Morgunblaðið - 07.06.2002, Blaðsíða 16
FRÉTTIR
16 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HÉR fara á eftir bréfaskipti milli Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og við-
skiptaráðherra og Theodórs A. Bjarnasonar, forstjóra Byggðastofnunar.
Eru það annars vegar bréf ráðherra til forstjórans dags. 22. maí og hins veg-
ar svarbréf forstjórans dags. 26. maí.
Ráðuneytið ritaði forstjóranum einnig bréf 5. júní vegna málsins en veitir
ekki aðgang að því bréfi þar sem ætla megi að það hafi ekki borist forstjór-
anum síðdegis í gær. Þá er í bréfi ráðuneytisins til Morgunblaðsins bent á að
stjórnvöldum sé óheimilt að veita almenningi aðgang að gögnum um einka-
eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt sé að leynt fari nema með
samþykki viðkomandi og sama eigi við um mikilvæga fjárhags- eða viðskipta-
hagsmuni fyrirtækja. Er því ekki birtur hluti bréfs forstjóra Byggðastofn-
unar til ráðuneytisins eins og merkt er í bréfinu hér á eftir.
Bréfaskipti viðskiptaráðherra
og forstjóra Byggðastofnunar
Theodór A. Bjarnason
Ártorgi 1
550 Sauðárkrókur
Reykjavík, 22. maí 2002
1. Ráðuneytinu hefur borist bréf
Fjármálaeftirlitsins, dags. 16. maí
2002, þar sem fram kemur að árs-
reikningur Byggðastofnunar fyrir
árið 2001 hafi ekki borist Fjár-
málaeftirlitinu. Fram kemur í bréf-
inu að á stjórnarfundi hinn 3. maí
sl. hafi stjórn Fjármálaeftirlitsins
tekið ákvörðun um að dagsektir
skuli lagðar á Byggðastofnun frá
og með deginum í dag, 22. maí, ef
Byggðastofnun myndi ekki skila
umbeðinni skýrslu vegna ársreikn-
ings 2001 í fullnægjandi formi til
Fjármálaeftirlitsins fyrir kl. 16
hinn 21. maí.
Samkvæmt erindisbréfi yðar,
dags. 11. apríl 2001, skulið þér fyr-
ir 1. apríl ár hvert leggja fram árs-
skýrslu sl. árs, þar sem fram kem-
ur samanburður á fyrirætlan og
niðurstöðum árangursmælinga,
rekstrar- og efnahagsreikningur og
greinargerð um starfsemina. Því
óskar ráðuneytið skýringa á því
hvers vegna ársreikningur hefur
ekki verið sendur Fjármálaeftirliti
í fullnægjandi formi.
2. Fram hefur komið af hálfu
stjórnarformanns Byggðastofnunar
að þér hafið ekki upplýst stjórn
stofnunarinnar um tilkynningu
Fjármálaeftirlitsins vegna ofan-
greindrar ákvörðunar þess. Þá er
ekkert bókað í fundargerðir stjórn-
ar Byggðastofnunar um málið.
Ráðuneytið óskar eftir viðhorf-
um yðar og skýringum vegna
þessa.
3. Í fréttum Stöðvar 2 hinn 16. maí
sl. var haft eftir yður að tuttugu
milljónir króna sem Byggðastofnun
lánaði út á rússneskan togara í
hitteðfyrra að skipan stjórnarfor-
manns stofnunarinnar séu glatað
fé. Í fréttinni kemur einnig fram að
óskað hafi verið eftir því að útgerð-
arfélag togarans verði tekið til
gjaldþrotaskipta.
Ráðuneytið óskar eftir viðhorf-
um yðar og skýringum á hvort
ofangreind ummæli samræmist að
yðar mati þagnarskyldu yðar, sbr.
18. gr. laga um Byggðastofnun nr.
106/1999. Þá óskar ráðuneytið eftir
gögnum sem sýna réttmæti fullyrð-
ingarinnar.
4. Samkvæmt erindisbréfi yðar
skulið þér hafa frumkvæði að sam-
ræmingu á starfsemi atvinnuþró-
unarfélaga og eflingu samstarfs
þeirra á milli. Stjórnarformaður
Byggðastofnunar heldur því fram
að þér hafið ekki sinnt þeirri
skyldu yðar. Ráðuneytið óskar því
eftir gögnum sem sýna fram á að
þér hafið fullnægt umræddri
skyldu.
5. Samkvæmt 4. mgr. 11. gr. laga
um Byggðastofnun nr. 106/1999
getur stjórn Byggðastofnunar tek-
ið ákvörðun um að gera samninga
um að fela fjármálastofnunum af-
greiðslu og innheimtu lána, sem og
aðra fjármálaumsýslu stofnunar-
innar. Stjórn Byggðastofnunar
nýtti sér heimild þessa með stjórn-
arsamþykkt sinni, dags. 6. júní
2000. Samkvæmt erindisbréfi yðar
skulið þér annast daglegan rekstur
stofnunarinnar og skulið í þeim
efnum fara eftir stefnu og fyrir-
mælum stjórnarinnar. Samkvæmt
upplýsingum frá stjórnarformanni
hafið þér ekki framfylgt umræddri
samþykkt stjórnar. Í fundargerð
stjórnar Byggðastofnunar, dags. 8.
júní 2001, er bókað að samningur
við Sparisjóð Bolungarvíkur vegna
umsjónar með lánum og innheimtu
væri í undirbúningi og væri unnið
að tæknilegri útfærslu á verkefn-
inu. Í fundargerð stjórnar, dags.
12. desember s. á., kemur fram að
formaður hafi lagt áherslu á að
ljúka þyrfti sem fyrst samningi við
fjármálastofnun.
Ráðuneytið óskar eftir viðhorfum
yðar og skýringum vegna þessa.
6. Stjórnarformaður Byggðastofn-
unar hefur haldið því fram að þér
hafið ráðið starfsmenn í ósamræmi
við starfsáætlun stjórnar. Sam-
kvæmt erindisbréfi yðar berið þér
ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlun
stofnunarinnar. Því er óskað skýr-
inga yðar, viðhorfa og gagna vegna
fullyrðinga stjórnarformannsins.
7. Fram hefur komið í opinberri
umræðu að þér hafið gengið út af
stjórnarfundi Byggðastofnunar
með fundargögn. Þá kemur fram í
fundargerð stjórnar Byggðastofn-
unar, dags. 6. maí 2002, að þér haf-
ið vikið af fundi undir lið 1 á dag-
skrá fundarins. Er óskað skýringa
yðar á því. Sérstaklega er þess
óskað að gerð verði grein fyrir því
hvernig þér teljið það samræmast
almennum vinnuskyldum yðar.
8. Fram kemur í fundargerð
stjórnar Byggðastofnunar, dags. 2.
nóvember 2001, að kr. 6 millj. skuli
varið til endurbóta á húsnæði
Byggðastofnunar á Sauðárkróki.
Hins vegar hefur komið fram í
fundargerð stjórnar, dags. 22. febr-
úar 2002, að heildarkostnaður
vegna endurbótanna sé áætlaður
14 millj. króna. Óskað er skýringa
yðar á framangreindu, sérstaklega
í ljósi ábyrgðar yðar á fjárreiðum
stofnunarinnar.
9. Samkvæmt erindisbréfi yðar
skulið þér leggja starfs- og rekstr-
aráætlun fyrir stjórn fyrir 1. febr-
úar ár hvert. Af fundargerðum
stjórnar Byggðastofnunar verður
ekki séð að skyldu þessari hafi ver-
ið fullnægt. Er óskað skýringa yð-
ar á því.
Þess er vænst að umbeðnar
skýringar og gögn berist ráðuneyt-
inu eigi síðar en mánudaginn 27.
maí 2002.
Bréf
ráðherra
Theodór Agnar Bjarnason Valgerður Sverrisdóttir
Valgerður Sverrisdóttir
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
Arnarhvoli
150 Reykjavík
Sauðárkróki 26. maí 2002.
Vísað er til vinsamlegrar heim-
sóknar yðar á skrifstofur Byggða-
stofnunar á Sauðárkróki hinn 22.
maí 2002. Það var ánægjulegt að þér
sáuð yður fært að verja tíma til að
heimsækja stofnunina vegna þess
vanda sem að stofnuninni steðjar,
ræða við starfsfólk svo og undirrit-
aðan og kynnast þannig viðhorfum
starfsfólks stofnunarinnar milliliða-
laust.
Við lok fundarins afhentuð þér
undirrituðum bréf dagsett sama
dag, þar sem í 9 töluliðum eru gerð-
ar athugasemdir og óskað skýringa
á atriðum sem varða rekstur stofn-
unarinnar og starfshætti undirrit-
aðs.
Efnisatriði í bréfi ráðuneytisins
eru sýnilega fengin með einhliða lýs-
ingu stjórnarformanns stofnunar-
innar. Þar hefur margt farið úr-
skeiðis og meðal annars víða í
bréfinu að finna rangar staðhæfing-
ar eða ráðagerðir um málsatvik.
Ég undirritaður fagna því að fá
tækifæri til að svara þeim athuga-
semdum, sem bréfið hefur að
geyma, og leiðrétta þannig rangar
upplýsingar sem ráðuneytið hefur
fengið og skýra málið af minni hálfu.
Hér á eftir verður vikið að efnis-
atriðum í sömu röð og í fyrrnefndu
bréfi.
1. Þrátt fyrir flutning stofnunarinn-
ar frá Reykjavík til Sauðárkróks og
ýmis vandkvæði sem tengdust flutn-
ingum voru nánast öll gögn, færsla
bókhalds, afstemmingar og fleira
tilbúin fyrir endurskoðun fljótlega í
byrjun árs með sama hætti og und-
anfarin ár. Á hinn bóginn var veru-
legur dráttur á afhendingu á hús-
næði undir skrifstofur
stofnunarinnar og breytingar á
þeim. Var það mat endurskoðanda
að lokavinna og uppgjör gæti ekki
farið fram fyrr en starfsaðstaða fyr-
ir hann yrði tilbúin. Tafir á því að
endurskoðandinn fengi aðstöðu urðu
hins vegar lengri en reiknað var
með í upphafi. Um leið og endur-
skoðandi fékk hins vegar viðunandi
aðstöðu hóf hann af fullum krafti
vinnu við endurskoðunina og hinn 6.
maí sl. voru drög að reikningnum
tilbúin og hinn 16. maí sl. var reikn-
ingurinn tilbúinn til endanlegrar af-
greiðslu.
Þar sem ársreikningurinn lá ekki
fyrir hinn 1. apríl sl. gerði Fjármála-
eftirlitið athugasemdir með bréfi
dags. 5. apríl 2002 (fylgiskjal 1).
Forstjóri hafði þegar samband við
Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Fjár-
málaeftirlitsins, sem gaf þau svör,
að óskað væri eftir skriflegu erindi
varðandi frestun á að skila ársreikn-
ingi. Forstjóri ritaði bréf dags. 17.
apríl 2002 með ósk um frest (fylgi-
skjal 2). Skriflegt svar barst dags.
22. apríl 2002 (fylgiskjal 3), þar sem
fram kom að Fjármálaeftirlitið taldi
ekki skilyrði fyrir að veita frest og
tilkynnti að á næstu dögum yrði
ákveðið um beitingu dagsekta. Hinn
29. apríl 2002 átti forstjóri fund með
Fjármálaeftirlitinu, Páli Gunnari
Pálssyni forstjóra ásamt Ragnari
Hafliðasyni, í Reykjavík. Í framhaldi
af fundinum sendi forstjóri nýtt
bréf, dags. 30. apríl 2002, til Fjár-
málaeftirlitsins (fylgiskjal 4), í sam-
ráði við Pál Gunnar Pálsson for-
stjóra, þar sem enn á ný var óskað
eftir fresti og jafnframt getið að
stjórnarfundur væri áformaður 7.
maí 2002. Skriflegt svar barst frá
Fjármáleftirlitinu dags. 3. maí 2002
þar sem veittur var frestur til 21.
maí 2002 (fylgiskjal 5). Í bréfinu er
þess getið að að frestinum liðnum
yrði beitt dagsektum kr. 15.000,-
fyrir hvern dag er liði framyfir
frestinn.
Hinn 26. apríl 2002 átti forstjóri
símtal við Kristin H. Gunnarsson
stjórnarformann, þar sem rætt var
um og ákveðin frestun á fyrirhug-
aðri ferð stjórnar Byggðastofnunar
til Vestmannaeyja og Hornafjarðar
sem fyrirhuguð var 29. og 30. apríl
sl. Í þessu símtali var rætt um að
halda fast við áform um ferð stjórn-
ar um Borgarfjörð, sem lyki með
stjórnarfundi á Bifröst. Í símtalinu
var rætt um hugsanlega dagskrá
stjórnarfundar. Forstjóri sagðist
leggja áherslu á að í fyrsta lagi yrðu
ársreikningar stofnunarinnar lagðir
fram til kynningar og gat þess sér-
staklega að mikil tímapressa væri á
að fá ársreikningana kynnta á fund-
inum, enda þótt þeir yrðu ekki end-
anlega tilbúnir til afgreiðslu. Og í
öðru lagi að fjárhagsáætlun stofn-
unarinnar, sem búin væri að liggja
tilbúin síðan í febrúar sl., yrði tekin
til umræðu. Kristinn H. Gunnarsson
stjórnarformaður hafði engar at-
hugasemdir við þetta en lagði til að
til viðbótar yrði rædd skýrsla þróun-
arsviðs um samanburð flugsam-
gangna á Íslandi og Noregi. Næsta
sem gerist er, að í lok lánanefnd-
arfundar daginn fyrir stjórnarfund-
inn var dagskrá stjórnarfundar
rædd. Þá tilkynnti stjórnarformaður
að hann samþykkti ekki að ársreikn-
ingarnir yrðu settir á dagskrá
stjórnarfundarins. Forstjóri til-
kynnti þá stjórnarformanni að hann
hygðist óska eftir afstöðu stjórnar
til þess í byrjun stjórnarfundarins
að fá að leggja fram drög að árs-
reikningi, sem væru tilbúin, og óska
eftir því að endurskoðandi Byggða-
stofnunar, Árni Snæbjörnsson,
myndi gera grein fyrir reikningnum
á fundinum og í því sambandi yrði
endurskoðandinnn boðaður á fund-
inn til að gera grein fyrir reikning-
um. Forstjóri sagðist myndu af-
henda stjórnarformanni drögin að
ársreikningnum síðar um daginn
ásamt bréfi Fjármálaeftirlitsins,
eintaki af rekstraráætlun og fleira.
Þessi gögn afhenti forstjóri síðar
Kristni H. Gunnarssyni stjórnarfor-
manni á skrifstofu hans á Alþingi
síðar þennan sama dag, 6. maí sl., þá
rúmum sólarhring fyrir stjórnar-
fund.
Í byrjun stjórnarfundarins, strax
eftir að fundur hafði verið settur –
áður en gengið var til dagskrár,
reyndi forstjóri ítrekað að kveðja
sér hljóðs, gat þess að hann ætti
brýnt erindi við stjórn stofnunarinn-
ar, en var alltaf hindraður í að taka
til máls af stjórnarformanni. For-
stjóri sá sér ekki fært að sitja undir
slíkri meðferð formanns, stóð upp
og tilkynnti að hann sætti sig ekki
við slík vinnubrögð að vera hindr-
aður í að taka til máls, og að hann
myndi víkja af fundi. Strax eftir
fundinn ritaði forstjóri ábyrgðarbréf
til stjórnarmanna (fylgiskjal 6) og
þeim send gögnin sem ekki gafst
færi á að afhenda á fundinum,
þ.e.a.s. ársreikningur 2001, bréf
Fjármálaeftirlitsins dags. 3. maí
2002, rekstraráætlun 2002 ásamt
starfsáætlun þróunarsviðs og drög
að fundargerð lánanefndar nr. 6/02.
Stjórnarformanni höfðu verið afhent
eintök af öllum þessum gögnum ein-
um degi fyrir stjórnarfund, sem
hann veitti móttöku athugasemda-
laust.
Samkvæmt 4. gr. 6. lið laga um
Byggðastofnun er það verkefni
stjórnar stofnunarinnar að fjalla um
og samþykkja ársreikninga stofnun-
arinnar.
Framangreind atburðarás stað-
festir hins vegar, að stjórnarformað-
ur hindraði að reikningar yrðu lagð-
ir fram á stjórnarfundi hinn 7. maí
2002 til kynningar, þá 14 dögum áð-
ur en framlengdur skilafrestur
Fjármálaeftirlitsins rann út. Þegar
hér var komið sögu var málið í
Bréf
forstjórans