Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 31 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892 www.utfararstofa.is ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga er andlát verður, í samráði við aðstandendur Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Kistur Krossar Duftker Gestabók Legsteinar Sálmaskrá Blóm Fáni Erfidrykkja Tilk. í fjölmiðla Prestur Kirkja Kistulagning Tónlistarfólk Val á sálmum Legstaður Flutn. á kistu milli landa Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri ✝ Benedikt SnorriSigurbergsson fæddist í Brautar- holti í Vestmanna- eyjum 25. nóvember 1930. Hann lést á líknardeild Lands- spítalans í Kópavogi 17. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Sigurbergur Benediktsson verka- maður, f. á Húsavík 7. apríl 1899, d. 28. janúar 1965, og Þór- unn Jónína Elías- dóttir Hansen hús- móðir, f. á Eskifirði 12. janúar 1897, d. 20. mars 1987. Bróðir Benedikts er Rafn, f. 24. nóvember 1933. Benedikt kvæntist 21. júní 1958 Hönnu Kristínu Brynjólfs- dóttur, f. á Stóru-Mörk undir Eyja- fjöllum 21. júní 1929. Hún er dóttir Brynjólfs Úlfarssonar, f. 12. febr- úar 1895, d. 6. mars 1979, og Guð- laugar Guðjónsdóttur, f. 28. sept- ember 1902, d. 11. mars 2002. Börn Benedikts og Hönnu eru: 1) Fjóla Brynlaug verslunarkona, f. 21. júlí 1951, maki Ingvar Ingvars- desember 1979, Karólína Helga, f. 22. október 1984, og Theodór Val- ur, f. 14. júlí 1986; 6) Sigurbergur Logi rafveindavirki, f. 24. október 1965, maki Eydís Erna Guðbjarts- dóttir sölumaður, f. 1. október 1972. Börn þeirra eru Guðbjartur Ingi, f. 3. janúar 1994, og Birna Særós, f. 11. október 1999. Bene- dikt og Hanna eiga sjö barnabörn. Benedikt lauk barnaskóla í Vestmannaeyjum 1943, Iðnskólan- um í Vestmanneyjum 1953 og sveinsprófi í vélvirkjun í Vélsmiðju Magna hf. 1954. Hann lauk vél- stjóraprófi í Vélskólanum í Reykjavík 1955 og rafmagnsdeild 1956. Hann var næstu árin vél- stjóri á ýmsum togurum og bátum, yfirvélstjóri í Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja um 5 ára skeið, einnig vélstjóri á dýpkunarskipinu Gretti. Hann var 1. vélstjóri á Vigra RE 71 hjá Ögurvík hf. 1975– 78 og 1. og 2. vélstjóri á ýmsum skipum Skipadeildar Sambandsins (SÍS) 1979–82. 1. vélstjóri á Ögra RE 72 hjá Ögurvík hf. 1982–91, er hann lauk starfsævi sinni. Bene- dikt og Hanna fluttust til Svíþjóð- ar og bjuggu þar frá 1991–98 en fluttust þá heim aftur og bjuggu í Efstahjalla 17 í Kópavogi. Útför Benedikts verður gerð frá Hjalla- kirkju í Kópavogi á morgun, mánudaginn 26. ágúst, og hefst at- höfnin klukkan 13.30. son vélvirki, f. 17. júlí 1951. Synir Fjólu eru Benedikt Hreggviðs- son, f. 16. desember 1970, og Jón Hregg- viðsson, f. 3. október 1974; 2) Freyja Berg- þóra sjúkraliði, f. 28. júní 1953, maki Einar Herbertsson verslun- armaður, f. 7. apríl 1954. Börn Freyju eru Aron Kristinn Jóns- son, f. 19. apríl 1972, og Hanna Kristín Jónsdóttir, f. 6. des- ember 1976; 3) Guðjón Örn bifvélavirki, f. 10. september 1954, maki Ásta Brynja Ingibergs- dóttir verkakona, f. 2. september 1959. Börn þeirra eru Ingi Valur, f. 11. ágúst 1984, Þorvaldur Páll, f. 10. ágúst 1991, og Elísabet, f. 14. ágúst 1992; 4) Elías Valur rafsuðu- maður, f. 10. janúar 1958, d. 4. október 1981. Dóttir hans er Þór- unn Berglind, f. 31. október 1980. 5) Birna Sigurbjörg húsmóðir, f. 8. júní 1960, maki Símon Viggósson vélstjóri, f. 23. apríl 1956. Börn þeirra eru Herborg Hulda, f. 19. Elsku pabbi. Ég settist niður og ætlaði mér að skrifa svo mikið en þegar minningarnar streymdu fram varð ég eitthvað svo ófær um að koma þeim frá mér á blað. En það er eitt sem víst er að betri pabba en þig er vart hægt að eign- ast. Þú áttir alltaf ómældan tíma fyr- ir mig og það var yndislegt að setjast með þér niður og spjalla því þú varst svo fróður um ólíklegustu hluti og það gaf mér gott vegarnesti út í lífið. Eitthversstaðar las ég að dauðinn væri fegursta ævintýri lífsins og ég er sannfærð um að svo sé. Þú ert far- inn þína hinstu ævintýraför á stað þar sem allt er gott og öllum líður vel. Ég veit að það verða fagnaðar- fundir hjá þér og honum Val bróður þar. Nú líður þér betur eftir erfið veik- indi sem þú barðist við eins og hetja. Elsku pabbi, ég segi hetja því æðrulausari mann er vart hægt að finna, aldrei heyrði maður þig kvarta yfir veikindum þínum, þú einfaldlega harkaðir af þér og lifðir með þeim. Ég efast ekkert um að oft varstu veikari en þú lést okkur mömmu og fjölskylduna sjá. Elsku pabbi, ég ætla hér að kveðja þig og vil að lokum þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Guð gefi henni mömmu allan þann styrk sem hún þarf á að halda. Með þökk ég kveð þig, kæri pabbi minn. Ég kann víst ekki að skrifa um feril þinn. En allt það góða er þú kenndir mér mun ávallt sýna rétta mynd af þér. Nú færðu hvíld og hvíldin sú er góð, þó hverfi spor sem vitna um langa slóð. Nú sveipast blessun sál og andi þinn og sofðu í friði elsku pabbi minn. ( R.K.) Þín dóttir Birna. Fyrstu kynni við Benna voru þeg- ar ég kom á heimili hans og Hönnu í Hlíðarbyggð í Garðabæ með Birnu dóttur þeirra sem er konan mín í dag. Þá var tekið á móti mér eins og ég ætti heima þar og það væri mitt heimili. Það var alltaf stutt í húm- orinn hjá Benna hann var meðal- maður á hæð en ég frekar hávaxinn og þegar við tókumst í hendur stóð hann upp leit á mig og sagði: „Er allt svona stórt fyrir vestan“, (en þaðan er ég). Þegar við hjónin vorum á leið til borgarinnar var annað ekki tekið í mál en að við gistum hjá þeim. Börn- in okkar gistu oft hjá afa og ömmu í góðu yfirlæti og þá er ég að tala um það allra besta. Eins þegar ég og fjölskyldan mín heimsóttum þau til Svíþjóðar var keyptur fyrir okkur bíll sem við gátum haft til umráða eins og við vildum. Það var farið með okkur vítt og breitt um Smálönd Sví- þjóðar og Benni var búinn að kynna sér alla staði sem voru merkir og at- hyglisvert var að skoða, hann var besti fararstjóri sem hægt var að ferðast með. Benni hleypti helst engum í bílana sína, hann vildi gera við þá sjálfur, ef þeir biluðu gerði hann við þá eins og allt sem viðkom heimili hans. Þegar Benni og Hanna fluttu aft- ur heim var hann ekki heill heilsu og við vissum að það þurfti að mála nýju íbúðina þeirra svo ég, Aron og Rafn buðum fram aðstoð okkar og vorum 1–2 daga að mála hana undir góðri stjórn Benna, hann langaði svo til að mála, en mátti ekki því að þarna voru saman komnir tengda- sonur, barnabarn og litli bróðir, svo hann mátti til með að stjórna verk- inu. Hann var einn af gamla skólanum, maður sem leysti úr öllum vanda- málum eins þau væru engin vanda- mál, bara eðlilegur hlutur sem þyrfti að leysa. Það var alveg sama hvað gekk á, um leið og Benni kom, þá leystist vandamálið næstum því sjálfkrafa. Þegar vélar voru annars vegar fannst mér stundum það vera nóg að hann snerti þær þá sögðu þær honum hvað væri að „eins og læknir annaðist sjúkling“. Benni hefur unnið með mörgum í gegnum tíðina og allir samstarfs- menn hans töluðu um að hversu auð- velt og þægilegt hefði verið að vinna við hlið hans. Ég fór í sömu starfsgrein og Benni við vorum samskipa á Ögra frá miðjum desember 1983 til miðs janúar 1984, þá var ég í námi í Vél- skóla Íslands og við eyddum jólun- um saman og þar kynntist ég Benna persónulega og vissi hversu góðan mann hann hafði að geyma og þar lærði ég margt sem ekki er hægt að kenna á skólabekk. Maður var aldrei í vafa hvaða skoðanir hann hafði á hlutunum því hann fór aldrei leynt með skoðanir sínar. Sama hvort það var í pólitík eða þeim málum sem voru efst á baugi frá degi til dags. Hann var mjög víðlesinn maður og las mikið og fékk mig til að lesa bækur sem mér hafði aldrei dottið í hug að lesa, hann átti ógrynni af bókum og ekki endilega um sama efni heldur um ólíklegustu hluti og úr hinum ýmsu áttum. Benni var mjög tónelskur maður hann hafði mikla ánægju af að hlusta á hvers konar þjóðlagatónlist, hvort sem hún var íslensk, írsk eða amerísk og einnig hafði hann sérstakt dálæti á Karlakór Reykjavíkur. Benni og Hanna hafa farið vítt og breitt um Ísland og önnur lönd, það var þeirra líf og yndi að ferðast. Og ferðuðust þau víða um Evrópu og Bandaríkin og það lýsir hversu mikil fróðleiksfýsn var til staðar hjá Benna. Benni sleppti helst engum fréttatíma, hlustaði á útvarp jafnt sem sjónvarp á sama tíma og þegar hann bjó í Svíþjóð vissi hann oft á tíðum meira um hvað var að gerast hér heima á Íslandi en ég. Svona var þetta hjá honum alveg fram á síðasta dag. Þegar við hittumst síðast, á systk- inamótinu í sumar, ræddum við sam- an um allt milli himins og jarðar eins og við gerðum alltaf. Benni, mér fannst þú vera tilbúinn þegar kallið kæmi, það var þín ósk að fá að vera með okkur öllum þessa helgi. Þú vissir að þetta væri í síð- asta skipti sem við ættum öll góða stund saman. Ég er þakklátur fyrir þau forréttindi að hafa kynnst þér og vil þakka fyrir allar góðar stundir sem við áttum saman. Ég sendi Hönnu og fjölskyldu innilegustu samúðarkveðjur. Símon. Elsku afi. Mikið er skrýtið að þú skulir vera farinn frá okkur, en svona er lífið, við fáum engu um það ráðið hvenær við kveðjum. Ég á margar skemmtilegar minn- ingar um þig. Mikið þótti mér gaman þegar við amma fórum með þér í siglinguna til Þýskalands, oft höfum við rifjað upp þá ferð og hlegið. Árið sem ég fermdist fékk ég svo að fara með ykkur til Svíþjóðar, þar vorum við í sumarbústað í fallegu umhverfi. En þá voru þið að skoða ný heim- kynni, því þið fluttuð til Svíþjóðar stuttu síðar. Þegar ég var á sextánda ári fóru tvær af vinkonum mínum til útlanda sem skiptinemar og mig langaði líka að prófa eitthvað nýtt, og ég fékk að vera hjá þér og ömmu í tæpa fimm mánuði. Það var skemmtilegur tími. Við fórum þrjú saman í sænsku- skóla, það var fjölbreyttur bekkur, ég var yngst og gamall maður frá Mið-Austurlöndum elstur. Við höfð- um gaman af þessari skólagöngu. Eftir að ég kom heim úr Svíþjóð- arheimsókninni kynntist ég Einari og þegar ég var átján ára fluttum við til Svíþjóðar því Einar fór í nám. Og þá var gott að geta komið og heim- sótt þig og ömmu í þessi þrjú ár sem við bjuggum í Svíþjóð, þið tókuð allt- af svo vel á móti mér. Elsku afi, þú reyndist mér alltaf vel og studdir mig í því sem gerði. Ég geymi minningu þína í huga mín- um og hjarta. Guð vaki yfir þér. Hanna Kristín Jónsdóttir. Mig langar að minnast fyrrver- andi tengdaföður míns Benedikts Sigurbergssonar með þeim orðum að öðrum eins dugnaðarforki hef ég ekki kynnst. Ég kynntist Benna ungur, eða rúmlega 17 ára gamall, er ég hóf sambúð með Freyju dóttur hans. Þau hjónin Hanna Kristín og Benni buðu mig strax velkominn á heimili sitt sem þau héldu þá í Faxa- túni í Garðabæ. Benna tel ég hafa fundið jafningja sinn í konu sinni Hönnu Kristínu, sterkri og góðri konu. Benedikt var vélstjóri að mennt. Mér hlotnaðist sú ánægja að starfa með honum á togaranum Vigra frá Reykvík. Benni var á heimavelli er í vélarrúmið var komið. Hann sýndi mér mikla þolinmæði, ungum og óreyndum, er ég starfaði með honum í vélarrúmi Vigra. Ég dáðist að því hvernig hlutirnir léku í höndunum á honum og hve laghentur hann var. Það var ekkert sem hét vandamál í hans huga hvort sem hann stóð í vél- arrúminu, í bílaviðgerðum eða við að byggja hús, allt voru þetta verkefni í hans huga sem þurfti að leysa og það gerði hann með miklum sóma, svo unun var á að horfa. Ég ber mikla virðingu fyrir þessum manni og lífs- gildum hans, og sakna þess að hafa ekki notið leiðsagnar hans í lífsins ólgusjó. Sterk og mikil persóna er fallin, fyrir sjúkdóm sem komið hefur víða við. Með þessum orðum kveð ég þig Benni minn, þakka þér fyrir að hafa leyft mér að kynnast þér. Blessuð sé minning þín. Hanna mín, þér og fjölskyldu þinni votta ég mína dýpstu samúð. Jón Kr. Kristinsson. Það var ánægður og vongóður hópur sem burtskráðist úr raf- magnsdeild Vélskólans vorið 1956. Við vorum 33 sem útskráðumst sem vélfræðingar eftir 3 ára stífan skóla og 4 ára nám í járniðnaði sem þá var inntökuskilyði til setu í vélskólann. Á þessum þrem árum myndaðist mjög kær vinátta með okkur öllum skóla- bræðrunum. Nú tók alvaran við að vinna fyrir salti í grautinn. Flestir voru þá búnir að stofna heimili og hafði konan í mörgum tilvikum verið fyrirvinna heimilisins á meðan á námi stóð. Hópurinn tvístraðist til ýmissa starfa en flestir til starfa er laut að vélstjórn til sjós og lands. Það var ekki oft sem leiðir okkar lágu saman í gegnum tíðina þar til fyrir nokkr- um árum þegar margir okkar höfðu lokið starfsævinni að hópurinn náði aftur saman og hittist reglulega yfir kaffibolla einu sinni í mánuði. Þá voru 10 látnir. Það var misjafnt hvernig lífið hafði leikið heilsu marga okkar, einn þeirra var Bene- dikt sem við núna kveðjum. Þrátt fyrir margskonar kvilla og líkamleg örkuml mætti þessi kæri vinur alltaf hress og kátur á alla fundi sem hann gat heilsunnar vegna, og aldrei aumkaði hann sinn hag og bar sig ávallt vel hvernig sem á stóð. Ég hef ekki þekkingu til að tjá mig mikið um lífshlaup Benna, en þegar við hittumst á ný fann ég aftur gamla góða drenginn sem ég kvaddi fyrir nær fimmtíu árum. Ég, fyrir hönd okkar skólabræðra hans, votta eiginkonu hans Hönnu og börnum, okkar dýpstu samúð á þessari erfiðu stundu. Guð geymi góðan dreng. Örn Sigurjónsson. Það kom ekki á óvart, þegar frétt- in kom, að Benni hefði kvatt þennan heim. Hann hafði staðið sig eins og hetja í baráttunni við ólæknandi sjúkdóm. Minningar um ótal góðar stundir, sem við höfum átt með honum og Hönnu gegn um árin, leita á hugann. Ýmist var það hér heima í Stóru- Mörk eða heima hjá þeim, í sum- arbústaðnum þeirra og á síðustu ár- um í hjólhýsinu í Hólunum. Alltaf var Benni glaður og ræðinn, tilbúinn að segja sína skoðun á málunum og standa við hana, hvort sem hún féll að skoðun viðmælandans eða ekki. Hann var hreinn og beinn og heið- arlegur í öllu, sem hann tók sér fyrir hendur. Benni var ljóðelskur og hafði gaman af að fara með eða lesa upp ljóð. Minnisstætt var, að heyra hann fara með ljóð eins og ,,Hallfreður vandræðaskáld“ eftir Davíð Stefáns- son, eða ,,Stjána bláa“ eftir Örn Arn- arson. Einhvern veginn fannst manni, að það ljóð yrði ,,hans ljóð“, minnti mann alltaf á hann. Hann var sjómaður af lífi og sál, og sigldi oft til annarra landa. Barnahópurinn okk- ar í Stóru-Mörk naut oft góðs af því og hlökkuðu til ,,þegar Benni kæmi í land“. Þá lá leið þeirra Hönnu oft austur og var þá alltaf eitthvað með í för, til að gleðja börnin, leikföng eða útlent sælgæti, sem ekki var daglegt brauð hjá sveitabörnunum. Við ljúkum þessari kveðju með línum úr ,,ljóðinu hans Benna“. Vindur hækkar. Hrönnin stækkar. Hrímgrátt særok felur grund. Brotsjór rís til beggja handa. Brimi lokast vík og sund. Stjáni blái strengdi klóna, stýrði beint á drottins fund. Drottinn sjálfur stóð á ströndu: Stillist vindur! Lækki sær! Hátt er siglt og stöðugt stjórnað. Stýra kannt þú, sonur kær. Hörð er lundin, hraust er mundin, hjartað gott, sem undir slær. Horfi ég út á himinlána. Hugur eygir glæsimynd: Mér er sem ég sjái Stjána sigla hvassan beitivind austur af sól og suður af mána, sýður á keipum himinlind. (Örn Arnarson.) Benni hefur nú farið sína síðustu siglingu og er kominn í höfn. Við þökkum allt gott á liðnum ár- um. Úlfar og Rósa, Stóru-Mörk. BENEDIKT SNORRI SIGURBERGSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.