Ameríku og nefnir fyrirlesturinn La poesía como ele- mento de resistencia en Latinoamérica (Ljóðagerð sem and- spyrnuafl í Rómönsku- Ameríku) og fjallar um ljóðagerð álfunnar á tuttugustu öld. Enriq- ue Fierro talar á spænsku en túlkaður á íslensku. Að fyrirlestrinum loknum verður haldið í Alþjóðahúsið við Hverfis- götu og þar les Enrique Fierro og ljóðskáldið Ida Vitale úr verkum sín- um kl. l8. Fyrirlesturinn í Odda er í boði heimspekideildar Háskóla Íslands og Stofnunar Vigdísar Finnboga- dóttur í erlendum tungumálum. Spænskt kvöld í Salnum Josep Henríquez Leikandi létt á fjög- ur fagott FAGOTTERÍ heldur tvenna tónleika á höfuðborgarsvæð- inu og verða þeir fyrri í Mos- fellskirkju í dag, sunnudag, kl. 17 en hinir síðari í Dómkirkj- unni í Reykjavík á mánudags- kvöld kl. 20. Fagotterí er skipað fjórum fagottleikurum, Darra Mika- elssyni, Joanne Árnason, Ju- dith Þorbergsson og Kristínu Mjöllu Jakobsdóttur. Á efnis- skránni eru verk úr ýmsum áttum Evrópu, eftir hin nafn- kunnu tónskáld Johann Seb- astian Bach, Johann Strauss, Gioacchino Rossini og Edvard Grieg, Albanann Thoma Sim- aku og bresku tónskáldin Edward William Elgar og Graham Waterhouse. „Efnisskráin er að mestu í léttum dúr, fjörug og hnyttin, ský dregur fyrir sólu öðru hvoru rétt eins og á hlýjum og fögrum vordegi við sundin blá,“ segir Kristín Mjöll. Kvartettinn var formlega stofnaður haustið 2000 og hef- ur víða komið fram. Hann var fyrst um sinn eingöngu skip- aður konum en nú hefur einn karl bæst í hópinn. Darri Mikaelsson hefur lokið námi við Guildhall School of Music and Drama, hann hefur frá árinu 1993 m.a. leikið með Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Joanne Árnason lauk mast- ersprófi frá Scottish Academy of Music and Drama í Glas- gow. Judith Þorbergsson lauk námi frá Guildhall School of Music and Drama þar sem hún lærði á fagott, barokkfagott og píanó. Hún hefur m.a. komið fram með Bachsveitinni í Skál- holti og Sinfóníuhljómsveit Ís- lands. Kristín Mjöll Jakobsdóttir lauk Mastersprófi frá Yale School of Music, ennfremur stundað nám í Amsterdam og í Cincinnati í Ohio. Hún hefur m.a. starfað með Fílharmóníu- hljómsveitinni í Hong Kong, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur. ÁSDÍS Björk Jónsdóttir og Þóra Hallgrímsdóttir halda burtfarar- prófstónleika í sal Tónlistarskóla Garðabæjar í Kirkjulundi 11 í dag, sunnudag, kl. 16. Á efnisskrá eru ís- lensk og erlend lög og aríur. Píanó- leikari er Kolbrún Ósk Óskarsdóttir. Ásdís Björk hefur stundað nám við Tónlistarskóla Garðabæjar frá 1996. Kennari hennar er Margrét Óðins- dóttir. Ásdís hefur sótt einkatíma hjá Sigríði Ellu Magnúsdóttur, Mariu Teresu Uribe og Clive Poll- ard. Þóra Hallgrímsdóttir hóf tónlist- arnám við Tónlistarskóla Garða- bæjar 1982 og stundaði píanónám við skólann frá 1984, fyrst hjá Unni Arn- grímsdóttur og síðar Gísla Magnús- syni. Söngnám hóf hún 1995 hjá Margréti Óðinsdóttur sem hefur verið kennari hennar síðan. Þóra hefur sótt einkatíma hjá Sigríði Ellu Magnúsdóttur, Mariu Teresu Uribe og Clive Pollard, hún hefur sungið með kór Vídalínskirkju við ýmis tækifæri og einnig með sönghópnum Hljómeyki. Ragnheiður Hafstein mezzó-sópr- an söngkona og Iwona Ösp Jagla píanóleikari halda einsöngstónleika í tónleikasal Söngskólans, Smára, Veghúsastíg 7, á morgun, mánudag, kl. 20 og eru þeir liður í burtfarar- prófi Ragnheiðar frá skólanum. Á efnisskránni eru m.a. íslensk söngljóð, erlendir ljóðasöngvar og óperuaríur. Ennfremur flytur Ragn- heiður, ásamt samnemendum úr Söngskólanum, þeim Sigurlaugu Jónu Hannesdóttur, Regínu Unni Ólafsdóttur, Sibylle Köll og Lindu P. Sigurðardóttur, dúett úr Lakmé eft- ir Delibes og kvartett úr Evgeni Onegin eftir Tjækovsky. Ragnheiður Hafstein hóf ung nám við Söngskólann í Reykjavík hjá Þuríði Pálsdóttur og Jórunni Viðar og lauk 8. stigs prófi vorið 1999. Undanfarin tvö ár hefur hún notið leiðsagnar Ólafar Kolbrúnar Harð- ardóttur og Iwonu Aspar Jagla. Hún hefur m.a. sungið með kór Íslensku óperunnar frá hausti 1997 og tekið þátt í tónleikahaldi og sýningum, m.a. nú í maí í Hollendingnum fljúg- andi á Listahátíð í Þjóðleikhúsinu. Iwona Ösp Jagla er kennari við Söngskólann. Þrjár þreyta söngvarapróf Ásdís Björk Jónsdóttir og Þóra Hallgrímsdóttir. Ragnheiður Hafsteinsdóttir BIRGIR Schiöth myndlistarkennari heldur sína 26. myndlistarsýningu um þessar mundir í Eden í Hvera- gerði. Á sýningunni eru 47 myndir, með pastellitum, og teikningar. Myndefnið er fjölbreytt. Síðasti dagur sýningarinnar, sem jafn- framt er sölusýning, er að kvöldi sjómannadagsins, 2. júní. Á mynd- inni er Birgir með eina af myndum sínum, en myndefnið er sótt í Bárð- ardalinn við Aldeyjarfoss. Birgir Schiöth sýnir í Eden
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.