Morgunblaðið - 07.06.2002, Side 28
ERLENT
28 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
A
B
X
/
S
ÍA
Frjálsa lífeyrissjóðnum og
Lífeyrissjóðnum Einingu
Til sjóðfélaga og rétthafa í
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins boðar til sjóðfélaga-
fundar í Sunnusal Hótel Sögu, föstudaginn 28. júní
nk. kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Sameining Frjálsa lífeyrissjóðsins og
Lífeyrissjóðsins Einingar
2. Breytingar á samþykktum
3. Kosning stjórnar
Fyrirhugaðar samþykktabreytingar munu liggja
frammi á skrifstofu Kaupþings tveimur vikum fyrir
sjóðfélagafund.
Allir sjóðfélagar og rétthafar í báðum sjóðunum
eru hvattir til að mæta. Nái samþykktabreytingar
í gegn hafa sjóðfélagar í Einingu kosningarétt við
stjórnarkjör.
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins.
Ármúli 13, 108 Reykjavík
sími 515 1500
www.kaupthing.is
UNDIRHERSHÖFÐINGI í Ísrael
segir að palestínskir hryðjuverka-
menn hafi ætlað að beita blásýrugasi
í mannskæðustu sjálfsmorðsárásinni
sem gerð hefur verið frá því að upp-
reisn Palestínumanna hófst fyrir 20
mánuðum. 29 Ísraelar biðu bana í
árásinni en undirhershöfðinginn,
Aharon Zeevi, segir að tilræðis-
mennirnir hafi ætlað að valda enn
meiri blóðsúthellingum.
Í árásinni sprengdi Palestínumað-
ur sig í loft upp í veitingasal hótels í
ísraelska bænum Netanya á
páskahátíð gyðinga, 27. mars sl., og
tilræðið varð til þess að Ísraelar
hófu sex vikna hernað á Vesturbakk-
anum.
Zeevi sagði á fundi með öryggis-
nefnd Ísraelsþings á þriðjudag að
tilræðismaðurinn hefði átt að beita
blásýrugasi en ekki getað það vegna
tæknilegra vandamála, að sögn Rons
Kitreys, talsmanns Ísraelshers.
Kitrey sagði að blásýra hefði ekki
fundist á hótelinu. „Við erum að tala
um ásetning,“ sagði hann og vildi
ekki veita frekari upplýsingar um
áformin.
Blásýrugas getur verið banvænt í
lokuðu rými eins og veitingasalnum
þar sem árásin var gerð.
Óttast árásir sem geta kostað
þúsundir manna lífið
Ísraelskir sérfræðingar í varnar-
málum sögðu að palestínskir hryðju-
verkamenn hefðu lagt á ráðin um
fleiri árásir sem hefðu getað kostað
þúsundir manna lífið. Þeir skírskot-
uðu meðal annars til sprengju sem
komið var fyrir undir tankbíl
skömmu eftir að honum var ekið inn
í stærstu eldsneytisbirgðastöð Ís-
raels 26. maí.
Ekkert manntjón varð þegar
sprengjan sprakk og slökkviliðs-
mönnum tókst að koma í veg fyrir að
eldurinn breiddist út í birgðastöð-
inni sem er á þéttbýlasta svæði Ísr-
aels, Tel Aviv og nágrenni. Embætt-
ismenn segja að hefðu stórir
gastankar í birgðastöðinni sprungið
hefði sprengingin valdið gífurlegu
manntjóni og eyðileggingu á hluta
svæðisins. Um þriðjungur sex millj-
óna íbúa Ísraels býr í Tel Aviv og ná-
grenni.
Árásir á skýjakljúfa
í Tel Aviv?
Eftir þetta misheppnaða tilræði
veltu sérfræðingar því fyrir sér til
hvaða aðgerða Ísraelsstjórn kynni
að grípa ef palestínskir hryðjuverka-
menn yrðu hundruðum eða þúsund-
um Ísraela að bana í slíkum árásum.
Þeir leiddu meðal annars getum að
því að Ísraelar myndu leggja allan
Vesturbakkann og Gaza-svæðið und-
ir sig og reka leiðtoga Palestínu-
manna í útlegð.
Ísraelskir embættismenn segjast
einnig hafa afhjúpað samsæri í síð-
asta mánuði um sprengjutilræði í
Azrieli-miðstöðinni í miðborg Tel
Aviv, 46 og 50 hæða turnum. Efnt
var til björgunaræfingar á þriðjudag
í einum af skýjakljúfum borgarinnar
þar sem æfð voru viðbrögð við
hryðjuverki á borð við árásirnar á
turna World Trade Center í New
York 11. september.
„Hafa ekki bolmagn til að
fremja stórfelld hryðjuverk“
Zeev Schiff, hermálasérfræðingur
ísraelska dagblaðsins Haaretz, sagði
að palestínskar öfgahreyfingar væru
alltaf að leita leiða til að fremja
mannskæð hryðjuverk.
Barry Rubin, sérfræðingur í her-
málum við Bar Ilan-háskóla, sagði
að palestínskir hryðjuverkamenn
svifust einskis en bætti við að þeir
hefðu ekki „bolmagn til að fremja
stórfelld hryðjuverk“. Hann kvaðst
efast um að hryðjuverkahreyfing-
arnar legðu mikið kapp á að skipu-
leggja slíkar árásir. „Meginmark-
miðið er að gera margar árásir án
afláts í því skyni að þreyta Ísraela til
uppgjafar.“
Óttast að palestínskir hryðjuverkamenn geri enn mannskæðari árásir í Ísrael
Sagðir hafa ætlað
að beita blásýrugasi
Jerúsalem. AP.
AP
Azrieli-turnarnir í Tel Aviv. Ísraelskir embættismenn segja að palest-
ínskir hryðjuverkamenn hafi ætlað að leggja bíl, hlöðnum sprengiefni, í
bílageymslu undir turnunum en tilræðinu hafi verið afstýrt.
Reyndu að
sprengja stærstu
eldsneytisbirgða-
stöð Ísraels