Morgunblaðið - 26.05.2002, Qupperneq 42
FRÉTTIR
42 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Opið hús í dag milli kl. 14 og 17
Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050
www.hofdi.is
Glæsilegt einbýlishús með inn-
byggðum bílskúr á þessum vinsæla
stað. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting
með vönduðum tækjum og eldunar-
eyju, fimm svefnherbergi á sérsvefn-
herbergisgangi. Sólrík stofa og borð-
stofa, garður er fallegur og frágeng-
inn með trjám, sólpalli, skjólgirðing-
um og vaðlaug fyrir börnin. Húsið er
sérstaklega vel skipulagt með þarfir fjölskyldunnar í huga og er vel staðsett
á skjólríkum stað með góðu útsýni. Þessa eign ættir þú ekki að láta fara
framhjá þér. Guðlaug tekur á móti gestum á milli kl. 14:00 og 17:00 í dag og
er með heitt á könnunni.
Í dag býðst þér að skoða þetta fal-
lega 117 fm einbýli sem er á einni
hæð innst í botnlanga. Óbyggt
svæði er við húsið. Húsið skiptist
m.a. í 3 herbergi, tvær stofur, eldhús
og bað. Byggingarréttur er við húsið.
Húsið stendur á 746 fm lóð. Verð
16,9 millj. Sigurjón og Hrafnhildur
taka vel á móti ykkur.
Einarsnes 33
Klukkurimi 14
Ás fasteignasala
Fjarðargötu 17 - Sími 520 2600
Hafnarfirði Fjarðargata 17
Sími 520 2600, Fax- 520 2601
Netfang as@as.is- Heimasíða http://www.as.is
ÞRASTAHRAUN NR. 3 Í HF. - GLÆSILEGT EINBÝLI
Vorum að fá í sölu fallegt og vandað 270 fm EINBÝLI á besta
stað í Hafnarfirði. Innbyggður 28 fm BÍLSKÚR. Verönd, heitur
pottur og GUFUBAÐSHÚS í glæsilegri HRAUNLÓÐ. SÓLSTOFA
með KAMÍNU. VERÐ TILBOÐ.
Ásmundur og Anna María sýna eignina.
Símar 555-6168 og 895-3033.
Opið hús í þessari glæsilegu eign
í dag milli kl. 14 og 17.
533 4300 564 6655
Opið hús í dag - Hraunbrún 44 í Hafnarfirði
Snyrtilegt 101 fm einbýlishús á einni hæð á
frábærum stað. Þrjú góð herbergi, nýjar flísar
á forstofu, baðherbergi nýlega endurnýjað
með flísum í hólf og gólf og stórum flísalögð-
um sturtuklefa. Búið að setja nýjar skólplagn-
ir og endurnýja rafmagn og rafmagnstöflu.
Stór fallegur garður, bílaplan með möl,
möguleiki að fá samþykkt að byggja bílskúr. Húsið er klætt að utan úr áli. Barn-
vænn og rólegur staður.
Tekið verður vel á móti ykkur á milli kl. 14.00 og 17.00 í dag.
Sími 511 2900
Skeifan - verslunarhúsnæði
Um 820 m² verslunarhúsnæði á einum besta stað í Skeifunni með
nægum bílastæðum og góðum verslunargluggum. Fyrir utan litla
skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu þá er plássið að mestu eitt opið
rými með dúk á gólfum og góðri lýsingu í loftum. Húsnæðið er laust
til afh. um mánaðamótin. Leiguverð tilboð. Áhugasamir hafið sam-
band við skrifstofu Leigulistans.
Nánari upplýsingar
vegna ofangreinds húsnæðis
eru veittar á skrifstofu okkar.
BORGIR
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
F A S T E I G N A S A L A
Falleg fullgerð fjögurra til fimm
herbergja neðri sérhæð með stæði
í tveggja bíla bílskýli.
EINSTAKLEGA GLÆSILEG ÍBÚÐ
RÓSA OG GYLFI TAKA VEL Á
MÓTI GESTUM
LJÓSAVÍK 21 – GRAFARVOGI
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 14 OG 16
LEIKFÉLAG Hveragerðis hefur
sýnt leikritið Dýrin í Hálsaskógi í
vetur hér í bænum. Sýndar hafa
verið 35 sýningar fyrir fullu húsi og
er það sýningarmet og aðsókn-
armet hjá félaginu. Á fjórða þúsund
manns hafa komið til að sjá sýn-
inguna. Nú ætlar Leikfélagið að
bjóða borgarbúum upp á að sjá
þessa bráðskemmtilegu sýningu og
verður sýningin í Tjarnarbíói 1.
júní nk. kl. 14.
Hinn 19. júní ætlar félagið að
verðlauna leikara sína með Nor-
egsferð. Meðferðis verða öll dýrin
og ætla þau að gleðja landa okkar í
Noregi og sýna þeim þetta norska
leikrit eftir Thorbjörn Egner í
heimalandi dýranna.
Sýningin í Tjarnarbíói er þáttur í
fjáröflun fyrir Noregsferðina.
Einnig hafa leikfélagar aflað fjár
með því að koma fram á ýmsum
skemmtunum. Allur ágóði af sölu í
sjoppu leikhússins rann í ferðasjóð-
inn. Þá hélt félagið bingó nú á dög-
unum og ágóði af fimm sýningum
vetrarins rann einnig í ferðasjóð-
inn.
Leikfélagið fékk styrk til far-
arinnar frá Norræna áhugaleik-
húsráðinu, einnig hefur verið sótt
um aðra styrki sem óvíst er hvort
fást. Miðasala á sýninguna í Tjarn-
arbíói er sem fyrr hjá Mörtu í Tí-
unni í Hveragerði og tekur salurinn
236 manns. Það er því vissara að
tryggja sér miða tímanlega á þessa
einstöku sýningu.
Dýrin í
Hálsaskógi
fara í bæinn
Hveragerði. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Dýrin í Hálsaskógi á leið til Noregs.
TRYGGINGASKÓLANUM var
slitið fimmtudaginn 23. maí 2002.
Á þessu skólaári stóðust 20 nem-
endur próf við skólann. Við skóla-
slitin voru nemendum afhent próf-
skírteini, en frá stofnun skólans
fyrir um 40 árum hafa verið gefin
út 1.160 prófskírteini frá Trygg-
ingaskólanum.
Formaður Sambands íslenskra
tryggingafélaga, Gunnar Felixson,
afhenti viðurkenningu fyrir góðan
prófárangur. Verðlaun hlaut Sig-
urður Ingi Viðarsson, Trygginga-
miðstöðinni hf., en að þessu sinni
hlaut hann einn nemenda ágæt-
iseinkunn á prófi við skólann.
Frá árinu 1962 hefur Samband
íslenskra tryggingafélaga starf-
rækt skóla fyrir starfsfólk vá-
tryggingafélaganna undir heitinu
Tryggingaskóli SÍT. Málefni skól-
ans eru í höndum sérstakrar
skólanefndar, sem skipuð er fimm
mönnum.
Daglegan rekstur annast hins
vegar Samband íslenskra trygg-
ingafélaga. Vátryggingarfélögin
innan vébanda SÍT standa straum
af kostnaði við rekstur skólans.
Námi í skólanum er skipt í tvo
meginþætti, þ.e. annars vegar
langt og viðamikið grunnnám, og
hins vegar sérnám, sem eru nám-
skeið um afmörkuð svið vátrygg-
inga og vátryggingarstarfsemi, og
er ætlað þeim, er lokið hafa grunn-
námi, segir í fréttatilkynningu.
Námskeiðum skólans lýkur með
prófum. Einnig gengst skólinn fyr-
ir fræðslufundum og hefur með
höndum útgáfustarfsemi.
Tuttugu
stóðust
próf frá
Trygginga-
skólanum