Morgunblaðið - 07.06.2002, Síða 56
56 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Framhaldsskólakennarinn Haukur
Már Haraldsson var tekinn í ból-
inu við að rægja undirritaðan og
fleiri með því að gera okkur upp
skoðanir þess efnis að við rétt-
lættum allar gjörðir Ísraels með
því fororði að þjóðin væri útvalin
af Guði.
Enn er Haukur við sama hey-
garðshornið í Morgunblaðinu 26.5.
Hann getur ekki sætt sig við klám-
högg sitt, en dregur þó örlítið í
land og segir að honum „finnist
hafa komið fram hjá Gunnari“.
Ég sagði að fingur Guðs væri að
verki í Austurlöndum nær og því
er sannarlega þannig varið. End-
urkoma gyðinga til Ísraels um
miðja síðustu öld er ótrúlegt
kraftaverk og einn stærsti vitn-
isburður sögunnar um tilvist Guðs
Biblíunnar. Guð sagði það fyrir og
það varð. Aldrei hefur það gerst
að þjóð hafi dreifst meðal þjóð-
anna, en safnast í heimaland sitt á
ný þúsundum ára síðar. Fingur
Guðs er sannarlega að verki. Guð
er að tala. Það var einmitt þessi
ótrúlegi atburður sem gerði það að
verkum að trúin á lifandi Guð tók
að blómstra í hjarta mínu.
Að fullyrða að þetta merki að ég
réttlæti öll ofbeldisverk Ísraels-
manna og lýsi þau vilja Guðs er
fjarri öllum sanni. Haukur kýs að
halda því fram og enn bregður
hann kíkinum fyrir blinda augað
og rýnir inn í sortann. Í sortanum
sér hann ofsatrúarmann í Kópa-
vogi sem fagnar mikið yfir hörm-
ungum óbreyttra palestínskra
borgara og samþykkir allar gjörðir
misviturra stjórnmálamanna í
landinu helga. Þetta er ekki rétt,
Haukur, og það er alveg sama
hvað þú endurtekur þessi ósann-
indi oft, þau verða ekki annað en
ósannindi. Sem kennari ættir þú
að verða maður að meiri og biðjast
fyrirgefningar á þessu axarskafti
þínu, en ekki að réttlæta ummæli
þín með óljósu fimbulfambi.
Haukur, ég trúi því ekki að þú
gleðjist yfir sjálfsmorðsárásum
Palestínumanna á óbreytta borg-
ara í Ísrael. Við erum einnig mörg
sem hörmum allt ofbeldi í Ísrael
og berum ekki blak af því með
neinum hætti hverjir sem í hlut
eiga, en við höfum séð fingur Guðs
að verki í landinu helga og það
verður ekki frá okkur tekið.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð
fleiri, en Haukur, ég býð þér á
samkomu hér í Krossinum klukkan
hálffimm á sunnudaginn. Þar get-
um við gert upp málin frammi fyr-
ir Guði.
GUNNAR ÞORSTEINSSON,
forstöðumaður Krossins
í Kópavogi.
Kíkirinn,
blinda augað og
fingur Guðs
Frá Gunnari Þorsteinssyni:
ÉG ÆFI fótbolta og mér finnst
ömurlegt að það skuli vera sýnt
svona lítið frá kvennaboltanum.
Það er sýnt frá útlendum fótbolta,
úrvalsdeild karla, 1. deild karla og
stundum 2. deild, en ekki úrvals-
deild kvenna. Það er líklega sýnt
meira frá kvennabolta í útlöndum,
t.d. norska kvennaboltanum, en ís-
lenskum! Núna eru allir leikir í
heimsmeistarakeppninni sýndir og
það er frábært, en það var ekki
sýndur einn einasti leikur í síðustu
heimsmeistarakeppni kvenna.
Vonandi kemst íslenska lands-
liðið í næstu heimsmeistarakeppni,
þær þurfa bara að valta yfir
ítölsku stelpurnar og þá komast
þær til Kína. Ætli sjónvarpsstöðin
Sýn vilji sýna frá heimsmeistara-
keppni kvenna og ætli fyrirtækin
sem styrkja útsendingarnar núna
vilji sýna jafnrétti í verki og styðja
útsendingar frá kvennaboltanum?
Kvennaboltinn er alveg eins og
karlaboltinn, jafnvel skemmtilegri,
eða það finnst mér. Það er mikið
spil og flott mörk. Karlar eru ekk-
ert betri en konur og það ætti að
sýna meira frá kvennaboltanum. Í
Morgunblaðinu fá karlarnir M ef
þeir leika vel og sagt er hvað dóm-
ararnir fá mörg stig, hver áhorf-
endafjöldinn var, hvernig veður
var, hvað það voru margar horn-
spyrnur, aukaspyrnur, skot og
mörk en það er ekki gert neitt
svona fyrir kvennaboltann. Mér
finnst að það ætti að gera svona
líka fyrir kvennaboltann. Í Morg-
unblaðinu er stundum skrifað mik-
ið um jafnrétti en jafnréttið kemst
ekki inn á íþróttasíður blaðsins.
Svona er þetta líka í sjónvarpinu
og í textavarpinu koma alltaf inn
nýjar tölur þegar það er skorað
nema í kvennaboltanum, þá þarf
að bíða lengi.
Ég væri mjög ánægð ef flestir
væru jafnréttissinnaðir og sýndu
það í verki; sjónvarpsstöðvarnar
sýndu meira frá kvennaboltanum
og íþróttafréttamenn skrifuðu al-
veg jafnmikið í blöðin um kvenna-
boltann og karlaboltann.
Ég vil hvetja fólk til að koma og
horfa á kvennaboltann og hafa
góða stemmningu á vellinum. Jafn-
rétti er fyrir alla, alls staðar, líka í
fótboltanum.
ÓLÖF GERÐUR ÍSBERG,
Grandavegi 7,
13 ára íþróttakona í KR.
Kvennafótbolti
Frá Ólöfu Gerði Ísberg: