Morgunblaðið - 26.05.2002, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
f
í
t
o
n
/
s
í
a
www.bi.is
Þú fellur
aldrei á tíma
í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans
fyrstu var talið að þeir væru 17. Um
er að ræða fjórar stórfjölskyldur
sem tengjast innbyrðis. Fólkið er á
öllum aldri, sá elsti er fæddur 1937
og yngst í hópnum er þriggja mán-
aða barn.
Fólkið gaf sig fyrst fram við Út-
lendingaeftirlitið í Reykjavík á
föstudag og sagðist leita hælis. Það
er allt skilríkjalaust en fólksins varð
ekki vart við komuna til Seyðis-
fjarðar þar sem ekki þarf að fram-
vísa skilríkjum þegar ferðast er inn-
an Schengen-svæðisins.
Rauði krossinn sér fólkinu fyr-
ir húsaskjóli og nauðþurftum
Fólkið er allslaust en er þó vel á
sig komið, skv. upplýsingum Rauða
krossins og Útlendingaeftirlitsins í
gær. Hefur Rauði krossinn skotið
yfir það skjólshúsi og mun sjá því
fyrir öllum nauðþurftum, fatnaði,
fæði og læknisaðstoð, á meðan það
bíður niðurstöðu rannsóknar Út-
lendingaeftirlitsins á umsókn þess
um hæli.
Teknar verða skýrslur af fólkinu
yfir helgina. Þetta er fjölmennasti
hópur sem sótt hefur um pólitískt
hæli á Íslandi.
STARFSMENN Útlendingaeftir-
litsins og Rauða krossins ræddu í
gær við útlendingana sem leitað
hafa hælis hér á landi sem pólitískir
flóttamenn og kynntu þeim rétt
þeirra. Lítið er enn vitað hvernig
fólkið kom til landsins en það segist
vera frá Rúmeníu. Talið er víst að
fólkið hafi komið með Norrænu til
Seyðisfjarðar, hugsanlega í sendibíl,
sem hefur þó enn ekki fundist.
Hópurinn er alls 19 manns en í
19 manns í fjórum fjölskyldum frá Rúmeníu leita eftir pólitísku hæli
Yngst í hópn-
um er þriggja
mánaða barn
Morgunblaðið/Golli
Nokkur börn eru í hópi rúmensku fjölskyldnanna sem leitað hafa póli-
tísks hælis hér á landi. Tvö þeirra brugðu á leik í sólskininu í gær.
KOSNINGAR til sveitar- og bæj-
arstjórna fóru fram um allt land í
gær. Kjörfundir í stærstu sveit-
arfélögum hófust kl. níu. Þátttaka í
kosningunum um hádegi í gær var
heldur meiri í Reykjavík en í borg-
arstjórnarkosningunum fyrir fjór-
um árum. Hún var hins vegar mjög
svipuð í nokkrum stærri sveit-
arfélögum utan Reykjavíkur en í
kosningunum 1998.
Forystumenn R-listans og D-
listans í Reykjavík tóku daginn
snemma í gær og voru búnir að
kjósa fyrir hádegi. Björn Bjarna-
son, efsti maður á D-lista, greiddi
atkvæði á Kjarvalsstöðum um kl.
9.30 og Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, sem skipaði áttunda sæti R-
listans, greiddi akvæði í Hagaskóla
um klukkutíma síðar.
Fólk streymdi
að í blíðviðrinu
Veður var gott í Reykjavík í gær
og var stöðugur straumur af fólki á
kjörstaðina strax eftir að kjör-
fundur hófst.
Björn Bjarnason kom ásamt eig-
inkonu sinni, Rut Ingólfsdóttur, á
kjörstað. Hann sagði aðspurður
eftir að þau hefðu kosið að sér
fyndist kosningabaráttan almennt
hafa gengið vel. „Kosningabar-
áttan hefur verið ánægjuleg að því
leyti að við höfum verið með
skemmtilegan og góðan framboðs-
lista sem hefur skilað miklu starfi.
Við höfum kynnt okkar stefnu og
markmið okkar hafa verið skýrt
sett fram. Að því leyti hef ég ekk-
ert annað en gott um kosningabar-
áttuna að segja,“ sagði Björn. „Það
hefur líka verið mjög ánægjulegt
að fá tækifæri til að kynnast öllu
því fólki sem við höfum átt sam-
skipti við.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
kom á kjörstað ásamt eiginmanni
sínum, Hjörleifi Sveinbjörnssyni.
Hún sagði aðspurð eftir að þau
höfðu kosið að sér fyndist kosn-
ingabaráttan hafa verið löng og
ströng að mörgu leyti. „En hún
hefur líka verið mjög skemmtileg;
við höfum farið mjög víða, hitt
mjög margt fólk, bæði á vinnu-
staðafundum og í hverfaheimsókn-
um, farið í verslunarmiðstöðvar og
gengið í hverfin, þannig að þetta
hefur verið mjög gefandi og
skemmtilegt en um leið mikil og
ströng vinna.“
Meiri kjörsókn var í Reykjavík
fyrir hádegi í gær en í borg-
arstjórnarkosningunum fyrir fjór-
um árum en kl. 12 höfðu 11.599
kosið í Reykjavík eða 14,6% þeirra
sem eru á kjörskrá. Í borgarstjórn-
arkosningunum árið 1998 var kjör-
sókn 13,71% á sama tíma.
Í Reykjanesbæ höfðu 800 kosið
kl. 12 sem er 10,7% kosningaþátt-
taka. Það er svipuð prósenta og í
síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Í Hafnarfirði höfðu 1.617 greitt at-
kvæði kl. 12 eða 11,6%. Í síðustu
kosningum höfðu 11,5% greitt
akvæði á sama tíma.
Á Akureyri höfðu 1.313 kosið kl.
12 sem er 11,68% kosningaþátt-
taka. Er það aðeins meiri kjörsókn
en í síðustu kosningum en þá höfðu
11,6% kosið á hádegi. Í Kópavogi
höfðu 2.081 kosið klukkan tólf og
er það 11,8% kjörsókn. Er það
sama hlutfall og fyrir fjórum árum.
Morgunblaðið/Golli
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri var mætt á kjörstað í
Hagaskólanum klukkan 10.30 í gærmorgun.
Morgunblaðið/Golli
Björn Bjarnason, efsti maður á lista sjálfstæðismanna í Reykjavík, og Rut Ing-
ólfsdóttir, eiginkona hans, greiddu atkvæði á Kjarvalsstöðum í gærmorgun.
Kjör-
sókn
meiri en
í síðustu
kosn-
ingum