Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 25.08.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ BOGI Sigurðsson úr Vestmanna- eyjum veiddi rúmlega 86 kílóa lúðu á stöng úti fyrir Bolungarvík á sjó- stangaveiðimóti sem Sjóstanga- veiðifélag Ísfirðinga, Sjóís, stóð fyr- ir 4.–5. júlí árið 1986. Að sögn Þóris Sveinssonar, formanns Sjóís, er það líklega stærsta lúða sem veiðst hef- ur á stöng á viðurkenndu sjóstanga- veiðimóti við Ísland. Í Morgunblaðinu sl. fimmtudag var greint frá því að rúmlega 80 kg lúða hefði veiðst á sjóstöng á Breiðafirði fyrir 39 árum og það væri sennileg stærsta lúða sem veiðst hefði á stöng hér við land. Bogi keppti fyrir hönd Vest- mannaeyja og tók glíman við lúðuna rösklega hálftíma, að hans sögn. Mestur var þó atgangurinn á borðstokknum en að lokum tókst að rota skepnuna, sem var 186 cm á lengd, þar sem hún lá ofan á Boga. Hann minnist þess að 12 árum áð- ur hafi hann og félagi hans verið á veiðum á lítilli trillu skammt undan Bjarnarey þegar félagi hans, Sveinn Jónsson, setti í lúðu sem vó 74 kg. Bogi segir að lúðan hafi látið öllum illum látum og þeir hafi jafnvel haldið að hún myndi brjóta trilluna í spón. Þegar glímunni við lúðuna lauk sneri Bogi sér að félaga sínum og sagði: „Ég skal taka ömmuna einhvern tímann,“ rifjar hann upp, og bendir á að sá spádómur hafi ræst 12 árum síðar. Þess má að lokum geta að Bogi hefur verið fengsæll sjóstanga- veiðimaður í gegnum tíðina og á hvítasunnumóti Sjóstanga- veiðifélags Vestmannaeyja fyrr á árinu veiddi hann þorsk sem vó 15 kg. „Ég skal taka ömmuna ein- hvern tímann“ Frá vinstri: Örn Úlfar Andrésson, Lárus Einarsson og Bogi Sigurðsson, sem kepptu fyrir Sjóstangaveiðifélag Vestmannaeyja, með lúðuna góðu. Á myndina vantar Arnþór Sigurðsson, sem keppti með þeim í sveitinni. 86 kílóa lúða veiddist úti fyrir Bolungarvík 1986 HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR í Reykjavík íhugar, fyrir hönd skjól- stæðings síns, að höfða skaðabóta- mál á hendur dómsmálaráðuneytinu fyrir að hafa ekki veitt skjólstæð- ingnum gjafsókn í tilteknu dóms- máli. Hyggst lögmaður byggja mál- sókn sína á áliti sem umboðsmaður Alþingis skilaði af sér í júní á síðasta ári þess efnis að synjun dómsmála- ráðuneytisins um gjafsókn hefði ekki verið í samræmi við lög. Heldur lögmaðurinn því fram að ráðuneyt- ið, sem og gjafsóknarnefnd, hafi hunsað álit umboðsmanns. Umboðsmaður skilaði álitinu af sér í júní 2001. Málið snerist um karlmann á fimmtugsaldri sem kvartaði yfir synjun ráðuneytisins á umsókn hans um gjafsókn í tilefni af málshöfðun hans gegn Landspítal- anum og Sjóvá-Almennum vegna meints skorts á upplýsingagjöf læknis um mögulegar afleiðingar aðgerðar sem hann gekkst undir vegna krabbameins í endaþarmi og meinvarps í lifur. Eftir aðgerðina missti maðurinn kyngetuna og þurfti að ganga með stomabúnað. Tapaði hann dómsmálinu bæði í hér- aði og fyrir Hæstarétti og var dæmdur til að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti. Synjun ráðuneytisins á gjafsókn var alfarið byggð á því að skilyrði um meðferð einkamála, um að mál- staður mannsins gæfi tilefni til málshöfðunar, hefði ekki verið upp- fyllt. Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu að ráðuneytinu hefði verið óheimilt að hafna beiðni mannsins um gjafsókn. Taldi um- boðsmaður að gjafsóknarnefnd hefði gengið lengra en heimilt var við úrlausn málsins og af gögnum mætti ráða að raunverulegur vafi hefði leikið á því að maðurinn hefði fengið fullnægjandi upplýsingar frá lækni um afleiðingar skurðaðgerð- arinnar. Ekki hefði t.d. verið skráð í sjúkraskrá mannsins að hann hefði fengið upplýsingar frá lækninum, eins og lög um réttindi sjúklinga kveða á um. Taldi umboðsmaður, með vísan til tiltekins máls fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu, að það væri ekki í verkahring stjórn- valda að taka afstöðu til sönnunar- atriða í málum sem þessum. Úr- lausn um raunverulegan sönnunar- vanda og lagalegan ágreining ætti þannig að vera í höndum dómstóla þegar beiðni um gjafsókn væri af- greidd. Var því beint til ráðuneytisins að taka mál mannsins til endurskoðun- ar kæmi fram sú ósk og meðferð þá hagað í samræmi við sjónarmiðin sem rakin voru í áliti umboðsmanns. Lögmaðurinn, Sigurður Georgs- son, sagðist í samtali við Morgun- blaðið hafa sent dómsmálaráðuneyt- inu bréf í júlí 2001 þar sem hann ítrekaði beiðni skjólstæðings síns um gjafsókn, í samræmi við niður- stöðu umboðsmanns. Í nóvember í fyrra, þegar ráðuneytið hafði ekki farið að tilmælum umboðsmanns, ritaði Sigurður umboðsmanni bréf þar sem vakin var athygli hans á tregðu ráðuneytisins. Sagðist Sig- urður hafa ítrekað sent ráðuneytinu bréf og einnig átt samtal við Sól- veigu Pétursdóttur dómsmálaráð- herra, án þess að nokkuð hefði gerst. Eftir málaleitan umboðs- manns fékk Sigurður svar frá ráðu- neytinu í janúar á þessu ári, eða hálfu ári eftir að farið var fram á viðbrögð við álitinu. Hafnaði ráðu- neytið að nýju beiðni um gjafsókn, með vísan til umsagnar gjafsóknar- nefndar. Sigurður sagði að í því bréfi hefði verið um endurtekningu á fyrri umsögn að ræða og ekki vikið einu orði að áliti umboðsmanns Al- þingis. Sagðist hann hafa vakið at- hygli umboðsmanns á svarbréfi ráðuneytisins. „Frá því í janúar hefur ekkert gerst og ég er undrandi á viðbrögð- um ráðuneytisins. Það er í rauninni ekkert annað að gera í stöðunni en að fara með málið fyrir dómstóla og fá úr því skorið hvor aðilinn hefur rétt fyrir sér, um- boðsmaður Alþingis eða dómsmála- ráðuneytið. Þá færum við fram á bætur sem nema málskostnaði í hér- aði, á þeim grundvelli að umboðs- maður álíti að ráðuneytið hafi brotið lög með því að neita gjafsókn,“ sagði Sigurður. Umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki geta tjáð sig efn- islega um þetta mál. Sagðist hann hafa ritað Sigurði bréf fyrr á þessu ári um að hann myndi ekki aðhafast frekar í málinu. Lögmaður íhugar, fyrir hönd skjólstæðings, skaðabótamál á hendur dómsmálaráðuneytinu Segir ráðuneytið hafa hunsað álit um- boðsmanns Alþingis BIRGITTA Hoberg, sérfræðingur á vegum sænska þjóðminjavarðar- embættisins í Stokkhólmi, er stödd hér á landi um þessar mundir til að veita ráðgjöf í tengslum við umsókn Íslendinga um að Þingvellir og Skaftafell verði tilgreind á heims- minjaskrá Sameinuðu þjóðanna eftir þrjú ár. Hoberg er viðurkenndur sérfræðingur á þessu sviði og hefur hún m.a. unnið að því að sækja um fyrir þá tólf staði sem eru á heims- minjaskrá í Svíþjóð. Ríkisstjórnin samþykkti í desem- ber í fyrra að óska eftir að Þingvellir og Skaftafell yrðu tilgreind á heims- minjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Skila þarf inn ítarlegri og flókinni umsókn til Nefndar um arfleifð þjóð- anna, og er Hoberg stödd hér á landi til að aðstoða Íslendinga í undirbún- ingsferlinu sem fram undan er áður en formleg umsókn verður lögð inn. Margrét Hallgrímsdóttir þjóð- minjavörður, sem jafnframt er for- maður samráðshóps sem undirbýr umsóknina, segir að stefnt sé að því að senda inn umsókn eigi síðar en 2004. Gangi allt að óskum ættu Þing- vellir og Skaftafell að komast á heimsminja- skrá um mitt ár 2005. Hún bendir á að Ís- land sé eitt af síðustu ríkjum í Evrópu sem ekki á svæði á heims- minjaskrá. Hún segir mjög tímabært að t.a.m. Þingvellir komist á skrána og að beðið sé eftir því með eftirvænt- ingu. Kortleggja þarf allar minjar Hoberg er stödd hér á landi í boði Þjóðminja- safns Íslands. Hún mun hitta sam- starfshópinn og þær stofnanir sem hafa með undirbúning umsóknarinn- ar að gera en nauðsynlegt er að kort- leggja allar minjar, mörk og vernd- arsvæði, auk þess sem gera þarf rekstraráætlun, gróðurkort, sagn- fræðiútdrátt o.fl. í tengslum við um- sóknina. Hoberg segist bjartsýn á að Íslend- ingar geti lagt inn um- sókn á tilsettum tíma en bendir á að henni fylgi mikill kostnaður. Að auki sé nauðsyn- legt að íbúar á þeim svæðum sem heims- minjaskráin nái til taki þátt í undirbúningnum og að þjóðir séu með- vitaðar um hvað felst í því að tiltekinn staður sé á slíkri skrá. „Þessu verður að leysa úr ef það á að sækja um fyrir 1. febr- úar 2004,“ segir hún. Hoberg hefur, eins og áður segir, stýrt umsóknarferli Svía í tengslum við þá tólf staði í landinu sem eru á heimsminjaskránni. Mjög vel hefur tekist til með afgreiðslu umsóknanna og hefur Hoberg einnig aðstoðað þjóðir í Afríku við undirbúning um- sókna. Íslendingar fá ráðgjöf vegna umsóknar í tengslum við heimsminjaskrá UNESCO Bjartsýn á að hægt sé að leggja inn umsókn 2004 Birgitta Hoberg Lausum kennslu- stofum fjölgað ÞRJÁR lausar kennslustofur munu bætast við grunnskóla Reykjanesbæjar fyrir skóla- árið 2002–2003. Þetta kemur fram á heimasíðu Reykjanes- bæjar, www.reykjanesbaer.is. Við Heiðarskóla hefur verið bætt einni lausri kennslustofu og tvær slíkar voru settar upp við Holtaskóla í gær til þess að mæta vaxandi nemenda- fjölda. Þar með eru lausar stofur orðnar fimm í bænum, enda styttist í að undirbún- ingur nýrrar skólabyggingar hefjist. Gert er ráð fyrir að nýr skóli rísi í Innri-Njarðvík inn- an fárra ára.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.