Morgunblaðið - 26.05.2002, Síða 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Knorr og Svanur koma
í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Pólar Siglir, Lómur og
Vysokovsk koma í dag.
Selfoss kemur til
Straumsvíkur á morg-
un, Andromeda kemur
á morgun,
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 9 vinnustofa og
leikfimi, kl. 13 vinnu-
stofa, kl. 14 spilavist.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist. Bingó er 2 og
4 hvern föstudag. Dans
hjá Sigvalda byrjar í
júní. Púttvöllurinn er
opin alla daga. Allar
upplýsingar í s.
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–17 fótaað-
gerð. Dagana 26. og 27
maí kl 13–17 er sýning á
munum sem unnir hafa
verið í félagsstarfinu í
vetur, harmonikku-
leikur sunnudag og
mánudag, kaffi og með-
læti. Allir velkomnir.
Eldri borgarar Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið Hlaðhömr-
um er á þriðju- og
fimmtudögum kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Lesklúbbur kl. 15.30 á
fimmtudögum. Jóga á
föstudögum kl. 11. Kór-
æfingar fimmtudaga kl.
17–19. Uppl. hjá Svan-
hildi í s. 586 8014 kl. 13–
16. Uppl. um fót-, hand-
og andlitssnyrtingu,
hárgreiðslu og fót-
anudd, s. 566 8060 kl. 8-
16.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Á morgun kl. 8
böðun, kl. 9 fótaaðgerð
og myndlist, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 versl-
unin opin, kl. 11.10 leik-
fimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska framhald.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Á morgun kl. 9
böðun.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Mánudagur
27. maí kl. 9 gler-
skurður, kl. 11.15 og
12.05 leikfimi.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. „Sameig-
inleg sýning“ á hand-
verki eldri borgara í
Hafnarfirði verður í dag
sunnudag, og mánudag í
Hraunseli Flatahrauni
3. Opið frá kl. 13–17,
kaffisala. Þriðjudagur:
brids nýir spilarar vel-
komnir. Vestmann-
eyjaferð 2 til 4, skráning
í Hraunseli sími
555 0142
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Fræðslunefnd
FEB stendur fyrir ferð í
Skrúðgarða Reykjavík-
ur 29. maí. Brottför frá
Ásgarði Glæsibæ kl.
13.30, skráning á skrif-
stofu FEB. Í dag kl 13
verður síðasta fé-
lagsvistin á þessari önn.
Sunnudagskvöld kl. 20
dansleikur, Capri tríó
leikur fyrir dansi. Á
morgun mánudag kl. 13
verður spilað brids.
Engin danskennsla í
kvöld. Aðalfundur leik-
félags Snúðs og Snældu
verður haldinn miðviku-
daginn 29. maí kl. 14 í
Ásgarði Glæsibæ. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum frá kl.
10–12. í s. 588 2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Opið sunnu-
daga frá kl. 14–16 blöðin
og kaffi. Á morgun kl.
9–16.30 opin vinnustofa,
handavinna og föndur,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
14 félagsvist.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun kl. 9 handa-
vinna, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl.11
hæg leikfimi, kl. 13 lom-
ber og skák. Miðvikud.
29. maí verður kynnt
dagskrá sumarsins í
Gjábakka og Gullsmára
kl. 15, þátttaka tilkynn-
ist fyrir 29. maí. Að lok-
inni kynningu verða
kynntir ferðamögu-
leikar á vegum Vest-
fjarðaleiða á sumri kom-
anda, síminn í Gjábakka
er 554 3400.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun og
kortagerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Á
morgun kl. 9 böðun og
föndur, kl. 10 boccia, kl.
13 frjáls spilamennska,
kl. 13.30 gönguferð.
Fótaaðgerð, hársnyrt-
ing. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð. Hand- og
listmunasýning verður
26. og 27. maí kl. 13.30
til 17, kaffiveitingar, all-
ir velkomnir.
Vesturgata 7. Á morg-
un kl. 9–16 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 12.15–13.15
danskennsla, kl. 13 kór-
æfing. Mánud. 27. maí
kl. 13 verður farið á
handverkssýningar í
Bólstaðahlíð 43 og fé-
lagsmiðstöð aldraðra
Hraunseli Hafnarfirði,
kaffiveitingar. Skoð-
unarferð um Kópavog.
Skráning í síma
562 7077. Miðvikud. 29.
maí kl. 13.15 verður spil-
að bingó, rjómaterta
með kaffinu, allir vel-
komnir.
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði og hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og sund, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og
spilað. Vor og sum-
arfagnaður verður hald-
inn fimmtud. 30. maí kl.
17. Matur, gleði, söngur,
gaman. Allir velkomnir.
Upplýsingar í síma
561 0300.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13. Bridsdeild FEBK í
Gullsmára.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Kristniboðsfélag karla
fundur verður í Kristni-
boðssalnum Háaleit-
isbraut 58–60 mánudag-
inn 27. maí kl. 20. Sr.
Sigurður Árni Eyjólfs-
son sér um fundarefni.
Allir karlmenn vel-
komnir.
Kvenfélagið Heimaey,
aðalfundur verður 27.
maí kl. 20.30 í Skála
Hótel Sögu tískusýning.
sjá nánar í bréfi
Öldrunarstarf Bústaða-
kirkju, Sumarferð: Far-
ið frá Bústaðakirkju
miðvikud. 5. júní kl.
10:30. Áfangastaður
kynntur í rútunni. Kom-
ið til baka kl. 17. Rúta,
hádegismatur, síðdeg-
iskaffi, leiðsögn farið
verður á söfn og sýn-
ingar. Þátttaka tilk. til
kirkjuvarða Bústaða-
kirkju s. 553 8500 eða
Sigrúnar Sturludóttur s.
553 0048 og 864 1448
Áhugahópur um heil-
kenni Sjögrens.
Fræðslukvöld verður
mánudagskvöldið 27.
maí kl. 20 í húsnæði
Gigtarfélags Íslands Ár-
múla 5. Björn Guð-
björnsson gigtarsér-
fræðingur verður með
fyrirlestur og fyr-
irspurnir um heilkenni
Sjögrens. Allir velkomn-
ir.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Kópavogi. Á vegum
nefndarinnar verða
farnar tvær ferðir á
þessu sumri: að Kirkju-
bæjarklaustri 13.–15.
júní, í Skagafjörð 22.–
24. ágúst. Hvíldar- og
hressingardvöl að Laug-
arvatni 24.–30. júní.
Innr. í s. s. 554 0388,
Ólöf, s. 554 2199, Birna.
Gerðuberg félagsstarf.
Í dag kl. 13–16 mynd-
listarsýning Huga Jó-
hannessonar opin. Á
morgun kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
9.30 sund- og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug, frá hádegi
spilasalur opinn kl. 14
kóræfing kl. 15.30 dans
hjá Sigvalda. Sum-
ardagskrá tilbúin um
mánaðamótin.Veitingar
í Kaffi Bergi.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Í dag er sunnudagur 26. maí, 146.
dagur ársins 2002. Trínitatis,
Þrenningarhátíð. Orð dagsins:
Þá sleppti ég þeim í þrjósku
hjartna þeirra, þeir fengu að
ganga eftir eigin geðþótta.
(Sálm. 81, 13.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 augljós, 8 falleg, 9
hljóðfæri, 10 sætta sig
við, 11 húsgafl, 13 auð-
lindum, 15 hestur, 18
mannsnafn, 21 svali, 22
lagarmál, 23 æviskeiðið,
24 skynsemin.
LÓÐRÉTT:
2 stika, 3 skriftamál, 4
vondan, 5 veitum eftirför,
6 eldstæðis, 7 veikburða,
12 ögn, 14 kærleikur, 15
hrím, 16 skeldýr, 17 húð,
18 fyrirgangur, 19
hnappur, 20 skrika til.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 stáss, 4 kúlum, 7 gaman, 8 korði, 9 dúk, 11
rann, 13 eira, 14 ábati, 15 lægð, 17 klám, 20 ess, 22 gefur,
23 kækur, 24 rændi, 25 rámur.
Lóðrétt: 1 sægur, 2 álman, 3 sund, 4 kökk, 5 lærði, 6
meiða, 10 úrans, 12 náð, 13 eik, 15 lögur, 16 gufan, 18
lokum, 19 mærir, 20 erti, 21 skær.
Tapað/fundið
Gullarmband
í óskilum
20. MAÍ sl. fannst gullarm-
band fyrir utan skálann á
Langjökli. Upplýsingar hjá
Elínu í síma 421 1480.
Leðurlyklaveski
týndist
BRÚNT leðurlyklaveski
með rennilás týndist við
Hótel Loftleiðir eða í ná-
grenni að kvöldi sunnu-
dagsins 19. maí sl. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 561 6006. Fundarlaun.
Fjallahjól og flíshúfa
í óskilum
FJALLAHJÓL og flíshúfa
fundust fyrir utan Boða-
granda 4. Hjólið er Mon-
goose-gerðar. Húfan er
blágræn lambhúshetta úr
flísefni, skreytt með dalm-
atíuhundi. Upplýsingar í
síma 561 7533.
Ullarjakki tekinn
í misgripum
GRÆNN ullarjakki var
tekinn í misgripum í Fella-
og Hólakirkju 9. maí, upp-
stigningardag. Sá sem
kannast við þetta hafi sam-
band í síma 557-2504.
Dýrahald
Duna er týnd
DUNA er steingrá læða,
mikið loðin og er manna-
fæla. Duna týndist fyrir um
2 vikum í Mosfellsbæ en
þangað var hún nýflutt úr
vesturbænum og ratar ekki
á nýja staðnum. Hún er ól-
arlaus. Þeir sem geta gefið
upplýsingar um Dunu eru
vinsamlega beðnir að hafa
samband í síma 551-3122,
698-2846 eða 892-8495.
Snúlli er týndur
SNÚLLI hvarf í nóvember
í Hlíðunum og var hann
með fjólubláa ól um hálsinn
og eyrnamerktur R1H 023.
Ef einhver hefur séð hann
eða hýst vinsamlega hafið
samband í síma 865-6405.
Nóra er týnd
NÓRA fór frá heimili sínu á
Sundlaugavegi 33 miðviku-
dagskvöldið 22. maí. Hún
er flekkótt læða, orðin 22
ára gömul. Þeir sem kunna
að hafa orðið varir við
Nóru, hvort sem hún er lífs
eða liðin, eru vinsamlega
beðnir að hringja í síma
581-2687 eða 847-2374.
Læða týndist
í Grafarholti
6 mánaða læða, grá með
hvítan kvið, ólarlaus, týnd-
ist í Grafarholti sl. mánu-
dag. Þeir sem hafa orðið
hennar varir hafi samband í
síma 895 6886 eða 550 1571.
Páfagaukur í óskilum
PÁFAGAUKUR fannst á
Flókagötu sl. mánudag.
Uppl. í síma 551-2329 og
696-0107.
Kettlingar fást gefins
TVEIR 8 vikna kettlingar
fást gefins. Þeir eru grá-
bröndóttir, kassavanir,
blíðir og góðir. Upplýsing-
ar í síma 557-9317.
Mala er týnd
5 mánaða, mjög smávaxin
læða sem hlýðir nafninu
Mala, týndist frá Baldurs-
götu 25 sl. fimmtudag. Hún
er marglit, ólarlaus og
ómerkt. Hún er mjög kelin
og er hennar sárt saknað.
Ef einhver hefur orðið
hennar var vinsamlega haf-
ið samband við Jóhönnu í
síma 552 5859 eða 847 1064.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VINUR Víkverja sem dvalið hefurum alllangt skeið á suðvestur-
horni landsins var staddur á Akureyri
á dögunum og áttaði sig þá á því að
hann náði ekki útsendingum Norður-
ljósa á heimsþjónustu breska ríkisút-
varpsins, BBC, eins og syðra.
Norðurljós hafa um skeið varpað
útsendingum BBC á tíðninni 90,9 á
FM og segist umræddur vinur hrein-
lega orðinn háður því að hlusta á
þessa frábæru útvarpsstöð. Þar hlýð-
ir hann á fréttir og fylgist með um-
fjöllun um ensku knattspyrnuna svo
eitthvað sé nefnt.
Vinurinn sér fram á að dvelja tals-
vert norður í Eyjafirði næstu misseri
og bað Víkverja að hvetja forráða-
menn Norðurljósa til að íhuga hvort
ekki væri mögulegt að veita Norð-
lendingum, og e.t.v. landsmönnum
öllum, þann munað að hlýða á hina
frábæru heimsþjónustu breska ríkis-
útvarpsins.
Er það tæknilega erfitt að varpa
BBC víðar um landið en nú er gert,
eða hver er ástæða þess að einungis
fólki á höfuðborgarhorninu stendur
stöðin til boða?
Þessi sami vinur nefndi annað at-
riði sem snýr að Norðurljósum. Út-
sendingar fjölvarpsins nást heldur
ekki norður í Eyjafirði; breska frétta-
stöðin Sky News, bandaríska frétta-
stöðin CNN, Eurosport og allar hinar
sjónvarpsstöðvarnar. Hvers vegna?
Er ekki hægt að bjóða upp á þetta
víðar um land en nú er gert?
x x x
TIL afa: Þjóðin hefur svo sannar-lega átt sínar góðu stundir með
sumarkveðju Páls Ólafssonar – og svo
verður vonandi áfram. Í Fjölskyldu-
garðinum heyrðist hún sungin fyrir
börnin og við skulum öll taka undir í
lokalínunum:
nú fellur heitur haddur þinn
á hvíta jökulkinn.
x x x
SÍMADEILD karla í knattspyrnufór fjörlega af stað um síðustu
helgi. Nýliðar Þórs frá Akureyri
gerðu sér þá t.d. lítið fyrir og lögðu Ís-
landsmeistara ÍA að velli á Akranesi
og Fylkir burstaði lið FH sem sigraði
í deildabikarkeppninni á dögunum.
Óvæntir hlutir gerðust því strax í
fyrstu umferð og svo verður vonandi
áfram því fátt er leiðinlegra við Ís-
landsmótið en ef engin er spennan,
hvorki á toppi né botni. Best er ef allir
geta sigrað alla, eins og stundum er
sagt, og úrslit mótsins ráðast ekki
fyrr en í síðustu umferð í haust.
x x x
VÍKVERJI er mikill áhugamaðurum stjórnmál og síðustu vikurn-
ar hefur hann því fylgst vel með bar-
áttunni fyrir sveitarstjórnarkosning-
arnar, sem fram fóru í gær.
Fjölmiðlar hafa fjallað gríðarlega
mikið um nefnda baráttu, jafnvel of
mikið að sumra mati sem Víkverji
hefur rætt við, en Víkverji hefur engu
að síður haft gaman af viðtölum við
hina ýmsu frambjóðendur. Eitt verð-
ur þó að nefna, sem Víkverji varð fyr-
ir vonbrigðum með, en það er
frammistaða efstu manna framboðs-
listanna á Akureyri í Kastljósi ríkis-
sjónvarpsins á fimmtudagskvöldið.
Þar fór fram óvenju líflaus og leið-
inleg umræða, og fátt varð um bita-
stæð svör þegar þáttarstjórnendur
spurðu gesti sína um helstu stefnu-
mál og hvað greindi framboðin hvert
frá öðru.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
KÆRI borgarstjóri.
Við erum þrjár stelpur, 9 og 10 ára, og fórum í fjöl-
skyldugarðinn 16. maí. Við urðum mjög vonsviknar því
nú þarf að borga í sum tæki. Nú þarf að borga í torfæru-
bílana, bátana og í lestina og kostar 1 miði 130 kr. Við
viljum gjarnan biðja þig um að breyta þessu svo við
komumst mikið í garðinn í sumar.
Kveðja,
Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir, 10 ára,
Áslaug Kristín Karlsdóttir, 10 ára,
Kolbrún Helga Pálsdóttir, 9 ára.
Bréf til borgarstjóra