Morgunblaðið - 07.06.2002, Side 38

Morgunblaðið - 07.06.2002, Side 38
UMRÆÐAN 38 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ T ómas Ingi Olrich menntamálaráðherra benti réttilega á það í ræðu sem hann hélt við lok Íslenska sögu- þingsins sl. laugardag að sterk tengsl væru á milli stjórnmála og sagnfræði. Þessi tengsl eru að mati ráðherrans æði fyrirferð- armikil, frjó en á stundum erfið. „Stjórnmálamenn hafa að lík- indum nokkurn vilja til að halda um pennann og skrifa eigin sögu. Sjónarhorn þeirra er nauðsynlegt og alla jafnan gagnlegt. Þó ekki einhlítt. Það skiptir mestu máli hver skrifar söguna, sagði Tómas Ingi. Þessi orð ráðherrans eru athygl- isverð í ljósi þess að í einni af fjölmörgum mál- stofum þingsins var m.a. minnt á að sagnfræðingar fyrri tíma voru oftar en ekki virkir þátttakendur í þeirri baráttu sem háð var. Hér er fyrst og fremst verið að vísa til sjálfstæðisbaráttunnar, þar sem öll sagnfræðiritun mótaðist af því markmiði sem stefnt var að – þ.e. sjálfstæði frá Dönum – en jafn- framt mátti leggja mál Helga Þor- lákssonar á þann veg, að hið sama hafi gilt um skrif Sturlu Þórð- arsonar á sturlungaöld. Sagnfræðingar fyrri tíma léku semsé lykilhlutverk í því að búa til og festa í sessi minningar, sem Ís- lendingar sameinuðust um í bar- áttu sinni. Í þessu sambandi skiptu meint tengsl við meinta gullöld á miðöldum miklu máli, urðu grundvöllur endurreisnar á nítjándu öld. Þá varð íslensk tunga þráðurinn í viðleitninni til að sanna fyrir sjálfum sér og öðrum að Íslendingar væru sérstakir og ættu því skilið að vera sjálfstæð þjóð. Tilgangurinn helgaði meðalið – sem gefur mönnum ef til vill ástæðu til að efast pínulítið um fræðilegar niðurstöður fyrri tíma sagnfræðinga; í öllu falli leggja niður fyrir sér hvort tilgangurinn sé sá sami og áður, því sé hann það ekki, hlýtur að þurfa að skipta um meðal. Því var hins vegar haldið fram á söguþinginu að gjörbreyting hafi orðið á því hvernig sagnfræði er stunduð á Íslandi. Sagnfræðingar væru í seinni tíð mun gagnrýnni, m.a. á skrif forvera sinna um sjálf- stæðisbaráttuna. Á sama tíma hefði mikilvægi sagnfræðinga í þjóðmálaumræð- unni hins vegar minnkað til muna. Á meðan sagnfræðingar hefðu gefið þjóðinni forsendur þeirra sameiginlegu minninga sem virk- uðu sem vopn í sjálfstæðisbarátt- unni, hefði verið á þá hlýtt og þeim hampað. Nú þegar þeir hins vegar skoruðu á hólm forsendur þessara sömu minninga væri eins og eng- inn vildi hlusta. Hin hefðbundna þjóðernisorðræða blífur. Benti Guðmundur Hálfdan- arson prófessor m.a. á að stjórn- málamenn hafi í hátíðarræðum á Þingvöllum á 50 ára afmæli lýð- veldisins árið 1994 flutt næstum sömu ræður og þeir, sem til máls tóku á Þingvöllum 50 árum fyrr. Þá hættir ýmsum til að ræða Evrópumálin, sem svo mjög eru í brennidepli einmitt þessi misserin, með vísan til sjálfstæðisbarátt- unnar, eins og það sé beinn þráður milli hennar og andstöðu við ESB- aðild. Að með ESB-aðild væri ver- ið að kasta fyrir borð þeim árangri sem forfeður vorir náðu, er þeir tryggðu Íslendingum stjórnarskrá 1874, heimastjórn 1904, fullveldi 1918 og loks sjálfstæði 1944. Slíkt bæri að sjálfsögðu að flokka undir helgispjöll, jafnvel landráð. Hyggist andstæðingar ESB- aðildar byggja málflutning sinn á slíkum rökum má telja víst að þeir hafi ekki áttað sig á því að afhelg- un hinnar rómantísku, göfugu sjálfstæðisbaráttu hefur átt sér stað (eða er að eiga sér stað). Þetta þýðir ekki, að sagnfræðingar hafi komist að þeirri niðurstöðu að for- feður vorir hafi ekki gengið veginn til góðs; heldur að veruleikinn hafi verið öllu flóknari en svo, að bar- áttan hafi einfaldlega staðið milli góðs og ills, hjartahreinna sjálf- stæðishetjanna og danskra fóla. Upphafin þjóðernisorðræða sjálfstæðisbaráttunnar virðist þó lifa góðu lífi hvað sem líður sagn- fræðingum þessa lands. Er ástæða til að spyrja hvort það sé við- unandi, að færustu sagnfræðingar landsins takist á hendur þá endur- skoðun sögunnar, sem eðlileg er og nauðsynleg á hverjum tíma, en enginn leggi við hlustir. Ber stjórnmálamönnum ekki skylda til að leita fanga í skrifum þeirra, og láta vera að þylja upp klisjur sem þóttu hæfa á sínum tíma, en sem nú hljóma gam- aldags? Leitt er til þess að vita – m.a. með vísan til þess fróðlega og skemmtilega söguþings sem nú er afstaðið – hversu mjög sagnfræð- ingar virðast hafa lent utanveltu í íslenskri þjóðmálaumræðu. Eða eigum við kannski frekar að segja, að dapurleg sé sú staðreynd að á sagnfræðinga sé vissulega ennþá hlustað, en enginn heyri þó í þeim. Eina undantekningin á þessu virðast vera skrif Þórs Whitehead og Vals Ingimundarsonar um kalt stríð og seinna stríð en skýringin á því er væntanlega sú (fyrir utan þá, að bækurnar eru listavel skrif- aðar og áhugaverðar í sjálfu sér) að þar er Íslandi stillt upp í eldlínu átaka, sem þátttakanda í heims- málum. Smáþjóð með minnimátt- arkennd vill gjarnan hlýða á slíka sögu, þar sem henni er stillt upp sem nafla alheimsins. Að vísu bera sagnfræðingar sjálfir hér nokkra sök – öðruvísi gæti það ekki verið. Þeir hafa í mörgum tilfellum gleymt sér í smáatriðunum, tapað sýn á meg- inatriðin. Það er samt óviðunandi fyrir alla, sagnfræðinga jafnt sem aðra sem láta sig söguvitund þjóð- arinnar einhverju máli skipta, að þjóðsögur nútímans skuli búnar til í Hollywood, en því var einmitt haldið fram á söguþingi um síð- ustu helgi. Sagan og sjálfstæðið Tilgangurinn helgaði meðalið – sem gefur mönnum ef til vill ástæðu til að efast pínulítið um fræðilegar niðurstöð- ur fyrri tíma sagnfræðinga; í öllu falli leggja niður fyrir sér hvort tilgangurinn sé sá sami og áður, því sé hann það ekki, hlýtur að þurfa að skipta um meðal. VIÐHORF Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is Rafmagnsdeild hef- ur verið starfandi frá stofnun Tækniskóli Íslands 1964. Fyrstu útskriftarnemar voru 1. hluta rafmagns- tæknifræðingar. 1970 var sett á laggirnar ný námsbraut í raf- iðnfræði og útskrifuð- ust fyrstu nemarnir 1971. Það var svo haustið 1999 að þriðja námsbrautin bættist við, tölvu- og upplýs- ingatæknifræði, munu fyrstu nemendur út- skrifast í janúar 2003 með B.Sc. gráðu. Það hefur löngum einkennt nám í rafmagnsdeild að nemendur öðl- ast þar góða og haldbæra und- irstöðu í raungreinum jafnframt því að kennsla í tæknigreinum er í takt við tímann, þ.e.a.s. í takt við raunverulegar þarfir nútímaat- vinnulífs. Tengslin við íslenskt atvinnulíf hafa verið bæði mikil og góð. Þau birtast m.a. í formi verkefnavinnu nemenda en auk þess sem stór hluti kennara deildarinnar er kennarar sem starfandi eru á við- komandi fagsviði. Með þeim berast nýjustu straumar og stefnur beint inn í námið. Verkefnatengt nám Með áherslu á verkefnatengingu námsins, gefst nemendum kostur á að sannreyna fræðin verklega. Á ensku er slík námsáhersla gjarnan nefnd „hands on“. Í stað þess að sitja meirihluta námstímans undir fyrirlestrum þá fær einstaklingur- inn tækifæri til að glíma við raun- veruleg verkefni sem eykur honum sjálfs- traust og dýpkar skilning fyrir utan nú það að gera námið bæði lifandi og skemmtilegt. Rafmagnsdeildin er aðili að samevrópsku samstarfsneti tækniháskóla á sviði rafmagns-, tölvu- og upplýsingatækni- fræði. Þar kynna tækniháskólarnir kennsluefni og kennsluaðferðir. Sam- anburður rafmagns- deildar Tækniháskóla Íslands við aðra sambærilega skóla erlendis hefur verið mjög hagstæður, og stenst það nám fyllilega saman- burð við það besta sem boðið er upp á erlendis. Námi í rafmagnstæknifræði er skipt upp í þrjú meginsvið en þau eru sterkstraums-, veikstraums- og tölvusvið. Það hefur staðið til undanfarin misseri að kenna rafmagnstækni- fræði til lokaprófs hér heima, en nemendur hafa hingað til þurft að fara erlendis til að ljúka námi. Þetta er eina grein tæknifræðinn- ar sem þannig háttar til með. Von- andi horfir það nú til betri vegar með nýjum lögum um Tæknihá- skóla Íslands. Sú breyting hefur orðið á inn- tökuskilyrðum fyrir þá sem lokið hafa meistaranámi í rafiðn, að þeir geta hafið nám á fyrstu önn raf- iðnfræðinnar. Námstíminn er 1½ ár í stað 2½ árs áður. Rafiðnfræðingar eru eftirsóttur starfskraftur á verkfræðistofum við hönnunarverkefni ýmiss konar enda búa þeir yfir mikilli verklegri þekkingu og reynslu auk góðrar tæknilegar undirstöðu. Eftir þriggja ára starf á fagsviði sínu, að námi loknu, geta rafiðnfræðingar sótt um fullgild teikniréttindi. Tölvu- og upplýsingatæknifræði Nýjasta námsbrautin í raf- magnsdeild er tölvu- og upplýs- ingatæknifræði. Námið er þverfag- legt þar sem megináherslan er lögð á tölvuna og umhverfi hennar , s.s. forritun, nettækni, tölvunar- fræði, rekstur og stjórnun. Þessi námsbraut hefur farið vel af stað og aðsókn og eftirspurn verið mjög góð. Nemendur geta að loknu námi orðið sér úti um al- þjóðlega prófgráðu Cisco. Mikil þörf er á fólki með sérfræðimennt- un á sviði tölvu- og upplýsinga- tækni í heiminum. Í Bandaríkj- unum t.d. er skorturinn orðinn það mikill að stjórnvöld þar gefa orðið út fleiri hundruð atvinnuleyfi á ári til handa fólki með menntun á þessu sviði. Nám í rafmagnsdeild við Tækniháskólann Magnús Matthíasson Nám Nýjasta námsbrautin í rafmagnsdeild, segir Magnús Matthíasson, er tölvu- og upplýsingatæknifræði. Höfundur er forstöðumaður rafmagns- og upplýsingadeildar. ÞAÐ er þekkt í knatt- spyrnunni að þegar varnarmanni tekst ekki að ná til boltans er stundum gripið til þess örþrifaráðs að sparka niður sóknarmanninn, þykir það fremur óíþróttamannslegt. Árrisulir knattspyrnu- áhugamenn hafa þessa dagana tækifæri til að fylgjast með slíkum æf- ingum á knattspyrnu- völlum austur í Asíu. En það er ekki bara í knatt- spyrnunni sem hjólað er í manninn úr því ekki næst til boltans. Íslenskir sjónvarps- áhorfendur urðu vitni að því þegar Bryndís Hlöðversdóttir, þingflokks- formaður Samfylkingarinnar, varð ber að slíku athæfi í kjölfar birtingar á greinargerð Hagfræðistofnunar Háskólans um kostnað af mögulegri ESB-aðild Íslands. Aðdróttanir þingflokksformanns Í fréttum Stöðvar 2 á þriðjudaginn var lét Bryndís Hlöðversdóttir hafa eftirfarandi eftir sér: „Það sem vekur mér eða öllu veldur mér hins vegar miklum áhyggjum það er að stofnanir Háskóla Íslands skuli taka að sér að vinna verk sem eru svona rammpóli- tísk eins og þetta verk er og skoð- anakönnun Félagsvísindastofnunar um sama efni fyrir skömmu síðan og að forsætisráðherra skuli í raun og veru hafa þennan aðgang að stofnun- um Háskóla Íslands að þetta sé unnt, það veldur mér miklum áhyggjum.“ Og í fréttum Ríkissjónvarpsins sama dag er þingmaðurinn enn við sama heygarðshornið: „Já ég gef í raun og veru lítið fyrir þessa skýrslu sem gagn í umræðuna um kostnað af Evr- ópusambandinu eða við Evrópusam- bandsaðild vegna þess að hún byggir á mjög hæpnum for- sendum og beinlínis röngum á köflum. Hún tekur aðeins hluta af myndinni og ég er satt best að segja mjög hissa á því að stofnun Há- skóla Íslands skuli taka að sér að birta niður- stöðu sem er byggð á svona hæpnum og ófag- legum grunni eins og þessi.“ Bryndís er for- maður þingflokks Sam- fylkingarinnar og í krafti þess hafa orð hennar aukið vægi. Með ummælum sínum vegur þingmaðurinn harkalega að vísinda- heiðri tveggja stofnana Háskóla Ís- lands og gerir því skóna að þar ráði einhver annarleg sjónarmið för. Þetta eru mjög alvarlegar aðdróttanir hjá þingmanninum og með öllu óskiljan- legt að hún skuli fara fram með þeim hætti sem raun bar vitni. Það verður reyndar að hrósa fréttamanni sjón- varpsins fyrir að hrekkja ekki þing- manninn með því að spyrjast fyrir um hverjar hinar hæpnu forsendur séu og hvað sé rangt í skýrslu Hagfræði- stofnunar, slíkt hefði verið flokkað undir óþarfa hnýsni af hálfu frétta- mannsins. En óneitanlega hefði það verið kurteisi af hálfu þingflokksfor- mannsins, úr því að hún kaus að vega að starfsheiðri starfsmanna Hag- fræðistofnunar í fjölmiðlum, að hún gerði grein fyrir hver væru efnisleg rök fyrir fullyrðingum sínum. Vísvitandi rangfærslur Hagfræðistofnun var beðin að reikna út nettóframlag Íslands til Evrópusambandsins, þ.e. hversu há- an tékka þurfum við að senda til Brussel árlega. Það vekur því furðu að formaður þingflokks Samfylking- arinnar skuli finna sérstaklega að því að Hagfræðistofnun skuli ekki hafa rannsakað ýmislegt annað í leiðinni, s.s. áhrif af upptöku evru. Í Morgun- blaðinu síðastliðinn miðvikudag segir Bryndís: „Ekki sé tekið með í reikn- inginn hvaða áhrif upptaka evrunnar myndi hafa eða upptaka sameigin- legrar myntar á vaxtastigið og minnkandi umsýslukostnað, sem Þjóðhagsstofnun og hnattvæðingar- nefnd hafi talið að myndi skila þjóð- arbúinu 10 til 15 milljörðum.“ Nú liggur það fyrir og hefur meðal ann- ars verið staðfest af höfundum s.k. hnattvæðingarskýrslu að þjóðin mun ekki spara 15 milljarða ef krónunni yrði kastað og evra tekin upp. Í fyrsta lagi er ekki ljóst hvort um einhverja vaxtalækkun verður að ræða þar sem líklegt er að aðild að evru muni m.a. leiða til hærri vaxta af húsnæðislán- um. Ef til einhverra vaxtalækkana kæmi er einungis um að ræða til- færslu á fjármunum innanlands, sum- ir Íslendingar fá lægri vaxtagreiðslur og aðrir Íslendingar greiða lægri vexti. Það að fullyrða að upptaka evru skili 10 til 15 milljörðum til þjóðarbús- ins er annaðhvort vísvitandi blekking eða þekkingarleysi. Bryndís Hlöð- versdóttir sakar Hagfræðistofnun um ófagleg vinnubrögð og að fara ekki með rétt mál. Ekki er úr vegi að þing- maðurinn geri sömu kröfur til eigin málflutnings og hún gerir til annarra. Ómakleg árás Illugi Gunnarsson ESB Með ummælum sínum, segir Illugi Gunn- arsson, vegur þingmað- urinn harkalega að vís- indaheiðri tveggja stofnana Háskóla Ís- lands og gerir því skóna að þar ráði einhver ann- arleg sjónarmið för. Höfundur er hagfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.