Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.08.2002, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 19 Viðskiptaráðherra ákvað að leggja til við Alþingi að tilskipunin um rafræn viðskipti yrði ekki innleidd skv. orðalagi sínu heldur yrði nánar mælt fyrir um ábyrgð hýsingar- aðila en orðalag tilskip- unarinnar mælir fyrir um. Er þér kunnugt um hvaða leið aðrar Norð- urlandaþjóðir hafa kos- ið að fara í þessu efni? Já, við samningu frumvarpa um innleið- ingu tilskipunar um raf- ræn viðskipti höfðu Norðurlöndin nokkurt samráð. Norðmenn og Finnar fóru þá leið að skilgreina nánar í hvenær hýs- ingaraðili gæti orðið ábyrgur en til- skipunin mælir fyrir um, líkt og við Íslendingar. Danir og Svíar lögðu aft- ur á móti til að tilskipunin yrði inn- leidd með svipuðu orðalagi og kemur fram í tilskipuninni sjálfri. Lögin um rafræn viðskipti auð- velda eigendum tónverka svo dæmi sé tekið að fá sjóræningjatónlist fjar- lægða af íslenskum netþjónum. Hvers vegna var ákveðið að einungis rétthafar höfundarréttar gætu náð rétti sínum fram með sérlega skjót- um hætti, þ.e. án þess að fara fyrir dómstóla eða leita lögbanns, en ekki til dæmis þeir sem telja sig hafa orðið fyrir ærumeiðingum á Netinu eða innrás í einkalíf sitt? Reynslan hefur sýnt að brot gegn höfundarrétti á Netinu geta valdið gífurlegu fjárhagslegu tjóni á skömmum tíma. Því var talið skyn- samlegt að mæla fyrir um að rétt- hafar sem telja rétt á sér brotinn hefðu afar skjóta leið til að fá úrlausn sinna mála, þ.e. án þess að fara fyrir dómstóla eða leita lög- banns. Ætíð er hætt við misnotkun slíkra möguleika og unnt að sjá fyrir sér að keppi- nautur noti þá til að hindra dreifingu efnis. Því eru í lögunum ákvæði sem mæla fyrir um skaðabótaskyldu þeirra sem setja fram óréttmæta tilkynningu sem leiðir til fjarlæg- ingar efnis. Á hinn bóg- inn var talið að slíkt ákvæði myndi ekki koma á sama hátt í veg fyrir óréttmætar til- kynningar um æru- meiðingar eða brot gegn friðhelgi einkalífs. Einnig er hér til þess að líta að meint ærumeiðingarbrot hafa al- mennt í för með sér spurningu um tjáningarfrelsi. Því var ekki talið rétt að unnt væri að hefta tjáningarfrelsi manna með tilkynningu til þjónustu- veitenda, án þess að dómstóll eða sýslumaður hefði fjallað um málið. Skylda á milliliði að fjarlægja ólögmætt efni Aðgangur barna og unglinga að klámi og ofbeldisefni á Netinu er mörgum áhyggjuefni. Hvers vegna er ekki tekið á þessu í lögunum þótt framboð á slíku efni hljóti að teljast falla undir rafræna þjónustu? Með lögunum um rafræn viðskipti var lagður til ákveðinn grunnur að viðskiptalöggjöf á þessu sviði. Engu að síður er tekið á aðgangi að ólög- mætu efni í lögunum á tiltekinn hátt. Í þeim er lögð sú skylda á svokallaða milliliði að fjarlægja slíkt efni eða hindra aðgang að því án tafar, að ákveðnum skilyrðum fullnægðum. Nefndin sem vann frumvarpið á veg- um viðskiptaráðherra hafði það hlut- verk að gera tillögu að innleiðingu til- skipunar um rafræn viðskipti, en þar er ekki tekið með öðrum hætti en að framan greinir á aðgangi barna og unglinga að klámi og ofbeldisverkum. Hafa lögin áhrif á réttarstöðu ís- lenskra neytenda sem kynnu að vilja kaupa inn á Netinu erlendis frá? Helstu áhrif tilskipunar um rafræn viðskipti á réttarstöðu íslenskra neytenda sem kaupa inn á Netinu er- lendis frá eru þau að þjónustuveit- endur á evrópska efnahagssvæðinu þurfa að veita tilteknar upplýsingar um sig. Einnig ber þeim að veita upp- lýsingar í tengslum við pöntun. Það er hins vegar að meginstefnu til á ábyrgð stjórnvalda í hverju landi fyr- ir sig að sjá til þess að þjónustuveit- endur fari að landslögum. Fljótleg skoðun á íslenskum net- miðlum sýnir að víða skortir á að full- nægjandi upplýsingar séu veittar um hverjir standi að upplýsingamiðlun- inni eins og lögin mæla þó fyrir um. Samkvæmt lögunum er eftirlit að þessu leyti í höndum Samkeppnis- stofnunar. Mun ráðuneytið samt sem áður freista þess að kynna hinar nýju skyldur fyrir þeim sem í hlut eiga? Ráðuneytið hefur nú þegar leitast við að kynna hin nýju lög. Þannig hef- ur ráðuneytið kynnt frumvarpið á fjölsóttum ráðstefnum og fundum, sem sóttir hafa verið af hagsmuna- aðilum. Tilskipun ESB hefur að geyma ákvæði um óumbeðnar viðskiptaorð- sendingar, öðru nafni ruslpóst. Hefur setning nýju laganna einhver áhrif á réttarstöðuna hér á landi að þessu leyti? Ekki að öðru leyti en því að sam- kvæmt ákvæðum laganna ber að geta þess í efnislínu póstsins að um óum- beðinn tölvupóst sé að ræða. Jónína S. Lárusdóttir Jónína S. Lárusdóttir, lögfræðingur í viðskiptaráðuneytinu Áhersla á höfundarrétt Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.is Mestu töfrar heimsins í Austurlöndum:Ferð allra tíma Bali-Singapore-Malasía 8. nóv. FÁIÐ NÁNARI FERÐALÝSINGU Á SKRIFST. PÖNTUNARSÍMI: 56 20 400 Þegar veturinn með kulda og myrkur leggst að, kemstu burt á dýrðlegustu ferðastaði heimsins fyrir fáránlega lágt verð í 17 sæludaga. Flug Flugleiða og SINGAPORE AIRLINES, margvalið besta flugfélag heims. Íslensk hágæðafararstjórn Sigmundar, aðeins gist á 5* hótelum m. morgunverði: 2 d. SINGAPORE MANDARIN, eitt af leiðandi hótelum heims- ins í hreinlegustu borg veraldar. MALASÍA: HÖLL GYLLTU HESTANNA, heimsfrægt hótel í undurfögru umhverfi í KUALA LUMPUR, 3 d. Í lokin töfraeyja guðanna - yfir- jarðnesk fegurð B A L I með 9 d. dvöl á einu besta hóteli heims NIKKO BALI HOTEL með unaðsfögrum görðum og 7 sundlaugum við fegurstu einkaströnd á NUSA DUA. ÞETTA ER TOPPURINN Á FERÐALÖGUM! GRÍPTU TÆKIFÆRI LÍFS ÞÍNS Nú eru aðeins 8 sæti eftir - tryggðu þér þátttöku strax! ATH. ÞÚ FINNUR EKKI SAMBÆRILEGA FERÐ ANNARS STAÐAR, með nærri 30 þús. km flugi og öllu ofantöldu innifalið, en láttu okkur vita, hvað þú finnur fyrir sambærilegt verð, aðeins kr.11.000 á dag að meðaltali! TILBOÐ ÓSKAST í Mercury Mountainer árgerð 1997 vél V-8 5,0 l. (ekinn 49 þús. mílur), Pontiac Grand Am. árgerð 1995 og aðrar bifreiðar, er verða sýndar að Grensásvegi 9 þriðjudaginn 3. september kl. 12-15. VÖRUBIFREIÐ Ennfremur óskast tilboð í Renault Midliner M 210 vörubifreið árgerð 1994 (ekinn 90 þús. km.) Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16. UMSÝSLUSTOFNUN VARNARMÁLA SALA VARNARLIÐSEIGNA ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.