Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 13
• Stjórnar „fyrrverandi“ heimilislífinu okkar?
• Má ég elska börnin mín heitar en börnin hans/hennar?
• Eru stjúpforeldrar félagar, vinir eða uppalendur?
• Eru stjúpforeldrar alvöru foreldrar?
• Er hægt að búa til eina fjölskyldu úr tveimur fjölskyldum?
Á námskeiðinu verður fjallað um tengsl í stjúpfjölskyldu,
hlutverk stjúpforeldra, samskiptin við „hina foreldrana“
og leitað vænlegra leiða til að byggja upp samsetta fjölskyldu.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 16.
Þannig er leitast við að skapa andrúmsloft trúnaðar og stuðla
að opinni umræðu um viðkvæm mál sem hvíla á þátttakendum.
Námskeiðið verður haldið á Hverfisgötu 105, 4. hæð,
fimmtud. 29. ágúst, þriðjud. 3. september
og miðvikud. 4. september, kl. 20.00-22.30.
Þáttökugjald er 13.000,- kr (námskeiðsgögn og kaffi innifalið).
Stjúpfjölskyldur
„Börnin þín, börnin mín, börnin okkar“
Námskeið Þels - sálfræðiþjónustu fyrir foreldra
og stjúpforeldra í samsettum fjölskyldum
Sálfræðingarnir Einar Gylfi Jónsson
og Þórkatla Aðalsteinsdóttir
hjá Þeli - sálfræðiþjónustu halda
þriggja kvölda námskeið fyrir foreldra
og stjúpforeldra í samsettum
fjölskyldum.
Nánari upplýsingar og skráning í símum
551 0260 og 562 8737, í netföngum egj@centrum.is og
torkatla@centrum.is og á heimasíðu okkar www.thel.is
VERIÐ er að lagfæra og styrkja brú og brúarstöpla
við Jökulgilskvísl á Fjallabaksleið nyrðri, skammt
frá Landmannalaugum.
Að sögn Sigurðar Kr. Jóhannssonar, deildarstjóra
framkvæmda hjá umdæmisskrifstofu Vegagerðar-
innar á Selfossi, var brúin orðin lúin og hafa brúar-
vinnustarfsmenn Vegagerðarinnar verið að störfum
þar í á aðra viku. Lítið er í ánni um þessar mundir
og var því ákveðið að nota tækifærið og gera við
brúna. Brúin er greiðfær á meðan á vinnunni stend-
ur en að sögn Sigurðar er þetta eina brúin á þessum
slóðum.
Ljósmynd/Vilhelm Gunnarsson
Brú og brúarstöplar styrktir