Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 25. ÁGÚST 2002 198. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 Dansað í gegnum lífið Þau eru ung, kraftmikil og óhrædd. Þau eiga það flest sameiginlegt að hafa stundað dansnám frá unga aldri, haldið utan í framhaldsnám að loknu námi hér heima og dansa nú í leikhúsum víða um Evrópu, undir stjórn bæði róttækra og mikilsvirtra listamanna. Ragna Sara Jónsdóttir ræddi við tíu unga íslenska listdansara sem hafa náð langt á er- lendri grund./12 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sunnudagur 25. ágúst 2002 B Síbrotamenn og samfélagið 10 Rússneska mafían færir út kvíarnar 14 Ábyrgð á efni á Netinu 18 TVÆR palestínskar konur í Jab- alya-flóttamannabúðunum á Gaza- svæðinu. Veggmyndirnar endur- spegla ágætlega veruleikann eins og hann blasir við Palestínumönn- um, vopnaburður og sprengjuárás- ir á borgir og bæi. Í gær virtist sem tveggja daga samkomulag um að ísraelskt herlið færi frá Gaza og Betlehem væri að fara út um þúfur en Ísraelar kröfðust þess þá, að pal- estínska heimastjórnin skæri fyrst upp herör gegn herskáum hópum. Reuters Palestínsk- ur veruleiki OPINBERRI heimsókn Kim Jong-Ils, leiðtoga Norður-Kór- eu, í Vladívostok í Rússlandi lauk í gær og kvaðst hann vera „1.000% ánægður“ með ferðina. Vakti hrifning hans á rúss- neskri fram- leiðsluvöru nokkra furðu Rússa og þá ekki síður áhugi hans á rússnesku rétt- trúnaðarkirkjunni. Kim, sem þykir jafnan held- ur fámáll, „talaði fúslega við Rússana, sem voru með hon- um í för, og við starfsmenn í verksmiðjum“. Var það haft eftir rússneskum blaðamönn- um, sem sögðu, að Kim hefði sýnt mikinn áhuga á fram- leiðsluvörunni og spurt margs. Það, sem kom Rússunum þó mest á óvart, var skyndilegur áhugi Kims á rússnesku rétt- trúnaðarkirkjunni. Skoðaði hann rússneskar helgimyndir af miklum áhuga og spurði presta spjörunum úr um trúna. Júrí Kopylov, borgar- stjóra í Vladívostok, fannst því við hæfi að leysa n-kóreska al- valdinn út með einni helgi- mynd eða íkon og þá trúði Kim honum fyrir því, að hann hefði á prjónunum að byggja rúss- neska rétttrúnaðarkirkju í Pyongyang, höfuðborg N-Kór- eu. Trúar- áhugi vakti furðu Vladívostok. AFP. Kim Jong-Il VATNSBORÐIÐ í Dongting-vatni í Hunan-héraði í Kína var í gær langt yfir hættumörkum og álagið á varn- argörðunum jókst stöðugt. Bresti þeir mun flóðið fara yfir sex borgir og tugi þorpa þar sem milljónir manna búa. Yfirvöld vilja þó trúa því, að þeir haldi, en vatnsborðið hækkar enn og spáð er meiri úrkomu á næstu dög- um. Gott veður var á þessum slóðum í gær en vatnsborðið hélt samt áfram að hækka um einn sentimetra á klukkustund. Um miðjan dag var það 1,8 metra yfir hættumörkum og Xinh- ua-fréttastofan kínverska sagði, að jafnvel lítil úrkoma gæti riðið bagga- muninn til hins verra. Er því spáð, að aftur fari að rigna á næstu dögum. Meira en milljón manna og rúm- lega 100.000 hermenn hafa unnið að því síðustu daga að styrkja flóðavarn- irnar og um 600.000 manns hafa verið flutt burt frá næsta nágrenni við Dongting-vatn. Er það notað sem yf- irfallslón fyrir Yangtze-fljót en vegna mikilla rigninga víða í Kína í sumar er mikill vöxtur í flestum fljótum og vötnum. Þótt ekki rigni mikið á næst- unni er ekki búist við, að úr vatna- vöxtunum dragi almennt fyrr en und- ir mánaðamót eða snemma í septem- ber. Gróður- og skógareyðing mesti skaðvaldurinn Um 4.000 manns týndu lífi í mikl- um flóðum í Yangtze-fljóti og Dongt- ing-vatni fyrir fjórum árum en síðan hafa bakkarnir verið hækkaðir og plantað þar trjám. Jafnframt var 350.000 bændum skipað burt og þeim fengið jarðnæði annars staðar. Þrátt fyrir það hafa flóðin í Hunan-héraði nú eyðilagt 27.000 hús og skemmt önnur 67.000. Eru 415.000 hektarar af ræktarlandi í þessu mesta hrís- grjónaræktarhéraði Kína undir vatni. Með hinni umdeildu Þriggja gljúfra stíflu er stefnt að því að ná tökum á Yangtze en hún verður ekki fullsmíðuð fyrr en 2009. Umhverfis- verndarmenn halda því hins vegar fram, að meginástæða endurtekinna flóða sé mikil gróður- og skógareyð- ing með öllu fljótinu. Flóðið í Dongting- vatni eykst enn Yueyang. AP, AFP. Yfirvöld í Kína samt vongóð um að garðarnir haldi ROBERT Mugabe, forseti Zimb- abve, hefur boðað skipan nýrrar stjórnar á morgun, mánudag, og er almennt búist við, að harðlínumenn muni taka við af þeim ráðherrum, sem hafa verið hálfvolgir í stuðningi sínum við „umbótastefnu“ forsetans. Ekkert hefur spurst út um skipan nýju stjórnarinnar en The Herald, opinbert málgagn stjórnarinnar, sagði í gær, að „Mugabe forseti hef- ur sagt, að hugleysingjar eigi ekkert erindi í ráðherrastóla og þeir, sem ekki eru nógu harðir af sér, eigi að fara frá“. Þykir það benda til, að stjórnin verði eingöngu skipuð harð- línumönnum en einangrun hennar á alþjóðavettvangi vex stöðugt. Dagblaðið Daily News, sem er óháð og í einkaeigu, sagði, að líklega yrði Simba Makoni fjármálaráð- herra rekinn, enda hefði hann reynt án árangurs að vekja áhuga forset- ans á ástandinu í efnahagsmálunum. Mugabe stefnir að því að flæma burt flesta hvíta bændur og láta jarðirnar í hendur stuðningsmanna sinna, sem fæstir kunna mikið fyrir sér í búrekstri. Um helmingur Zimb- abvebúa sveltur heilu hungri og margir kenna það ekki síst „umbót- um“ Mugabes. Harðlínu- stjórn í Zimbabve? Harare. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.