Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 9 GUÐLAUGUR Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem átti sæti í umhverfis- og heil- brigðisnefnd Reykjavíkur á síðast- liðnu kjörtímabili, segir að vegna kosninganna í vor hafi Reykjavík- urlistinn ekki viljað setja upp við- vörunarskilti um saurmengun við fjöruna neðan við Hamrahverfi í Grafarvogi. Hann segir að skipu- lagðar mælingar hafi farið fram á svæðinu um nokkurt skeið og vel hafi verið hægt að grípa til að- gerða fyrr. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á föstudag ákvað umhverf- is- og heilbrigðisnefnd á fundi sín- um á fimmtudag að setja upp viðvörunarskilti við Hamrahverfið. Mælingar Umhverfis- og heil- brigðisstofu Reykjavíkur undan- farna sjö mánuði sýndu að saur- mengun við fjöruna fyrir neðan Hamrahverfið var á tímabilinu vel yfir mörkum, allt að 53-föld. Guðlaugur Þór segir grátbros- legt að Reykjavíkurlistinn ætli að grípa til aðgerða nú. Hann hafi ítrekað farið fram á það að viðvör- unum yrði komið á framfæri. Til- laga hans um skilti hafi verið sam- þykkt í febrúar en Reykja- víkurlistinn ekki viljað fylgja henni eftir fram að kosningum. Einnig hafi sjálfstæðismenn mótmælt því á sínum tíma að fresta fram- kvæmdum við dælustöð í Grafar- vogi. „Augljóslega mátti ekki setja skiltin upp fyrir kosningar. Þarna var framkvæmdum frestað en R- listinn auglýsti alla kosningabar- áttuna að búið væri að hreinsa strandlengjuna. Í raun hefur ekk- ert breyst. Mælingar fram í maí sýndu mengun á þessum stað yfir viðmiðunarmörkum. Þetta er gróft skólabókardæmi um það þegar menn eru fegra hluti og fela fram yfir kosningar. Eftir kosningar finnst mönnum svo allt í lagi að framfylgja þeim tillögum sem búið var að samþykkja,“ segir Guðlaug- ur Þór. Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi um mengunina við Hamrahverfi Viðvörunarskiltum var frestað fram yfir kosningar BÆJARLÖGMAÐUR Kópavogs hefur lagt til að beðið verði niður- stöðu í máli næturklúbbs í Reykja- vík gegn Reykjavíkurborg og ríkis- sjóði áður en tekin verði ákvörðun um breytingar á lögreglusamþykkt Kópavogs sem banni einkadans í næturklúbbum. Meirihluti bæjar- ráðs ákvað í kjölfarið á fundi sínum í fyrradag að fresta ákvarðanatöku í málinu. Í bókun meirihlutans í kjölfar um- sagnar bæjarlögmanns segir m.a. að í umsögn bæjarlögmanns komi fram að lagalegur grunnur þess að breyta lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar með þeim hætti sem tillögumaður geri ráð fyrir sé mjög umdeildur og óviss. Jafnframt sé upplýst að hinn 19. þessa mánaðar hafi verið þing- fest mál gegn Reykjavíkurborg til að fá úrskurð dómstóla í hliðstæðu máli. Málið hafi fengið flýtimeðferð og því skammt að bíða þess að dóm- ur liggi fyrir. „Meirihluti bæjarráðs telur því óráðlegt að aðhafast nokk- uð nú, sem bakað gæti bæjarsjóði verulega bótaskyldu og fjárútlát, einkum með tilliti til þess hve skammt er til þess að niðurstöður fá- ist um lögmæti slíkra aðgerða. Við leggjum því til að beðið sé með ákvörðun í þessu máli, þar til að nið- urstaða dómstóla liggur fyrir. Annað væri algjört ábyrgðarleysi af hálfu þeirra sem falið er að gæta sameig- inlegra sjóða skattborgaranna.“ Í bókun Flosa Eiríkssonar, full- trúa Samfylkingarinnar, kemur m.a. fram að í umsögn bæjarlögmanns dags. 21.8. kemur fram að lögfræði- álit eru misvísandi í málinu. Einnig sé nefnt í umsögninni að óviðunandi sé að reglur þær sem gilda séu mis- munandi eftir sveitarfélögum. Þetta hafi fulltrúar Samfylkingarinnar bent á enda leggi þeir til samræm- ingu á lögreglusamþykkt til móts við Reykjavík. „Bæjarfulltrúar Sjálf- stæðis- og Framsóknarflokks skjóta sér undan því að taka afstöðu til sið- ferðilegra spurninga og fresta ákvörðun á málinu um að minnsta kosti tvo mánuði. Í bókun þeirra eru bara tíndar til áhyggjur af peningum en hagsmunum stúlknanna á þess- um stöðum og annarra þeirra sem hafa orðið fyrir afleiðingum kynlífs- iðnaðar hvergi getið né sýndur áhugi.“ Stjórn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Kópavogi styður framkomna tillögu um bann við einkadansi á nektarstöðum í Kópa- vogi og hvetur bæjarstjórnina til að láta ekki þar við sitja heldur leita leiða til að koma í veg fyrir rekstur nektarstaða í bænum. „Athuganir benda til þess að hæpið sé að tala um frjálsa atvinnu eða viðskipti þeirra kvenna sem þarna starfa og að starf- semin tengist frekar beint eða óbeint ólögmætu framferði með kon- ur og ýti undir klám og kynferð- islegt ofbeldi,“ segir m.a. í ályktun stjórnarinnar um málið. Beðið með hugsanlegar breytingar í Kópavogi Einkadans í Kópavogi LÖGREGLAN í Keflavík stóð tvo menn að neyslu fíkniefna við eftirlit í bænum í fyrrinótt. Lögreglumenn gengu framhjá tveimur mönnum sem voru að neyta fíkniefna skammt frá veitingastað. Þeir reyndu að fela efnið þegar lögregla hafði afskipti af þeim. Við leit fannst lítilræði af efni sem er talið vera amfetamín. Menn- irnir voru teknir höndum, en sleppt að lokinni skýrslutöku. Keflavík Staðnir að neyslu fíkniefna ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.