Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Önnumst allt er lýtur að útför. Hvítar kistur - furukistur - eikarkistur. Áratuga reynsla. Símar 567 9110 & 893 8638 utfarir.is Blómastofa Friðfinns, Suðurlandsbraut 10, sími 553 1099, fax 568 4499. Opið til kl. 19 öll kvöld Kransar • Krossar • Kistuskreytingar                                                 !"    !"# $!%&%'&& $#% '&& $ % ( ) # " "  * % &' #  +                                                      !   #       !      !"" # $!%     &  #' !  !"" # $!%  ()# !"" # *++#"   &  ,## ()# !"" # &#- #' & .                                               !"  # $!%    &'( !) *  + )      !) ,)& -  ./!)  ! (")"0)                                              !"# $ %  & ' ( &)%  *  $ % &+  $ % *  ) % )#)"  ' )"  ) % ' ( ,) % * #                           !" # !$% $ %& $'&($ ) $$* $+ &%& ,- & '&%& $$ '&%& +*$.- &$  ($  " ) .& / & *) .& . &$ . &$( $ . &$"                                           !  "#$$# %  &#$$# #'!( %) #(**  "'##$+ &#$$# ! ,# * -#$(**  . *##  &#$$# "# !$#  $*/#"#$(**   !(  !$# ## +  % (**  011 0 # !#011 0 #                                           !     ! "" ! #  $ #   $ %$ &' % #  "" ()"  *  $ +  $ ,$-  #  "" . #  "" $#() +/  ✝ Sigmundur Þor-steinsson fæddist á Akureyri 12. janúar 1939. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 16. ágúst síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Þor- steinn Magnússon, f. 14. maí 1898 í Kols- holtshelli í Flóa, d. 12. desember 1992, og Brynhildur Ólafs- dóttir, f. 23. mars 1909 á Akureyri, d. 12. september 1987. Syskini Sigmundar eru Gabríela Oddrún Eyfjörð, f. 22. maí 1930, d. 21. júní 1987; Frið- björg Elísabet, f. 21. apríl 1931; Jenný Sigríður, f. 5. júlí 1933; Ólafur, f. 12. febrúar 1935, d. 12. mars 2001; Magnús, f. 3. júlí 1936. Árið 1962 kvæntist Sigmundur Flóru Juanita frá Elisabeth Town í Tennessee í Bandaríkjunum, f. 4. ágúst 1944. Þau skildu 1990. Börn Sigmundar og Flóru eru fimm. 1) Brynhildur, f. 28. desember 1962, m. Sigurður Guðjónsson, f. 3. ágúst 1956. Börn þeirra eru: Reyn- ir Már, f. 22. október 1982, Guðjón Örn, f. 24. maí 1983, Jakob Örn, f. 24. september 1986, Saga f. 28. júlí 1990, Líf, f. 30. des- ember 1995 og Örn- ólfur, f. 27. desember 1998. 2) Sigríður El- ísabeth, f. 9. mars 1964, m. Njörður Helgason, f. 24. febr- úar 1964. Börn þeirra eru: Erlingur Bjarni, f. 28. apríl 1981, dóttir hans er Embla Margrét, f. 16. september 2001, Geir, f. 1. febrúar 1987, Diljá Ösp, f. 18. febr- úar 1990, og Gígja, f. 23. nóvember 1996. 3) Sigmundur, f. 13. desem- ber 1965, ókvæntur. 4) Guðjón, f. 28. júní 1970, m. Carolin Cart- iciano f. 5. mars 1970. Dóttir þeirra, Anna Lind, f. 28. mars 2002. 5) Tómas Allan, f. 14. ágúst 1978, ókvæntur. Útför Sigmundar verður gerð frá Seljakirkju á morgun, mánu- daginn 26. ágúst, og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku pabbi. Þín er nú sárt sakn- að hér á heimili okkar. Þó að þú gæt- ir aðeins dvalist í skamman tíma hér hjá okkur, orðinn fársjúkur, var lund þín alltaf létt. Krökkunum þótti ómetanlegt að hafa þig hér hjá sér til að spjalla við. Þegar þú komst fyrst sagði Diljá Ösp að það væri gott að þú værir hér, það væri þá loksins einhver heima þegar hún kæmi heim úr skólanum. Hún verður þér alltaf þakklát fyrir allar heimsóknirnar á spítalann í veikindum hennar og þá hugulsemi sem þú sýndir veikindum hennar alla tíð. Pabbi minn, spilin eru misgefin. Lífið hefði mátt leika betur við þig en það gerði þín síðustu ár. Ég er samt viss um að æska þín hefur ver- ið þér góð í faðmi móður og föður sem við börnin þín fengum svo lán- samlega að búa með og alast upp hjá í tíu ár eftir að við fluttum aftur heim frá Bandaríkjunum. Þó að amma og afi hafi ekki verið rík af veraldlegum auð var svo margt annað og betra sem þau gáfu okkur, sem endist manni alla ævina. Pabbi minn, þú varst búinn að vera svo veikur allt þetta ár. En það rofaði aðeins til hjá þér síðustu dag- ana. Þá gat hún Gígja litla sem er að hefja skólagöngu sína á útfarardegi þínum sýnt þér skólatöskuna sína og sníkt smá Pólónammi hjá þér í leið- inni. Síðan dró aftur ský fyrir sólu og þrátt fyrir mikla baráttu varðstu að láta í minni pokann að lokum. Pabbi minn, við þökkum þér fyrir samfylgdina. Við vitum að þú er laus við þrautir þínar og ert vonandi kominn aftur í faðm foreldra og systkina þinna sem gengin eru og biðjum góðan Guð að geyma þig. Ég vil kveðja með bæninni sem amma kenndi okkur og bað alltaf með okkur fyrir svefninn: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Þín dóttir, Sigríður Elísabeth og fjölskylda. Þrautagöngu Sigmundar Þor- steinssonar er nú lokið eftir erfið veikindi nú um nokkurn tíma. Bryn- hildi dóttur hans kynntist ég fyrir um fjórtán árum og tók hann mér strax mjög vel og hefur engan skugga borið á okkar samskipti síð- an. Sigmundur var alinn upp á fá- brotnu alþýðuheimili um miðja síð- ustu öld og maður skynjaði það glöggt við kynningu, endalausar kröfur nútímasamfélags voru ekki hans. Hann vildi heldur eiga minna en eiga það sem hann átti, en ekki eins og nú tíðkast að kaupa sem mest og eiga sem minnst. Hann hafði allt sitt á hreinu og þegar hann fékk innheimtuseðil inn um bréfa- lúguna leið honum ekki vel fyrr en seðillinn var greiddur þó ekki væri komið að gjalddaga. Fyrir nokkrum árum gekk hann í greiðsluþjónustu Landsbankans og veitti það honum mikið öryggi nú þegar hann lá á sjúkrahúsi og gat sig hvergi hreyft. Hann var sínum alltaf trúr, bæði fjölskyldu og vinnuveitanda, enda var hann umtalaður á sínum vinnu- stað fyrir að vera löngu mættur áður en vinna hófst og ekki lagðist hann í rúmið þó einhver umgangspest væri í gangi. Bensínafgreiðsla var hans starf í um tvo áratugi og þar spjall- aði hann við allt og alla og gerði þar engan greinarmun á fólki, háu eða lágu. Nú þegar jarðvist Sigmundar lýk- ur og hann heldur í langt ferðalag á annað tilverustig vil ég fyrir mína hönd og minnar fjölskyldu þakka honum fyrir samferðina með von um að hann eigi ánægjulega endurfundi við sína ástkæru foreldra. Hvíl í friði. Sigurður Guðjónsson. SIGMUNDUR ÞORSTEINSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.