Morgunblaðið - 07.06.2002, Side 25
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 25
Tjöld Svefnpokar D‡nur Tjaldhúsgögn Prímusar
hjá Umfer›armi›stö›inni
Vorum a› opna
Tjöld frá 6.990 kr.
Tjaldaland
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
79
91
06
/2
00
2
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1500 og www.utilif.is
Bornholm
fiægilegt og létt
3ja manna tjald í
fer›alagi›, 5 kg.
Gott fortjald me›
tveimur inngöngum.
Astoria
Frábært fjölskyldutjald,
létt og fyrirfer›arlíti›.
Fæst bæ›i sem 4ra og
5 manna. Gott fortjald,
2 m hátt, sem hægt er
a› opna á flrjá vegu.
Au›velt í uppsetningu.
Kíktu til okkar á túni› vi› BSÍ
og sjá›u meira en 40 tjöld
í öllum stær›um og ger›um.
Opi› mánudaga - föstudaga kl. 9-18
og laugardaga kl. 10-16.
Sirius
Mjög vanda› 3ja manna
göngutjald me› álsúlum.
A›eins 4,1 kg.
Traust tjald
í öllum ve›rum.
Frábært ver›: 13.990
4 manna, ver›: 24.990
5 manna, ver›: 29.990
Ver›: 26.990
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir að tekið sé tillit til um-
framafla krókabáta í sóknardaga-
kerfi í ráðgjöf Hafrannsókna-
stofnunar og þess vegna sé leyfilegur
heildarafli á næsta fiskveiðiári lægri
en ella.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, hefur gagn-
rýnt umframafla krókabáta í
sóknardagakerfi og sagði í Morgun-
blaðinu í gær að væntanlega yrði
þorskafli sóknardagabáta vel á annan
tug þúsunda tonna á næsta fiskveiði-
ári og því ljóst að þorskafli ársins yrði
nokkru meiri en 179 þúsund tonn.
Leyfilegur heildarafli í þorski á
næsta fiskveiðiári er 179 þúsund
tonn. Í skýrslu Hafrannsóknarstofn-
unarinnar um aflahorfur á næsta
fiskveiðiári er gert ráð fyrir að þorsk-
aflinn á almanaksárinu 2002 verði
215 þúsund tonn. Aflinn á árinu 2001
varð 235 þúsund tonn en áætlun
stofnunarinnar gerði ráð fyrir að afl-
inn yrði ekki meiri en 205 þúsund
tonn. Þennan umframafla segir Árni
skýrast einkum af tilflutningi innan
fiskveiðiársins. Veiddur hafi verið
mikill afli á fyrri hluta yfirstandandi
fiskveiðiárs eða á seinni hluta alman-
aksársins 2001. Þá hafi töluvert verið
fært af veiðiheimildum yfir á yfir-
standandi fiskveiðiár en útlit sé fyrir
að þær muni veiðast og jafnvel verði
gengið eitthvað á veiðiheimildir
næsta árs, líkt og lög heimili. Eins
hafi vaxandi umframafli krókabáta í
sóknardagabáta haft áhrif á aflaáætl-
unina. Reynt sé að taka tillit til þess-
ara þátta í áætlun afla fyrir árið 2002.
„Þetta er það sem sóknardagakerfið
felur í sér og hefur alltaf leitt til þess
að sóknardagabátar hafa veitt um-
fram þann afla sem þeim er ætlaður.
Það er tekið tillit til þess í ráðgjöf
Hafrannsóknastofnunarinnar og
aflaákvörðunin á næsta fiskveiðiári
lægri vegna þess að umframafli sókn-
ardagabáta dregst frá stofnmatinu.
Við erum því að reyna að gera hlutina
á ábyrgari hátt. Ef ekki hefði verið
tekið tillit til þessa hefði ráðgjöfin
verið hærri en 179 þúsund tonn.“
Haft var eftir Friðrik J. Arngríms-
syni í Morgunblaðinu í gær að um-
framafli sóknardagbáta muni bitna á
öllum útgerðum, bæði í aflamarks-
kerfi og krókakerfi. Árni tekur undir
þetta og bendir á að þegar þorsk-
kvótinn dragist saman líkt og nú vegi
umframafli sóknardagabáta þyngra
og hafi hlutfallslega meiri áhrif. „Við
höfum ekki þá stjórnunarmöguleika í
sóknardagakerfinu sem við höfum í
aflamarkskerfinu. Það er mun erfið-
ara og flóknara að stjórna sóknar-
kerfi en í kvótakerfi. Það hefur hins
vegar verið stuðningur á Alþingi við
að leyfa veiðar í þessu kerfi,“ segir
Árni.
Tillit tekið til
umframafla
sóknardagabáta
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Esju-
berg hf. hefur selt heildsölu og
verslunarrekstur Heimilistækja hf.
Kaupandi er dótturfyrirtæki Sjón-
varpsmiðstöðarinnar ehf., sem mun
reka félagið áfram undir nafni
Heimilistækja. Búnaðarbankinn
Verðbréf hafði umsjón með sölunni.
Sjónvarpsmiðstöðin og dótturfyr-
irtæki þess mun taka við öllum
þeim umboðum sem Heimilistæki
hafa verið með á undanförnum ár-
um og áratugum, þ.m.t. Philips,
Whirlpool, Philco, Bose, Kenwood,
Blaupunkt, Nad, Dali, Casio og
Sanyo. Verslun Heimilistækja í
Sætúni 8 í Reykjavík og heildversl-
un Heimilistækja verða reknar
áfram í sömu mynd og verið hefur.
Segir í tilkynningu frá Sjónvarps-
miðstöðinni að áhersla verði lögð á
að sem flestir starfsmenn starfi
áfram hjá félaginu.
Eignarhaldsfélagið Esjuberg
mun áfram reka verslanir Euronics
í Smáralind og Kringlunni. Gunn-
laugur Sævar Gunnlaugsson,
stjórnarformaður Esjubergs, segir
ekkert launungarmál að rekstur fé-
lagsins hafi ekki gengið sem skyldi.
Samkeppni á raftækjamarkaði hafi
farið mjög vaxandi og verið sé að
bregðast við þeirri stöðu með þess-
um hætti.
Ólafur Már Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsmiðstöðv-
arinnar, segir að fyrirtækið sé að
styrkja stöðu sína á raftækjamark-
aði með kaupum á heildsölu og
verslunarrekstri Heimilstækja.
Verslun Sjónvarpsmiðstöðvarinnar
í Síðumúla 2 í Reykjavík verði rek-
in óbreytt áfram. Heildverslun
Sjónvarpsmiðstöðvarinnar styrkist
hins vegar verulega við þessi kaup.
Sjónvarpsmiðstöðin var stofnuð
1971 og er með megin áherslu á
sjónvörp, myndbandstæki, DVD-
spilara, hljómtæki og skyldar
vörur.
Rekstur Heimilis-
tækja seldur