Morgunblaðið - 07.06.2002, Síða 68

Morgunblaðið - 07.06.2002, Síða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. FIMM laumufarþegar, albanskir karlmenn á þrítugsaldri, komu með Norrænu til Seyðisfjarðar í gær og sóttu um pólitískt hæli hér á landi. Að sögn Lárusar Bjarnasonar, sýslu- manns á Seyðisfirði, földu mennirnir sig í vöruflutningabifreið og fundust við leit tollvarða. Albönunum var synjað um hæli hér á landi og fóru þeir aftur með Norrænu í fylgd lög- reglumanna. Mmeðan á yfirheyrslum yfir Alb- önunum stóð óskuðu þeir eftir póli- tísku hæli sem flóttamenn, en úr- skurður var kveðinn upp þess efnis að þeim væri synjað um komu til landsins og segir Lárus að einnig hafi verið synjað að taka við beiðni þeirra um pólitískt hæli á þeim forsendum að saga þeirra þætti ekki trúverðug. Lárus segist lítið vita um mennina. Þeir segjast koma frá Makedóníu og eru vegabréfslausir og ferðaskilríkja- lausir með öllu. Þeir segjast einnig hafa greitt 5 þúsund dollara á mann fyrir ferðina sem hafði verið skipu- lögð hingað til lands. Einn stökk frá borði og freistaði þess að synda í land „Í samstarfi við okkur í þessu máli voru menn frá alþjóðadeild ríkislög- reglustjórans og þeir munu hafa samband við norsk yfirvöld og láta vita af væntanlegri komu þessara manna og ég geri ráð fyrir því að þeir í Noregi taki mál þeirra upp,“ segir hann, en nefnir að hugsanlegt sé að mennirnir eigi hælisbeiðnir annars staðar. Eftir að Albönunum hafði verið synjað um hæli hér á landi voru þeir fluttir í Norrænu og fóru tveir ís- lenskir fylgdarmenn með að ósk skip- verja. Þegar skipið var komið hálfa leið út Seyðisfjörð laust eftir hádegið voru mennirnir leystir úr handjárn- unum. Skömmu síðar stökk einn Alb- ananna í sjóinn, en skipverjar náðu honum aftur um borð heilum á húfi. Lárus segir að bílstjóri vörubif- reiðarinnar, sem Albanarnir tóku sér far með, sé Íslendingur sem hafi ver- ið búsettur erlendis og ber hann því við að hann hafi ekki vitað af mönn- unum í bifreiðinni. Verið er að rann- saka hlutdeild hans en það er lögbrot að hjálpa útlendingi við að koma ólög- lega til landsins. Georg Lárusson, forstjóri Útlend- ingaeftirlitsins, segir aðspurður hvort flóttamönnum sem óski hælis hér á landi hafi fjölgað að frekar hafi þeim fækkað. Rauði kross Íslands hefur gert at- hugasemdir við meðferð á máli Alb- ananna. Þórir Guðmundsson, upplýs- ingafulltrúi RKÍ, segir að meðal þeirra athugasemda sem þau gerðu hafi verið að ekki hafi verið hægt að meta hvort framburður þessara manna væri sennilegur án þess að kalla til túlk. Hann segir það grund- vallaratriði að þeir sem leiti hælis fái tækifæri til að tjá sig um hvers vegna þeir sæki um hæli. Fimm albanskir karlmenn komu með Norrænu og sóttu um hæli hér á landi Földu sig í vöruflutninga- bíl sem Íslendingur ók Morgunblaðið/Ragnhildur Laumufarþegarnir voru leiddir um borð í handjárnum. STERKAR lík- ur eru á því að norski leik- stjórinn og leik- konan Liv Ull- mann leikstýri kvikmyndinni „The Journey Home“, sem byggð verður á skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar, Slóð fiðr- ildanna. Þetta staðfestir Sigur- jón Sighvatsson, kvikmynda- framleiðandi hjá Palomar Pictures í Los Angeles. Segir hann jafnframt að við- ræður við handritshöfundinn Eileen Atkins séu á lokastigi. Leikstýrir líklega Slóð fiðrildanna  Viðræður/30 Liv Ullmann TOLLGÆSLAN í Reykjavík fann við leit í vörusendingu frá Bandaríkjun- um sl. þriðjudag 102 þúsund töflur með blöndu af örvandi efnunum efedríni og koffeini sem eru ólögleg saman. Lögreglu var gert viðvart og var maður handtekinn í fyrradag er hann vitjaði sendingarinnar. Gekkst hann við aðild sinni að henni og var honum sleppt að lokinni yfirheyrslu. Ársæll Ársælsson, yfirtollvörður hjá Tollgæslunnni í Reykjavík, segir þetta eina umfangsmestu sendingu af ólöglegum efnum sem lagt hafi verið hald á eða um 80 kg. Efnið sé m.a. selt meðal vaxtarræktar- og lyftingafólks til að auka getu þess en einnig séu dæmi um að fólk neyti þess til að auka úthald sitt við skemmtanir. Lögreglu- og tollyfirvöld segja magn efnisins benda til að selja hafi átt efnið. Töflurnar með efedrín-blöndunni voru hluti af 260 kg sendingu sem skilgreind var sem próteinduft. Efnið var í innsigluðum dósum frá framleið- anda og litu þær allar eins út. Hlutfall efedríns í efninu var 6% og hlutfall koffeins 12%. Ársæll segir efni sem þetta finnast í slíkum vörusendingum en einnig hafi tollgæslan fundið það í póstsendingum, í búslóðum sem flutt- ar eru til landsins og í skipum. Ásgeir Karlsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn í fíkniefnadeild lögregl- unnar í Reykjavík, sagði að maðurinn sem handtekinn var hefði játað aðild sína að sendingunni. Ásgeir vildi ekki svara hvort fleiri væru hugsanlega tengdir málinu. Ingimundur Einarsson, varalög- reglustjóri í Reykjavík, segir lögregl- una jafnan kanna ábendingar um sölu ólöglegra efna, hvort sem það væri manna á meðal eða á heilsuræktar- stöðvum. Tollgæslan lagði hald á 102 þúsund efedríntöflur Morgunblaðið/Sverrir Hluti taflnanna sem Tollgæslan í Reykjavík lagði hald á. BRAGI Steinarsson vararíkissak- sóknari telur að þau brot sem Árni Johnsen hefur gerst sekur um nægi til að dæma hann í tveggja og hálfs árs fangelsi og geti refsi- tíminn ekki orðið minni en tvö ár. Ekki komi til greina að skilorðs- binda refsinguna. Aðalmeðferð í málinu lauk í gær og má búast við að Guðjón St. Marteinsson héraðsdómari kveði upp dóm innan þriggja vikna. Bragi minnti á að í almennum hegningarlögum væri mælt fyrir um að bæta helmingi ofan á refs- ingu fyrir brot sem væru framin í opinberu starfi. Margvísleg afbrot Árna á árunum 1997–2001 hefði hann öll framið í opinberu starfi. Jakob R. Möller, verjandi Árna Johnsen, sagði hugmyndir vararík- issaksóknara um refsingu vera fá- ránlegar miðað við það tjón sem hefði orðið af brotum Árna. Krafð- ist hann sýknu fyrir þau brot sem Árni hefur ekki játað. Verjendur þeirra fjögurra sem ákærðir eru með Árna kröfðust allir sýknu fyrir skjólstæðinga sína. Telur brot varða 2½ árs fangelsi  Varnirnar/10 HRAFNKELL Brynj- arsson, 23 ára Akur- eyringur, sem var í haldi Ísraelshers ásamt sjö öðrum sjálf- boðaliðum frá því á laugardag þar til í gær, kom í gærkvöldi til London með flugi frá Tel Aviv eftir að honum var vísað úr landi í Ísrael. Í samtali við Morg- unblaðið segir Hrafn- kell að allan síðasta laugardag hafi hóp- urinn fylgt ísraelskum hermönnum eftir um flóttamannabúðirnar í Nablus og rætt við þá. „Þetta voru bæði per- sónuleg og pólitísk samtöl, við rædd- um um siðferðilega hlið þess sem þeir voru að gera, reyndum að fá þá ofan af því að brjóta niður vegg eftir vegg eftir vegg í íbúð- arhúsum; þeir brutu sér göng í gegnum húsin, að sögn til að eiga sér undankomuleið ef þeir lentu í bardögum. Við reyndum að tala um fyrir þeim, fórum inn í íbúðir sem þeir voru á leið í og færðum til hús- gögn við veggi þar sem von var á þeim í gegn. Við ræddum mikið við hermennina um frið og bentum þeim á að sá möguleiki væri fyrir hendi að neita að hlýða skipunum. En við reyndum ekki að stöðva þá með neinum stimpingum enda þjónaði það engum tilgangi; þeir voru vopn- aðir M-16 en við vorum bara með GSM-síma. Hvergi þar sem við kom- um var okkur sagt að um lokað bannsvæði væri að ræða. Þvert á móti fengum við að fylgja hermönn- unum hús úr húsi,“ sagði Hrafnkell. Sjálfboðaliðarnir komu til Balata á föstudagskvöldi og höfðu verið handteknir um það bil sólarhring síðar. Hrafnkell lýsir því svo: „Ég og tveir aðrir sjálfboðaliðar, Bandaríkjamenn af gyðingaættum, hugðumst gista í heilsugæslustöð- inni í Balata aðfaranótt sunnudags- ins. Við þurftum að koma við á leið- inni til að ná í farangur eins úr hópnum, sem hafði gist í heimahúsi nóttina áður, og af öryggisástæðum slógum við saman svolitlum hópi því myrkur var að skella á. Eftir að hafa náð í farangurinn ætluðum við beint í heilsugæslustöð- ina. Á leiðinni ætluðum við í gegnum þröngt húsasund, ég fór fyrir hópn- um og mér varð ljóst þegar ég var kominn einn eða tvo metra inn í sundið að ísraelskir hermenn mið- uðu á mig vélbyssu úr öllum skúma- skotum.“ Þegar þetta gerðist var hópurinn skammt frá heimilinu sem ferðinni var heitið til. „Þarna var okkur í fyrsta skipti sagt að við mættum ekki vera á svæðinu. Að Balata- búðirnar væru lokað hernaðarsvæði, eins og það var orðað.“ Vegabréfin voru tekin af fólkinu og Hrafnkell segist ítrekað hafa spurt foringja hermannanna hvort hann gæti vísað í einhvern lagabók- staf þeim ummælum sínum til stuðn- ings að um lokað svæði væri að ræða. „Þá hristi hann ýmist byssu sína, klappaði henni eða beindi henni að okkur og sagði: Þetta eru lögin.“ Hópnum var fljótlega skipt, kon- urnar þrjár fóru í kvennafangelsi og segist Hrafnkell ekki hafa fengið miklar fréttir af þeim síðan. Einn karlmannanna sé enn í landinu. Vélbyssum miðað úr öllum áttum Hrafnkell Brynjarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.