Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 27 Þakdúkar og vatnsvarnarlög Þakdúkar og vatnsvarnarlög á:  þök  þaksvalir  steyptar  rennur  ný og gömul hús Góð þjónusta og fagleg ábyrgð undanfarin 20 ár - unnið við öll veðurskilyrði - sjá heimasíðu www.fagtun.is FAGTÚN Brautarholti 8 • sími 562 1370 TREGABLANDIN tilfinning hvílir yfir sýningu þeirra félaga, Helga Þorgils Friðjónssonar og Kristins Guðbrands Harðarsonar, í Galleríi i8. Þeir eru tveir fullorðnir menn sem láta hugann reika til bernskunnar þegar allt var ævin- týralegt og leyndardómsfullt. Helgi Þorgils, þekktur fyrir stórar og til- komumiklar myndir af nöktum og svífandi fjölskyldumeðlimum í gnægtarbúri náttúrunnar, setur nú fram litlar fígúrur af englum sem halla sér djúpt hugsi að ávöxtum sem eru ívið stærri en þeir. Um hvað skyldu þessir englar, með doppótta vængi, vera að hugsa? Einna helst dettur manni í hug að þeir séu í þungum þönkum yfir væntanlegum örlögum heimsins, komu syndafallsins. Stærð ávaxt- anna bendir nefnilega til heims- myndar eins og menn gerðu sér hana í hugarlund fyrir flóðið mikla. Sögur segja að þá hafi ávextir og allur jarðargróði verið mun stærri en síðar varð enda hafi mennirnir lítið haft fyrir lífinu. Eftir Nóaflóðið hafa mennirnir hins vegar mátt vinna í sveita síns andlitis, til að hafa í sig og á. Þannig gjöldum við enn fyrir glópsku forfeðra okkar og spillingu. Skyldu þessi forlög valda litlu englunum áhyggjunum sem þeir virðast dragnast með í stytt- lingum Helga? Sjálfur segist hann byggja þessi fimmtán smáverk á postulínsstyttu frá Bing og Grøndal á æskuheimili sínu, sem hann endurnýjaði kynni sín af, löngu síðar, úti í hinum stóra heimi. Þetta eru innileg og undur- fögur verk sem svo sannarlega skjóta fyrirmyndum sínum ref fyrir rass. Útfærslan er mátulega mótuð og máluð svo að listamaðurinn fellur hvergi í gryfju ofurfágunar. Kristinn Guðbrandur er fullkomin andstæða Helga í vinnubrögðum. Hann notar ekki myndhvörf til að endurvekja minni sín og því er goð- sögnin víðs fjarri. Í staðinn dvelur hann við ljósmyndir sínar og dregur þær upp nákvæmlega með vatns- litum. Staðsetning myndanna á grunnfletinum undirstrikar hvaðan fyrirmyndirnar eru fengnar. Auk tíu gullfallegra mynda af þessum toga er tugur útsaumsmynda af grunn- teikningu heimilis hans. Líkt og Helga tekst Kristni Guð- brandi að koma til skila ákveðnum, bernskum innileik sem sumpart byggist á næfri afstöðu, en jafn- framt klókindum og kátbroslegum framgangsmáta. Tilfinning hans fyrir miðlunum er athyglisverð og hefur ef til vill aldrei verið meiri. Þannig er sýningin í aðalsalnum ein- staklega fáguð og vel útfærð. Hún ber vott um mikinn þroska og innsæi sýnendanna. Í kjallaranum hafa þeir Helgi og Kristinn komið fyrir litlum, skondn- um sviðsverkum, einna líkustum helgileikjakúlissum frá miðöldum. Í miðið trónir þó skjár þar sem fram fer flutningur á leiknum, sem sviðs- myndirnar eru helgaðar. Hér er á ferðinni tregaspil sem sómt hefði sér í analýsu Walters heitins Benjamin því að undirlagið er feng- ið úr orðalagi minningargreinanna dæmigerðu sem hversdags birtast á innsíðum Morgunblaðsins. Kollegarnir draga fram drunga og draugalegt andrúmsloft kirkju- garðsins með sérkennilega upp- lýstu, heimasmíðuðu og mynd- bundnu brúðuleikhúsi, undir einstæðri rödd Sverris Guðjónsson- ar sem stundum tónar, stundum sít- erar, sérkennilegan ljóðabálk þess- arar hálftímalöngu barokkóperu sem bersýnilega fer fram innan um legsteinana í Hólavallabrekku. Á maður að gráta eða hlæja? Satt best að segja er maður ekki alltaf viss en víst er að þessi sérstæða leikbrúðuópera ber vott um svell- andi gáska og lúmskt gagnrýna af- stöðu þeirra Helga og Kristins til okkar einstæðu og óborganlegu dauðahvatarhefðar. Englar og draugar Verk eftir Helga Þorgils í i8. MYNDLIST Gallerí i8, Klapparstíg Til 5. október. Opið þriðjudaga til laug- ardaga frá kl. 13–17. BLÖNDUÐ TÆKNI HELGI ÞORGILS FRIÐJÓNSSON & KRIST- INN GUÐBRANDUR HARÐARSON Halldór Björn Runólfsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.